Styðja áframhaldandi samstarf/samstarfið framar vilja fólksins !!!!!!

Styðja áframhaldandi samstarf
Innlent | mbl | 30.9.2009 | 17:11

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kemur á þingflokksfund VG.„Það kom fram á fundinum að allir styðja eindregið áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf,“ sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þinflokksformaður Vinstri grænna, að loknum þingflokksfundi síðdegis.

Nokkrir þingmenn Vg eru fjarverandi í dag og mun þingflokkurinn því aftur koma saman til fundar í kvöld.

„Mér finnst skelfilegt að Ögmundur skuli segja af sér sem heilbrigðisráðherra vegna þess að þar missum við einn ötulasta baráttumanninn fyrir góðu íslensku velferðarkerfi úr stærsta og mikilvægasta ráðuneytinu,“ sagði Guðfríður Lilja.

„Hvað Icesave-málið varðar þá hefur hvorki Ögmundur né nokkurt okkar hinna sagt að við værum á móti því sem er hugsanlega í spilunum í Icesave-málinu. Við viljum bara fá að skoða málin, fá þingræðislega, lýðræðislega og opna meðferð málsins. Ögmundur gengur úr ríkisstjórninni vegna þess að það er gerð krafa um að við ríkisstjórnarborðið sé bara ein skoðun á Icesave. Ég lít svo á að hann hafi gengið úr ríkisstjórninni til þess að bjarga henni, vegna þess að þessi krafa er gerð.

Ég trúi því að baráttan í sumar um Icesave hafi orðið mjög til góðs. Þó sagt sé að mikill tími hafi farið í þetta mál í sumar, þá er staðreyndin sú að þingmenn hefðu bara verið í sumarfríi ef þessi umræða hefði ekki farið fram og það gerir að verkum að allir eru núna mjög vel inn í því máli og skilja þaðö til hlítar. Nú snýst spurningin um að málið fái áfram þingræðislega meðferð og þá held ég og trúi að það verði farsællega til lykta leitt,“ segir hún.

Ekkert var rætt á þingflokksfundinum í dag hver tæki við embætti heilbrigðisráðherra í stað Ögmundar. Aðspurð vildi Guðfríður Lilja ekki tjá sig um hvort orðað hafi verið við hana að taka að sér ráðherraembætti///Svona er þetta taka eigin hagsmuni frá yfir vilja fólksins,þetta er orðið sem þeir kunna  styðja Hollendina og Breta/til að kúga okkur/Halli gamli


mbl.is Styðja áframhaldandi samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband