Staðfestir kyrrsetningu/engin sekur fyrr en sekt er sönnuð!!!!!

Staðfestir kyrrsetningu
Innlent | mbl.is | 17.11.2009 | 19:55

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfestir að embættið hafi krafist kyrrsetningar á eignum í fyrsta sinn í tengslum við rannsókn á bankahruninu.Hann segir rannsóknina miða ágætlega áfram en fjórir nýir starfsmenn bættust í hóp embættisins um síðustu mánaðamót.

Ólafur segir að umrædd kyrrsetning sé nýlega komin til framkvæmda. Slíkum aðfarargerðum sé ætlað að tryggja að eignir séu til staðar komi til eignaupptöku. „Þetta er til þess að hefta ráðstöfun á eign sem er í hendi þess sem kyrrsetningin beinist að,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is.

Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 að embættið hafi krafist kyrrsetningar á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í tengslum við rannsókn á meintum innherjaviðskiptum Baldurs þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun.

Ólafur segist ekki geta tjáð sig um einstök mál, sem séu á rannsóknarstigi.

Aðspurður segir Ólafur að rannsókninni miði ágætlega áfram. Mörg mál séu hins vegar þung og seinunnin. „Við erum hægt og rólega að ná upp meiri styrk. Við bættum við fjórum nýjum rannsökurum um síðustu mánaðamót,“ segir Ólafur. Alls starfa 23 starfsmenn hjá embætti sérstaks saksóknara.///engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð!!! en maður hefði nú haldið að aðrir yrðu þarna á undan,en ef þetta er rétta er maður ekki að bera blak af honum ,það eru svo margir undir grun um að, ekki hafi allt verið með feldu í þessari útrás og spilavíti sem maður bókstaflega kallar,en að frysta eigur manna sem eru grunaðir svona er bara rétt og ber að gera við fleiri sem hljóta að vera grunaðir mjög !!!!/Halli gamli

 


mbl.is Staðfestir kyrrsetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Byrjað á þeim sem næstir stóðu valdinu?

Auðun Gíslason, 17.11.2009 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband