26.9.2009 | 11:05
Slagurinn um skóna í dag/spenna ennþá!!!!!!
Það þarf mikið að ganga á í lokaumferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í dag til að Atli Viðar Björnsson, sóknarmaður FH, missi af markakóngstitlinum í ár. Hann verður að öllu óbreyttu þriðji leikmaður FH frá upphafi sem skorar flest mörk í deildinni.
Hörður Magnússon vann reyndar það afrek þrjú ár í röð, 1989, 1990 og 1991, og Tryggvi Guðmundsson varð markakóngur deildarinnar árið 2005. Tryggvi hafði áður náð þeim árangri sem leikmaður ÍBV, árið 1997.
Atli Viðar hefur skorað 14 mörk, þremur meira en þrír næstu menn, sem þar með þurfa að skora þrennu í dag til að ná honum. Þeir eru reyndar allir líklegir til afreka, Alfreð Finnbogason úr Breiðabliki, Björgólfur Takefusa úr KR og Gilles Mbang Ondo úr Grindavík eru með 11 mörk hver og engan þeirra er hægt að útiloka.
FH-ingarnir Matthías Vilhjálmsson og Atli Guðnason eru með 10 mörk hvor, en KSÍ er þó reyndar aðeins með níu mörk skráð á Atla. Það eru því margir sem koma til greina með að ná í silfur- og bronsskóna.
Að öðru leyti er lítil spenna í loftinu fyrir lokaumferð deildarinnar í dag því aldrei þessu vant eru öll úrslit ráðin. FH er Íslandsmeistari, KR hreppir annað sætið nema eitthvað furðulegt eigi sér stað, og Fylkir endar í þriðja sæti og fer ásamt KR-ingum í Evrópudeild UEFA.
Eitt Evrópusæti óútkljáð
Fram og Breiðablik, sem eru í fjórða og fimmta sætinu, eiga síðan eftir að mætast í bikarúrslitaleiknum og þar ræðst hvort þeirra verður fjórða liðið sem keppir fyrir Íslands hönd í Evrópumótunum næsta sumar.
Fjölnir og Þróttur eru fallin og það er því aðeins spilað uppá stoltið og mörkin í dag. Það þarf því ekki að koma á óvart þó ofangreindir leikmenn sem bítast um gull-, silfur- og bronsskóna fái óeigingjarnar sendingar frá samherjum sínum og taki þær vítaspyrnur sem í boði verða í dag.
Leikirnir sex í deildinni hefjast allir kl. 16.//Það er ennþá spenna þarna um margt 3-4 sætið og fleira,auðvitað er maður hlutdrægur og Framari stend með mínum mönnum,en einnig góðri kantspyrnu i heild,skoðum þetta að leikslokum/Halli gamli
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.