Krabbameinsdeild lokað vegna nóró-sýkingar Innlent | mbl.is | 5.1.2015 | 15:37 Krabbameinsdeild Landspítalans var lokað fyrir innlagnir á... Legudeild krabbameinslækninga var lokað fyrir innlagnir á laugardag vegna nóró-sýkingar.
Þrír sjúklingar á deildinni hafa greinst með veiruna, og þrír til viðbótar hafa sýnt einkenni. Allir sex sjúklingar eru nú í einangrun.
Þá hafa nokkrir starfsmenn þurft að halda sig heima vegna einkenna.
Lesa Þetta er árlegur faraldur sem kemur mjög oft upp um þetta leyti, segir Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækninga á Landspítalanum, en nóróveira veldur bráðri iðrasýkingu og einkennin eru meðal annars uppköst, niðurgangur, kviðverkir og jafnvel hiti.
Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdarstjóri lyflækningasviðs. Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdarstjóri lyflækningasviðs.
Styrmir Kári Hlíf segir ákvörðunina um að loka deildinni fyrir frekari innlagnir hafa verið tekna um helgina eftir að smitin þrjú voru staðfest, og sé það gert til að hefta útbreiðslu og smit.
Hún segir lokun á heilli legudeild þó vera mjög bagalega og koma mikið niður á starfseminni. Við megum illa við þessu núna.
Eins og þetta hefur verið síðastliðið árið þá hefur rúmanýtingin verið nánast hundrað prósent og þegar heil bráðalegudeild lokar þrengist enn frekar.
Verkfallið kemur mikið niður á starfseminni Hlíf segir engum vísað frá sem þurfi á þjónustu að halda, en sjúklingarnir þurfi að bíða lengur.
Þar kemur þetta aðallega fram. Fólk þarf að bíða lengur á bráðamóttöku til að fá pláss á legudeild. Það er í raun ekkert svigrúm í kerfinu okkar.
Álag sé nú þegar búið að aukast á bráðamóttökunni, þar sem biðtími fyrir pláss á legudeild lengist á sama tíma og tilfellum af umgangspestum fjölgi.
Verkfallið komi því á mjög slæmum tíma, en læknar á flæðisviði spítalans, sem bráðamóttakan heyrir undir, eru meðal þeirra sem leggja niður störf í dag og næstu þrjá daga.
Það er mikið álag á bráðamóttökunni.
Það kemur auðvitað illa við því þetta hangir allt saman, verkfall á einum stað hefur áhrif á annan.
Svigrúmið minnkar þar sem útskriftir og rannsóknir tefjast, en auk þess hefur rúmanýtingin verið há á spítalanum allt síðasta ár.
Loks segist hún vonast til að samningar fari að nást, en ef ekki hefur samist í næstu viku
munu læknar á lyflækningasviði leggja niður störf í fjóra daga.////////////////Þetta þarf að koma ofan á allt annað,sem hrjáir heilsukerfi okkar alt,og við erum allavega sjúklingar orðin vonlaus um að lifa þetta af,En við höfum þarna víst ekkert að segja,nema skaffa vinnu,það er satt að með hækkandi aldri verði þetta mikið meira,En eitt er víst að það er ekki læknunum að kenna að ekki eru byggð húsnæði fyrir okkur Eldri Borgara svo við bara fyrir þá sem vilja og þurfa,þetta er skömm númer eitt,og heldur Plássum á spítölunum 25% svo þetta launskrið þessa blessaðra Lækna,fyrr má nú vera að að eftir allan þennan tíma á og lágum launum,skuli þeir taka okkur í Gíslingu sjúklingana,og komast upp með það!!!!Það er alveg sama hvað stjórn er við völd,allir verða að hugsa,um þjóðarhag eiginlega við öll ekki bara ráðamenn í hvert skipti!!!Ef samið er við lækna á þeirra basls þar sem þeir bera sig saman við það besta sem borgað er í Norðurlöndum og B.N.A.,þá sjá allir að það gengur ekki,þessi laun mundu sprengja allt launskrið okkar,og þessa vegna átti að setja á þetta Gerðadóm strax,ekkert annað bjargar þessu,og ef þeir ekki taka því er þeirra að segja bara upp,og láta okkur deyja Drottni okkar,hvoru megin er sökin,hún er kannski nokkuð okkur að kenna,við áttum að skilyrða þá til að vinna hér allavega í nokkur ár eftir,að vara búnir að taka sér sýna sérmenntun og einnig heilsugæslulækna,þeir fengu hér nærri fría skóla og svo námslán sem ekki þarf að borga af fyrr en þessu er lokið með lágum vöxtum,á yngri árum mínum langaði mig að læra en það voru engin námslán þá,og efninu ekki mikil,svo maður h´tti við en margir sem með mér unnu fóru í læknirinn og Lögfræði og Flug!!!;þetta er allt annað í dag og auðvitað eiga þessir menn að hafa góð laun,og um það sníðst þetta og engin er á móti því,en launaskrið okkar verður að sníðast,af vexti okkar allra,og launum annarra sem hafa eiginlega sama langa lærdóminn,og þarna verður að meta rétt ,en ekki bara á annan vegin!!!,ég er alveg viss um að það má stytta þetta nám mikið,og eins og ég segi lána þeim sem ætla að vinna hér heima frá L.Í.N.En ekki að vara að menna lækna til útflutnings///Halli gamli
Krabbameinsdeild lokað vegna nóró-sýkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja, er það virkilega orðið svo svart að þínu áliti að læknar séu farnir að halda sjúklingum í gíslingu, þér ásamt öðru góðu fólki og er ekki verið að efast um heiðarleika alls þess fólks.
En, Halli gamli, er ekki orðið full langt gengið orðið að líkja læknum við ótínda glæpamenn, sem halda fólki nauðugu í gíslingu, gegn vilja sínum og skertu friðhelgi?
Ekki ætla ég svo sem heldur að fara að kítast við þig um þessa lágu vexti á námslánum lækna, né heldur kostnaði ríkisins af framhaldsmenntunn sérfræðinga í heilislækningum ásamt öðrum sérgreinum. Það ferðu nefnilega villu vegar, svo gersamlega út í hött, þó ekki verði það kennt við Hróa. Til dæmis eru flestir læknar með sérmenntun sína erlendis frá. Námið er það lengsta sem þekkist í samfélaginu, ca 12-15 ár í heildina. Nú kostnaður þeirra landa sm sérnámið er sótt til er um x10 dýrara en grunnám lækna á Íslandi
Ba7837SUra kynna sér betur málið Halli gamli áður en höggvið er á alla kanta og megirðu halda sem bestri heilsu einnig
Guðmundur Karl (IP-tala skráð) 5.1.2015 kl. 19:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.