Tillaga um landsfund dregin til baka/Jóhanna ræður öllu,engin þorir að segja syna meiningu,þó hun biðji um hana!!

Tillaga um landsfund dregin til baka Innlent | mbl.is | 28.1.2012 | 15:19 Flutningsmenn tillögu um að halda skyldi landsfund Samfylkingarinnar á vormánuðum 2012 hafa ákveðið að falla frá tillögunni. Andrés JFrá fundi Samfylkingarinnar í dag.

ónsson sagði á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag að tilgangur tillögunnar hefði verið að skapa ummræðu um mikilvæg mál eins og framtíð flokkins. Tilgangurinn hafi ekki verið að lýsa vantrausti á formann og forsætisráðherra. Taka ákvörðun um landsfund.////þetta er dæmigert fyrir þessa Frekju Jóhönnu  Sigurðardóttir,hennar tími kom og hun ættlar að klára að bylta öllu áður en hún hverfur frá sínu einræði,þetta jaðrara við geðveilu eða það sem menn  kalla ÞRÁHYGGJA að verstu sort,sami yfirgangur er í ríkissstjorn hja´henni þar ræður hún ölllu sem hún vill,og bara hótar samstarfsflokkunum og er buið að sundra honum algjörlega,er þetta það sem við viljum Íslendingar,ganga í ESB og eyðileggja fiskveiðarnar og sætta okkur við hennar eigin stjórnaskrá,nei far vel FRANS þessa verður að ljúka áður en henni tekst áættlyunarverk sitt///Halli gamli 

 


mbl.is Tillaga um landsfund dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkeppni við risana ómöguleg///Er komin aftur þessi skítur á Bonus og Hagkaup!!!!

Samkeppni við risana ómöguleg Innlent | Morgunblaðið | 27.1.2012 | 10:15 Oft er svo mikill munur á verði frá birgjum til lágverðsverslana og minni verslana að hinar síðarnefndu þurfa að selja vöruna með lítilli sem engri álagningu eða tapi til að geta keppt í verði við stærri keðjur. etta sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, þegar hann kynnti í gær niðurstöður rannsóknar um verðþróun 
Markaðshlutdeild verslana á Íslandi árið 2010.
 og samkeppni á dagvörumarkaði. Niðurstöðurnar benda til þess að talsverðar hindranir mæti þeim sem hefja viðskipti á dagvörumarkaði. Þær hindranir má ekki síst rekja til mismunandi kjara sem verslanir njóta hjá birgjum. Búast má við því, að sögn Páls Gunnars, að SE hefji sérstök stjórnsýslumál til að meta hvort viðskiptakjör og viðskiptasamningar tiltekinna birgja við verslanir séu lögleg. Þrjár samstæður með 90% „Það er auðvitað vandasamt að greina málefnalegan verðmun frá óeðlilegum [...] Hér og nú má hins vegar leiða að því sterkum líkum að kjör birgja til smásala styðjist ekki alltaf við viðskiptalegar forsendur.“ Þrjár verslanasamstæður eru langfyrirferðarmestar á markaði með dagvöru, en til hennar teljast daglegar neysluvörur eins og matur, drykkur og hreinlætisvörur. Þetta eru Hagar, Kaupás og Samkaup, sem samtals hafa um 90% markaðshlutdeild. Ef staðan er skoðuð nánar sést hins vegar að Hagar, sem reka verslunarkeðjurnar Bónus og Hagkaup, gnæfa yfir hinar með rúmlega helmings markaðshlutdeild. Á höfuðborgarsvæðinu er yfirburðastaða Haga raunar enn meiri, eða 59-60% hlutdeild, þar af Bónus 40-41%. Ágreiningur um hlutdeild Haga Þess má geta að Finnur Árnason, forstjóri Haga, túlkaði niðurstöður rannsóknarinnar með nokkuð öðrum hætti en Samkeppniseftirlitið. Fyrir það fyrsta hélt hann því fram að Hagar hefðu ekki 53-54% markaðshlutdeild, heldur 43,3%. Þá tók hann ekki undir það mat SE að aðgangshindranir væru til staðar heldur sagði þvert á móti að það væri auðvelt fyrir nýja aðila að koma inn á dagvörumarkaðinn. „Það eru margir valkostir í boði, samkeppnin er hörð og viðskiptavinir greiða atkvæði daglega um hvar þeir versla.“ Samkeppniseftirlitið kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það sé því sem næst ómögulegt fyrir minni verslanir að veita lágverðsverslunum, þar sem risinn Bónus er í fararbroddi, nokkra samkeppni. Þegar innkaupsverð og álagning á u.þ.b. 270 algengum dagvörum voru borin saman kom í ljós að álagning lágverðsverslana var að jafnaði um 18% ofan á innkaupsverð. Minni verslanir greiddu að meðaltali 16% hærra innkaupsverð en lágverðsverslanir fyrir sömu vörur. Þessar minni verslanir hefðu því neyðst til þess að selja vörurnar með einungis 1-2% álagningu, ef þær ætluðu sér að bjóða þær á sama verði og lágverðskeðjurnar. Páll Gunnar áréttaði að verðmunur frá birgjum ætti sér oft haldbærar skýringar í samkeppnisumhverfi. Hins vegar væru ýmsar vísbendingar um að sú væri ekki alltaf raunin. Til dæmis gætu stóru verslunarkeðjurnar nýtt sér kaupendastyrk til að knýja fram óréttlátan verðmun. Stjórnvöld grípi til aðgerða Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, tók undir þetta og sagði þau rök ofnotuð að betri kjör frá birgjum væru réttlætt með magnhagræði. „Eru það boðleg rök að dreifingarkostnaður framleiðanda, sem dreifir sjálfur vörunni, sé tugum prósenta hærri til Fjarðarkaupa í Hafnarfirði en til Bónuss í Hafnarfirði?“ Eini kostur smærri verslana í stöðunni væri oft að þiggja bara það sem að þeim væri rétt. Páll Gunnar sagði óhjákvæmilegt að birgjar tækju verðstefnu sína til athugunar með hliðsjón af þessum niðurstöðum og hvatti aðila á dagvörumarkaði til að skoða vel starfshætti sína. „En það er einnig brýnt að stjórnvöld grípi til aðgerða [...] Reynslan sýnir því miður að stjórnvöld hafa undantekningalítið horft framhjá tilmælum samkeppnisyfirvalda um að bæta samkeppnisaðstæður á dagvörumarkaði.“ Ofríki og yfirráð Haga Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, sagði dagvörumarkaðinn einkennast af ofríki og yfirráðum Haga, sem hefðu yfirburðastöðu og beittu henni. „Ef um væri að ræða þrjá aðila með álíka stóra hlutdeild á markaði væri það forsenda til samkeppni.“ Þær forsendur væru hins vegar ekki fyrir hendi, því þar sem einn aðili réði um helmingi markaðarins gæti hann ráðið tilveru hinna. Nefndi hann sem dæmi að forsenda þess að nýjar vörur næðu fótfestu á markaði væri að koma þeim í sölu hjá stóru keðjunum. „Þannig getur stóri aðilinn verið eftirsóknarmyndandi, þetta vita birgjar og nýta sér gjarnan gagnvart smærri aðilum.“ Þá komi fyrir að smærri verslunum sé gert ómögulegt að bjóða sterk vörumerki, dæmi séu um að vörur sem eftirspurn sé eftir séu þannig nánast í einkasölu hjá einum aðila.////En og aftur er verið að ráðast á Haga sem reka Bónus og Hagkaup,þó svo eiganskipðti hafi verið og ekki lengur rekið að feðgunum Jóhannesi og Soni,komið i eigu dreifar eignar margra manna!! en en skal höggvið i kverum og ráðit á lagt vöruverð af kaupmönnum sem eru þarna ekki á sama bassis með innkaup,á svo að láta ríkíð taka þetta af okkur með lögum eða hvað,eða hvað meina menn,það er eins og Finnur sag'i í gær i kastljósi að allir geta verslað bæði kaupmenn og við kúnnaranir,og hvar verslum við auðvitað þar sem það er ódyrsat,sé ekki neitt alvarlegt með það,hverlags öfund er þetta spyr maður bara???/Halli gamli

mbl.is Samkeppni við risana ómöguleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vigdís: Evrur frá ESB////Við öll sjáum þetta og hvað: eiga þeir að komast upp með þetta??

Vigdís: Evrur frá ESB Innlent | mbl.is | 27.1.2012 | 9:01 Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og þingmaður Framsóknar, skrifar grein í Morgunblaðið í dag og gerir alvarlegar athugasemdir við þingsályktunartillögu um styrki sem Össur Skarphéðinsson hefur lagt fram á Alþingi. Hún segir að Steingrímur J. beri mikla 
Vigdís Hauksdóttir.
ábyrgð í málinu og sífellt hækki afglapastabbi hans í starfi. Þá segir Vigdís m.a. í grein sinni: Enn á ný er ríkisstjórnin að selja dómsvaldið úr landi. Gera menn sér grein fyrir hvað þetta þýðir í raun og sann? Hér er verið að lögleiða að ríkisvaldið standi með ESB í dómsmáli á móti sínum eigin þegnum. Er hægt að komast neðar í undirlægjuhætti gagnvart Brussel-veldinu? Þessi samningur er fjandsamlegur íslensku samfélagi og leiðir það eitt af sér að uppfylla kröfur ESB – að gera Ísland að ESB ríki án undanfarandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Grein Vigdísar má lesa í heild í Morgunblaðinu í dag.///////Það er satt hjá Vidísi að þessir 2 menn eru  á hætulegm slóðum að gera hluti sem eru ekki okkur i hag sem er ekkert nýtt,svo les maður i D.V. aðSteingrímur er mæður og sagður meiriháttar!!!ekki er honum als varnað er duglegur og forkur en það er ekki sama og að gert allt rétt!!! fleira rangt!!! og Össur einnig/Halli gamli 

mbl.is Vigdís: Evrur frá ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barðist í 15-18 metra öldum/ótrúlegt,en þetta segir okkur flotgallar no. eitt !!!

Barðist í 15-18 metra öldum Innlent | mbl.is | 26.1.2012 | 14:35 Flugstjóri björgunarþyrlunnar, sem bjargaði 36 ára gömlum Íslendingi úr sjónum eftir að togarinn Hallgrímur sökk undan strönd Noregs í gær, segir að skipbrotsmaðurinn hafi gert allt rétt eftir að skipið fór að sökkvaFréttavefur Sunnmørsposten hefur eftir Olve Arnes, flugstjóra þyrlunnar, að Íslendingurinn hafi klætt sig í flotbúning strax og ljóst varð að leki var kominn að togaranum. Eftir að maðurinn lenti í sjónum notaði hann orkuna til að halda sér á floti og var nokkuð vel á sig kominn líkamlega þegar honum var bjargað um borð í þyrluna eftir þriggja og hálfs tíma vist í sjónum. Ölduhæð var 15-18 metrar og maðurinn fór oft á kaf en komst alltaf upp á yfirborðið að nýju. Engin ljós eða sendar voru á búningnum en á honum voru endurskinsmerki og því sá áhöfn þyrlunnar hann í sjónum. Arnes segir, að ofsaveður hafi verið á svæðinu þegar þyrlan kom þangað í gær eftir eins og hálfs klukkutíma flug úr landi. Merki bárust enn frá neyðarsendi sem var í togaranum, og því var ekki erfitt að finna svæðið þar sem báturinn sökk. Þar sá áhöfn þyrlunnar hluti úr skipinu, baujur, ljós og björgunarbát, sem reyndist tómur. Þá fannst sjómaðurinn fljótlega í sjónum. „Hann var í afar góðu ásigkomulagi, bæði andlega og líkamlega, þegar við náðum honum um borð. Hann gat sagt okkur hvað gerðist og að það hefðu verið fjórir menn um borð en aðeins tveir þeirra hefðu farið í flotbúning. Þá hefði annar búningurinn líklega lekið. Þess vegna fengum við strax góða yfirsýn yfir stöðuna,“ segir Arnes. Svo virðist sem Hallgrímur SI hafi sokkið á skömmum tíma. Íslenski sjómaðurinn segir að áhöfn Hallgríms hafi lent fljótlega í sjónum. Hann hafi eftir það séð björgunarbátinn og einn hinna en björgunarbáturinn fauk strax burtu og engum af skipbrotsmönnunum tókst að komast í hann.

Enn berast merki frá neyðarsendinum. Norska varðskipið Bergen ætlaði í morgun að fara á staðinn en varð að snúa við til Álasunds vegna veðurs og þar verður nú skipt um áhöfn. Eina skipið á svæðinu er loðnuskipið Herøyhav, en það var í vari í morgun og beið þess að veðrinu slotaði. Tengdar fréttir — Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs Sjómaðurinn útskrifaður 14:54 Íslenski sjómaðurinn sem komst lífs af er togarinn Hallgrímur SI-77 sökk úti fyrir ströndum Noregs í gær, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann ætlar sér að leita áfallahjálpar á Íslandi. Meira Tveir mannanna af Suðurnesjum Leita mannanna á morgun Fær áfallahjálp í dag Norskt varðskip til leitar.////það er svo að við viljum óska samúður til þeirra sem þarna mystu ástvini,það er svo að þetta er fysrta sjóslisið' sem kemur eftir meira en ár,og minnir okkur á að þessir flotgallar eru þarfa þing og bjargvættur,og það er svo að allir hefðu át að vera i þeim,það er kennt í slysavörnu sjómanna,ef grunur var á að skið er að farsat<11 en aðstæður þarna eru ókunnar en kemur i ljós þegar þessi maður sem af komst kemur til landsins,blessunarlega!!! en en og aftur samúð til þeirra sem misstu sina ástvini,sjómenskan er ekkert grín!!! eins og margur heldur!!!/Halli gamli


mbl.is Útskrifaður af sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátt í 300 bílar fastir//Man ekki eftir svona snó síðan 1981-3!!!!

Hátt í 300 bílar fastir Innlent | mbl.is | 26.1.2012 | 10:16 Slysavarnafélagið Landsbjörg segir að enn sé mikið að gera hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum vegna ófærðar. Áætlað sé að bílar sem setið hafa fastir þar séu á þriðja hundraðið. Fram kemur í tilkynningu að hasarinn hafi hafist í gærkvöldi og hafi 
Björgunarsveitir aðstoða vegfarendur í ófærð. Úr safni.
staið í alla nótt. Þrátt fyrir að allar sveitir á svæðinu hafi verið úti sem og sex hópar sem sendir voru af höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar varð að grípa til þess ráðs að taka fólk úr bílum sínum og skilja þá eftir enda höfðu margir beðið 3-4 tíma eftir aðstoð. Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöðvar á tveimur stöðum til að sinna fólkinu. Nú er unnið hörðum höndum að því að fjarlægja þessa bíla svo snjóruðningstæki komist að. Reykjanesbrautin hefur verið meira og minna lokuð í nótt, reynt var að opna hana í morgun en henni var lokað aftur um hálftíma síðar. Á höfuðborgarsvæðinu berast nú fáar aðstoðarbeiðnir og eru björgunarsveitir að tínast í hús eftir að hafa aðstoðað vel á annað hundrað ökumenn.///////þetta er feikimikill snór og ekki mynna en um 40-50 sendimetra jafnfallin snjót og ófærð eftir þvi,og men á ferð á alskonar bílum sem ekkert komast!!og eru bara fyrir mokstrinum!!! en ég man ekki eftir svona snjó her í Breiðholti síðan 1981-3 eða allavega ekki svona lengi,þetta tekur á okkur  flest en við gamlingjar erum bara inni sem betur fer>!!!!Halli gamli

mbl.is Hátt í 300 bílar fastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rætt um forseta þingsins///Jóhann Forsætisráðherra; hrokki er ekki að tala blítt til okkar als ekki

Rætt um forseta þingsins Innlent | mbl.is | 26.1.2012 | 11:48 Nokkuð var rætt um forseta Alþingis í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag en þar spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, m.a. út í ummæli forsætisráðherra um þingforsetaSpurði þingmaðurinn forsætisráðherra hvort hún gerði sér grein fyrir því að forseti væri kjörinn og hvort hún myndi lýsa yfir stuðÁsta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. ningi við forseta þingsins. Einnig spurði hann hvort ráðherrann gerði sér grein fyrir því að verið væri að safna undirskriftum gegn sitjandi forseta, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, svaraði því til að undarlegt væri hvernig þingmaður stillti málinu upp, hvernig hann og fjölmiðlar hefðu snúið út úr orðum hennar. Sagðist Jóhanna aldrei hafa sagt að forseti Alþingis yrði látinn víkja. Sagði hún að stjórn þingsins væri ekki á verksviði sínu og að hún hefði engar breytingar lagt til á því hver sinnti embætti forseta. Benti Jóhanna enn fremur að þingmaðurinn hefði ekki borið það undir meirihlutann þegar hann ákvað að skipta út varaforseta síðastliðið haust. Hún sagðist ekki hafa í hyggju að skrifa undir téðan undirskriftalista./////það er með eindæmum að hægt sé að spyrja Forsætisráherra okkar Jóhönnu nokkur án þessa að fá skíkasti svar þetta gengur ekki að hafa þetta svona/ Burt með þessa Ríkisstjorn strax!!!!!Halli gamli
mbl.is Rætt um forseta þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan eyðir ekki óvissu/samt skal ekkert gera að mati H.Í.,en kvað gerir Jóhanna ???a

kýrslan eyðir ekki óvissu Innlent | mbl.is | 25.1.2012 | 11:57 Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að höfundar greinargerðar Hagfræðistofnunar HÍ um kostnað við niðurfærslu lána, hafi ekki haft aðgang að raunverulegum gögnum bankanna og því ríki áfram full óvissa um það hve mikill kostnaður þeirra sé af skuldaniðurfellingu. „Þeir vinna bara með tölur frá Seðlabankanum og Samtökum fjármálafyrirtækja,“ segir Andrea. „Hvernig gat samanlagður hagnaður 
Andrea J. Ólafsdóttir.
bankana frá hruni orðið yfir 170 milljarðar? Þetta er ekki skýrt í skýrslunni en það var það sem við vildum fá fram, hvaða talnaleikfimi væri á ferðinni. Þetta eyðir ekki óvissunni, en það sagði forsætisráðherra að væri markmiðið.“ Andrea segir það skilning samtakanna að stjórnvöld geti nálgast umrædd gögn. Lög um bankaleynd nái aðeins yfir persónuleg gögn. Niðurstaða Hagfræðistofnunar er að líklegast sé að kostnaður af almennum skuldaniðurfellingum myndi lenda að langmestu leyti á ríkinu. Kostnaður bankanna af 110%-leiðinni og skuldaniðurfellingu af öðrum sökum sé þegar orðinn meiri en nemur afslætti þeirra af lánasöfnunum haustið 2008.////Þetta vara eiginlega vitað að H.Í.Hagfræðistofnun mundi skila þessari niður stöður,að ríkið yrði að borga,en ekki Bankarnir þeir eru heilagir að mínu mati og fleiri,má  ekki snarta neitt þar ,þeir eru í endurskoðum og þar var stolið milljörum,en þetta sem kostar að þeirra sögn 200 milljarða,má ekki borga heldur láta bankana hirða þetta allt,er þetta réttlætið i þessum geira,það getur ekki verið við látum þetta ekki yfir okkur ganga,það eru 37 þus undirskriftir og það veraður bara um þetta kosið,ekkert annað!!!!/Halli gamli

mbl.is Skýrslan eyðir ekki óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB banni olíukaup frá Íran//Mega ekki vera eftirbátar Bandaríkjana: þíðir hækkum olíu!!!!

ESB banni olíukaup frá Íran Erlent | mbl.is | 23.1.2012 | 8:51 Fulltrúar Evrópusambandslandanna 27 komust í dag að samkomulagi um refsiaðgerðir gegn Íran sem fela í sér að bannað verði að kaupa olíu 
Talið er að Íranar séu að vinna úran á þessum stað. Mynd úr safni.
 frá landinu. Er bannið lagt til, í viðleitni til að draga úr því fjármagni sem Íranar hafa umleikis til að fjármagna umdeilda kjarnorkuáætlun sína. Utanríkisráðherrar ESB-landanna eiga eftir að samþykkja bannið formlega á fundi sínum í Brussel./////Við erum farin að þekkja þetta þegar stríð fer hönd eð uppsiglingu,svo hótanir eru ekki góðar fyrir okkur sem kaupum þessa olíu,nema siður sé,það að Norður kórea sé með kjarnorku til almennar notkunar er ekkert óeðlilegt,þarna eru ríki sem ekki er mynna hættuleg einn og Ísrael og Afganar og fleiri,þessi ríkis sem segjast ættla að við kjarnorku geta það ekki þau vantar orku sem við þurfum öll,en við verum fyrir miklum búifjum verði Olía hækkuð mikið meira!!!//Halli gamli

mbl.is ESB banni olíukaup frá Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hart sótt að Ögmundi//Er þetta ekki fólkið,sem vill að fólk hafa sjálfstæðar skoðanir???

Hart sótt að Ögmundi Innlent | Morgunblaðið | 23.1.2012 | 5:30 Margir liðsmenn Vinstri grænna eru bálreiðir Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra fyrir að ætla að styðja tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar, um að landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde falli niður. Álfheiður Ingadóttir og Þráinn Bertelsson vilja að ráðherrann víki vegna málsins. Í athugasemdum á 
Spennuþrungið andrúmsloft var í þingsölum á föstudagskvöld...
heimasíðu Ögmundar hella flokksmenn yfir hann fúkyrðum og kalla hann m.a. kvisling. Í fréttaskýringu um mál þessi í Morgunblaðinu í dag segir, að óljóst sé hve margir stjórnarliðar muni styðja tillögu Bjarna þegar hún kemur til atkvæða eftir umfjöllun í þingnefnd. Samfylkingarmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson var staddur í Afríku þegar greidd voru atkvæði á föstudagskvöld um frávísun vegna tillögunnar. Hann segist ekki hafa talið gerlegt að kalla inn varamann, til þess þurfi fjarvist að vara í minnst átta daga. Sigmundur segist myndu hafa greitt atkvæði gegn frávísun og muni styðja tillögu Bjarna. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kemur saman til fundar á morgun, þriðjudag, til að fjalla um tillögu Bjarna. Formaður hennar, Valgerður Bjarnadóttir, segir að þá verði rætt um málsmeðferð og efnistök. Nefndin muni óska eftir því að fá gesti til fundar en ekki biðja um skriflegar umsagnir.//////maður er undrandi!!! er þetta ekki fólkið sem vill að fókið hafi sjalfstæðar skoðanir og vill kjósa einstaklinga ekki flokka!!! það er svo að það virðist vera eitur í beinum þessara sem allt vita og geta!!!!En svona er þetta og er ekki i lagi að mínu mati!!!///Halli gamli

mbl.is Hart sótt að Ögmundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Skammist ykkar fyrir stjórnunarhætti ykkar“///Tek vel undir þetta!!!

„Skammist ykkar fyrir stjórnunarhætti ykkar“ Innlent | mbl.is | 23.1.2012 | 11:08 „Ekki ein tilraun hefur verið gerð til að ná samstöðu um eitthvert framfara mál því foringjar Samfylkingar og VG þekkja ekkert annað en átakastjórnmál. Samstöðu þarf til að byggja upp landið, leiðrétta skuldir og gera upp við fortíðina en sú samstaða er ekki til staðar hjá þessum aðilum,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingfl
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður...
okksformaður Framsóknarflokksins. á Facebook-síðu sinni í dag í tilefni af þeim orðum Björns Vals Gíslasonar, þingflokksformanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í samtali við Ríkisútvarpið að Alþingi virðist ekki hafa burði til þess að gera upp við hrunið. Gunnar bendir á að Samfylkingin og VG séu við völd í landinu og stjórni bæði því og Alþingi. „Ef eitthvað hefur misfarist er það á ábyrgð þeirra. Þau stjórna í krafti meirihlutans. Valdasýki og foringjaræði forystumanna Samfylkingar og Vinstri grænna ásamt fallinni hugmyndafræði er vandinn,“ segir hann. Færsluna endar Gunnar síðan á eftirfarandi orðum: „Skammist ykkar fyrir stjórnunarhætti ykkar. Geir H. Haarde [fyrrum forsætisráðherra sem ákærður hefur verið fyrir landsdómi] mun ekki gera upp hrunið fyrir þetta fólk því eftirleikurinn er hluti af hruninu og er á ábyrgð þeirra og þar hafa mikil mistök verið gerð. Neyðarlög Geirs H. Haarde sem allir flokkar nema Vinstri grænir studdu björguðu landinu og vörðu megnið af sparifé fólksins. Þá kom að Jóhönnu og Steingrími sem EKKI hafa bjargað neinu en höfðu þó tækifæri til að leiðrétta skuldir. Kröfuhafarnir fengu það sem átti að fara í leiðréttingar. Þjóðin átti að borga Icesave. Fólkið flýr landið. Svei ykkur.“////mikið er ég sammála þesssum pistli hans Gunnars Braga,ekki spurning að þetta er sannleikurinn og er sagna bestur alltaf!!!!!

mbl.is „Skammist ykkar fyrir stjórnunarhætti ykkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 57
  • Sl. sólarhring: 57
  • Sl. viku: 716
  • Frá upphafi: 774103

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 590
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband