Segir atvinnulífið stefna í stöðvun/ þetta hlýtur að vera með ráðum gert!!!!!

Segir atvinnulífið stefna í stöðvun
Innlent | mbl.is | 17.9.2009 | 9:38
Stöðugleikasáttmálinn var undirritaður í...Stjórn AFLs Starfsgreinafélags lýsir áhyggjum af framgangi stöðugleikasáttmálans og bendir á að atvinnulífið stefnir í stöðvun á næstu mánuðum verði ekki eitthvað að gert. Þá lýsir stjórn AFLs áhyggjum af því að við sparnaðaraðgerðir í heilbrigðiskerfi virðist enn stuðst við gamlar og ú

Þá lýsir stjórn AFLs áhyggjum af því að við sparnaðaraðgerðir í heilbrigðiskerfi virðist enn stuðst við gamlar og úr sér gengnar aðferðir frjálshyggjunnar. Stjórnin spyr hvort einkavæðing og útboð á þjónustu á spítölum séu svör ríkisstjórnarinnar  við núverandi aðstæðum.

Stjórn AFLs Starfsgreinafélags, samþykkti í gærkvöld ályktun þar sem útboð á þjónustu og uppsagnir á starfsfólki ríkisstofnana til þess eins að einkavæða störf þeirra, eru gagnrýnd.

Stjórnin lýsir furðu á því að stjórnvöld telji sig ná sparnaði með því að fela einkaaðilum rekstur mötuneytis Landsspítalans og um leið segi upp starfsfólki sem unnið hefur spítalanum af trúmennsku um langt árabil. Í ályktuninni segir að sparnaði annars staðar hafi verið náð m.a. með því að minnka starfshlutfall lægst launaða starfsfólks heilbrigðiskerfisins án þess að vinna minnki í raun og þannig séu byrðarnar settar á þá sem minnst mega við launaskerðingum.

„AFL Starfsgreinafélag hvetur stjórnvöld til að kasta aðferðum frjálshyggjunnar og taka upp félagshyggju og mannvænar aðferðir við lausn á aðsteðjandi vanda. Samfélagið allt krefst nýrra lausna og að snúið sé frá óheftri peningahyggju og markaðssjónarmiðum. Það er dapurt að heilbrigðisráðherra gangi á undan í einkavæðingu og uppsögnum starfsfólks til að bjóða út þjónustu,“ segir í ályktun stjórnar AFLs.

Þá ítrekar félagið fyrri ályktanir sínar um að sátt verði að nást í málefnum skuldsettra heimila og það megi ekki dragast mikið lengur. Loks krefst stjórn AFLs þess að uppgjör bankahruns og rannsóknir  á meintum efnahagsbrotum verði fyrir opnum tjöldum og að þeir sem ábyrgð báru á fádæma fúski í eftirliti og vafasömum viðskiptaháttum, verði dregnir til ábyrgðar.r sér gengnar aðferðir ///þetta er ekki gott mál,allt fallið um sig sjálft Stöðuleikin engin allt að fara til fjandans að mínu mati,þetta hlýtur að vara með ráðum gert!!! ekkert gert til  að' bjarga þessu og heimilum í landinu ,vinstri men einir kunna þetta láta þetta bara fara svoa ,þetta reddast er þeirra mottó/Halli gamli


mbl.is Segir atvinnulífið stefna í stöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045983

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband