13.12.2014 | 21:44
Áróðursmaskína stjórnvalda í gang/Sammála þessu að mikklu leyti,en þessi miskylningur verður að leysast!!!
Áróðursmaskína stjórnvalda í gang Innlent | mbl.is | 13.12.2014 | 19:48 Yfir 700 aðgerðum hefur verið frestað á Landspítalanum... Þegar lygin er flutt nógu oft er hætt við að margir fari að telja hana sanna, skrifar Eiríkur Guðmundsson, læknir, um það sem hann segir vera áróðursmaskínu stjórnvalda í læknadeilunni
.Eiríkur situr í samninganefnd Skurðlæknafélagsins og segir í færslu sem hann birtir á Facebook, og vakin er athygli á á síðunni Raddir íslenskra lækna, að það hafi verið lærdómsríkt að taka þátt í kjarabaráttu lækna í vetur.
Líkt og við var að búast fór áróðursmaskína stjórnvalda í gang þegar stefndi í verkfall lækna og gangur hennar hertist til muna eftir verkföll hófust, skrifar Eiríkur.
Svona áróðursvélar eiga það til að sveigja sannleikann aðeins og fegra hlutina sér í hag. Kjaradeila lækna hefur staðið vikum saman.
Hertar verkfallsaðgerðir hafa verið boðaðar á næsta ári.
Kjaradeila lækna hefur staðið vikum saman.
Hertar verkfallsaðgerðir hafa verið boðaðar á næsta ári. mbl.is/Áâsdís Ásgeirsdóttir Þá gagnrýnir Eiríkur sérstaklega fjármálaráðherra sem ræddi um kjaradeiluna og kröfur lækna á þingfundi í vikunni.
Fjármálaráðherra stígur síðan á stokk og segir kröfur okkar of miklar - krafan um 50% hækkun sé óraunhæf. Þegar lygin er flutt nógu oft er hætt við að margir fari að telja hana vera sanna, skrifar Eiríkur.
Þegar maður hins vegar veit hið sanna í málinu fer lygin að verða nokkuð þreytandi, sérstaklega þegar hún er flutt af jafn miklum móð og gert er í þessari deilu okkar við ríkið.
Nú er meira að segja verðandi landlæknir farinn að taka undir trumbusláttinn, en hann veit kannski ekki betur og trúir því sem fjölmiðlar flytja? Eiríkur segir að læknar hafi ekki rædd mikið opinberlega um sínar kröfur en að kannski fari að verða breyting þar á.
Þannig veit ég fyrir víst að fjármálaráðherra fer með rangt mál þegar hann segir okkur fara fram á 50% hækkun. Hann hefur haldið þessu fram í fjölmiðlum og á Alþingi um allnokkurt skeið, jafnvel áður en við skurðlæknar nefndum nokkra tölu í viðræðum okkar við samninganefnd ríkisins, SNR.
Eiríkur segist geta fullyrt að kröfur skurðlækna séu ekki þær sem fjármálaráðherra nefnir.
Ég get þó fullyrt að skurðlæknar eru EKKI að fara fram á 50% launahækkun. Við erum EKKI HELDUR að fara fram á 40% hækkun.
Við erum ekki einu sinni að fara fram á að fá fulla leiðréttingu sem næmi því sem við höfum dregist aftur úr almennri launaþróun á undanförnum árum.
Við viljum hins vegar fá einhverja leiðréttingu, því annars endar þetta í alvöru með því að stór hluti lækna hættir á spítölum landsins og þeir sem eru erlendis í sérnámi koma ekki heim að loknu námi.
Eiríkur segist nú spyrja sig hvort að fjármálaráðherra fari vísvitandi með rangt mál.
Er fjármálaráðherra vísvitandi að segja þingi og þjóð ósatt, eða eru hans undirsátar að segja ráðherra ósatt?
Þetta er að verða þreytandi og ég veit ekki hvað ég nenni lengur að hlusta á þennan ósannindasöng...
///////////////////////////Svona er þetta komið heift í málið og það kann ekki góðri lukku að stýra,í deilum hafa allir eitthvað til síns máls,og það er vont að fara svona að hjá báðum aðilum,ég segi strax af hverju fáum við ekki að sjá bæði grunnlaun og yfirvinnutaxta hjá þessum læknum,við sjáum bara i skattskránni,og þar eru yfirvinnutímar ekki sundurliðaðir,þetta andrumsloft þarf að skíra alfarið svo við landinn sem borgum skatta og skyldur vitum hvað borgað er fyrir,Enginn vill í raun að læknar fái ekki umbun verka sinna,bara als ekki og ég hefi fylgst vel með þessu sem hefi núna seinni ár þurft á læknum og sjúkrahúsi að halda,og ekkert nema frábært um þá að segja,en þetta með pólitíkina,það er önnur saga og leiðinlegt af mínum Formanni að láta þessu ummæli út úr sér fara,ég satt að segja brá mikið,svona segja ekki ábyrgir menn um hlutina,en þetta er bara fljótfærni um hlutina því miður,ég vil þetta sem ég sagði áður þó viðkvæmt sé að þetta veri bara opinbert,svo þessi leiðandi verði leiðrétt og semji á réttum forsendum,einnig kemur svo vinnuálagið þarna inn og Fjölskyldulíf þeirra,þegar það er leiðrétt þurfa þeir sína kauphækkunn sem telst góða samkvæmt lærdómi sýnum/Halli gamli
Áróðursmaskína stjórnvalda í gang | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.