27.10.2009 | 18:10
Ísland stóð eitt í hvirfilbylnum/satt er orðið,þetta er skömm og ekkert annað!!!!
Innlent | mbl.is | 27.10.2009 | 16:39
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Norðurlönd harðlega á þingi Norðurlandaráðs, sem hófst í Stokkhólmi í dag. Sagði hann að Íslendingar hefðu nánast staðið einir í hvirfilbyl fjármálakreppunnar og væru afar vonsviknir yfir að Norðurlandaríkin hefðu ekki stutt málstað Íslands í Icesave-málinu.
Bjarni sagði, að Íslendingar hefðu alltaf litið svo á að Norðurlöndin væru ein fjölskylda sem hefði saman skapað norræn gildi sem Norðurlandabúar væru stoltir af og þolað saman súrt og sætt.
Því miður upplifðu Íslendingar sl. haust hvernig það er að standa nánast einir í hvirfilbylnum. Aldrei áður í sögu okkar höfum við þurft eins mikið á norrænum stuðningi að halda en því miður fundum við ekki þann stuðning frá Norðurlöndunum, ef undan eru skildir bræður okkar Færeyingar," sagði Bjarni.
Hann sagði að Íslendingar væru að sjálfsögðu þakklátir fyrir lánsloforð frá Norðurlöndunum en teldu jafnframt afar sérkennilegt, að þau loforð hefðu verið háð því að samkomulag næðist í Icesave-deilunni. Sú deila væri á milli Íslands, Englands og Hollands og kæmi því hvorki Norðurlöndunum né Alþjóðagjaldeyrissjóðnum við.
Bretland og Holland hafa því miður misnotað Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og komið í veg fyrir að aðstoð sjóðsins við Ísland næði fram að ganga og endurskoðun efnahagsáætlunarinnar til að þvinga Íslendinga til að gefa eftir í Icesave-málinu og afsala sér lagalegum rétti sínum," sagði Bjarniþessu máli var afar mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að vinir og bandamenn okkar styddu okkur innan Evrópusambandsins og útskýrðu sjónarmið en það gerðist ekki. Þess vegna vil ég nota tækifærið og koma því á framfæri hve sorgmæddir og vonsviknir við Íslendingar erum vegna þessarar framkomu Norðurlandanna og krefjast jafnframt svars við því hver hinn lögfræðilegi grundvöllur var fyrir þessum alþjóðlegu skuldbindingum og hvers vegna menn neituðu að útkljá málið fyrir dómstólum," sagði Bjarni.
Bjarni flutti ræðu sína í fyrirspurnartíma til ráðherra á þinginu. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svía, svaraði honum og sagði, að það væri venjan, þegar lönd lentu í miklum efnahagserfiðleikum, að reynt væri að leysa þá með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lán Norðurlandanna til Íslands tengdust aðstoð sjóðsins.
Reinfeldt sagðist ekki vilja fara nánar út í einstaka þætti deilumála en sagðist vilja minna á, að menn litu slíka hluti oft mismunandi augum///Þetta er hárrétt hjá Bjarna og talar hann ábygglega fyrir meirihluta þjóðar vorar,það standa ekki með okkur smælingjunum er ekki fallegt til afspurnar og er vitavert að mínu mati og fleiri,þessi lönd eiga að skammast sin að mínu mati einnig ,þessi samvinna er einskis virði ef ekki er hægt að ger það núna þegar svona árar/Halli gamli
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.