19.10.2014 | 15:24
Þannig að hér heilsast engir/e-bólan er ekkert grín lengur púra alvara!!!!!!
Þannig að hér heilsast engir Innlent | mbl | 19.10.2014 | 12:45 Gísli Rafn Ólafsson að störfum á hamfarasvæðinu í Haítí... Alls staðar þar sem ég fer er líkamshiti minn mældur og ég þarf að þrífa bæði skó og hendur með sótthreinsandi efnum.
Öll líkamleg snerting er bönnuð, þannig að hér heilsast engir, segir Gísli Ólafsson sem er í Líberíu.höfuðborg Líberíu, ástandinu.
Landið hefur orðið hvað verst úti í ebólufaraldrinum og hundruð manna látist.
Gísli starfar fyrir hjálparsamtökin NetHope og er hlutverk hans m.a. að gera úttekt á fjarskiptakerfi landsins.
Hann hefur oftsinnis aðstoðað á hamfarasvæðum víða um heim.
Gísli býr á hóteli sem uppfyllir allar þær kröfur sem sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna gera varðandi ástand og öryggismál.
Ég er ekki neins staðar nálægt því þar sem verið er að meðhöndla sjúklinga.
Ég er einungis á fundum með viðbragðsaðilum, fulltrúum ríkisstjórnarinnar og fjarskiptafyrirtækja.
Ástandið í Líberíu fer sífellt versnandi. Tæplega 4.300 manns hafa smitast af ebóluveirunni og um 2.500 látist. Útimarkaður í Monróvíu. Útimarkaður í Monróvíu.
AFP Í landi þar sem fyrir voru einungis 50 læknar fyrir 3,9 milljónir íbúa er ansi erfitt að hemja útbreiðslu veirunnar, segir Gísli. Fjöldi hjálparstofnana hefur verið hér frá því í vor þegar ebóla skaut fyrst upp kollinum og á síðustu
vikum hefur hjálparstarfsmönnum fjölgað verulega. Enn vantar þó stórlega upp á að nægilega mikið af læknum og hjúkrunarfólki sé til þess að sinna sjúkum.
Allt kallar þetta á góða samhæfingu og samskipti á milli þeirra mörgu hjálparstarfsmanna og ríkisstarfsmanna sem vinna við að koma böndum á útbreiðslu veirunnar.
Fjarskipta- og upplýsingatæknikerfi landsins eru hins vegar einnig á frekar einföldu stigi, sér í lagi á dreifbýlum svæðum utan höfuðborgarinnar Monróvíu, segir Gísli.
Hlutverk NetHope, hjálparsamtakanna sem hann starfar fyrir, er að samhæfa alla þætti sem snúa að fjarskipta- og upplýsingatækninni.
Við vinnum með samstarfsaðilum okkar, sem eru yfir fjörutíu af stærstu hjálparsamtökum í heimi, m.a. Rauði krossinn, Barnaheill og SOS Barnaþorp, og leitum leiða til þess að koma á fjarskiptum og einfalda miðlun upplýsinga á milli hjálparsamtaka.
Vilja bæta samskipti á hamfarasvæðum NetHope vinnur einnig mjög náið með fjarskiptafyrirtækjum í landinu og stórfyrirtækjum í upplýsingatæknigeiranum um allan heim við að finna leiðir til þess að bæta fjarskipta- og upplýsingatækikerfi. Þetta er auðvitað líka gert í góðri samvinnu við ríkisstjórn landsins og vinnan er studd af stórfyrirtækjum
, góðgerðarsjóðum og af bandaríska ríkinu. Gísli á Haítí. Gísli á Haítí. Mitt hlutverk í þessari ferð hefur verið að gera úttekt á stöðu fjarskiptakerfisins.
Verður skýrslan sem ég tek saman kynnt í Hvíta húsinu í næstu viku á fundi sem helstu stjórnendur stærstu upplýsinga- og fjarskiptafyrirtækja heims sitja.
Á þeim fundi verður rætt hvernig tæknin getur aðstoðað í baráttunni við ebólu. Oftsinnis aðstoðað á hamfarasvæðum Hjálparstarf sem þetta er ekkert nýtt fyrir Gísla.
Fyrir tveimur áratugum byrjaði hann sem sjálfboðaliði í Björgunarsveit Hafnarfjarðar og var síðar virkur í björgunarsveitum í Bandaríkjunum þar sem hann bjó um tíma.
Undanfarin níu ár hefur þó fókusinn verið meira á björgunarstarf á erlendum vettvangi og hef ég í því sambandi tekið þátt í skipulagi og viðbragði við ýmsum stærstu hamförum undanfarinn áratug, m.a. fellibylnum Haiyan á Filippseyjum í nóvember í fyrra og jarðskjálftanum og flóðbylgjunni í Japan árið 2011.
Gísli á hamfarasvæði í Japan eftir jarðskjálftana og flóðbylgjuna árið 2011.
Gísli á hamfarasvæði í Japan eftir jarðskjálftana og flóðbylgjuna árið 2011.
Ég var jafnframt stjórnandi íslensku alþjóðbjörgunarsveitarinnar þegar hún fór til Haítí eftir jarðskjálftann mikla þar árið 2010.
Gísli hefur ekki áður verið í Líberíu en hefur margsinnis komið til Afríku.
Fyrsta alþjóðlega útkallið mitt var þó ekki fjarri Líberíu.
Það var í flóðum í Gana árið 2007, en þar fór ég á vegum Sameinuðu þjóðanna. Frétt mbl.is: Gísli Rafn
segist fara að öllu með gát//////////////////Það má segja að þarna sjáum við hvað þetta er alvarlegt!!,Þessi Gísli Ólafsson er klár og mikið mark á honum tekið,og eftir að hafa lesið þetta allt sem þið eigið að gera,þvílíkt að vera þarna innann um þetta allt,hlýtur að vekja hvern mann, til að gera allt ,sem hægt er til að koma í veg fyrir smit og fólk komist inn í Vesturlönd til að alt fari ekki í það versta,þar ég er ekki ánægður með mína menn á Íslandi sem eiga að sjá um þessi mál brugðust seint við ,og ekkert komið sem sannfærir okkur um að það sé nokkurt öryggi í því,"Veldur hver á heldur"Segir máltækið,og við verðum að segja að þar eru Heilbrygðisráðherra Landlæknir og Haraldur Smitsjúkdóma læknir að mér finnst bara hörmulegir!! en við biðjum um betri viðbrögð//Halli gamli
Þannig að hér heilsast engir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:25 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig væri að hætta að endursegja fréttir, þetta er að verða hálf leiðinlegt til lestrar þetta blogg þitt Halli minn.
Árni Karl Ellertsson, 19.10.2014 kl. 16:15
Einfalt Árni vertu þá ekkert að lesa þetta,ég krifa um það sem mér finnst áhugavert,kveðja
Haraldur Haraldsson, 19.10.2014 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.