19.11.2014 | 16:02
Nýgreindir áhyggjufullir og reiðir/Þetta er sköm og ekkert annað bæði Lækna og ríkis að stoppa þetta ekki,bara í Gerðardóm með þetta
Nýgreindir áhyggjufullir og reiðir Innlent | mbl.is | 19.11.2014 | 14:53 Krabbameinssjúklingar eru sumir uggandi yfir því að eiga... Lítið hefur borið á því að notendur læknisþjónustu hafi sett sig í samband við sjúklingasamtök vegna læknaverkfallsins.
Þeir hafa hins vegar miklar áhyggur af stöðu mála almennt.
Þetta á til dæmis við um nýgreinda krabbameinssjúklinga, sem horfa fram á veginn og vita ekki hvert stefnir.
Frá því að læknar hófu verkfallsaðgerðir hafa Morgunblaðið og mbl.is haft samband við ýmis sjúklingasamtök, sem og aðra aðila sem eru í tengslum við notendur heilbrigðisþjónustu, en þeim ber saman um að fáir hafi sett sig í samband til að ræða áhyggjur sínar vegna læknaverkfallsins sem slíks.
Hins vegar segja langflestir sem haft hefur verið samband við að fjölmargir séu uggandi vegna ástandsins almennt; þess að missa lækna úr landi, að ungir læknar snúi ekki aftur eftir nám og að lyfjakostnaður fari hækkandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Ragnheiður Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, er ein þeirra sem hefur þessa sögu að segja.
Ég held að fólk átti sig á því að það þýðir ekkert að gera veður út af verkfalli lækna, það hafa allir það mikinn skilning á þeirra baráttu og þeirra kjörum.
Það höfum við hjá Krafti svo sannarlega og munum gera allt til að vekja athygli á ástandinu og höfum gert, segir Ragnheiður.
Hún segir kjarabaráttuna ekki bara fjalla um laun lækna heldur sé mun meira undir í þeim umræðum.
Ragnheiður segir skjólstæðinga Krafts hafa verulegar áhyggjur af stöðu heilbrigðiskerfisins.
Þetta bitnar mjög illa á krabbameinsveiku fólki, vegna þess að læknarnir eru að hætta þarna í umvörpum og koma ekki nýir til starfa.
Og þetta er svo sérhæft, krabbameinslækningar, segir hún.
Hún segir einn hóp skera sig úr hvað þetta varðar. Við höfum fundið fyrir verulegum áhyggjum hjá nýgreindu fólki, sem sér fram á meðferðir og skerta þjónustu og lengri bið eftir lausn sinna mála.
Eða hefur alla vegna mjög miklar áhyggjur af því. Þetta er eitthvað sem fólk þurfti aldrei að hafa áhyggjur af áður.
Ef það fékk krabbamein þá fékk það bara fyrsta flokks þjónustu alls staðar.
Nú hefur það áhyggjur af því að það gæti orðið breyting þar á, segir hún.
Ragnheiður segir að jafnvel þótt áhyggjur sjúklinga snúist ekki um verkfallið sem slíkt, sé þetta allt tengt, þar sem þau kjör sem læknum bjóðast hafi áhrif á allt annað.
Hún segist finna fyrir mikilli reiði meðal fólks. Og bara örvæntingu vegna ástandsins á spítalanum.
Sérstaklega, eins og ég segi, hjá nýgreindu fólki sem horfir fram á veginn og hefur áhyggjur af þeirri þjónustu sem það þarf jafnvel að verða af vegna þessa ástands og þess hvernig ástandið kann að verða.
Því krabbameinsmeðferð er eitthvað sem getur tekið nokkur ár og enginn veit hvernig staðan
verður á því tímabili, segir hún./////////////////////Þetta sem hér er skrifað er skyldulesning ekkert annað,við getum ekki lengur haft svona hótanir um að fara í verkfall sem kostar svo og svo mörg mannlíf,við erum þarna bara aumingjar,að taka ekki fastar á málum,þarna getur hópur lækna sem við höfum haft í lærdómi í Háskólum okkar fyrir mjög lítil pening sem við niðurgreiðsum af almannafé,og happsrætti sem við flest borgum í,er þetta ekki rétt að stærðustu leiti,svo fara þeir utan í sérnám með lánasjóðinn Lín með mjög hagstæða vexti,og þá eigum við bara að lofa þeim að fara í verkfall,eins og ekkert sé Ríkisarfsmen fá laun sín flestir með kjaradómi,og þessa vegna eigum við einnig að hafa þessa ágætu lækna undir því og óhræddir setja þetta verkfall,í kjaradóm og málið leist,ef læknar ansa þessu ekki heldur segi bara upp,eru þeir mynni menn en maður heldur,Kjaradómur á ekki að vara slæmur reiknar allt út og sér hvað menn hafa á sig lagt,og Borga samkvæmt því,en ekki hvað læknar hafa í Noregi eða Bandaríkjunum Svíþjóð og annarra landa,laun þessara landa eru einnig fyrir okkur flest mikið hærri en hér,ég held ekki að það sem talað er um að standa með læknum,er als ekki raunhæft,því aðrir með sambærilega menntun mundu þá vilja sömu laun,og þá hvað??? málið er það er hægt að hagræða þeirra vinnu mikið meira,og það ætum við að geta ,en þetta er komið nóg af,setjið á þetta lög um kjaradóm/Halli gamli
Nýgreindir áhyggjufullir og reiðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.