Segir hættu á nýrri niðursveiflu/það segja nú fleiri/ekki bara svartsyni!!!!!

Viðskipti | mbl.is | 24.8.2009 | 9:55
Nouriel Roubini.Bandaríski hagfærðingurinn Nouriel Roubini, sem var einn af fáum hagfræðingum sem spáði fyrir um fjármálakreppuna, segir að mikil hætta sé á nýrri niðursveiflu. Þetta kemur fram í grein, sem hann fékk birta á vog Reutersfréttastofan fjallar um.

Roubini, sem er prófessor við Stern viðskiptaháskólann í New York, segir að svo virðist sem niðursveiflan muni ná hámarki á síðari hluta þessa árs og að hagvöxtur verði lítill í Bandaríkjunum og Evrópu á næstu tveimur árum.  Roubini sagði að stöðnunarskeiðið gæti fylgt í kjölfar stutts tímabils hraðs efnahagsvaxtar. 

Roubini, sem fengið hefur viðurnafnið Dr. Dómsdagur fyrir svartsýnislegar spár sínar um fjármálamarkaðinn, sagði að stjórnvöld stæðu frammi fyrir tveimur kostum og hvorugum góðum þegar þau reyndu að berjast gegn efnahagskreppunni.

Ef stjórnvöld reyni að mæta vaxandi fjárlagahalla með því að hækka skatta sé hættan sú, að afturbatinn verði hægur vegna þess að kaupmáttur almennings rýrnar. 

En á sama tíma aukist hættan á óðaverðbólgu ef fjárlagahallinn er of mikill til lengdar. Það kalli á hækkandi vexti sem aftur hamlar efnahagsvexti. 

Þá segir Roubini, að ástæða sé að hafa áhyggjur af því að verð á orku, matvælum og olíu hækki nú meira en efni standi til.  Það mikla fé, sem stjórnöld víða um heim hafa dælt inn á fjármálamarkaði, gæti haft þau áhrif að eftirspurn aukist.  //þetta er ekki úr lausu lofti gripið,því miður ,margur er þessari skoðun,en þetta er ekki gæfulegt ,kannski svartsyni en svona getur þetta orðið,og okkur hættulegt mjög við verðum að ver gætin og taka á þessu mark,þetta vofir yfir heiminum og okkar einnig/Halli gamli


mbl.is Segir hættu á nýrri niðursveiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1046586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband