Ekki nógu langt gengið / það er satt og rétt!!,tökum á málum!!!!

Ekki nógu langt gengið
Innlent | mbl.is | 7.10.2009 | 15:25

Alþingismenn á þingi. Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur aðgerðir félagsmálaráðherra um endurskipulagningu á greiðslubyrði og skuldum heimilanna vegna húsnæðis- og bílalána ekki ganga nógu langt. Hún vill að verðtrygging verði afnumin sem fyrst og að gjaldþrota einstaklingar beri ekki ábyrgð á þeim

Þessi orð lét Lilja falla við umræðu um stöðu heimilanna í landinu á Alþingi í dag. Í kjölfarið tók Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, undir orð hennar. 

Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokks, hóf umræðuna. Hann sagði þingmenn þurfa að koma upp úr skotgröfunum, spara yfirlýsingarnar og reyna að finna samhljóm í þessu ógnarstóra verkefni. Hann hvatti félagsmálaráðherra til þess að farið verði í afskriftir á höfuðstóli lána sem fyrst, og bent á að Ísland komist ekki út úr kreppunni með því einu að hækka skatta.

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði mestu máli skipta að tryggja fólki greiðslubyrði sem lagt var upp með fyrir hrun. Í skoðun ráðuneytisins hafi komið í ljós að um 20 þúsund einstaklingar sem stóðu í skilum fyrir hrun stefndu í þrot. Þeir einstaklingar voru með sambærilegar tekjur og áður en skuldabyrðin hafi vaxið þeim um höfuð. Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar hafi áhætta verið færð af fólki og yfir á bankanna. 

Anna Pála Sverrisdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagðist í jómfrúarræðu sinni hafa miklar áhyggjur af ungu fólki sem fjárfesti í sinni fyrstu íbúð fyrir hrun. Hins vegar sé ríkisstjórnin að koma til móts við það fólk með aðgerðum sínum sem sé af hinu góða.

Árni Páll lauk svo umræðunni og þingfundi dagsins. Hann sagðist ekkert sjá annað en jákvætt sjá við að búa þannig um, að hægt verði að flytja lán yfir í íslensk kjör. Í þeim efnum reyni á lánastofnanir að bjóða viðskiptavinum sínum slíka kosti skuldum sem eftir standa.///Auðvitað kostar allt peninga,en er að nokkuð betra að tryggja þetta eftirá, þegar slysið er skeð,Lilja hefur þarna lög að mæla það verður að tryggja að greiðslubyrgin verði í lagi!!!Taka af vertryggingu strax um óákveðið tímabil og lækka vexti/þetta gengur ekki svo langur að horfa bara á og láta þetta fólk missa allt sitt og verða samt skuldugt áfram,Þetta nær einfaldlega ekki því sem það á að gera, því miður Arni Páll ,!!!!það verður að gera eitthvað meira !!!/Halli gamli


mbl.is Ekki nógu langt gengið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband