Varað við stormi í nótt og morgun/þetta eru djúpar lægðir,menn verða að taka þetta alvarlega!!!

Varað við stormi í nótt og morgun
Innlent | mbl.is | 8.10.2009 | 5:33

Veðurstofan varar við stormi sunnan- og vestanlands í nótt og á morgun. Í dag verður austanátt, 5-10 m/s, á landinu í fyrstu og þykknar upp, en hægari norðaustanlands og skýjað með köflum. Suðaustan 10-15 m/s og slydda en síðar rigning suðvestan og vestanlands með morgninum og allvíða 15-20 m/s síðdegis

Hægari austlæg átt norðaustan- og austanlands og bjart með köflum. Hiti verður 0 til 5 stig, en yfirleitt 0 til 5 stiga frost NA-lands.

Á höfuðborgarsvæðinu verður vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 10-15 m/s og slydda og síðar rigning með morgninum, en 15-20 á Kjalarnesi. Hiti 0 til 5 stig.

Á morgun föstudag verður austanátt á landinu, víða 20-28 m/s með rigningu eða slyddu, en jafnvel mikilli úrkomu suðaustanlands. Lægir talsvert sunnanlands um kvöldið og dregur úr úrkomu. Hiti 2 til 8 stig, en minnkandi frost fyrir norðan.

Um helgina verður minnkandi austan og síðar norðaustanátt og léttir til um landið vestanvert, en skúrir eða él austantil á landinu. Hiti 1 til 8 stig./þetta er goð viðvörun!!! ekki veitir af að aðvara fólk,sérstaklega er seinni lægðin djúp þessi sem kemur aðfaranótt föstudags og föstudag,þetta getur bara kallast áhlaup ,það getur farið uppi 25-35 m/s i hviðum,þetta er alltaf gott að fá svona aðvaranir og fólk a´að taka þær alverlaga,fasta hlutum og vera ekki á ferð nema nauðsyn beri til/Þökk sé veðurstofu okkar/Halli gamli


mbl.is Varað við stormi í nótt og morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband