19.9.2014 | 21:10
Fólk er undir fátæktarmörkum/Þetta er skildulesning,ekki spurning?????
Fólk er undir fátæktarmörkum Innlent | mbl | 19.9.2014 | 19:02 Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er hugsuð sem úrslitaúrræði... Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er ekki viðunandi.
Fólk er undir fátæktarmörkum þar, segir Hanna Björnsdóttir, félagsráðgjafi og skýrsluhöfundur nýrrar skýrslu um viðunandi framfærslu hér á landi, sem kynnt var á ráðstefnu EAPN (European Anti Poverty Network) fyrr í dag.
EAPN er evrópskt tengslanet frjálsra félagasamtaka sem hafa það að markmiði að þrýsta á og kynna stjórnvöldum og stofnunum leiðir til að þróa og beita árangursríkum aðferðum gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Mynd/âEAPN Á síðasta ári hófst vinna að svokölluðu EMIN verkefni, en það er tveggja ára verkefni tengslanetsins þar sem leitast er við að finna út hvað þarf í hverju Evrópuríki fyrir sig til að fólk geti lifað mannsæmandi lífi.
EMINverkefnið er unnið með stuðningi frá framkvæmdastjórn ESB. Við erum alltaf svolítið eftir á Það er ýmislegt sem er öðruvísi hér.
Við viljum bera okkur saman við Norðurlöndin en erum alltaf svolítið eftir á virðist vera, segir Hanna, en hún skoðaði heimildir, lög og reglugerðir og fann út hver staða fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga hér á landi væri.
Ég tók líka viðtöl við aðila frá ríki og bæ og fólk sem hefur upplifað fátækt og setti þetta allt saman í eina skýrslu. Verið er að gera sambærilegar skýrslur í öllum Evrópulöndum.
Eftir að hafa farið yfir gögnin komst Hanna að því að reglurnar og heimildirnar eru mjög mismunandi um landið.
Þá er ekkert sveitarfélaganna í landinu með sömu upphæð í fjárhagsaðstoð.
Það er enginn jöfnuður. Upphæðin er hæst í Reykjavík þar sem hún er rúmar 169 þúsund krónur, en lægst í Reykjanesbæ þar sem hún er ekki nema 129 þúsund krónur.
Það er ekki sama hvar þú býrð, segir hún.
Segir mannréttindalög á fólki brotin Vandamálið hér á Íslandi er að sveitafélögin hafa sterkan sjálfsákvörðunarrétt.
Þeim var skylt að gera reglur um fjárhagsaðstoð og fengu sendar leiðbeiningarreglur frá ráðuneytinu til þess.
Þessar reglur eru orðnar úreltar í dag, segir Hanna. Við höfum mannréttindalög og ýmislegt annað sem verið er að brjóta á þessu fólki.
Það þurfa allir að geta notið sín og lifað sómasamlegu lífi með virðingu.
Hanna segir mikilvægt að nýta þann glugga sem er opinn núna og koma þessum málum í farveg.
Það var talað um það að nú væru opnir gluggar vegna þess að það er verið að endurskoða almannatryggingalöggjöfina og það er verið að endurskoða lög um félagsþjónustu sveitafélaganna til dæmis, segir hún.
Við verðum að nýta okkur það. Leggja til að hafa Evrópustaðla um lágmarks framfærslu Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Per K. Larsen, formaður EAPN í Danmörku.
Á ráðstefnunni talaði ég um tillögur frá EMIN um það að einhvers konar staðlar ættu að vera í Evrópu fyrir lágmarks framfærslu, sem eru á hóflegu stigi en gera fólki kleift að lifa lífinu með reisn og vera hluti af samfélaginu, segir hann í samtali við mbl.is.
Við sjáum nefnilega að það sem er að gerast í öllum Evrópulöndunum er að á meðan frjálsi markaðurinn er að þróast í jákvæða átt þá er samdráttur í félagslegum stöðlum og lífskjörum.
Þess vegna mælum við með því að lágmarks framfærslan sé endurskoðuð í hverju landi fyrir sig og hún
geri það að verkum að fólk þurfi ekki að lifa í fátækt.///////////////////Þetta er þarft umræðuefni,og þarf að gera meir af því ,þetta er ljóti bletturinn sem því miður víðast ef ekki alstaðar,svo ég tali nú bara um Ísland að mestu er þetta því miður orðið tímabært að tala meira um,það búa hér í landi þrjár gerðir íbúa Ríkt fólk og millistétt og svo fátækt fólk,þarna eru við þó betur sett en margar aðrar þjóðir,því neyðarhjálpin nær að bjarga miklu,en það er ekki að gerst nema í ,einkageiranum og Borginni og Sveitafélög ,Súpugjafir og matargjafir og Borgin okkar,en þetta er ekki nóg það þarf að reka af okkur slitruorðið og gera eitthvað rótækt í hlutunum ,og það um allt landið,auka laun þeirra sem eru láglaunafólk til muna og svo eygst atvinna og atvinnuleysið hverfur,og siðan er það Eldri Borgara og Öryrkjar,og allavega fólk sem ekki getur unnið,þarf að fá sitt,ég veit að málið er stórt en hvað,þegar menn eins og Landbúnaðar og sjávararútvegs ráðherra við T.D. eyða milljónum í að færa Fiskistofu,og halda áfram að styrkja bændur um milljarða er það ekki betra að eyða þessari fátækt með þeim og mörgu öðru sem er verið að bruðla með eins og Þjókirkjuna einnig,þar með er málið leist/Halli gamli
Fólk er undir fátæktarmörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.