Á útihátíð þrátt fyrir svínaflensuógnina?Þetta er stór spurning??????

Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2009 | 11:00
Fjölmenni og náin samskipti eru stór þáttur í útihátíðum um... Íslensk heilbrigðisyfirvöld hyggjast ekki gefa út samkomubann að svo stöddu vegna inflúensufaraldurs en 34 hafa þegar sýkst af A(H1N1) hér á landi. Tilfellunum hefur fjölgað ört. 
 

Um síðustu helgi voru staðfest 11 ný tilfelli hér á landi af nýju inflúensunni A(H1N1), einnig nefnd svínaflensa. Flensan breiðist hratt út um heiminn en að mati Landlæknisembættisins þykir ekki þörf á að gefa út sérstakt samkomubann þar sem inflúensan þykir tiltölulega væg.

Í gær höfðu 34 greinst með inflúensuna á Íslandi frá því hún fyrst greindist í maí síðastliðnum. Enginn hinna smituðu hefur fengið alvarleg einkenni og enginn látist

Hver og einn meti aðstæður

Verslunarmannahelgin ætti að geta farið fram með eðlilegum hætti en að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis er þeim sem eru með einkenni inflúensu bent á að halda sig heima í sjö daga frá því einkennin láta á sér kræla. „Við göngum ekkert lengra en þetta og þetta eru okkar tilmæli. Að sjálfsögðu aukast líkurnar á því að rekast á einhvern smitaðan á svona hátíðum,“ segir Haraldur.

 

Samkvæmt upplýsingum Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar (ECDC) hafði í gær verið tilkynnt um 163.789 staðfest tilfelli inflúensunnar frá upphafi á heimsvísu og 998 dauðsföll. Á einum sólarhring frá 26. júlí til 27. júlí hafði verið tilkynnt um 3.751 ný tilfelli á heimsvísu, þar af 144 ný tilfelli í löndum Evrópusambandsins og EFTA.

Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að heilbrigðisyfirvöld hefðu ákveðið að loka alþjóðlegum sumarbúðum þar sem 1.700 þátttakendur frá 15 þjóðlöndum tóku þátt eftir að nokkur ungmennanna höfðu greinst með A(H1N1). 59 smituðust og voru settir í einangrun. Einkennin reyndust þó væg og enginn þurfti að fara á sjúkrahús.

Haraldur Briem segir lokun eins og þá í Noregi ólíklega til að skila miklu. „Ef eitthvað á að fást út úr slíkri lokun, þ.e. að hægja á útbreiðslunni, þá verður að loka strax,“ segir Haraldur.

Norska dagblaðið Aftenposten sagði jafnframt frá því í gær að reikna mætti með því að inflúensan skyti upp kollinum á Norway Cup, einu stærsta knattspyrnumóti sem haldið væri fyrir ungmenni í heiminum. Gripið hefði verið til ráðstafana til að koma í veg fyrir smit en að sögn fylkislæknisins í Osló og Akershus gæti þurft að hætta við mótið kæmi til faraldurs.

„Við myndum grípa til slíkra aðgerða ef talið væri að um alvarlegan faraldur væri að ræða,“ segir Haraldur. „Við lítum á þetta sem venjulegan inflúensufaraldur og bönnum hvorki samkomur né lokum skólum þegar inflúensan gengur yfir á veturna,“ segir Haraldur. Slíkt sér því ekki heldur gert nú///Þetta er kannski alvarlegt mál,einnig er það að taka ákvörðum um bann við hátíðum??en þetta er svona fólkið vill skemmta sér,en það getur  hermt sín,en boð og bönn eru kannski ekki það sem f gyldir þarna,en aðgát skal höfð!!verði þetta stökkbreitt veira er voðin vís,en þetta er ákvörðun sem búið er að taka,kannski reddast þetta???Halli gamli


mbl.is Á útihátíð þrátt fyrir svínaflensuógnina?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband