5.5.2011 | 23:49
Verðhrun á olíu/en betri fréttir undir kvöldið,vonandi heldur þessi lækkun áfram"!!!
Viðskipti | AFP | 5.5.2011 | 23:07

Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um yfir 12 dali tunnan á markaði í Lundúnum í kvöld. Er það meira verðfall en varð eftir að bandaríski bankinn Lehman Brothers varð gjaldþrota en það gjaldþrot markaði upphaf fjármálakreppunnar.
Verð á olíu í New York fór undir 100 dali tunnan í fyrsta skipti frá því í mars. Miðlarar segja, að hugsanlega sé verðfallinu ekki lokið.////// loksins en betrí fréttir i kvöld og það vonandi heldur áfram ekki er það nema gott en við fögnum bara þessu, og það ekki margt sem gleður þessa dagana!!!! /Halli gamli
![]() |
Verðhrun á olíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 20:18
70-80 milljarða verkefni/Við skulum bara vona að þetta standist!!,ef ekki :fer ílla!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 19:56

Í yfirlýsingunni segir, að stjórnvöld vilji greiða fyrir aukinni fjárfestingu á sem flestum sviðum, einkanlega þeim sem stuðli að auknum útflutningstekjum. Lögð sé áhersla á að fjárfestingar í virkjunum og gerð raforkusamninga verði á viðskiptalegum grundvelli og taki tillit til umhverfisgæða.
Stefnt er að því að frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða verði afgreitt á vorþingi. Rammaáætlun verði lögð fram á næstu vikum og fer í viðeigandi ferli. Stjórnvöld stefni að því að hún verði afgreidd á næsta haustþingi.
Þegar séu afráðnar fjárfestingar í Búðarhálsvirkjun, stækkun álversins í Straumsvík, kísilveri í Helguvík og í dreifikerfi Landsnets og sé framkvæmd þessara verkefna þegar hafin. Framkvæmdir í Helguvík og fleiri verkefni séu í undirbúningi en mislangt komin.
Þá muni Landsvirkjun halda áfram umfangsmiklum rannsóknum í Þingeyjarsýslum og eigi nú þegar í viðræðum við nokkra aðila um fjárfestingar og orkukaup.///við skulum bara vona að þetta standist en ekki bara hjal út í loftið og ekki bara þetta heldur betur annars er þetta bara samningar sem fara í sugin ,við verum að taká okkur á og huga að framförum en ekki stöðnun,við höfum alla burði og pening til að arður af því borgi það til baka lífeyrissjóðir láni i verkefnin og fái goða ávöxtum til baka,þetta er það eina sem getur komið okkur aftur uppúrskuldum og basli ekki annað betra til ,ef ekki fer allt niðurá við aftur,en það er svo að það þarf aðra rikisstjorn til þessa þessi gerir þetta ekki /Halli gamli
![]() |
70-80 milljarða verkefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 17:55
Olía lækkaði í verði í dag/loksins ein góð frétt!!!/skal lækka hjá okkur á Íslandi ????
Viðskipti | mbl.is | 5.5.2011 | 16:23

Rætt er við Thina Saltvedt, olíuverðssérfræðing hjá Nordea Markets, sem segir að olíuverðshækkunin hafi verið knúin af óróleika sem tengdist ástandi mála í Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Ekki eru vísbendingar um að ástandið þar breiðist til fleiri olíuframleiðslulanda.
Ástand mála hefur bæði áhrif á framboð og eftirspurn.Ýmsar blikur eru á lofti varðandi eftirspurnina, t.d. verra ástand á vinnumarkaði í Bandaríkjunum en reiknað var með, óvissa um evrusvæðið og áform Kínverja um að herða sultarólina til að draga úr verðbólgu.
Saltvedt telur að olíuverðið geti ef til till farið niður í 104 dollara fatið, en hún telur ólíklegt að það lækki niður fyrir það.////kom ein frétt góð og manni bara bergður ekki skrítið en skal Olian á Íslandi lækka það er spurning dagsins ,við bíðum i ofvæni sem viljum aka okkar bifreiðum en höfum vart efni á því/Halli gamli
![]() |
Olía lækkaði í verði í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 17:47
Hafa áhyggjur af stöðu heimila og einstaklinga/það er ekki furða,það er svo að það er óleyst mál !!sem átti að vera mál málanna!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 16:23

Í ályktu um erfiða fjárhagsstöðu fjölskyldna og einstaklinga segir eftirfarandi:
Prestastefna 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum vegna gríðarlega erfiðrar fjárhagsstöðu margra fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Prestastefna kallar eftir því að stjörnvöld geri enn betur en orðið er til að liðsinna fólki og greiða úr vanda þess og skapa því þannig vonarríka framtíð hér á landi, m.a. með því að reyna eftir megni að efla atvinnu sem er forsenda þess að efnahagsástandið batni.
Prestastefna þakkar mikilsverðan stuðning hjálparstofnana og fagnar nýjum aðferðum Hjálparstarfs kirkjunnar til að liðsinna þeim sem búa við erfið kjör.
Prestastefna hvetur söfnuði þjóðkirkjunnar um land allt til að vera vakandi fyrir því hvernig þeri geti liðsinnt þeim sem eru í andlegri og veraldlegri neyð. Prestastefnan hvetur kristið fólk um land allt til að styðja hjálparstofnanir og veita með orðum, verkum, von og trú, kærleika og samhug inn í íslenskt samfélag.
Í ályktun um niðurskurð sóknargjalda segir:
Prestastefna 2011 lýsir yfir áhyggjum af miklum niðurskurði sóknargjalda. Eins og ýmsar stofnanir í landinu hafa sóknir þjóðkirkjunnar þurft að hagræða mikið undanfarin ár, en nú er svo komið að fjölmargar þeirra geta vart sinnt lengur grunnþjónustu sinni við t.d. börn, ungt fólk og aldraða. Prestastefna 2011 fagnar ákvörðun innanríkisráðherra um að skipuð verði nefnd til að greina hvaða áhrif niðurskurður sóknargjalda hefur haft og mun hafa á þjónustu og starf þjóðkirkjunnar og sókna hennar um land allt.
Ályktun um samræmda gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum er svohljóðandi:
Prestastefna 2011, haldin í Neskirkju í Reykjavík, 3.-5. maí 2011 vísar því til kirkjuráðs að skoða hvort tímabært sé að tekin verði upp samræmd gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum. Tekið verði tillit til þess hvort um er að ræða sóknarbörn, þjóðkirkjufólk utan soknar og fólks utan þjóðkirkju og leitast skuli við að sóknarbörn fái gjaldfrjáls afnot af kirkju sinni./////hvort sem kallað er þjóðkirkja eð Fríkirkja eða annað er þetta mal sem okkur kemur öllum við ,vill þessi hópur trúleysingja virkilega ekki, að að trúin og kirkjan sem gerir ekkert nema gott,verði sett á gaddinn ,það vill alla vega ekki meirihlutin gera!!! en að gera það sem lengi hefur verið um talað að aðskilja ríki og kirkju að fullu er i lagi að minu áliti og sennilega meirihluta þjóðar vorar!! .að er sko vel hægt það er að segja að ríkið er ekkert of gott til að rukka þetta sóknargjald inn við eigum að inni ekki spurning,kirkjan gerir mikið !!!!gengnir og aldrei meira hlutverki en núna þegar á bjátar og það er svo að meirhluinn vill hafnana ekki spurning sennilega um 85% eða meira en það er svo þegar niður er skorið er aftur komið að sjálfstæði hennar,það er það sem .þarf að gera ,en ekki vera sífellt að jagast á þessu sem ríkið gerir þarna ,við viljum að við bara borgum sem njótum og það eru flestir sem það vilja!!!! hinir trúlausu borga þá bara kirkjugarðsgjald annað ekki/Halli gamli
![]() |
Hafa áhyggjur af stöðu heimila og einstaklinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 17:16
Frumvarp um landsdóm samþykkt//þetta sýnir þá staðreynd,hvern hug stjórarmeirihlutin ber til samþingsmanna sinn!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 16:30

Um var að ræða breytingu á lögum um landsdóm sem gera það að verkum að þeir dómarar sem sæti eiga í landsdómi þegar Alþingi samþykkir málshöfðun gegn ráðherra, og varamenn þeirra, skulu ljúka meðferð þess máls þrátt fyrir að kjörtímabil þeirra sé á enda.
Alþingi kaus síðast aðalmenn í landsdóm 11. maí 2005 og því var skipunartími þeirra að renna út. Í greinargerð með frumvarpinu segir að með breytingunum verði ekki rof á umboði dómenda meðan mál er þar til meðferðar sem er í samræmi við meginreglur réttarfars um milliliðalausa málsmeðferð///þetta sýnir best hvar hug stjórnameirihlutinn ber til samþingsmana sinna,að finna ennþá bara einn man til að ákæra vegna kreppupar sem við lentum i Geir H.Haarde ,það er ekki hægt að leggjast öllu neðar og við sem horfum á þetta í beinni erum bara miður okkar að svona fólks skuli fylla þingsali vora ,heiftin er slik að það hálfa væri nóg,þetta er svo að manni verður bara óglatt og segir bara hvernig er innrætti þessu fóls háttað sem hagar sér svona,og við sem erum að reyna að sætta okkur við að það geri allt rétt!! en ekki rangt/sem það gerir þarna ekki spurning/Halli gamli
![]() |
Frumvarp um landsdóm samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 4.5.2011 | 15:29

Ég tel að þingmaður sem heldur slíku fram verði að rökstyðja það," sagði Jóhanna. Hverslags bull er slíkur málflutningur, þetta er bara ekki boðlegt hérna í sölum Alþingis." Sagði Jóhanna að verið væri með frumvarpinu að styrkja stjórnsýsluna og skapa nauðsynlegan sveigjanleika.
Jóhanna var að svara Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, sem sagði, að frumvarpið væri uml að leggja Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, niður.
Þá sagði Sigmundur Davíð, verið væri að taka vald frá þinginu og færa það til framkvæmdavaldsins. Sé forsætisráðherra falið vald til að færa verkefni á milli ráðuneyta eftir því sem ráðherrann teldi henta. Í raun má segja að forsætisráðherrann sé einn orðinn yfirráðherra og hinir ráðherrarnir einskonar aðstoðarráðherrar," sagði Sigmundur Davíð.
Varðandi rökstuðning fyrir orðum sínum um að verið væri að auka völd framkvæmdavaldsins sagðist Sigmundur Davíð geta vísað í orð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hefði farið yfir þetta allt saman í gærkvöldi. Er forsætisráðherra að halda því fram að ráðherra í sinni eigin ríkisstjórn sé að bulla?" spurði Sigmundur Davíð.
Jóhanna sagði að svipað stjórnsýslufyrirkomulag, og gert væri ráð fyrir í frumvarpinu, gilti í sjö af nágrannalöndum Íslands, þar á meðal í Danmörku og Noregi. Það er ótrúleg umræða sem fer fram hér um nákvæmlega þá hluti, sem frumvarpið gengur ekki út á," sagði Jóhanna.///manni sýnist að Jóhanna Forsætisráðherra stefni að einræði ,það sést ekkert annað þarna í hennar er athöfunum ekkert annað en að styra öllu og öllum ,það er hennar mottó ekki spurning um það þar til við komumst i ESB að hennar tilstylli og það skal takast eins og hennar flokksmenn vilja og fleiri,þetta er ekki hægt að liða og menn verð að standa þarna saman og eyðileggja þennan tilgang hennar og c/o/Halli gamli
![]() |
Ekki boðlegt í sölum Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 13:35
Aukafundur í ríkisstjórn um veiðistjórn/Vonandi að menn komist að sáttarleiðinni,en ekki allt í uppnám!!!
Innlent | Morgunblaðið | 5.5.2011 | 5:30

Annars vegar er um að ræða umfangsminna frumvarp til skemmri tíma m.a. með hækkun á veiðigjaldi, aukningu til strandveiða og til byggða og takmörkunum á tegundatilfærslum. Sú breyting yrði á pottakerfinu að til jöfnunar kæmi framlag úr öllum tegundum í aflamarki. Kvótaaukning í haust færi að hluta í potta. Þetta frumvarp tæki gildi með fiskveiðiárinu, sem hefst 1. september næstkomandi.
Hins vegar heildstætt frumvarp sem miðað er við að verði rætt í ríkisstjórn, en fari síðan til þingsins og í umsagnar- og vinnslufarveg á þeim vettvangi. Nú eru aðeins tæpir fjórir mánuðir eftir af þessu fiskveiðiári.
Í fréttaskýringu um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur m.a. fram, að stjórnarþingmaður, sem rætt var við í gær, sagðist telja að vinna við gerð frumvarps um fiskveiðistjórnun hefði gengið ótrúlega hægt. Nú væru liðnir tæpir átta mánuðir síðan sáttanefndin svokallaða hefði skilað af sér. Ljóst væri að ekki væri einhugur í þingflokkum stjórnarinnar um málið, en í sáttanefndinni hefðu línur verið lagðar.///við verum bara að vona að þau ber gæfu til að fara fyrri leiðina og semja um þetta og auka kvóta og borgun fyrir leiguna aukist til okkar allra sem eigum kvótan ,því um það er ekki deilt,en það að bylta öllu er alveg til að setja allt á hausinn en ekkert annað það verður að fara bil beggja,landið okkar og frelsi er undir,við megum ekki við því að bylta heldur barlaga af því margt em ekki er gott og getur lagst ekki spurning að það er hægt ef vilji er fyrir hendi/Halli gamli
![]() |
Aukafundur í ríkisstjórn um veiðistjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 13:06
Samningar auka verðbólgu um 0,5%/ekkert getur komið í veg fyrir þetta nema afnema vertrygginguna um þennan tima!!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 11:21

Jóhanna var að svara fyrirspurn frá Bjarna Benediktssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks, sem vísaði til þess að Seðlabankinn hefði lýst efasemdum um að þær launahækkanir, sem nú sé verið að semja um, væru ekki raunhæfar miðað við stöðu hagkerfisins og kynnu að leiða til aukinnar verðbólgu. Spurði Bjarni hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að auka hagvöxt svo efnahagskerfið gæti staðið undir þessum launahækkunum.
Jóhanna sagði, að vissulega væri um að ræða verulegar kauphækkanir, sem kæmu misjafnlega niður á atvinnugreinum. Menn hefðu þannig áhyggjur af áhrifum kauphækkananna á einstakar greinar, einkum verslun sem standi nokkuð höllum fæti.
Allt færi þetta þó eftir því hvernig ganga muni að fylgja eftir fjárfestingaráformum sem tengjast kjarasamningunum, þeim að fjárfestingar aukist úr 13% í 20% af landsframleiðslu. Gangi það eftir megi búast við 0,5% meiri verðbólgu og 6-8% meiri kaupmætti að jafnaði á samningstímanum, að hagvöxtur verði 2-3% á þessu ári og 4-5% á ári á næstu tveimur árum.
Bjarni sagði, að þegar Seðlabankinn talaði um óraunhæfar launahækkanir vildi forsætisráðherra tala um Hagstofuna. Stóra vandamálið í íslensku efnahagslífi, væri að ríkisstjórnin hefði ekki svarað því hvar í atvinnulífinu hagvöxturinn eigi að myndast.////það sjá allir að það eina sem hægt er allavega um tíma að ,að afnema vertrygginguna ekki spurning um það ,annaða er ekki inn i myndinni annars er þetta allt af okkur hirt!!!það er svo að hagvöxtur verður ekki nema gera eitthvað mikið ´framkvæmdum og það fljótt ekki bara geyma það eins og þessi ríkisstjórn vill,strax verur að virkja og klárra þessi álver tvö ekki spurning,göng á göng ofan bjarga ekki atvinnu nú bili það er allt annað sem er mannfrekt,og það er malið það er ekkert annað sem alltaf er verið að biða aftur,rafmagnið er okkar auðlind, vatnið og fiskurinn og Álið það er svo og ferðamennskan það er gjaldeyrisskapandi og við þurfum það ekki spurning,auka aflann og auðlindirnar í okkar eigu og borgað sá fyrir leiguna sæmilega/Halli gamli P/s það sem maður geymdi er að verðbólga gætu farið úr böndum eg ekki stemt stigi við henni uppí 2 stafa tölu!!!/Sami
![]() |
Samningar auka verðbólgu um 0,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2011 | 12:41
Stöndum betur utan ESB/ þetta er ekki spurning,alveg sama hvað sagt er við gerum þetta ekki,það yrði brotlending sem þjóðin ekki vill að meirhluta !!!
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 11:49

Ég er enn fullur efasemda þegar kemur að því að leggja mat á það hvaða hag Íslendingar hafa af aðild," segir Steingrímur og bætir við að Íslendingar séu væntanlega betur settir með þá samninga við Evrópusambandið, sem nú eru í gildi.
Hann segir að hagsmunir Íslendinga séu afar ríkir varðandi sjávarútveg og marga aðra hluti.
Í viðtalinu segir Steingrímur, að Efnahags- og myntbandalag Evrópu muni væntanlega standa af sér þá ágjöf sem nú eru en Portúgal er nú að bætast í hóp Grikklands og Írlands, sem þurfa á björgunaraðgerðum að halda vegna skuldavanda.
Önnur stór hagkerfi hafa mikla hagsmuni af því, að Evrópu gangi vel og það yrði neikvætt fyrir Japan og Bandaríkin ef Evrópa lendir í erfiðleikum. Ég býst frekar við, að þeir muni fá þann stuðning, sem nauðsynlegur er."
Steingrímur ítrekar í viðtalinu, að íslenska krónan hafi þjónað hagsmunum Íslendinga vel og ekki sé ástæða til að skipta um gjaldmiðil. Segir hann að gengisfall krónunnar hafi ýtt undir útflutning og hafi stutt við íslenska hagkerfið í kreppunni.
Í viðtalinu er fjallað um Icesavemálið. Steingrímur segir afar ólíklegt, að Bretar og Hollendingar myndu beita neitunarvaldi gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu ef að því kæmi enda væri slíkt afar óskynsamlegt.
Þá segir hann, að það hafi ekki haft áhrif á stöðu Íslands á alþjóðlegum lánamarkaði þótt Íslendingar hafi hafnað Icesave-lögunum. Stjórnvöld stefni að því að sækja fé á slíka markaði á þessu ári.///það ber að segja það ssannara reynist um Steingrím forman V.G. og Fjarmálaráðherra að hann meinar þetta og vonandi fylgir því eftir i sinum flokki,þetta hefur truflað okkur dálítið að svona langt er gengið samt innan þessarar ríkistjórnar,en það er kostnaður sem okkur er offiða að taka þátt en verður vist að klára en svo kemur að kosningum og það erum við með meirihluta sem er nokkur öruggur ennþá!! en áróðurinn er á fullu og gengur með að það verði allt svo gott
að það hálfa væri nóg,auðvita eru einkver sannleikskorn þarna ekki annað að segja´en það er mikið meir af slæmum kostum fyrir okkur öll að það hefur vinninginn,en samt verum við við að vera á verði og ekki lata þessa ESB sinna slá okkur ut af laginu als ekki við viljum ekki selja okkur til annarra,sem öllu vilja ráða,en halda vinskap við alla sem vilja við okkur skipta/Halli gamli
![]() |
Stöndum betur utan ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2011 | 10:49
Kjaraviðræður hafnar á ný/númer eitt að er að þetta haldi: en ekki af okkur hirt aftur!!
Kjaraviðræður hafnar á ný
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 9:55 Kjaraviðræður hófust á ný í morgun og eru fundarmenn enn að týnast inn í hús ríkissáttasemjara. Gert var hlé á viðræðum í nótt þar sem enn var of mikið óklárað til þess að geta lokið þeim í nótt. Ekki er búist við niðurstöðu á næstu klukkustundum.
Á vef VR segir, að fastlega sé búist við að skrifað verði undir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins í dag. Samkomulag hafi náðst um allar helstu kröfur VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna en nokkur atriði á sameiginlegu borði verkalýðshreyfingarinnar séu enn óleyst.
Ger ter ráð fyrir þremur eingreiðslum í samningunum, sem samtals nema 75.000 krónum. Kemur sú fyrsta, 50.000, væntanlega í lok maí og hinar tvær síðar á þessu ári.
Um er að ræða eina viðamestu kjarasamninga sem gerðir hafa verið, en í þeim er meðal annars tekið á bótamálum, skattamálum, menntamálum atvinnulausra, slysatryggingarmálum og launastefnu, svo eitthvað sé nefnt og fyrir liggur að lægstu laun hækki umtalsvert.
Að mati Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, er um afar dýran samning að ræða og hann segist óttast að hann geti valdið tjóni, taki ríkisstjórnin ekki til hendinni.
Þetta er rosalega dýr samningur og framhlaðinn. Ef af þessu verður munum við mæla með þessum samningi. Við óttumst það þó, að ef ríkisstjórnin tekur ekki hressilega til hendinni, þá geti þetta valdið bæði verðbólgu og atvinnuleysi.////allt gott um þetta að segja nema ,ef áð yrði af okkur tekið aftur i ýmsum hækkunum Ríkisstjórn verður að passa það að hluta,ekki spurning það er gert til þessa!!! en og aftur er þessi % hækkun sem fer i mann og upp allan sitgan,en þessar eingreiðslur eru betri samt skulum við ekki deila mikið fyrr en en við sjáum samningin allan,en að mínu áliti er þetta við ystu nöf,s en skoðu að leikslokum/Halli Gamli
![]() |
Kjaraviðræður hafnar á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 1047883
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar