3.11.2012 | 11:17
Ofanhríð og kóf fram eftir degi//svo blotar á mánudag eða þriðjudag???
Ofanhríð og kóf fram eftir degi Innlent | mbl.is | 3.11.2012 | 9:43 Ekki er að sjá annað en að ofanhríð, kóf og takmarkað skyggni verði norðan- og austanlands meira og minna í allan dag, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Veðurhæð fer þó hægt og bítandi lækkandi yfir landinu öllu. Á norðanverðum Vestfjörðum mun rofa til með morgninum.
Á láglendi austanlands hefur gert vægan blota, en á fjallvegum ofan 150-200 metra hæðar verður áfram snjókoma og skafrenningur. Veðrið fer ekki að lagast af ráði fyrr en undir kvöld, en síðdegis vestan til á norðurlandi
. Dregið hefur mikið úr vindhviðum sunnan- og suðvestanlands í nótt. Þó verða enn vindhviður sem fara yfir 35 m/s fram yfir hádegi, svo sem undir Akrafjalla og austur við Lómagnúp og ef til vill víðar, á meðan enn er hvasst í lofti.
Víða ófært Óveður er við Akrafjall og ófært er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru undir Hafnarfjalli og í Borgarfirði er hálka.
Í Bröttubrekkur er skafrenningur. Á Vestfjörðum er ófært á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Klettshálsi en þungfært á Ennishálsi.
Hálkublettir eru á Gemlufallsheiði en þæfingsfærð og skafrenningur er í Ísafjarðardjúpi Á Norðurlandi eru vegir ýmist ófærir eða þungfærir. Vegurinn milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er lokaður vegna snjóflóðahættu.
Áfram er svo ófært víðast hvar á Austurlandi. Oddsskarð er þó fært en þar er snjóþekja og snjókoma, Frá Fáskrúðsfirði og suður í Djúpavog eru hálkublettir en annars er greiðfært um suðaustanvert landið þó er óveður við Lómagnúp og sandrok á Skeiðarársandi.
//////////Þetta mun ganga niður í dag og morgunn og svo hlána eftir helgi,það er gott fyrir okkur öll að fá slaka á veðrið leiðnlegt og hættulegt til lengdar!!en við erum búin að fá sennilega þá særðstu lægð lengi!!! og við erum heppin að hún skuli vera farin og tjónið ekki meira en orðið er en mikið meira en nóg samt!!Blessað fólkið sem fyrir því varð að slasast og verða fyrir skemmdum á Búum sinum og fénaði og öðru verðmæti,í bæ og sveit!! en við erum heppin að byggja vel yfirleitt og okkur ber að gera að á framhaldinu,það ger þvi miður ekki allar þjóðir ,með allt aðra staðla/Halli gamli
![]() |
Ofanhríð og kóf fram eftir degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2012 | 22:49
Lítil merki um úrbætur/Ljóttur blettur á kirkjunar mönnum,en allir geta bæt sig,og það verður gert!!!
Lítil merki um úrbætur Innlent | mbl | 2.11.2012 | 22:00 Rannsóknarnefnd um kaþólsku kirkjuna á Íslandi telur
lítil merki sjást um að úrbætur hafi verið gerðar af hálfu kaþólsku kirkjunnar varðandi meðhöndlun mála vegna kynferðislegs eða annars konar ofbeldis gegn börnum. Kirkjan eigi eftir að leggja á sig töluverða vinnu í þessum efnum.
Rannsóknarnefndin átti m.a. að koma með tillögur um úrbætur varðandi viðbrögð kaþólsku kirkjunnar í þessum málum.
Í skýrslunni er farið yfir hvernig kirkjan brást við kvörtunum sem henni bárust. Niðurstaða nefndarinnar er að kirkjan hafi þaggað niður mál sem vörðuðu andlegt ofbeldi innan Landakotsskóla.
Biskuparnir Frehen, Jolson og Gijsen hafi veigrað sér við eða vikið sér undan því að hafa fullnægjandi eftirlit með starfsemi Landakotsskóla og sumarbúðum sem reknar voru á vegum skólans.
Nefndin er ekki eins afgerandi þegar hún fjallar um viðbrögð kirkjunnar við ásökunum um kynferðislegt ofbeldi.
Nefndin telur óvarlegt að álykta með beinum hætti að tilteknir starfsmenn kaþólsku kirkjunnar á Íslandi hafi vísvitandi reynt að bæla niður ásakanir, reynt að fá einhvern með beinum hætti til að þegja um tiltekin mál eða reynt að hafa áhrif á að ekki yrði lengra farið með tiltekin mál um kynferðislegt ofbeldi.
Nefndin rekur hins vegar í skýrslu sinni að biskupar hafi fengið upplýsingar um að séra George, fyrrverandi skólastjóri, hafi beitt börn kynferðislegu ofbeldi. Biskuparnir Jolson og Gijsen hafi hins vegar veigrað sér við því að taka á grun um brot eða taka ásakanir á hendur George föstum tökum.
Kaþólska kirkjan á mikið ógert Þegar kemur að spurningunni um hvernig kaþólska kirkjan tekur á þessum málum í dag er ljóst að rannsóknarnefndin telur að kaþólska kirkjan eigi mikið ógert. Þrátt fyrir þetta hafa lítil merki sést um úrbætur af hálfu kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og er það mat rannsóknarnefndarinnar að töluverð vinna sé eftir áður en hægt verði að segja að kirkjan sé í stakk búin til að takast á við mál vegna kynferðislegs eða annars konar ofbeldis gegn börnum, segir í skýrslunni. Það er ýmislegt sem rannsóknarnefndin bendir á í þessu sambandi.
Kirkjan þurfi m.a. að bæta skráningu skjala. Nefndin telur varhugavert fyrir kaþólsku kirkjuna á Íslandi að leggja til grundvallar þá þröngu túlkun á skyldu til að skrá og varðveita upplýsingar um meint ofbeldisbrot, sem fram kemur í andmælabréfi lögmanns kirkjunnar dagsettu 17. október 2012.
Í viðtölum við presta kirkjunnar kemur fram að þeir hafi enga kynningu fengið á íslenskum lögum og reglum af hálfu kirkjunnar. Til samanburðar nefndu nokkrir að á Englandi hefðu þeir fengið ítarlega fræðslu um lög landsins, verklagsreglur og framkvæmd þeirra.
Nefndin lýsir í skýrslunni áhyggjum af lítilli þekkingu presta á íslenskum lögum og m.a. helstu ákvæðum barnalaga.
Kaþólski biskupinn fylgi orðum sínum eftir Rannsóknarnefndin telur nauðsynlegt fyrir kaþólsku kirkjuna að staldra við og skoða alvarlega hvernig prestar í dag telja rétt að bregðast við ásökunum um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Kirkjan þurfi að setja sér verklagsreglur um viðbrögð við ofbeldi og bendir í því sambandi á reglur sem kaþólska kirkjan í Danmörku hafi sett.
Í reglunum þurfi að byggja á virðingu fyrir þeim sem segja frá. Rannsóknarnefndin telur brýna nauðsyn að núverandi biskup kaþólsku kirkjunnar fylgi með markvissum hætti eftir fullyrðingum sínum að kirkjan lúti landslögum og sjái til þess að allir fari eftir viðurkenndri túlkun barnaverndarlaga um tilkynningu starfstétta, þar með talið presta.
Tengdar fréttir Rannsókn á kaþólsku kirkjunni Leituðu til læknis vegna andlegs ofbeldis 16:25 Dæmi eru um að nemendur sem voru í Landakotsskóla meðan séra George var skólastjóri skólans hafi leitað til læknis vegna andlegs ofbeldis sem þeir máttu þola í skólanum. Nemendur fóru grátandi úr tíma, voru kvíðnir, með höfuðverk, magaverk og jafnvel uppköst og magabólgur./////////////Það er svo að þarna er sjúkt fólk varið í bak og fyrir af kirkjunni kaþólsku,eins og okkar lútersku einnig!!þetta vandamál er þvi miður þekt um hinn kristna heim,og reyndar annarra trúar!!en eins og er verður að skoða þetta betur,og vinna þetta rétt,engan hasar,bara vinn þetta heilt!!og ekki láta þetta koma niður á saklausum sem eru flestir!!þetta er í raun eins og ég hefi áður sagt,bara sakamál og það ber að láta það ganga þann veg!!ekkert annað,og auðvitað þarf kirkjan að taka vel á þessu einnig,og annað að þetta á ekki bara vinnast í fjölmiðlum,als ekki!!!/Halli gamli
![]() |
Lítil merki um úrbætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2012 | 22:12
Lægð með heitu lofti á leiðinni///Það ágætt ef það stendur eitthvað!!!
Lægð með heitu lofti á leiðinni Innlent | mbl.is | 2.11.2012 | 21:05 Á sunnudag og mánudag tekur lægð með suðvestanhátt við af norðanáttinni sem valdið hefur eignatjóni víða um land.
Kaldur loftmassi frá norðurpólnum víkur fyrir heitara lofti úr suðri. Umskiptin eru mikil en Veðurstofa Íslands spáir 7 stiga hita í Reykjavík og á Kirkjubæjarklaustri á mánudaginn kemur.
Að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofunni eru slíkar hitatölur ekkert einsdæmi í nóvember, enda haustlægðir þá að ganga yfir landið.//////////////Það er bara gott að fá hlýjuna aftur ,og vonandi stendur smá tíma,og lægðirnar stoppi smá stund,komin tími á það!!!við erum bara sátt við það!!!kannski ekki skíðafólkið??en við gamlingjar allavega,og fl.////Halli gamli
![]() |
Lægð með heitu lofti á leiðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2012 | 15:04
Snjóflóð í Súðavíkurhlíð//Veður fer ekki skánandi nema síður sé!!!!
Snjóflóð í Súðavíkurhlíð Innlent | mbl.is | 2.11.2012 | 14:27 Vegurinn á Kjalarnesi er lokaður vegna veðurs, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Súðavíkurhlíð er lokuð vegna snjóflóðs. Vegurinn milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er lokaður vegna snjóflóðahættu.
Vegurinn á Sólheimasandi er lokaður vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði lenti bifreið í snjóflóðinu en ökumanninum tókst að komast út úr flóðinu af eigin rammleik og amar ekkert að honum.
Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um snjóflóðið hjá lögreglunni á Ísafirði. Óveður er á Grindavíkurvegi, Vesturlandsvegi, Kjalarnesi, Mosfellsheiði, Gjábakkavegi, Hellisheiði, í Þrengslum og við Akrafjall.
Það eru hálkublettir á Gjábakkavegi og í sunnanverðum Hvalfirði. Á Vesturlandi er ófært á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Hálkublettir og skafrenningur er í Borgarfirði, hálka og stórhríð í Svínadal og hálka og skafrenningur í Dölunum.
Á Laxárdalsheiði eru hálkublettir og skafrenningur. Á Vatnaleið er hálka og éljagangur og hálka og óveður á Fróðárheiði. Óveður er einnig á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Á Vestfjörðum er ófært á Klettshálsi, Gemlufallsheiði, Dynjandisheiði, Hrafnseyrarheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Hálka og skafrenningur er á Kleifaheiði og hálkublettir og éljagangur á Hálfdán og Mikladal. Snjóþekja og skafrenningur er í Dýrafirði, en snjóþekja og stórhríð í Önundarfirði og Súgandafirði.
Í Ísafjarðardjúpi er snjóþekja og skafrenningur en þæfingsfærð á Vatnsfjarðarhálsi. Snjóþekja og stórhríð er í Reykhólasveit og vestur í Kollafjörð. Snjóþekja og stórhríð er í Steingrímsfirði og Ennishálsi. Þæfingsfærð er frá Drangsnesi í Bjarnarfjörð en ófært norðan Bjarnarfjarðar.
Á Norðvesturlandi er þungfært eða hálka og stórhríð í Húnavatnssýslum en ófært á Skagastrandavegi og í Langadal. Í Skagafirði en ófærð og stórhríð á flestum leiðum.
Ófært er á Vatnsskarði og Þverárfjalli. Norðaustanlands er víðast hvar ófærð og stórhríð og beðið með mokstur vegna veðurs. Þó er snjóþekja í innanverðum Eyjafirði og þæfingsfærð í Vopnafirði. Á Austurlandi er ófært á fjallvegum og víða þungfært, þæfingsfærð eða snjóþekja í byggð.
Snjóþekja og skafrenningur er milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Óveður er í Berufirði, Hamarsfirði, Hvalnesi og í Lóni og mjög slæmt ferðaveður milli Djúpavogs og Hafnar.
Á Suðaustur- og Suðurlandi er óveður undir Eyjafjöllum og hefur veginum verið lokað tímabundið vegna þess. Ófært er á Skeiðarársandi vegna sandfoks.
Einnig er óveður við Lómagnúp og í Öræfum. Hálkublettir eru frá Kvískerjum að Vík. Tengdar fréttir Veðurofsi í nóvember/////////////Þetta er ekki glæsilegt veðurfar!!það er versanandi ef eitthvað er,og er með því mesta svo víða sem maður man!!en þetta mun ekki lægja fyrr en á morgun eða seint annað kvöld!!það er víða orðið mikið tjón eins og sagt er þarna!!vonandi engin slys og það fyrir vonandi verður ekki,í öllum bænum eins og sagt er verið ekki á ferð,nema í nauð,og það eiga allir að hlusta á féttir!!það gæti farið rafmagn þegar hefur það farið sumstaðar,en farið varlega öll blessuð////Halli gamli
![]() |
Snjóflóð í Súðavíkurhlíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Útköllin í borginni hrúgast inn Innlent | mbl.is | 2.11.2012 | 10:10 Útköllin í borginni eru að hrúgast inn núna, segir Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Flest útköllin eru vegna þakplatna sem eru að fjúka.
Fyrstuútköllin í morgun voru aðallega í efri byggðum borginnar og í Mosfellsbæ. Núna séu útköllin m.a. í miðbæ Reykjavíkur.
Jónas Guðmundson hjá Landsbjörg, segir að um 100 útköll hafi borist síðasta klukkutímann. 14 hópar björgunarmanna, líklega um 60-70 manns, eru nú að störfum. Verið er að reyna að bæta við fólki.Það er allt vitlaust að verða, segir Jónas um útköllin.
Tilkynnt var um járnplötur að fjúka nálægt barnaskóla í borginni og víðar að komu sambærileg útköll. Hnotskurn Veðurstofan varar við norðan vonskuveðri á öllu landinu næsta sólarhring
. Búast má við norðanstormi með vindhraða á bilinu 20-28 m/s um allt land og mjög hvassar vindhviður, allt að 55 m/s, við fjöll, Þá eru þakplötur að losna af húsum við Laugaveg og björgunarsveitarmenn á staðnum að reyna að festa þær.
M.a. var tilkynnt um að plötur væru að fjúka af þaki Hótel Skjaldbreiðar við Laugaveg 19. Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna óveðursins. Bílstjórar eru varaðir við að aka um Sæbraut vegna sjóroks.//////////Eins og þarna!! má sjá förum við ekki varhluta að veðrinu als ekki samt erþað verra fyrir Vestan Norðan og Austan!! en þetta er svo að Björgiunarsveituir eru okkar stuðningur þarna blessaðir þeir eru okkar ídolar og vel það!!Lögregla einnig og sjúkraliðið,allir eig þeir bara gott skylið og ekkert annað!!!En eins og ég hefi áður sagt,takið málin alvarlega ekki bara grínast//Halli gamli
![]() |
Útköllin í borginni hrúgast inn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Von á meiri snjókomu og stormi Innlent | mbl.is | 2.11.2012 | 5:42 Akureyrarbær er ófær eða illfær að mestu.
Mikið hefur snjóað í nótt og er nú skafrenningur og slæmt skyggni. Í dag er spáð norðanátt, víða stormi eða roki.
Talsverð snjókoma verður á Norður- og Austurlandi, annars él. Frost 0 til 5 stig. Akureyrarbær er ófær eða illfær að mestu nú í morgunsárið.
Mikið hefur snjóað í nótt og er nú skafrenningur og skyggni mjög lélegt, að sögn lögreglunnar á Akureyri.
Á Ísafirði hefur einnig snjóað töluvert í nótt en allt með kyrrum kjörum í bænum, að sögn lögreglu.
Færð hefur spillst víða um land í nótt. Þá var hvasst á höfuðborgarsvæðinu í nótt og er enn.
Sem dæmi þá fór vindur í hviðum yfir 50 m/s á Geldinganesi í nótt samkvæmt mælum Veðurstofunnar. Í dag er spáð norðanátt, víða stormi eða roki (20-25 m/s).
Talsverð snjókoma verður á Norður- og Austurlandi, annars él. Frost 0 til 5 stig. Heldur hægari vindur austanlands seint í dag og slydda eða rigning þar. Veðurstofan varar við stormi, vindhraða meiri en 20 m/s á landinu.
Víða mjög snarpar vindhviður við fjöll, einkum á sunnanverðu landinu. Spáð er norðanillviðri á landinu fram á laugardagskvöld, en veður fer síðan batnandi. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð norðan 18-23 m/s og éljum í dag
. Vægt frost. Upp úr miðnætti voru björgunarsveitir kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu en þá var orðið mjög hvasst og eitthvað um að þakplötur væru að losna og þá voru trampolín fjúkandi á nokkrum stöðum. Óljóst var nú í morgun um tjón af völdum veðurofsans, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Lendum í átökunum miðjum Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifar pistil um norðankastið á bloggsíðu sína
. Þar segir Trausti m.a.: Í gær var fleygur af mjög köldu lofti sem lá til suðurs yfir landið og hafið vestur af. Nú er þessi fleygur kominn langt vestur af en hlýtt loft úr austri breiðist vestur yfir landið.
Vindörvarnar sýna um 20 hnúta (10 m/s) vind af norðaustri yfir Vesturlandi en yfir Austurlandi er heldur sterkari austanátt. Mikill hitabratti er yfir landinu frá vestri til austurs.
Í grófum dráttum má segja að kalda loftið hrannist upp undan ásókn þess hlýja, við lendum í átökunum miðjum./////////Þetta gekk þá eftir og það vel þegar það kom ekki eins fljótt og sagt var en er komið um allt land og misjafnir þó það snjóar fyrir Vestan Norðan og Austan en mynna hér á suðvesturhorni,enn það er gott að mark er tekið áþessu og bjargar miklu og þetta með að kalla veður Úlfur Úlfur,fer að dala sem betur fer er fólk að sjá að allur er varin góður!!Það ger einnig þessir fellibyljir erlendis sem engu eyra!! /En við bara vonum að þetta valædi sem minstum slysum og allir sé þessa megnugirað vera innandyra á meðan þetta gengur yfir,nema Björgunarmenn og Lögregla og sjúkrafólk,og aðrir í nauðsin!!!/Halli gamli
![]() |
Von á meiri snjókomu og stormi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vonast til að geta nýtt sér makríldeiluna Innlent | mbl | 1.11.2012 | 23:17 Sjávarútvegsfyrirtæki í Noregi vonast til þess að geta hagnýtt sér það ef Íslendingar verða beittir refsiaðgerðum af hálfu Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar til þess að selja meira af sjávarafurðum sínum til ríkja sambandsins.
Þetta kemur fram í svari frá norska sjávarútvegsráðuneytinu við fyrirspurn frá mbl.is.
Tilefni fyrirspurnarinnar voru ummæli sem höfð voru eftir skoska Evrópuþingmanninum Struan Stevenson á fréttavefnum Fishupdate.com fyrr í vikunni þess efnis að Norðmenn væru reiðubúnir að selja Bretum sjávarafurðir í stað þeirra sem þeir keyptu frá Íslandi eins og staðan er í dag ef til þess kæmi að Evrópusambandið beitti Íslendinga refsiaðgerðum vegna makríldeilunnar
. Sagðist Stevenson hafa þetta eftir norska sjávarútvegsráðherranum, Lisbeth Berg-Hansen. Kristine Gramstad hjá norska sjávarútvegsráðuneytinu. Ljósmynd/Scanpix En ég hef talað við norska sjávarútvegsráðherrann sem hefur fullvissað mig um að Noregur búi yfir mörgum þúsundum tonna af þorski sem sé til staðar og að þeir væru meira en reiðubúnir að fylla það skarð sem bann við íslenskum þorski ylli.
Íslendingar og Færeyingar ættu að passa sig því þeir gætu tapað markaðshlutdeild til Noregs varanlega ef Evrópusambandið grípur til refsiaðgerða, sagði skoski Evrópuþingmaðurinn samkvæmt frétt Fishupdate.com.
Gert ráð fyrir metafla á þorski úr Barentshafi Halvard Wensel, talsmaður norska sjávarútvegsráðuneytisins, segir það reyndar ekki rétt að Stevenson hafi hitt Berg-Hansen. Hins vegar hafi hann rætt við Kristine Gramstad, hátt settan embættismann í ráðuneytinu.
Hann sagðist á hinn bóginn geta staðfest að Norðmenn gerðu ráð fyrir metháum þorskkvóta á næsta ári vegna samnings sem norsk stjórnvöld hefðu gert við Rússa í október um auknar þorskveiðar í Barentshafi samtals upp á eina milljón tonna.
Fyrir vikið verður meira framboð á þorski á mörkuðum. Norsk sjávarútvegsfyrirtæki vilja selja framleiðslu sína á þá markaði sem vilja kaupa þorsk frá Noregi og þar á meðal markaði þar sem aukin eftirspurn kann að skapast þegar refsiaðgerðum verður beitt gegn íslenskum sjávarafurðum,
segir Wensel og vísar þar til reglugerðar sem tók formlega gildi hjá Evrópusambandinu í síðustu viku og heimilar sambandinu að beita refsiaðgerðum gegn ríkjum sem það telur stunda ósjálfbærar veiðar á deilistofnum.
Þess má geta að íslensk stjórnvöld hafa bent á að samkvæmt umræddri reglugerð Evrópusambandsins sé einungis heimilt að beita refsiaðgerðum gegn makrílafla íslenskra fiskiskipa og hugsanlegum meðafla í slíkum veiðum en ekki íslenskum sjávarafurðum almennt eins og til að mynda þorski.
Annað væri brot á alþjóðlegum samningum sem aðilar makríldeilunnar eru aðilar að líkt og EES-samningnum. Þá hafi íslenskur makríll hvort eð er ekki verið seldur til Evrópusambandsins./////////Þetta er svo að þessi samvinna við Norænnu ríkin og ESB er bara að koma okkur í koll og ekkert annað!!Við sjáum okkar sæng út breidda ef þessu verður ekki bara svarað strax og vell og við bara förum okkar leið þarna sjálf en ekki eftir þeirra höfði,það er deila og hana ber að leisa öllum i hag/Halli gamli
![]() |
Vonast til að geta nýtt sér makríldeiluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2012 | 21:10
Fór yfir 60 metra á sekúndu///
Fór yfir 60 metra á sekúndu Innlent | mbl.is | 1.11.2012 | 20:47 Stormur er nú víða um land og má búast við því aðáfram verði hvasst í nótt.
Snarpar vindhviður eru víða, einum suðaustanlands, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Fór vindhraðinn yfir 60 metra á sekúndu í Hamarsfirði í Suður-Múlasýslu í kvöld
. Telur veðurfræðingur á Veðurstofunni ekki ólíklegt að snarpar vindhviður eigi eftir að fylgja storminum frá Snæfellsnesi til Austfjarða.
Lélegt skyggni vegna öskufoks Á Suðausturlandi er hvasst og má búast við N 20-25 m/s undir Vatnajökli og Eyjafjöllum.
Þar má búast við vindhviðum um og yfir 40 m/s. Skyggni á þessum slóðum, sem og annar staðar á Suðurlandi hamlast vegna sand og öskufoks, og seint í nótt má gera ráð fyrir éljagangi frá Breiðamerkursandi og til austurs, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Mjög hvasst er undir Eyjafjöllum líkt og víða fyrir austan fjall. mbl.is/Jónas Erlendsson Suðvestan og vestantil er áfram hvasst, N 18-23 m/s og vindhviður 30-35 m/s, en búast má við hvössum vindstrengjum við fjöll s.s. á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Kjalarnesi.
Óveður er á Kjalarnesi og við Akrafjall. Það eru hálkublettir á Gjábakkavegi og í sunnanverðum Hvalfirði. Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku. Hálkublettir og óveður er á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og snjóþekja og skafrenningur á Þröskuldum. Snjóþekja og stórhríð er á Gemlufallsheiði. Hálka eða hálkublettir og éljagangur eða skafrenningur er á öðrum leiðum.
Ófært og stórhríð er á Klettshás. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði, einnig er ófært á Veiðileysuhálsi.
Á Norðvesturlandi er hálka eða hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum. Þæfingsfærð og stórhríð er á Þverárfjalli og á Vatnsskarði.
Á Norðausturlandi er hálka og skafrenningur á Siglufjarðarvegi, þæfingsfærð og stórhríð á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Þungfært og éljagangur er í Dalsmynni.
Ófært er á Hólasandi. Snjóþekja og stórhríð er á Mývatnsöræfum, snjóþekja og óveður á Hófaskarði og hálka og óveður á Sandvíkurheiði.
Hálka og skafrenningur eða éljagangur er á öðrum leiðum.
Á Austurlandi er ófært á Fjarðarheiði, í Oddskarði og á Fagradal og er beðið með mokstur, ófært er líka á Breiðdalsheiði og Öxi.
Snjóþekja, hálka og stórhríð er á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Þungfært og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Hálka og óveður er á milli Breiðdalsvíkur og Hafnar. Snjóþekja eða hálka og snjókoma eða skafrenningur er á öðrum leiðum.
Á Suðaustur- og Suðurlandi er óveður við Lómagnúp og undir Eyjafjöllum. Hálkublettir eru frá Kvískerjum að Vík.
/////////////Erum við bara ekki nálægt meti þarna?? vindhviður uppí 60 m/s eru ekki mjög algengar hér Landi eða það er kannski vankunátta hjá mér en mig minnir það sé kannski meira,En við skulum bara vona að það versni ekki mikið úr þessu en það getur verið vont í nótt og morgun ,svo dregur aðeins úr þessu um um helgina en samt ekki alveg fyrr en á mánudag,ef það er þá víst,en bara förum varlega og vera ekki á ferð nema í nauð!!!/Halli gamli
![]() |
Fór yfir 60 metra á sekúndu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2012 | 15:19
Bónus með lægsta vöruverðið///Iceland verður að taka sig á,Jóhannes!!!
Bónus með lægsta vöruverðið Innlent | mbl.is | 1.11.2012 | 14:42 Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfðuborgarsvæðinu síðastliðinn laugardag.
Matarkarfan var ódýrust hjá Bónus á 16.791 kr. en dýrust hjá Nóatúni á 20.523 kr. sem er 3.732 kr. verðmunur eða 22%
Verslunin Iceland var með næst ódýrustu matarkörfuna en þar kostaði hún 17.154 kr. sem er 2% meira en karfan hjá Bónus.
Á eftir Iceland kom Krónan með matarkörfu sem kostaði 18.059 kr. sem er 8% hærra verð en hjá Bónus.
Matarkarfan hjá Fjarðarkaup kostaði 18.683 kr. og var því 11% dýrari en hjá Bónus.
Eins og áður segir var matarkarfan dýrust hjá Nóatúni á 20.523 kr. Verslanirnar Nettó og Hagkaup komu þar á eftir og voru 17% dýrari en karfan hjá Bónus.
Mestur verðmunur á bönunum Af einstaka vörum í matarkörfunni var mestur verðmunur á ódýrustu fáanlegu bönunum sem voru dýrastir á 379 kr./kg. í Hagkaup en ódýrastir á 147 kr./kg. hjá Iceland, verðmunurinn var 232 kr. eða 158%.
Ekki er víst að það sé verið að bera saman banana af sama gæðaflokki, enda eru verslanirnar ekki alltaf að merkja það sérstaklega. Mikill verðmunur var einnig á rauðum 26% Gouda Góðosti sem var dýrastur á 1.799 kr./kg. hjá Hagkaupum en ódýrastur á 1.090 kr./kg. hjá Iceland, verðmunurinn var 709 kr./kg. eða 65%.
Munar minnstu á fjörmjólkinni Minnstur verðmunur að þessu sinni var á Fjörmjólk sem kostaði 144 kr./l. hjá Iceland og 145 kr./l. hjá öllum hinum verslununum, en er það 1 kr. verðmunur.
Af öðrum vörum í könnuninni má nefna Uncle Bens Sweet & sour orginal sem var dýrast á 458 kr. stk. hjá Nóatúni en ódýrast á 359 kr. stk. hjá Bónus, verðmunurinn var 99 kr. eða 28%. Neutral svitalyktaeyðir var dýrastur á 549 kr. hjá Nóatúni en ódýrastur á 359 kr. hjá Bónus sem er 53% verðmunur.
Matarkarfan samanstendur af 48 almennum neysluvörum til heimilisins t.d. mjólkurvörum, morgunkorni, grænmeti, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat og fleiru, samkvæmt frétt á vef ASÍ.
Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.
Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum. Kostur Dalvegi og Samkaup-Úrval og Víðir neituðu þátttöku í könnuninni.
Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum; Bónus Kringlunni, Krónunni Granda, Nettó Mjódd, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Iceland Engihjalla, Nóatúni Hringbraut og Hagkaupum Holtagörðum.
Verslanirnar Kostur Dalvegi, Samkaup-Úrval og Víðir neita þátttöku í könnuninni, þar sem þeir telja það ekki þjóna hagsmunum sínum að gerður sé verðsamanburður á vöruverði í verslunum þeirra og öðrum verslunum eins og gert er í þessari könnun. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila, segir á vef ASÍ.
////////////Þetta sýnir samkeppni að marki,en ekki alltaf gæðum? en samt gott að fá hana,skrítið samt að tvær verslanir skuli ekki vera með,ég hefi reyndar farið þar sjálfur og fundist Víðir vera á þessu róli,en aftur ekki Kostur nema í tilboðum!!! en við skulum bara einnig gera könnun sjálf,þá fáum við þetta beint í æð,en svona í framhjáhlaupi er talið að það sem alltof mikið sé af eru verslanir og bankar,þetta er 3* meira en T.D. Svíþjóð miða við mannfjölda/////Halli gamli
![]() |
Bónus með lægsta vöruverðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2012 | 11:58
Ísland í 15. sæti velmegunarlista///hröpum niður stigan,vinstri sjórnin sér um það!!!
Ísland í 15. sæti velmegunarlista Innlent | mbl.is | 1.11.2012 | 11:09 Noregur er sem fyrr efst á lista bresku stofnunarinnar Legatum yfir velmegun í ríkjum heimsins þetta árið en í öðru sæti er Danmörk og í því þriðja Svíþjóð.
Þar á eftir kemur síðan Ástralía, Nýja Sjáland, Kanada og Finnland. Þá koma Holland, Sviss og ÍrlandÍsland vermir hins vegar 15. sæti listans en fram kemur í skýrslu stofnunarinnar að landið sé á meðal þeirra ríkja sem mest hafi lækkað á listanum ásamt Grikklandi, Litháen og Spáni en það er einkum rakið til þróunar mála í efnahagslífi landanna
. Ísland var í 12. sæti 2009-2011.
Hins vegar er Ísland í fyrsta sæti ef horft er til þjóðaröryggismála og félagslegs öryggis einstaklinga, 9. sæti ef aðeins er horft til nýsköpunar og tækifæra og 10. sæti varðandi einstaklingsfrelsi.//////////Þetta fer að kallast frjálst fall listans hjá okkur,ekki er það gott!!en þessi vinstri sjórn vill þetta,og svo á að koma okkur bara inn í ESB,og það er stefnan,hjá þeim og ekkert annað!!!/Halli gamli
![]() |
Ísland í 15. sæti velmegunarlista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.7.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar