12.12.2014 | 01:12
Segir heimsóknina í samræmi við reglur/og það mun rétta vera og ekkert með það!!!
Segir heimsóknina í samræmi við reglur Innlent | mbl | 10.12.2014 | 20:37 Nemendur Langholtsskóla heimsækja Langholtskirkju á aðventunni.
Færsla Lífar Magneudóttur þar sem hún ræðir og vekur athygli á fyrirhugaðri heimsókn Langholtsskóla í Langholtskirkju hefur vakið nokkra athygli.
Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri Langholtsskóla segir í samtali við mbl.is að hann telji heimsóknina í fullu samræmi við reglur.m samskipti leikskóla-, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar við trúar- og lífsskoðunarfélög.
Hann bendir á að áralöng hefð sé fyrir heimsóknum skólans í kirkju á aðventunni og stendur þeim börnum sem ekki fara í heimsókn í kirkjuna til boða að njóta skemmtilegrar stundar í skólanum sem skipulögð er af kennurum. Líf Magneudóttir.
Líf Magneudóttir. Líf segir aftur á móti í samtali við mbl.is að hugvekjan sem er á dagskránni sé skýrt brot á reglunum.
Í reglunum sem vísað er í hér að ofan segir meðal annars að heimsóknir á helgi- og samkomustaði trúar- og lífsskoðunarfélaga á skólatíma grunnskóla skulu eiga sér stað undir handleiðslu kennara sem liður í fræðslu um trú og lífsskoðunar, samkvæmt gildandi lögum og aðalnámskrá.
Þar segir einnig að þess skuli gæta að við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðunar að nemendur fylgist með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum og þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni.
Telur hugvekju skýrt brot á reglum Í samskiptareglum trúar- og lífskoðunarfélaga og grunnskóla, þá á trúarinnræting ekki að gerast á skólatíma.
Það er vafasamt að heill skóli fari og hlýði á hugvekju með presti í kringum aðventuna. Prestar eru aldrei hlutlaus aðili og þeirra starf er að boða trú.
Þetta verður ekki slitið í sundur.
Ef slíkt er raunin þá er það skýrt brot á þeim reglum því skólinn á ekki að hafa milligöngu með trúboð eða innræta börnum.
Ég get vel ímyndað mér það, að þegar kirkjunni er skipt út fyrir annað trúfélag eða fyrir annan félagsskap sem vill innræta börnum tilteknar skoðanir þá myndi flestum þykja augljóst að eitthvað sé bogið við framkvæmdina.
Tímasetningin skiptir líka máli Ef þessi hugvekja væri ekki hluti af heimsókninni, væri þetta þá ekki brot á reglunum? Sjálfsagt eru alltaf einhver matsatriði.
Best væri að þetta væri á forsendum fræðslu og þannig eiga heimsóknirnar að vera. Það er enginn að banna heimsóknir í kirkjuna, þetta er nokkuð skýrt í samskiptareglunum, segir Líf.
En hvað liggja mörkin? Við hverja einustu aðventu, alltaf í kringum jólin, þá eru heimsóknir í kirkjur af því að það hefur verið hefðin.
Margir eru auðvitað aldir upp við að fara kirkju, sumar fjölskyldur eru kristnar en tímarnir hafa breyst. Þjóðfélag okkar er fjölbreytt og samsett úr mörgum þráðum.
Best er að opinberar stofnanir sem við öll eigum að hafa aðgang að gæti hlutleysis í hvívetna. Best væri að skólinn væri hlutlaus stofnun og hefði ekki tengsl við nein trúfélög nema á forsendum fræðslunnar.
Það er ekkert að því að fara með börn í mosku, ásatrúarfélagið, rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna eða kaþólsku kirkjuna á forsendum fræðslunnar.
En þá er líka eins gott að gætt sé jafnræðis í fræðslu um hin ýmsu trúarbrögð og trúleysi. Það er líka tímasetningin sem skiptir mál.
Þarf að fara í kirkju öll tíu árin? Í meginviðmiðum sem mennta- og menningarmálaráðherra hefur sett um hvernig skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum segir að heimsóknir í kirkjur í tengslum við stórhátíðir kristninnar teljist hluti af fræðslu um trúarhátíðir og menningarlega arfleifð þjóðarinnar.
Maður er tíu ár í grunnskóla, þarf maður að fá þessa fræðslu öll þessi tíu ár sem maður er í grunnskóla. Ég set spurningarmerki við það, segir Líf.
Væri þá til dæmis réttara að börnin færu aðeins í heimsókn kirkjuna í fyrsta bekk og aldrei eftir það? Starfsfólki skólanna á að vera treystandi til að skipuleggja fræðslu á einn eða annan hátt með þetta í huga.
Við hættum einhverntíma að læra n og nn regluna af því að við eigum að kunna hana.
Ég spyr mig, þurfum við að fara tíu ár í kirkju af því að það er á forsendum fræðslu, segir Líf.
Alveg ótækt að skilja börnin eftir Líf segir að skóla- og frístundasvið borgarinnar eigi að gera athugasemdir ef skóli fer yfir þessi mörk og það hafi verið gert í einhverjum tilvikum.
Ég ætla á nýju ári sem formaður mannréttindaráðs, í samvinnu við ráðið, að kanna hvort það sé vilji til þess að gera almennilega úttekt á þessu, meðal annars hvað öðrum börnum standi til boða.
Það er algjörlega ótækt að skilja börn eftir án þess að nokkuð sé skipulagt fyrir þau.
Mér finnst líka, ef þetta á að vera hefðin, að þá verði að gefa börnum val í stað þess að segja
að kirkjan sé normið.
Þetta þurfum við hins vegar að ræða vandlega í pólitíkinni og í samfélaginu öllu./////////////////////Nú er mælirinn fullur og við látum ekki þennan minnihlutahóp ráða yfir okkar börnum kristnum als ekki,við eins látum trúfrelsið í friði og virðum það,en látum þá ekki stjórna okkur hinum sem eru Kristnir,Hvað segir læknirinn og Borgarstjórinn við þessu er hann kannski trúlaus,spurning en þegar ein manneskja í Borgarstjórn getur uppá einsdæmi þar sett allt á annan endann ,er þetta virkilega það sem við viljum,nei það vilja skinsamir menn og konur verður maður að segja ekki,ég sem lærði í mínum skólum að konur væru einnig menn!!Ég segi enn og aftur að við sem betur fer flest eða bara allir kristnir menn erum ekkert móti öðrum trúarbrögð og trúfrelsi og látum þá bar hafa sýnar skoðanir,en ekki þessar að stór minnihluti ráði yfir meirihlutanum,ég hefi þá skoðun að við eigum eins og þarna er i Auglýsingunni að börn sem ekki megi fara í kirkjuna okkar,sé bara látið gera eitthvað annað en þetta,en ekki lengra!!!/Halli gamli
Segir heimsóknina í samræmi við reglur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.