Samið um úrræði vegna skuldavanda/hvern er verið að vernda?????

Samið um úrræði vegna skuldavanda
Innlent | mbl.is | 30.10.2009 | 9:52

 Skrifað verður á morgun undir samning, sem stjórnvöld hafa gert við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda einstaklinga og heimila og framkvæmd þeirra.

Samkvæmt upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu er um að ræða greiðslujöfnun fasteignaveðlána, greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga og samkomulag um sértæka skuldaaðlögun.

Undirritað verður samkomulag við öll fjármálafyrirtæki sem veitt hafa einstaklingum fasteignaveðlán. Markmið greiðslujöfnunar þessara lána er greiðslubyrði reglulegra afborgana færð aftur til þess sem hún var fyrir hrun.

Félagsmálaráðuneytið segir, að með þaki á greiðslujöfnunina sé tryggt að lenging láns vegna hennar umfram gildandi lánasamning verði aldrei meiri en þrjú ár. Ef einhverjar eftirstöðvar verða á láninu að þeim tíma liðnum verða þær felldar niður. Úrræðið er aðeins ætlað einstaklingum og heimilum. Rétt til greiðslujöfnunar eiga einstaklingar sem eru í skilum og uppfylla skilyrði samkomulagsins að öðru leyti.

Sækja þarf um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í erlendri mynt. Eigi greiðslujöfnun að taka gildi á gjalddaga láns í desember þarf umsókn að berast viðkomandi fjármálafyrirtæki eigi síðar en 10 dögum fyrir gjalddaga.

Samkomulag um sértæka skuldaaðlögun

 

Undirritað verður samkomulag um sértæka skuldaaðlögun við öll fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð.  

Sértæk skuldaaðlögun er ætluð einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum þar sem fullreynt er að vægari úrræði nægja ekki til lausnar á vandanum. Skuldaaðlögun felur í sér samning milli kröfuhafa og lántaka um leið til að laga skulda- og eignastöðu lántakans að greiðslugetu hans. Lántakinn greiðir af skuldum sínum eins og greiðslugeta hans leyfir á samningstímanum en kröfuhafar fallast á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu.

Einstaklingur sem leitar eftir skuldaaðlögun skal snúa sér beint til aðalviðskiptabanka síns (banka eða sparisjóðs) sem leiðir skuldaaðlögunarferlið og telst því umsjónaraðili. Með aðalviðskiptabanka er átt við þann banka eða sparisjóð þar sem viðkomandi er með launareikning sinn.///þetta er sko ekki einföldun á skuldavanda fólkis í landinu ,nei  örðu nær þetta er svo flókið að það hálfa væri nóg
,og út kemur að þetta er ekkert sem gert neitt nema lengja lánin  og snöruna sem fólkið er í ,og var komið i!!!Þessi fégasmalaráðherra 'Arni Páll er sko ekki starfi sinu vaxin,maður bókstaflega er alveg kafstopp að hlusta á manninn reyna að skira sitt mál/það er verið bar að gera grín af fólki og fyrirtækjum og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Samið um úrræði vegna skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1047462

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband