21.10.2014 | 16:33
Kærir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins//MS Ríkið í Ríkinu það má ekki snerta,eru menn þar ekki undir lögum eins og aðrir???
Kærir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins Innlent | mbl.is | 21.10.2014 | 16:08 Einar Sigurðsson, forstjóri MS.
Mjólkursamsalan hefur kært til áfrýjunarnefndar samkeppnismála niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá 22.september um að MS hafi misnotað markaðsráðandi stöðu.
Þess er krafist að niðurstaðan verði ógilt og sekt felld niður.á grundvelli þess að þessi niðurstaða byggi á nýrri og fordæmalausri túlkun á búvörulögum.
Auk þess telur MS að stórfelldir annmarkar séu á málsmeðferð sem ættu að verða til niðurfellingar málsins.
Ella setji niðurstaða eftirlitsins samstarf um kostnaðarlækkun í mjólkuriðnaði í uppnám, að því er segir í tilkynningu frá MS.
Byggir á grundvallarmisskilningi MS telur að málflutningur Samkeppniseftirlitsins, um að félagið hafi veitt fyrirtækjum mismunandi viðskiptakjör í sams konar viðskiptum, byggi á grundvallarmisskilningi um eðli þessara viðskipta.
Eftirlitið leggur að jöfnu mjög ólík viðskipti.
Annars vegar sölu MS á mjólk til fyrirtækis sem hefur frjálsar hendur um í hvaða afurðir hún er sett og hins vegar miðlun á mjólk til samstarfsfyrirtækja MS sem hafa fallist á að framleiða einungis vörur sem gefa minna af sér.
Þeim er bætt það upp með því að miðla til þeirra takmörkuðu magni mjólkur á innvigtunarverði bænda. Þetta fyrirkomulag var viðhaft til að hægt væri að einfalda vinnslukerfi og lækka kostnað í vinnslu afurða.
Ábata af því er skilað til neytenda og til bænda gegnum ákvarðanir verðlagsnefndar búvöru.
MS telur að þetta sé í raun kjarni málsins og að þetta samstarf sé að öllu leyti lögmætt samkvæmt 71. gr. búvörulaga.
Andi og markmið þeirra laga var að stuðla að bættum hag neytenda og bænda. MS telur að verulega skorti á að málið hafi verið rannsakað þannig að unnt hefði verið að taka upplýsta og rétta ákvörðun.
Engin tilraun sé gerð af hálfu Samkeppniseftirlitsins til að rannsaka rekstur þess fyrirtækis eða þeirra fyrirtækja, sem verðmismunun MS átti að hafa beinst að.
Ekkert mat er lagt á möguleg áhrif þessarar meintu verðmismunar.
Ekki er leitað neinna upplýsinga frá aðilum sem beina aðild áttu að málinu, t.d. Kaupfélagi Skagfirðinga og Vífilfelli hf., sem var helmingshluthafi í Mjólku.
Þá hafi eftirlitið í umfjöllun sinni slegið saman tveimur fyrirtækjum, sem komu fram undir vörumerki Mjólku á árinu 2009.
Loks bendir MS á að Samkeppniseftirlitið hafi ekki gætt að andmælarétti fyrirtækisins, sem skipti miklu máli þegar um svo íþyngjandi ákvörðun er að ræða sem vegur að hag félagsins og bændanna sem eiga það, segir í tilkynningunni.
Óska eftir munnlegum málflutningi fyrir áfrýjunarnefnd MS bendir einnig á í kæru sinni að Samkeppniseftirlitið hafi vanrækt að skilgreina rétt og með rökstuddum hætti þá markaði sem fyrirtæki í málinu störfuðu á.
Þetta sé grundvallaratriði þegar taka þurfi afstöðu til þess hvort markaðsráðandi staða hafi verið fyrir hendi og að slík staða hafi verið misnotuð.
Fyrirtækið minnir á nýfallinn dóm Hæstaréttar í máli annars fyrirtækis sem Samkeppniseftirlitið hafði fellt á 260 milljóna króna sekt fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Þar hafi sams konar skortur á markaðsgreiningu orðið til þess að málatilbúnaði eftirlitsins var hafnað af héraðsdómi og Hæstarétti.
MS telur að komi ekki til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar þá sé í uppnámi samstarf afurðastöðva um að lækka framleiðslukostnað til ábata fyrir neytendur og bændur.
MS telur að málið sé svo umfangsmikið og hagsmunir svo verulegir að óskað hefur verið eftir munnlegum
málflutningi fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála, segir ennfremur.//////////////////Þetta komin tími til að taka þetta einkunnarsölu strax og engum greiði gerður að hafa það Bændur tapa og við neitendur einnig,erum við virkilega ekki sammála með það,þetta hlýtur að fá flýtimeðferð að vera á móti Neytendum og Bændunum sjálfum sem við almenningur greiðum mjólkina niður,þessi mál eigum við sem kaupum hana að hafa í hendi okkar,ef ekki annað er gert verðum við að hætta að kaupa þessa vöru,ekkert annað að gera/Halli gamli
Kærir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Neytendur hafa ekki tapað 1 krónu, þvert á móti hefur verðlasgnefnd haldið niðri verði til neytenda með því að ákvarða heildsöluverð á ákveðnum vörutegundum s.s nýmjólk, rjóma og fl. Þessar vörur sem undir verðlagsnefna heyra hafa aðeins hækkað um rúm 60% frá árinu 2003 á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað um rúm 100%. Áxextir og grænmeti hafa t.d. hækkað vel yfir 100 % á sama tímabili þrátt fyrir óhefta samkeppni þar.
Sigurður Baldursson, 21.10.2014 kl. 16:58
Bæði Bændur og við neytendur töpum,ekki spurnin!!!!!Kveðja
Haraldur Haraldsson, 21.10.2014 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.