21.10.2014 | 22:33
Norðurlöndin taki við Íslendingum/Það er gott að gera, ef hægt er,á meðan við erum ekki tilbúin!!!
Norðurlöndin taki við Íslendingum Innlent | mbl.is | 21.10.2014 | 21:21 Grunnþáttur viðbúnaðar gegn ebólu beinist að því að koma í... Viðamikil vinna við gerð áætlana gegn ebólu hér á landi hefur staðið yfir á undanförnum mánuðum.
Núverandi áætlanir miða að því að reyna að flytja Íslendinga sem veikjast erlendis til sérhæfðra sjúkrahúsa á Norðurlöndunum.
Takist það ekki verða þeir fluttir með sérhæfðum flugvélum á Landspítalann.Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa lagt áherslu á að Íslendingar ferðist ekki að nauðsynjalausu til landa í Vestur Afríku þar sem ebólan geisar, þ.e. Síerra Leóne, Gíneu, Líberíu og Nígeríu.
Einnig að íslenskir hjálparstarfsmenn sem kunni að vinna með ebólusjúklinga dveljist utan ebólusýktra svæða í þrjár vikur fyrir heimferð til Íslands. Þetta kemur fram á vef landlæknisembættisins. Þar segir, að vinna við gerð áætlana hafi að mestu farið fram á Landspítala og einnig hjá sóttvarnalækni í samvinnu við ýmsa lykilaðila í samfélaginu.
Hún byggi á nokkrum sviðsmyndum um hvernig sjúklingar með ebólu geti komið hingað til lands, hvernig meðferð þeirra yrði háttað og hvernig komið yrði í veg fyrir frekari útbreiðslu innanlands.
Hafa keypt birgðir af viðeigandi hlífðarfatnaði Til að koma í veg fyrir útbreiðslu ebólu hér á landi þurfi allir að vera vel upplýstir um sjúkdóminn og smitleiðir hans, og heilbrigðisstarfsmenn að vera þjálfaðir í réttri notkun hlífðarbúnaðar.
Kjarninn í viðbragðsáætlunum felst í því að geta brugðist við ef ebóla berst hingð til lands, að greina sýkta einstaklinga eins fljótt og auðið er, að tryggja viðeigandi meðferð þeirra og að koma í veg fyrir smit til annarra, að því er segir á vef embættisins.
Þá segir, að nú þegar hafi verið keyptar birgðir af viðeigandi hlífðarbúnaði hér á landi og fyrirhugað sé að bæta við þær birgðir á næstunni.
Sóttvarnalæknir og Landspítali munu á næstunni standa fyrir kennslu heilbrigðisstarfsmanna, sjúkraflutningamanna, lögreglu og annarra viðeigandi aðila um rétta notkun hlífðarbúnaðar.
Þessir aðilar munu síðan geta kennt öðrum aðilum í samfélaginu rétta notkun slíks búnaðar eins og þurfa þykir.
Á þann hátt er best tryggt að útbreiðslu ebólu verði haldið í lágmarki ef hún skyldi berast hingað til lands.
Einnig er unnið að sérstakri aðstöðu og viðbúnaði á Keflavíkurflugvelli, að því er embættið segir.
Veikur flugfarþegi fær meðferð um borð vélarinnar Á heimasíðu embættisins er m.a. fjallað um það hvernig bregðast skuli við ef einstaklingur grunaður um ebólu veikist í flugi til Íslands.
Ef svo ólíklega skyldi vilja til að einstaklingur sýktur af ebólu veikist í flugi til Íslands, þá mun hann fá meðferð um borð í vélinni og einnig í Leifsstöð samkvæmt viðbragðsáætlunum sem gerðar hafa verið og birtar á heimasíðu Embættis landlæknis.
Áhöfn og farþegar sem komast hafa í nána snertingu við hinn sýkta verða skráðir sérstaklega og þeim
gefnar ráðleggingar um sérstakt eftirlit í framhaldinu, segir landlæknisembættið./////////////////////////////////////Jæja loksins er komin alvarleg ,vakning um þennan vágest,sem engu eyrir nema, dauðanum í flestum tilfellum,en það þurfti mikið til þessa og kostar auðvitað peninga!! og þessi aðferð okkar ef Íslendingur veikist erlendi að koma honum til <<norðurlanda ef hægt er,annars sérbúnar flugvélar heim,allt þetta eru þá viðbrögð og það gott að alvöru vakning er komið á/Halli gamli
Norðurlöndin taki við Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Segir að friði verði aðeins náð með afli
- Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur
- Pam Bondi næsti dómsmálaráðherra
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.