Vegrið hefði bjargað/.þarna er vegurin tvöfaldur og aðskilin,hvernig á að setja vegrið við einfaldan veg???


Vegrið hefði bjargað
Innlent | Morgunblaðið | 19.12.2009 | 5:30

Vegrið hefði mögulega getað komið í veg fyrir banaslys sem varð á Hafnarfjarðarveginum við Arnarnesbrú í gærmorgun. Tveir létust og einn slasaðist hættulega í hörðum árekstri tveggja bíla.
Það verður að teljast líklegt að vegrið hefði varnað því að bílinn fór yfir á öfugan vegarhelming,“ segir Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa.

Hann segir að rannsóknarnefndin muni leggja til að vegrið verði sett upp á þessum vegakafla og víðar. „Miðað við öryggiskröfur þær sem gerðar eru í dag hugsa ég að vegrið verði sett upp miklu víðar.“

 

Rætt um vegrið á kaflanum

Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, tekur undir með Ágústi um að vegrið hefði getað komið í veg fyrir þetta alvarlegt slys. Hann segir að rætt hafi verið um að setja upp vegrið á vegarkaflanum þar sem slysið varð.

 

Orsakir slyssins eru enn í rannsókn, en svo virðist sem ökumaður Suzuki-jepplings hafi misst bifreið sína yfir á öfugan vegarhelming um klukkan tíu í gærmorgun. Að sögn Ágústs var hált í köntum er hann kom á vettvang tuttugu mínútum eftir að slysið varð.

Jepplingurinn lenti framan á tiltölulega stórum Benz-leigubíl sem kom á móti. Ökumenn beggja bílanna létust við áreksturinn og farþegi leigubílsins slasaðist mikið. Hann hlaut alvarlega höfuðáverka og er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum frá lækni.

Jónas segir það vera tiltölulega ódýrt að setja upp vegrið miðað við margar aðrar framkvæmdir og að þrátt fyrir niðurskurð sé lögð áhersla á ódýrar framkvæmdir sem geti bjargað mannslífum. Umrætt slys auki líkurnar á að vegrið verði sett upp á Hafnarfjarðarvegi þar sem slysið varð.

Sextán látnir í ár

Sextán einstaklingar hafa látist í umferðinni hér á landi það sem af er ári, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Árið 2008 var óvenjugott þegar horft er til fjölda látinna í umferðinni, en þá létust 12 í umferðarslysum hér á landi. Árið þar áður létust 15, en árið 2006 lést 31 einstaklingur í umferðinni á Íslandi.

 

Frá árinu 2001 og til og með ársins 2005 létust á milli 19 og 29 einstaklingar árlega í umferðinni hér á landi. Aldrei hafa jafn margir látist í umferðinni og árið 1977, eða 37 einstaklingar.///maður tryggir ekki eftirá" segir máltækið,þ.að er orðið mjög svo oft að þessi yfirlæknir  segi þetta að þetta og hitt hefði bjargað slysi ,það er svo gott að vera vitur eftirá,þetta er víða svona og hefur alltaf verið vitað  og ódýrara að ger strax og vegurinn er lagður,en það er svo gott að segja hlutina þegar fólk á við missirin að stríða,að þessu  hefði verið hægt að afstýra,hvernig ætlar hann að gera þetta á vegum sem eru einfaldir og bilar mætast alla daga,aðskilja þá er ekki betra að leggja vegina rétt strax/Halli gamli


mbl.is Vegrið hefði bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband