Óvenjuleg lífssaga íslensks undrabarns/mikið gaman að fá um Þórunni bók !!!!

Óvenjuleg lífssaga íslensks undrabarns
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 10.10.2009 | 12:53

Þórunn Ashkenazy sjö ára á tónleikum. Saga Þórunnar sem undrabarns á Íslandi má ekki gleymast, segir Elín Albertsdóttir blaðamaður sem er höfundur ævisögu Þórunnar Jóhannsdóttur Ashkenazy sem kemur út fyrir þessi jól hjá Bókafélaginu. Bókin ber titilinn Íslenska undrabarnið – saga Þórunnar Ashkenazy.
„Í bókinni kemur fram margt óvænt varðandi barnæsku Þórunnar og án þess að ég vilji upplýsa það núna held ég að fólk skilji betur þegar það er búið að lesa bókina af hverju hún lagði píanóleik á hilluna,“ segir Elín. „Þórunn átti mjög óvenjulega æsku, svo vægt sé til orða tekið, og líf hennar hefur verið viðburðaríkt alla tíð, eins og rakið er í bókinni, en flestir Íslendingar, sem komnir eru á miðjan aldur, muna eftir fjölmiðlafárinu þegar Þórunn og eiginmaður hennar, Vladimir Ashkenazy, ákváðu að yfirgefa Sovétríkin árið 1963.“

Þórunn fagnaði sjötugsafmæli sínu fyrr á þessu ári. Elín segist allt frá barnsaldri hafa haft mikinn áhuga á lífi hennar. „Tveggja ára gömul var Þórunn byrjuð að spila á píanó og þriggja ára var hún farin að spila opinberlega. Í bókinni er sögð óvenjuleg lífssaga Þórunnar, hvort sem er sem undrabarns í píanóleik eða sem eiginkonu og hægri handar eins mesta píanósnillings veraldar.“// það verður gaman og þarft að fá þessu bók,við megum sannlega vera stolt af þessu undrabarni sem sló i gegna svona ung,þó svo  hún giftist svo þessu snilling sem hún kannski varð i skugganum af,en það er bara svo /manni er sjálfum mynnistætt þegar maður var i barnaskóla nánar tiltekið Austurbæjarskóla að i söngtímum sem voru i bíósalanum var hún þar að spila fyrir okkur þá bara 3-4 ára og hreif okkur börnin mjög svo!!!!Halli gamli


mbl.is Óvenjuleg lífssaga íslensks undrabarns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband