Óvissa um fjölgun félagslegra íbúða/Það var nú svo,læknirin talar og talar,en ekki allt rétt því miður!!!

Óvissa umHalldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. fjölgun félagslegra íbúða Innlent | mbl.is | 2.12.2014 | 16:00 Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

„Við gætum verið í upphafi þess sem kallast bóla,“ sagði Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík á borgarstjórnarfundi í dag.

Þar fór fram seinni umræða um fjár­hags­áætl­un Reykja­vík­ur­borg­ar fyr­ir næsta ár. Halldór gagnrýndi áætlunina á fundinum.

Þá sagði hann óvissu ríkja um rekstr­ar­grund­völl fé­lags­legra leigu­íbúða og sagðist skynja mikl­ar áhyggj­ur af því hvernig farið verði að því að reisa 500 nýj­ar leigu­íbúðir á næstu fimm árum, eins og borg­ar­ráð hef­ur samþykkt að gera.

„Það er mik­il óvissa um hvernig eigi að fram­kvæma þetta.

Það var sett fram til­laga með til­vís­un í hug­mynd­ir að stefnu sem er ekki til. Að ríkið eigi að borga eitt­hvað sem ríkið hef­ur ekki ákveðið að borga.

Þetta er svo­lítið í þoku fyr­ir mér.“

Þá sagði hann fé­lags­bú­staði ekki standa nægi­lega vel.

„Eins og sjóðstreymið er núna er veltu­féð of lágt og dug­ar ekki til.“

Hall­dór varpaði fram þeirri spurn­ingu hvað myndi ger­ast ef hús­næðismálaráðherra „ger­ir ekk­ert.

Ætlar meiri­hlut­inn þá að falla frá því að reisa 500 nýj­ar leigu­íbúðir?“ Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, svaraði Hall­dóri og sagði það vissu­lega áhættuþátt við upp­bygg­ingu fé­lags­hús­næðis að ráðherra myndi ekki fara að orðum sín­um.

„En í þeim viðræðum sem ég hef átt við ráðherra hef ég ekki fundið annað en metnað og vilja til

að standa við stóru orðin og ég get ekki annað en treyst því.“/////////////Það grunaði maður að bóla Borgarstjóra mundi ekki gera sig ,ekki spurnin það er því miður ekki !!!,við að sigla inn í kreppu að mínu áliti ef allt skal stoppað sem kemur okkur í framfarir,og meiri afköst til þessa/Halli gamli


mbl.is Óvissa um fjölgun félagslegra íbúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það grunaði maður að bóla Borgarstjóra mundi ekki gera sig ,ekki spurnin það er því miður ekki !!!,við að sigla inn í kreppu að mínu áliti ef allt skal stoppað sem kemur okkur í framfarir,og meiri afköst til þessa/Halli gamli

Verð að segja eins og er, að ég skil ekkert í þessari athugasemd. Sé þó á einstökum orðum, að þetta muni vera íslenzka (Þþ og Ðð), en hvað er höfundur að segja okkur???????? 

Sigurður Odgeirsson (IP-tala skráð) 2.12.2014 kl. 21:03

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þér fer kannski fram ef þú lest það sem skifað er umm,kveðja

Haraldur Haraldsson, 2.12.2014 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband