Stórtækir auðlindaskattar/'óreiðustjórn V.G og Samfylgingar /ná okkur niður á læksta plan!!!!

Stórtækir auðlindaskattar
Innlent | Morgunblaðið | 2.10.2009 | 6:37

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kynnir fjárlagafrumvarpið. „Þetta eru tölur og áform sem ég sé ekki að gangi upp á nokkurn hátt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Í fjárlagafrumvarpi er áformaður sextán milljarða tekjuauki af umverfis-, orku- og auðlindasköttum. Það gæti þýtt milljarðaskattheimtu af hverju álfyrirtæki fyrir sig, þegar fram í sækir, en þau eru kaupendur að nærri þremur fjórðu allrar raforku í landinu

Viðmælendur hafa þann fyrirvara á að hugmyndin sé óútfærð í frumvarpinu, en Ólafur Teitur Guðnason, talsmaður RioTinto Alcan í Straumsvík, segir þetta stórtæk áform sem fari fram úr öllu meðalhófi. Að óbreyttu gætu þau þurrkað út allan hagnað fyrirtækisins og gott betur. „Þessi áform um skattheimtu hljóta að setja stórkostlegt strik í reikninginn fyrir alla uppbyggingu orkufrekrar starfsemi,“ segir Vilhjálmur Egilsson.

Hlífa viðkvæmustu málunum

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir að vandinn í ríkisfjármálum sé gríðarlega mikill og fjárlögin beri þess merki. Lengi hafi verið ljóst að taka yrði á vandanum, bæði með niðurskurði og skattahækkunum.

 

Í fljótu bragði virðist frumvarpið hins vegar samrýmast stöðugleikasáttmálanum. Heildarhallinn sem gert sé ráð fyrir sé eftir væntingum. Vissulega sé mikill hluti af aðgerðunum, 50-60%, fólginn í hærri sköttum og margt í frumvarpinu sé óútfært. Hins vegar hafi verið miðað við það, við gerð stöðugleikasáttmálans, að 45% af vandanum verði leyst með skattahækkunum næstu þrjú árin.

Harðast yrði gengið fram í þeim fyrst, en síðan slakað á.

Tekjur ríkissjóðs auknar um 61 milljarð

 

Heildarhalli á ríkissjóði 2010 er áætlaður 87,4 milljarðar samkvæmt frumvarpinu. Í krónum talið verða útgjöld ríkissjóðs skorin niður um 43 milljarða króna en tekjurnar auknar um 61 milljarð. Þetta eru því einhver sársaukafyllstu fjárlög í sögunni. Áætlað er að beinir skattar hækki um 37,6 milljarða. Á meðal margvíslegra hækkana er 10% hækkun bensín-, olíu- og bifreiðagjalda. Á sama tíma eiga fjárveitingar til vegaframkvæmda að lækka gríðarlega, um tólf milljarða.

Ný þjóðhagsspá gerir ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann rýrni um 10,4% á þessu ári og 11,4% á því næsta. Hann verður þá svipaður kaupmætti áranna 1999 og 2000.//"Það er gott að hafa túngur tvær og tala sitt með hvorri"segir máltækið svo er þetta mest svilfirðing sem hægt er að framkvæma,og það gerir Vinstra pakkið leifir maður sérð kalla.þetta er hrein eignatök og ekkert annað unnin af AGS og með það i huga að koma okkur i ESB þetta skal allt i gegn/með lögregluvaldi/Halli gamli


mbl.is Stórtækir auðlindaskattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband