Laun undir 260 þúsund kr. hækka meira/annað hefði verið óhæft!!! en samt hefði krónutalan átt að gylda !!!

Laun undir 260 þúsund kr. hækka meira
Innlent | Morgunblaðið | 7.5.2011 | 5:30

Lægstu launin hækka mest,. Mánaðarlaun launþega sem nú eru undir 260 þúsund krónum á mánuði hækka hlutfallslega meira en laun þar yfir, samkvæmt nýgerðum kjarasamningum. Þannig hækka 200 þúsund króna laun upp í 234 þúsund á tveimur árum sem svarar til 17% hækkunar.

Öll laun umfram 260 þúsund króna hækka um 11,4%, eða um 34 til 70 þúsund á mánuði, miðað við 300 til 600 þúsund króna mánaðarlaun í dag.

Í umfjöllun um kjaramálin í Morgunblaðinu í dag segir, að vegna lágmarks dagvinnulaunatryggingar hækka lægstu laun mest. Lágmarkslaun fara í 204 þúsund sem er 24% meira en nú.////það er svo erfitt að mata þetta alveg fyrr en maður sér það með eigin augum, en fyrst talað er um launajöfnuð er það ekki bara í einu heldur öllu ekki bara kalla og kvenna heldur verður að gata lifað af laununum !!! það er númer eitt,það sem að er að þessi lægstu laun hefðu átt að hækka strax þi 204 þus það er málið einnig eingreiðslan með því 50 þus bara uppúr,en svo er þetta og verður að skoðast það eru ýmsir félagsmálapakkar þarna einnig sem eru inní þessu svo það kannski kemur sig,en samt það vita allir að menn lifa ekki á 180 þus samt er það hækkunin álægstu laun nú þar til næsta ár/þá segja menn bara það verður að læra til fá betri laun,en það verður einkver að vinna hitt hin venjulega verkamannavinnu og verslunar og þjónustu störf,en það er svo að hinir betur launuðu eru alltaf  mikið betur settir,ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Laun undir 260 þúsund kr. hækka meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

250 herbergja lúxushótel verði opnað viðHörpu árið 2014/þetta er i lagi að erlendir byggi þarna hótel,en það er löngu komin umferðaþröng þarna semn er ekki á bætanadi!!!

250 herbergja lúxushótel verði opnað við Hörpu árið 2014
Innlent | Morgunblaðið | 7.5.2011 | 5:30

Til stendur að reisa 250 herbergja hótel á hafnarbakkanum... Byggingareiturinn við hlið tónlistarhússins Hörpu á Austurhöfn í Reykjavík hefur nú verið auglýstur til sölu. Fyrirhugað er að á reitnum rísi hótel af 4-5 stjörnu gæðum sem rekið verði í samstarfi við Hörpu varðandi ráðstefnuhald og gistingu.

„Þetta mál var í ákveðnu ferli og í rúmt ár var unnið að því að finna fjárfesta, bæði hérlendis og erlendis, en það gekk nú frekar illa. Það voru margir skeptískir á að fjárfesta á Íslandi,“ segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Situs ehf, dótturfélags Austurhafnar.

Pétur segir að stórar hótelkeðjur, s.s. Hilton og Marriot, hafi mikinn áhuga á reitnum og hafi átt viðræður við fjárfesta um að reisa hótelbyggingar til leigu. „En þeir höfnuðu nú allir að fjárfesta á þessum draumastað.“ Að sögn Péturs var það almennur ótti við Ísland sem var helsta skýringin. „Menn voru hræddir við að fjárfesta þar sem var gjaldmiðill sem menn höfðu ekki fullt traust á.“ Samkeppnin sé auk þess talsverð því þúsundir hótelverkefna séu um allan heim og tækifæri fyrir fjárfesta því víða.

Útboðið er auglýst í dagblöðum á Íslandi sem og á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkefnið er stórt og áætlað að framkvæmdatími verði 2-3 ár. „Okkar von er að hótelið hefji rekstur vorið 2014 en ekki seinna en 2015.“ ////þetta í sjálfri sér ágætt að útlendir fjarfestar vilji byggja þarna en þessari umferð um þennan stað er þegar ekki í lagi og verður ekki,ef þessu heldur áfram,það er ekki spurning að þetta verður ein kaos,og ekkert sem breytið því!! það er ein og með þessa vitleysu með landspítalana þegar og ef hann veður byggður sem við höfum ekki efni á nú!!! þar verður umferðin öll til trafala ekki spurning og nóg svæði til annarstaðar sem er miðsvæðis og að' þetta varði að vara hjá´Háskálanum er er bara fyrir sláttur,en þarna yrði ein kaos með umferð ekki sjáanlegt með að þetta getið gengi'.að er unnið eins  og  um vitleysingar séu þarna ráðandi en menn með verksvit/Halli gamli


mbl.is 250 herbergja lúxushótel verði opnað við Hörpu árið 2014
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákæra gefin út í næstu viku/einn versti og stærsti ljóður vinstri manna á Alþingi Íslendinga !!!!

Ákæra gefin út í næstu viku
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 6:50

 Landsdómur kemur saman á fyrsta fundi. Ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra verður gefin út í næstu viku, að sögn Fréttablaðsins. Þar kemur fram að ákæruskjalið sé tilbúið og verði sent landsdómi og verjanda Geirs eftir helgina ásamt gögnum málsins.

Samkvæmt frétt blaðsins er ákæran tvær blaðsíður en skjalaskrá vegna ákærunnar um hundrað blaðsíður auk þess sem tilgreind eru tæplega fjörutíu nöfn vitna sérstaks saksóknara. Vitnin eru öll íslensk.

Þingfesting getur ekki farið fram fyrr en þremur vikum eftir að stefna er birt.//// þetta er og vonandi verður ein stærsti og versti gjörnigur vinstri mann á Alþingi fyrr og siðar,manni finnsk þetta  glæpi næst og a´ekki að gera en ekkert getur hamla hatri þessar Komma,.að er leynt og ljóst að ekkert annað er á bak við þetta ljótara getur það  ekki orðið,að mínu áliti!!!!/Halli gamli


mbl.is Ákæra gefin út í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfur einna dekkstar á Íslandi/þetta kaupir maður ekki alveg,setur allavega fyrirvara!!!

Horfur einna dekkstar á Íslandi
Viðskipti | mbl.is | 6.5.2011 | 15:04

 Í nýlegri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (World Economic Outlook) um þróun hagkerfa heimsins til ársins 2016 kemur Ísland afar illa út og eru hagvaxtarhorfur einna dekkstar hér á landi, að því er segir í frétt á vef Viðskiptaráðs.

Segir þar að af spánni megi ráða að raunveruleg hætta sé á því að efnahagsbatinn verði það veikur að uppsafnað velferðartap geti hæglega numið 2 til 3 þúsund milljörðum króna. Þegar horft er til alls tímabilsins, frá 2008 til 2016, þá verður meðalhagvöxtur hér á landi um 0,8% - að því gefnu að spá AGS rætist - sem er níundi slakasti árangurinn af þeim 183 löndum  sem spáin nær til. Meðalhagvöxtur þeirra ríkja sem spáin nær til er tæplega 4%.

Stöðnun ekki kostur í stöðunni

„Litlu breytir ef horft er til „endurreisnaráranna“, þ.e. 2010 til 2013 þá fæst sama  niðurstaða  eða níunda neðsta sæti. Ef menn vilja teygja sig enn frekar og horfa  til 2011 til 2016 þegar öll áhrif og eftirköst kreppunnar ættu að vera komin fram þá er hagvöxtur enn afar veikur og er Ísland þá í 144 sæti af 183 löndum. Hvernig sem horft er á  þessar tölur þá er ljóst að batinn er langt frá því að vera viðundandi,“ segir Viðskiptaráð.

Ráðið segir að bati hagkerfisins sé mikilvægur til að endurheimta þau lífskjör sem tapast hafa  sem og viðhalda þeirri lífskjaraaukningu sem hagkerfið hefur burði til að veita. „Í Peningamálum Seðlabankans frá því 20 apríl síðastliðinn kemur fram að sú  framleiðsla og lífskjör sem hafa tapast yrði að fullu endurheimt um mitt ár 2014. Það er vissulega jákvætt. Hinsvegar ber að forðast að falla í þá gryfju að stefna á stöðnun með það að markmiði að viðhalda ákveðnum lífskjörum heldur á  markmiðið að vera að stuðla að og viðhalda stöðugri lífskjaraaukningu frá ári til  árs. Stöðnun er ekki kostur í stöðunni.“////Þessu munum við ráða dálitlu sjálf!!!! ekki spurning, það er ekki spurning að við verðum að framkvæma og það i réttri röð og forgangsraða vel það ber að gera það sem  skilar arði og það að mestu ,ekki bar verkefnum sem við köllum gæluverkefni meðan efnin eru ekki meiri en þau koma ef vel er af staðið,og það ber að gera virkja og selja rafmagn hæðtstbjóðanda klára þessu tvö Álver og svo framvegis,og laga alla okkur vegi ,geyma göng að sinni þar til  við getum og höfum efni!!! semsagt mannfrekra vinnu auka kvóta um tíma allavega og leigja hann,og svo vinna meiri afla hérna innanlands,svo ger allt til að fá hingað fjárfesta sem vilja leggja i eitthvað arðbært sem skilar okkur hagnaði,við erum aftur komnir í alfarleið þegar og ef opnar bein leið her á norðurslóðum austurleið/Halli gamli


mbl.is Horfur einna dekkstar á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð/við sem vorum unglingar um það að flugvöllur var byggður af bretum og eftir það höfum þarna leikvöll,og mikið gaman!!!!

Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 10:09

Háskólinn í Reykjavík. Risavaxin skógarsög, Raggi Bjarna og gönguferðir í Öskjuhlíðinni undir leiðsögn verða meðal þess sem verður um að vera á Öskjuhlíðardeginum

Hann verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, laugardaginn 7. maí og verður hátíðin sett klukkan 11 í Sólinni, sem er aðalbygging Háskólans í Reykjavík.

Að sögn Jóhanns Hlíðar Harðarsonar, upplýsingafulltrúa Háskólans í Reykjavík, tekur síðan við fjölbreytt dagskrá.  Þar má nefna siglingar um Fossvog, sjóbað í Nauthólsvík,  rathlaupsleik fyrir fjölskylduna og gönguferðir um Öskjuhlíðina, en þar verða meðal annars skoðaðar stríðsminjar undir leiðsögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings.

Einnig verður starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar kynnt.

Á bílaplani HR verður stærðarinnar skógarsög sem breytir trjám í verðmæta nytjahluti og í aðalbyggingu HR sýna nemendur HR og Listaháskólans gagnvirk listaverk sem þeir  hafa  skapað  í  vetur. 

Söngvarinn   Ragnar  Bjarnason skemmtir svo gestum  í  hádeginu í aðalbyggingu  HR og fjögur ljóðskáld flytja  ljóð  sín  í  hlíðum   Öskjuhlíðar  í  lok  skipulagðra gönguferða. 

Undirritað verður samkomulag um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf  Reykjavíkurborgar,  Háskólans  í  Reykjavík  og   Skógræktarfélags Íslands  um  útivistarsvæðið  í  Öskjuhlíð  með  það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði.

Að undirritun lokinni heldur Jón Gnarr  borgarstjóri sýnikennslu í því hvernig búa á til moltu./////þetta gott að halda þessu sem útistasvæði og ganga þarna vel um ,þetta var hjá okkur her áður og mikið leikið sér

þarna,bæiðn fyrir og eftir herinn sem byggði flugvöllinn !!okkur ,þetta mikið fjör og gaman að leika sér

 stríðsminjum þarna, þetta er gósen útivistland fyrir bæði fullorðna og börn!! það að halda þessu við og hafa

 gæslu,þarna var ,og samráð fyrirtækja,en á ekki að vera!!!

þetta á að hafa svona og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Skógarsög og Raggi Bjarna í Öskjuhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rigning með köflum//vonandi að sólin hafi viningin hér suðrhorni,við eigum að inni!!!!

Rigning með köflum
Innlent | mbl.is | 7.5.2011 | 7:57

Búast má við rigningum með köflum sunnan- og austanlands en... Veðurstofan spáir austanátt, víða 5-10 m/s, en 10-15 m/s við suðausturströndina og syðst fram yfir hádegi. Rigning með köflum sunnan- og austantil en annars þurrt að mestu.

Norðuaustan 8-15 m/s á morgun með lítilsháttar vætu norðantil en bjart að mestu sunnantil. Hiti 5 til 14 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi.///maður vonar það i lengstur lög að við höfum sól og blíðu her vesturhornið,við eigum það skilið ekki spurning,það er svo með þetta veður að það er ekki á vísan að róa með það en norðanátt á fyrripart sumar er oft goð og sól með henni en verri d fyrir norðan og vestan og Austan/en ekki hægt að alhæfa það ,en maður má vona,það er N.A. 3 m/s léttskíað+ 8'C /Halli gamli


mbl.is Rigning með köflum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þráinn fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu/hann kallar ekki allt Ömmu syna,enda skáld á launum!!!

Þráinn fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 15:01

Þráinn Bertelsson, þingmaður VG.Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Facebook-síðu sinni, sem er opin öllum. Þar segist Þráinn vera orðinn afar pirraður á Þorgerði sem hann kallar m.a. „kúlulána- og íhaldsbelju“.

Mikil umræða hefur spunnist á síðu Þráins í tengslum við færslu sem hann skrifar um sín launamál. „Ef einhver heldur að ég geti lifað á kaupinu mínu sem alþingismaður er svarið NEI? Síðan ég tók sæti á Alþingi hef ég sjálfur borgað með mér,“ skrifar Þráinn, sem er níundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Norður.

Hann segir að svarið við því hvort hann sé á tvöföldum launum, verandi á heiðurslaunum Alþingis, sé bæði já og nei. Hann tekur fram að heiðurslaun Alþingis séu ekki laun heldur viðurkenning og bendir á að starfslaun listamanna séu tæp 300.000 en heiðurslaun Alþingis tæp 140.000.

„Það var kúlulaunadrottninginn (þúsund milljónir eða voru það níu hundruð og níutíu) Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem byrjaði á að gera það tortryggilegt að heiðurslaunalistamaður tæki sæti á Alþingi án þess að afsala sér heiðurslaunum á meðan,“ skrifar Þráinn.

„Þetta byrjaði í Silfri Egilis rétt eftir kosningar. Þá benti kúlulána- og íhaldsbeljan Þorgerður Katrín á að það eina sem ég hefði á minni sakaskrá væri að ég Alþingi Íslendinga hefði veitt mér heiðurslaun.“////það er ekki allt að var skáld ,ef þeir eru svona einnig á alþingi,eins og þeir gera vist margir þarna,og það stundum nauðsyn,en þetta orðalag er ekki alþingismanni sæmandi ekki einu sinni á bloggi sýnu, hvað þá Alþingi,þetta er ljóður á kalli ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Þráinn fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja hækka lægstu laun strax/það er stórt atriði að gera það,það hefði átt að vera,í samningunum í gær!!!

Vilja hækka lægstu laun strax
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 20:59

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar - stéttarfélags. Framsýn, Verkalýðsfélag Þórshafnar og Verkalýðsfélag Akraness átti í dag kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins. Að sögn Aðalsteins Árna Baldvinssonar, formanns Framsýnar, fóru viðræður nokkuð vel fram, eftir að hafa byrjað með hvelli.

„Það var hávaði í Karphúsinu í morgun. Við byrjuðum daginn á að takast  á, fundurinn hófst með látum en eftir hádegi var ágætis vinnufriður. En við komum heldur ekkert þangað til að skrifa undir einhvern pappír til að fá vöfflur.“

„Við viljum  knýja á um að 200.000 króna lágmarkslaun komi strax, en ekki árið 2013. Siðan leggjum við áherslu á aðra uppbyggingu en er á samningnum sem var undirritaður í gær. Þar var samið um 12.000 króna greiðslu á taxta og síðan 4,25% á önnur laun. En við viljum lækka þessa prósentutölu og hækka þess í stað upphæðina. Því að þeir sem eiga erfiðast í dag er fólkið á lægstu kjörunum og við viljum stuðla að því að eyða biðröðum hjá hjálparsamtökunum.“

Að sögn Aðalsteins var skilningur á þessum kröfum hjá viðsemjendum. „En það er kannski enginn sérstakur áhugi fyrir því að fara einhverja aðra leið en farin var í gær. Enda kemur það fram í samningunum sem undirritaðir voru í gær á milli SA og ASÍ að það yrði ekkert samið um neitt annað.“

„Samningur við bræðslumenn á Þórshöfn er í höfn og þar verður fylgt flestum atriðum almenna samningsins, sem var undirritaður í gær. Við höfum vilyrði fyrir að fá álíka samning, en viljum nokkrar áherslubreytingar og það verður unnið í því um helgina. Síðan hittumst við aftur á mánudaginn,“ sagði Aðalsteinn í samtali við mbl.is.////það er svo að þetta er stórt atriði að hækka lægstu laun i 200 þus það lifir engin á mynna,allir vita en engin vill taka af skarið en það er malið að þessu verður að breyta ekki spurning ,það sjá allir sem vilja 


mbl.is Vilja hækka lægstu laun strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul McCartney trúlofaður/gott þetta þriðja hjónaband ef verður ,þarna snillingur á ferð !!!

Paul McCartney trúlofaður
Veröld/Fólk | AP | 6.5.2011 | 18:23

Nancy Shevell.Breski tónlistarmaðurinn Sir Paul McCartney hefur trúlofað sig. Konuefnið heitir Nancy Shevell en þau Paul hafa verið saman í tæp fjögur ár.

Stuart Bell, upplýsingafulltrúi McCartneys, sagði nú síðdegis, að vangaveltur fjölmiðla að undanförnu um trúlofun væru ekki úr lausu lofti gripnar. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um málið að öðru leyti en að segja að allir væru mjög ánægðir fyrir hönd McCartneys.

McCartney, sem verður 68 ára á árinu, hefur tvívegis verið kvæntur áður. Fyrsta kona hans, Linda, lést af völdum krabbameins árið 1998 og hann skildi við aðra konu sína, fyrirsætuna Heather Mills, árið 2008.

Nancy Shevell, sem er 48 ára, er bandarísk og situr m.a. í stjórn almenningssamgangnastofnunar New York ríkis. /////þetta gott að þessi snillingur skuli ná sér i goða konu,ein okkur besti músikkant  og lagahöfundur og söngvari ,við sem dáum Bítlana og þeirra músík erum bara kátir með þetta/Halli gamli


mbl.is Paul McCartney trúlofaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðildarfélög BSRB hefja kjaraviðræður/þetta þarf að klára sem fyrst,og einnig öll önnur sérfélög!!!

Aðildarfélög BSRB hefja kjaraviðræður
Innlent | mbl.is | 6.5.2011 | 16:33

 Aðildarfélög Bandalags starfsmanna ríkis og bæja eru að hefja samningsviðræður og munu þær taka mið af launahækkunum nýrra kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum, sem gerðir voru í gær.

Fram kemur á heimasíðu BSRB, að fulltrúar bandalagsins áttu á mánudag fund með forsætisráðherra og fjármálaráðherra og  afhentu þeim minnisblað um sameiginleg málefni aðildarfélaga sem hafi verið falin bandalaginu til úrlausnar við komandi kjarasamninga.

Hafi aðilar verið sammála um mikilvægi þess að ljúka skyldi við kjarasamninga við opinbera starfsmenn sem fyrst.

Þá átti framkvæmdanefnd BSRB fund með samninganefnd ríkisins í gær þar sem afhent var sama minnisblað og áhersluatriðin rædd. Í kjölfar kjarasamninga ASÍ og SA  í gærkvöldi voru aðildarfélög BSRB boðuð á fundi með viðsemjendum sínum.

Segir á vef BSRB, að ástæða þess að aðildarfélög BSRB hafi ekki fengið viðræður um launalið sinna kjarasamninga sé sú að viðsemjendur þeirra hafi viljað bíða eftir niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.////þetta er ná númer eitt að semja við   við það opinber og klára það á sama basls og reyndar alla línuna svo margir  hópar sem eru sér sambönd,það er búið að ryðja vegin og þetta á að geta gengið vel,það er svo annað mál með ríkisstjórn,þar er teysta á´að allt gangi eftir til að hagvöxtur gangi upp farmkvæmdir bara strax, þau erum búin að tala og tala en nú verður að farmkvæma við biðum ekki legni eftir því/Halli gamli


mbl.is Aðildarfélög BSRB hefja kjaraviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1047883

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband