Spáir óbreyttri jólaverslun/ótrulegt samt,ekki mín trú!!!!

Innlent | mbl.is | 26.11.2009 | 8:27
Jólaverslun í Smáralind. Rannsóknasetur verslunarinnar spáir því að jólaverslunin verði óbreytt frá síðasta ári að magni til. Vegna verðhækkana verði veltan þó 8% meiri í krónum talið en í fyrra.Í fyrra minnkaði jólaverslunin um 18,3% frá árinu áður á föstu verðlagi.

Það var verulegur samdráttur því árlegur vöxtur jólaverslunarinnar hafði verið  að meðaltali 7,3% í fjögur ár þar á undan. Þetta kemur fram í árlegri spá Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólanum á Bifröst um jólaverslunina.
 
Í skýrslu rannsóknasetursins kemur einnig fram að áætlað sé að velta í smásöluverslun sem rekja má til jólanna nemi um 13,4 milljörðum króna. Það jafngildir því að hver Íslendingur verji að jafnaði næstum 42.000 kr til jólainnkaupa. Í fyrra var þessi upphæð 38.600 kr.
 
Rannsóknasetrið gerir árlega könnun meðal almennings um hvernig hann hagar jólainnkaupunum. Niðurstöðurnar sýna að fólk byrjar nú fyrr á jólainnkaupunum en áður og dreifir þeim jafnvel á allt árið. Algengast er að hver fullorðinn verji um 25 – 75 þús. kr. til jólagjafakaupa. Mun færri en áður segjast kaupa jólagjafir fyrir meira en 100 þús. kr. Þá kemur í ljós að fleiri kaupa jólagjafir erlendis en í fyrra og fleiri versla á netinu fyrir þessi jól en áður hefur verið.
 
„Jólagjöfin í ár er „jákvæð upplifun“. Þetta  er niðurstaða dómnefndar sem hafði fengið hátt á annað hundrað tillögur að „jólagjöfinni í ár“. Þessi gjöf er talin falla vel að þeim tíðaranda sem nú ríkir. Í þessu vali felst að jólagjöfin veiti þeim sem fær gjöfina jákvæða upplifun og verðið rúmist innan fjárhags gefandans.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: „Þannig  gjafir gefa þeir sem láta  ímyndunaraflið ráða för og velja eftir áhugasviði þess sem fær gjöfina. Dansnámskeið fyrir afa, flúðasigling fyrir frænku, miði á leiksýningu fyrir besta vininn eða iljanudd fyrir eiginmanninn. - Möguleikarnir eru óteljandi og  takmarkast bara af hugarfluginu.“ Jólagjöfin í ár getur þannig bæði verið vara eða þjónusta,“ segir í frétt frá Rannsóknasetri verslunarinnar.  
 
Einnig er í skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar birtar verklagsreglur viðskiptaráðuneytisins um skilarétt. Þar kemur m.a. fram að venja sé að skilaréttur á vörum sé 14 dagar.////mjög er þetta skrítið ,ef þetta gengur eftir,það er kreppa og fólk hefur ekki að jafnaði mikla peninga og kortin hættuleg ,það verður að borga þetta allt.en svo það er áróðursbragð þetta að hluta,maður vill ekki trúa þessu að,það fari ekki að sverfa að með þetta/annar er fólkið bara að  flippa út ,ekki spurning//Halli gamli


mbl.is Spáir óbreyttri jólaverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég trúi þessu ekki heldur.

Hrannar Baldursson, 26.11.2009 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband