Fyrsta haustlægðin kemur á óvart !!!!!!

Eins og oft áður kemur fyrsta haustlægðin okkar á óvart,samt vara búið að vara við henni ,og það vel/meira að segja Landhelgisgæslan ekki viðbúin þessu, að hafa V/S Þór varskipið okkar ekki betur bundið og varin en þetta að það fer af stað og strandar/En svona er þetta bara við eigum alltaf von á svona veðri sem kemur á haustin,en þetta kannski óvenju snemma/svo er Alþingi að koma saman á Þriðjudag og það kallað framhaldsþing stendur bara i 12 daga???? ,því ekki alveg fram að jólum að og byrjar svo eftir áramót,við hinir venjulegu Íslendingar skilji þetta ekki alls ekki,það liggur mikið fyrir sem þarf að gera!!!! allt á heljarþröm,en þetta virðist bara ekki reka neitt á eftir þessu að Alþingi taki samseinlega á Þessum málum ,öllum sem biða þess að verða  leist/Halli gamli


mbl.is Líkur á að Þór strandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Landhelgisgæslan hefur ekkert með þetta skip að gera.  Fjölmörg ár síðan það var í eigu Gæslunnar.  Skipið var víst notað sem leikmynd í kvikmyndaupptöku þarna á Hvalfirði.  Það eina sem Gæslan kæmi hugsanlega nálægt þessu núna væri vegna björgunar skipsins, ef þannig ber undir.

Eggert (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 13:24

2 identicon

Þess má nú geta að skipið er ekki í eigu landhelgisgæslunnar og hef ekki verið í eigu hennar síðan 1985(ef að ég man rétt).

Skipið var "gefið" Slysavarnarfélagi Ísland og skírt Sæbjörg, síðan var skipið selt þegar að gamla akraborgin var keyft af Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Þá var skipið gert upp og átti að nota það sem veitingahús, einhver ætlaði sér meira að segja að nota það sem skemmtistað.

 Ég held að skipið sé núna í eigu einhverjar lánastofnunnar, meira veit ég ekki.

SveinnP (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 13:27

3 Smámynd: Guðmundur Gunnarsson

vildi bara leiðrétta það að Landhelgisgæslan hefur ekkert með Þór gamla að gera. Albert heitinn Guðmundsson seldi skipið, þegar hann var fjármálaráðherra, á eina krónu. Ég man nú ekki lengur hver keypti en síðan hefur saga skipsins verið heldur dapurleg og síst við hæfi svona sögufrægs skips. Íslendingar hafa rauna sinn illa varðveizlu gamalla skipa og eiga td. enga togara úr hópi margra kynslóða síðutogara sem báru uppi efnahagsuppbyggingu síðustu aldar.

Guðmundur Gunnarsson, 29.8.2008 kl. 13:27

4 identicon

Skipið gengdi nú mikilvægu hlutverki í fjölda ára hjá Slysarvarnarfélaginu í að kenna sjómönnum að bjarga sér þegar að háski ber að þannig að ég myndi ekki segja að saga skipsins hafi verið dapurleg til ársins 1998(að ég held). En eftir það var skipið keyft af einkaaðilum sem að keyrðu allt á hausinn hver á fætur öðrum.

En að mínu mati á ríkið að kaupa skipið og gera það upp og gera úr því safn um sögu landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunar við strendur landsins.

SveinnP (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 13:34

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka fyrir þessa leiðréttingu drengir góðir/biðst bara afsökunar/en helt samt að gæslan væri með þetta skip á sinum snærum/Man svo vel eftir V/S Þór vegna þessa að hann fór á hliðina i Slippnum!!!!Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.8.2008 kl. 13:36

6 identicon

Er ekki réttast að selja jálkinn í brotajárn?

Sóttkveikjan (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 14:39

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Sammála SveiniP. Það væri gaman ef Þór yrði gerður upp og sett upp safn um Landhelgisgæsluna og Þorskastríðin um borð. Sjáum til hvernig fer fyrir honum á komandi klukkustundum.

Villi Asgeirsson, 29.8.2008 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband