Segist ekki skilja ummæli Heiðars/Ég held mig skilja þau þessi slitastjón er að féflétta Bankan alveg!!!

Segist ekki skilja ummæli HeiðarsSteinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis hf. Viðskipti | mbl.is | 4.12.2014 | 22:10 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis hf.

„Við teljum að kröfuhafi sem ákveður að kaupa sig inn í slitameðferð sem er í gangi, geri það varla til þess að hleypa skiptunum í annan farveg en þann sem kröfuhafar kjósa að hafa,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitstjórnar Glitnis vegna ummæla Heiðars Más Guðjónssonar fyrr í dag.

formaður slita­stjórn­ar Glitn­is en fyrr í dag var greint frá því að Heiðar Már Guðjóns­son, hlut­hafi í Glitni hf. hafi kraf­ist gjaldþrota­skipta á fé­lag­inu.

Stein­unn seg­ir það skipta máli að Heiðar Már sé nýr kröfu­hafi, sem keypt hafi kröf­ur fyr­ir um tveim­ur mánuðum síðan.

Þá sé hann ekki stór hlut­hafi þegar bú fé­lags­ins er virt heild­stætt, en Heiðar á al­menn­ar kröf­ur í búið að fjár­hæð 3.126.694 krón­ur.

„Þetta er lág krafa í hlut­falli við heild­ar­fjár­hæð bús­ins, eða um 0,001% af heild­ar­fjár­hæð krafna,“seg­ir Stein­unn. Að henn­ar sögn hafa aðrir kröfu­haf­ar aðra skoðun á því hvernig beri að ljúka skipt­un­um.

Hún bæt­ir við að hún skilji ekki hvað Heiðari gangi til með kröfu sinni um gjaldþrota­skipti. mbl.is/​Friðrik Tryggva­son „Hann virðist telja að hann hljóti fljót­ari út­greiðslu ef bank­inn fer í gjaldþrota­skipti.

Ég er al­gjör­lega ósam­mála því.

Eins og flest­um er kunn­ugt um féll ný­lega Hæsta­rétt­ar­dóm­ur þar sem því var slegið föstu að skipta­stjór­um sé heim­ilt að borga út í er­lendri mynt, hvort sem um er að ræða gjaldþrotameðferð eða nauðasamn­ing.

Það þarf í báðum til­vik­um sömu und­anþágur frá fjár­magns­höft­un­um.“

Stein­unn seg­ir að slita­stjórn­inni hafi ekki borist af­rit af beiðni Heiðars, en að hún muni bregðast við henni þegar þar að kem­ur.

Seg­ist hún held­ur ekki skilja um­mæli Heiðars um að slita­stjórn­in sé að fara út fyr­ir hlut­verk sitt. „Ég átta mig ekki á því hvað hann á við.

Hlut­verk slita­stjórn­ar­inn­ar er að há­marka virði eigna, sem við höf­um gert gagn­rýn­is­laust.

Svo á hún að út­hluta eign­um til kröfu­hafa, það er ljóst að mik­ill meiri­hluti kröfu­hafa vill fá út­hlut­un í er­lendri mynt, enda á búið mjög mikið af er­lendri mynt.

Sú ósk verður uppi hvort sem um gjaldþrot eða nauðasamn­inga er að ræða.

Hvernig við ætt­um að

vera kom­in út fyr­ir okk­ar valdsvið er mér al­veg hulið,“ seg­ir Stein­unn að lok­um./////////////////////////Þetta er gott að einkver þorir að taka á þessi teymi sem er að eyða því fé sem eftir var,mikið er búið að fjalla um þetta ríki í ríkinu þessi slitastjórn sem hefur með eindæmum að mínu áliti verið lengi að og kostnaður alltaf mikið enda launin engu lík,það hefur vantað peninga allan tíman ern þarna vara þeim allt að því rænt að manni finnst,Steinunn er ekki sú manneskja sem var áætlað, als ekki og vonandi, verður þetta til þess aðrir en Heiðar sjái þetta og fólk átti sig á því að spillingin er þarna mikil/Halli gamli


mbl.is Segist ekki skilja ummæli Heiðars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það er ljótt af þessum Íslendingum að stela svona af Heiðari og vogunarsjóðunum. Vogunarsjóðirnir, sem eiga 99,999%, ættu að ráða annað fólk til að verja hagsmuni sína, útlendinga. Að vísu færi þá ekki 46,24% í skatt til ríkisins, en það er líka einskonar þjófnaður.

Ufsi (IP-tala skráð) 6.12.2014 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband