20.11.2014 | 13:29
Þingmenn gerast talsmenn barna/Ég hefi þá tlfiningu að þeir séu með okkur öll sem talsmenn,ekki síður Öldruðum,þeirra mál eru mjög döpur!!!
Þingmenn gerast talsmenn barna Innlent | mbl.is | 20.11.2014 | 12:52 Hanna Birna setti setti hátíðina í Laugarlækjarskóla.
Sérstakur þverpólitískur hópur þingmanna undirritaði í dag yfirlýsingu um að gerast talsmenn barna á Alþingi.
Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF, Barnaheilla og Umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og notkun hans.
Yfirlýsingin var undirrituð á afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var haldin í Laugalækjarskóla í morgun.
Hanna Birna Kristjánsdóttir setti hátíðina og lýsti afmælisár sáttmálans hafið.
Að því loknu fóru framkvæmdastjórar UNICEF og Barnaheilla ásamt umboðsmanni barna og innanríkisráðherra fyrir afmælissöng Barnasáttmálans, en Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra lék undir á píanó.
Settu upp barnagleraugu Þingmannahópinn skipa Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingar, Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Við undirritunina settu þingmennirnir upp sérstök barnagleraugu
til að muna eftir að líta á málin frá sjónarhorni barna. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra lék undir afmælissöngnum. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra lék undir afmælissöngnum.
Ljósmynd/​UNICEF Ég er stolt af því að tilheyra þessum hópi og mun framvegis setja upp barnagleraugun við úrvinnslu mála sem snerta börn og velferð þeirra, sagði Elín Hirst við undirritunina.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata tók í sama streng og beindi orðum sínum til barnanna á staðnum.
Þegar við mótum lög munum við hafa það í huga að þau hafa áhrif á ykkur, öll lög hafa áhrif á ykkur.
Sjónarmið barna komist á framfæri Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi sagði undirritunina afar gleðilegan áfanga.
Börn eiga sér oft fáa málsvara.
Því er einstaklega ánægjulegt að sáttmálanum sé gert hátt undir höfði á þessum degi og að þverpólitískur hópur þingmanna heiti börnum og réttindum þeirra stuðningi sem mun hafa áhrif um allt samfélagið, sagði Bergsteinn. Alþingi ákvað einróma að lögfesta Barnasáttmálann í febrúar 2013.
Þar sem engin ein þingnefnd á Alþingi hefur það hlutverk að fjalla heildstætt um málefni barna, skapar stofnun þingmannahópsins forsendur til að vinna enn frekar að innleiðingu Barnasáttmálans á Íslandi.
Jafnframt er með honum skapaður breiður grunnur fyrir samstarf við stofnanir og félagasamtök sem vinna að málefnum barna.
Með því að gerast talsmenn barna á Alþingi er þingmönnum ennfremur gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum barna á framfæri við undirbúning lagasetningar og við stefnumótun á þingi sem og í stjórnsýslunni.
Markmiðið með þingmannahópinum er að þeir tali máli barna í starfi sínu og setji þannig upp barnagleraugun þegar teknar eru ákvarðanir á Alþingi sem varða börn með einum eða öðrum hætti.
Barnasáttmálinn er útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims og er afmæli hans fagnað um allan
heim á þessum degi.////////////////////////Þetta er ágætt mál en hvernig hefur það verið framkvæmt,sé ekki annað en þau séu murkuð niður af fjölda ríkja,á Ísandi á þetta ekki heima sem betur fer,segjum við bara,og við gerum bara það sama og Alþingismann að gefa til barnanna i Afríku og viðar til að komst á legg,en hvað tekur svo við,við skulum ekki taka þetta sem skipaleik,öll vitum við um þetta og heimurinn veit og Bandríkja menn sem 1% á 90% af auðnum talið við þá,reyndar erum við einnig að vera svo um 12% á 90% af fjarmagninu hér talið við þetta fólk um ölmusu meiri fyrir Börnin í heiminum/Halli gamli
Þingmenn gerast talsmenn barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.