Innlent | Morgunblaðið | 17.11.2009 | 9:00
Þverrandi trú á því að gengi íslensku krónunnar muni styrkjast umtalsvert á næstu misserum gerir það að verkum að innflytjendur og smásalar bíða færis til þess að hækka vöruverð til samræmis við þróunina
Þetta er mat Snorra Jakobssonar, sérfræðings hjá rannsóknarfyrirtækinu IFS-greiningu. IFS spáir 8,38% verðbólgu á ársgrundvelli í nóvember en Snorri segir verðbólgu næstu mánaða háða töluverðri óvissu vegna stöðu krónunnar og svo áhrifa skattahækkunaráforma ríkistjórnarinnar.
Verðbólgumæling hagstofunnar í október benti til þess að menn hefðu vanmetið áhrif gengislækkunar krónunnar undanfarið á verðlag. Snorri segir ýmislegt gefa ástæðu til þess að ætla að gengisþróunin muni hafa frekari áhrif á verðlag. Ekki síst vegna þess að væntingar manna um styrkingu krónunnar fara nú þverrandi og þar með aukast líkurnar á því að menn fari að velta breytingunum út í verðlagið. Viðbúið sé að jólavarningurinn hafi verið keyptur til landsins á lægra gengi en þær vörur sem voru fyrir í verslunum og það mun vafalaust leiða til einhverra verðhækkana í desember.
Verðhækkanir vegna vsk.
Í framhaldinu er ekki útilokað að verslunarmenn muni nota tækifærið þegar hækkanir á virðisaukaskatti taka gildi um áramótin og hækka verð á innfluttum varningi frekar til þess að bregðast við gengisþróuninni. Þrátt fyrir að IFS-greining geri enn ráð fyrir að verðbólga muni ganga niður fljótt á næsta ári telja sérfræðingar fyrirtækisins að meiri hætta sé á því en áður að hún verði þaulsætnari en vonir hafa staðið til.
Sjá hefur mátt vísbendingar á skuldabréfamarkaði um að verðbólguvæntingar hafi breyst til hins verra á undanförnum mánuðum. Nýjasta verðbólguspá Seðlabankans, sem birtist í Peningamálum á dögunum, endurspeglar þessa þróun. Í henni kemur fram að verðbólga muni hjaðna hægar en spáð hefur verið í fyrri verðbólguspám bankans. Þannig gerir bankinn ráð fyrir að verðbólgan muni að meðaltali mælast 8% fyrstu sex mánuði næsta árs en muni svo loks lækka niður í 3% á seinni hluta ársins.////þetta einfaldlega gengur ekki langur,það ber að lækka vexti strax og ger allt til að verbólgan lækki,það er ekkert gert til þessa,þetta stefnir allt i hækkanir á öllu ekki bara vöruverði heldur öllu nema laununum, svo á allt að,lagast þegar við göngum og ef?? við gengum i ESB,það sem þarf er auðvitað að taka vertrygginguna af allavega á meðan verðbólguna er að nást niður,Það mundi bjarga miklu,vextir i ínnlánum eru hvort eð er neikvæðir,þetta mundi hjálpa mikið einmitt nú,þegar allt er í óvissu með greiðslur og afkomu,og skatthækkanir i nánd/Halli gamli
Beðið færis til þess að hækka vöruverðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.