Kanada metur innflytjendur með hraði/auðviða þarna vantar mentað fólk og iðnaðarmenn!!!

Kanada metur innflytjendur með hraði
Erlent | mbl.is | 30.11.2009 | 21:24

Toronto í Kanada. Kanada stefnir að því að viðurkenna með hraði sérfræðiþekkingu innflytjenda til að stemma stigu við vaxandi skorti á hæfum starfsmönnum. Fjölmargir innflytjendur í landinu neyðast nú til að vinna störf sem eru alls óskyld þeirra sérfræðiþekking á sama tíma og atvinnurekendur eiga í mestu vandræðum með að fylla störf.

Hingað til hafa innflytjendur jafnvel þurft að bíða árum saman áður en reynsla þeirra og menntun fæst metin sambærileg við kanadíska staðla. “Við viljum að nýbúar geti notað kunnáttu sína og fengið vinnu sem hæfir þeim. Það er gott fyrir þá og það er gott fyrir efnahag landsins,” sagði innflytjendaráðherra Kanda, Jason Kenney í dag.

Samkvæmt nýju reglunum mun aðflutt fólk á vinnumarkaði sem sækja um að fá réttindi á ákveðnum sviðum fá ráðgjöf og mat á því innan eins árs hvort reynsla þeirra og menntun sé fullnægjndi. Í yfirlýsingu stjórnvalda segir líka að matið eigi að vera sanngjarnt, gagnsætt og samræmt.

Aðfluttir arkitektar, verkfræðingar, bókarar, lyfjafræðingar, sjúkraþjálfar og hjúkrunarfræðingar verða þeir hópar sem fá hraðasta afgreiðslu, fyrir lok árs 2010. Tveimur árum síðar er stefnt að því að búið verði að tannlæknar, læknar og kennarar hafi fengið svör.

“Með því að laða til okkar og halda hjá okkur besta hæfileikafólkinu alls staðar að, til að leysa úr úverandi og verðandi vandamálum á vinnumarkaði, munum við tryggja langvarandi efnahagslega velgengni í Kanada,” sagði mannauðsráðherrann Diane Finley í dag.

Sex af hverjum 10 innflytjendum í Kanada fá ekki vinnu á sínu sérsviði og 42% þeirra eru of hæfir fyrir þá stöðu sem þeir gegna./////haldi þið að S.J.S lesi þessa frétta ,við munum missa þusundir manna þarna út og til Noregs,það er er ekki um að deila þetta fólk hefur það þarna mikið betra og ekkert  múður með það,hvar á að borga þessa mikklu skatta herna og hafa ekki atvinnu!!!þessu vinstri stjorn virðist treysta á að við flytjum ekki allt unga fólkið mun ger það sem getur/þetta er skömm okkar allra ap taka ekki a´þessum vanda/Halli gamli


mbl.is Kanada metur innflytjendur með hraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Íslendingar geta þegar farið í hraðferð þarna inn. Þarna eru síður sem skima menntafólk úr og gefur hraðferð inn.Þeir eru bara með lista yfir fólk sem þeim vantar og fólk sem kemur frá löndum þar sem námið er viðurkennt fær flýtimeðferð.  Ég prófaði þetta fyrir nokkrum mánuðum og fékk þau svör að ég félli í þann hóp sem fengi án mikilla tafa atvinnu og dvalarleyfi í Kanada. Ég skoðaði einnig atvinnutilboð og launin og þau eru um þreföld launin hérna.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.12.2009 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband