Gylfi: Ánægja með lausn/við þurfum að skoða þetta betur !!!!!

Gylfi: Ánægja með lausn
Innlent | mbl | 13.10.2009 | 13:15

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra ræddi við blaðamenn við...Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að endurreisn bankanna muni ljúka á næstu dögum og vikum. Í þessari viku muni komast á hreint hverjir muni eignast Íslandsbanka og lok október komi í ljós hverjir muni eignast KÞað liggur líka fyrir hvernig gengið verður frá skilunum á milli gamla og nýja Landsbankans,“ sagði Gylfi að loknum ríkisstjórnarfundi fyrir hádegi í dag.

Hann segir að málin séu að komast á lokastig en rétt sé að hafa fyrirvara á málum. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um Íslandsbanka og Kaupþing, en skilanefndirnar gera það núna alveg á næstunni.“

Spurður hvers vegna hjólin fóru að snúast hraðar síðustu daga segir Gylfi: „Það má alveg eins spyrja: „Af hverju tók þetta svona langan tíma?“ Þetta tók aðeins lengri tíma heldur en að var stefnt. En núna er þetta að leysast og ég held að allir geti verið ánægðir með það,“ segir ráðherra, málið hafi tafist af ýmsum ástæðum.

Gylfi tekur fram að það sé grundvallarmunur á þeirri niðurstöðu sem nú stefni í og þeirri sem lagt hafi verið upp með fyrir um ári síðan. Þá hafi hugmyndin verið að ríkið myndi eignast alla bankana að fullu. Nú sé allt útlit fyrir að ríkið eignist Landsbankann - mögulega að fullu eða eitthvað minna en það. Og að ríkið muni eiga mjög lítinn hluta í Íslandsbanka og Kaupþingi. „Ég tel það vera mjög til bóta.“//Því miður trúmi við ekki öllu sem þarna segir ,en þetta kannski stenst ???  en einnig ekki !! það er von að fólk sé orðið vantrúað,það eru svo margir sem eiga þátt og skulda þessum bönkum og ekkert að ráði eftirgefið þar,fyrir rest hlýtur þetta að lenda allt á bönkunum og Íbúðarlánasjóði þeir hirða allt af fólkinu og fyrirtækjunum  og sitja uppi með það, hvað verður þá gert,er það bara seinni tíma vandamál,svo það er von að maður sé ekki i bjartsýnn eins og Ráðherra er !!!///Halli gamli


mbl.is Gylfi: Ánægja með lausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband