Flugstöðin Okkar leiðinleg með afbryggðum!!!!!

Eg verð að segja að þessi Flugstöð okkar er i meira lagi leiðinleg og erfið fyrir allavega okkur sem erum ekki dugleg að labba mikið og yfirferðin mjög erfið,og svo eg komi nu að Ameríkuferð okkar um Daginn,að vera með mína konu í Hjólstól og svo að labba alla þessa ganga er óhæft,bara fyrir mjög frískt fólk og íþróttamenn,Ameríkuflugið er alltaf i lengstu Geitunum,og vegna leitar upp og niður stiga og ganga,og svo ekkert betra þegar heim er komið sama leitin og gangan,þetta er hörmung og mun varað til þessa að ferðaþyrst fólk  eins og okkur langar ekki aftur í svona svaðilför i gengnum þetta Apparat Nasista samkvæmi,eins og þetta er orðið eftir 11 september um árið ,að öðru leiti er Flugstöðin ekki ljót ,og vel og þar margt gert,en svona fælir okkur frá mjög,og verðum við að bæta þetta á eitthvert hátt/Halli Gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Hef verið í áraraðir að væla yfir þessari leiðinda flugstöð við ættingja og vini. Augum ranghvolft. Væl í þessum frekjum að vestan. 

Skipurit flugstöðvarinnar er í hnotskurn: Farðu yfir lækinn til að ná í vatnið! Fyrst ferðu niður og svo upp aftur og svo labbaðu kílómeterslangann gang. Hvers vegna? Engin ástæða.

Núna síðast er manni stillt upp í vopnaleitarbiðröð, maður er ekki lengur velkominn heim. Uppábúnir kallar í lögguleik.

Vonandi verða þessar öryggissveitir ekki settar upp, þá fýkur í flest skjól.

Fyrst er það svo flugstöðin, svo leiðinda Keflavíkurvegurinn, Úff. Hvenær fer millilandaflugið beint í Vatnsmýrina?

Ólafur Þórðarson, 17.5.2007 kl. 14:10

2 Smámynd: Steinn E. Sigurðarson

Flugvellir eru yfirleitt ofboðslega þreytandi og erfiðir. Ekki hjálpa framkvæmdirnar og óreiðan sem ríkir í flugstöðinni hans Leifs -- mikið er ég viss um að hann Leifur hefur haft meira skipulag á sínu fólki, í sínum ferðum.

Sérstaklega eftir viðbygginguna, og þá ranghala sem bættust við þá, er komin þörf fyrir svona færibönd, eða göngubelti -- hvað sem það kallast!

Steinn E. Sigurðarson, 17.5.2007 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband