Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað/??????

Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað
Innlent | Bæjarins besta | 20.10.2009 | 15:20

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði þar sem sýslumannsembættið er...„Sýslumannafélagið fékk í gær tilkynningu frá ráðherra dómsmála um að ráðuneytið hefði, að svo stöddu frestað þeirri vinnu sem átti að búa að baki væntanlegri sameiningu embætta,“ segir Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði við vefinn bb.is.
 og það kom ekki fram í þessum pósti hvort og þá hvenær sú vinna hæfist að nýju. Alþingismenn hljóta að taka afstöðu til þess við umræður um fjárlagafrumvarpið hvort embættum verði fækkað. En eins og sakir standa erum við með óbreyttan fjölda embætta og ljóst að engar breytingar verða á því á þessu fjárhagsári.“

Kristín segir liggja fyrir að sýslumannsembættið á Ísafirði muni ná fram þeirri hagræðingarkröfu sem ráðuneytið gerir. Hún er ekki viss um hvort koma þurfi til uppsagna en segir stefnt að því að halda sama starfsmannafjölda hjá embættinu og veita sömu þjónustu. Ljóst sé hins vegar að hagræðingin muni auðvitað þýða skert kjör hjá einhverjum starfsmanna.

Kristínu þykir fólk hafa farið dálítið fram úr sér í umræðu um fyrirhugaða sameiningu, því ekkert hafi verið byrjað að ræða hvar þjónustuútibú hvers embættis yrðu, né hversu margir starfsmenn ættu að vinna þar. Nefnd sem skoða hafi átt hvernig hagkvæmast væri að vinna að sameiningu hafi ekki einu sinni verið tekin til starfa.

Dómsmálaráðherra féllst á tillögur starfshóps þess efnis að sameina lögregluumdæmi svo þau verði sex að tölu frá næstu áramótum. Jafnframt kynnti ráðherra sýslumönnum hugmynd um fækkun umdæma úr 24 í sjö, en útibú verða þó víðsvegar um landið. Miðað var við að breytingarnar tækju gildi um áramótin.///ætli þessi ríkissjón sé ekki að komast að því að Róm var ekki byggð á einum  degi !!!!!,allt á að gera og öllu breyta ,sumt bara breytingannna vegna,auðvitað ber að spara en það á skoða fyrst og gera svo!! ekki eins og maður segði i gær "skjóta fyrst og spyrja svo "!!! það getur vel verið að sparanaður náist með þessu ,en skoðast bara,það er svo margt annað sem má spara og verður að gera/þetta þarf sko ekki forgang/ Halli gamli


mbl.is Undirbúningi fyrir sameiningu sýslumannsembætta frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband