Kreppuaðgerðir verðbólguvaldur/það mun ské hjá oss,mjög svo!!!!!

Kreppuaðgerðir verðbólguvaldur
Viðskipti | mbl.is | 21.11.2009 | 12:10

Seðlabanki EvrópuEvrópski seðlabankinn hefur tilkynnt að hann muni draga úr aðgerðum sínum til varnar lausafjárkreppunni, af ótta við að auka á verðbólgu. Jean Claude Trichet bankastjóri seðlabankans sagði ekki lengur þörf á jafn umfangsmiklum aðgerðum til að örva efnahagslífið og að fortakslaust yrði að nema úr gildi allar aðgerðir sem ógnuðu verðstöðugleika
en evrusvæðið fór að rétta úr kútnum á þriðja ársfjórðungi.

Hafa sumir hagfræðingar varað við  því að batinn eigi sér einungis rætur í ríkisaðstoð og óttast að kreppan láti sjá sig aftur þegar hún er afnumin. Trichet hefur sjálfur sagt að það sé of snemmt að kveðja kreppuna og hann vilji tryggja að viðskiptalífið verði hvorki of háð stuðningi frá ríkinu eða seðlabanka, því ljóst sé að batinn stafi að verulegu leyti af slíkum stuðningi.

Verðbólga á evrusvæðinu mælist nú 0,5% á ársgrundvelli en fór hæst í 4,1% í júlí á síðasta ári þegar olíuverð þá náði nýjum hæðum. Verðhjöðnun um 0.1% varð í fyrsta skipta á evrusvæðinu þegar orku og olíuverð féllu í sumar .///þetta mun auðvitað hafa þau áhrif hér að verðbólga mun j hækka og vertryggingin taka völdin og öll lán upp og við  getum ekki borgað,er þetta i lagi Rikisstjorn okkar,nei það getur ekki verið/Halli gamli


mbl.is Kreppuaðgerðir verðbólguvaldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband