70-80 milljarða verkefni/Við skulum bara vona að þetta standist!!,ef ekki :fer ílla!!!

70-80 milljarða verkefni
Innlent | mbl.is | 5.5.2011 | 19:56

Hverir á Þeistareykjasvæði. Fram kemur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem birt var í tengslum við nýja kjarasamninga, að gangi öll virkjanaáform fyrir norðan eftir gæti þar verið um að ræða fjárfestingu upp á 70-80 milljarða króna auk fjárfestinga orkukaupenda.

Í yfirlýsingunni segir, að stjórnvöld vilji greiða fyrir aukinni fjárfestingu á sem flestum sviðum, einkanlega þeim sem stuðli að auknum útflutningstekjum. Lögð sé áhersla á að fjárfestingar í virkjunum og gerð raforkusamninga verði á viðskiptalegum grundvelli og taki tillit til umhverfisgæða.

Stefnt er að því að frumvarp til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða verði afgreitt á vorþingi. Rammaáætlun verði lögð fram á næstu vikum og fer í viðeigandi ferli. Stjórnvöld stefni að því að hún verði afgreidd á næsta haustþingi.

Þegar séu afráðnar fjárfestingar í Búðarhálsvirkjun, stækkun álversins í Straumsvík, kísilveri í Helguvík og í dreifikerfi Landsnets og sé framkvæmd þessara verkefna þegar hafin. Framkvæmdir í Helguvík og fleiri verkefni séu í undirbúningi en mislangt komin.

Þá muni Landsvirkjun halda áfram umfangsmiklum rannsóknum í Þingeyjarsýslum og eigi nú þegar í viðræðum við nokkra aðila um fjárfestingar og orkukaup.///við skulum bara vona að þetta standist en ekki bara hjal út í loftið og ekki bara þetta heldur betur  annars er þetta bara samningar sem fara í sugin ,við verum að taká okkur á og huga að framförum en ekki stöðnun,við höfum alla burði og pening til að arður af því borgi það til baka lífeyrissjóðir  láni i verkefnin  og fái goða ávöxtum til baka,þetta er það eina sem getur komið okkur aftur uppúrskuldum og basli ekki annað betra til ,ef ekki fer allt niðurá við aftur,en það er svo að það þarf aðra rikisstjorn  til þessa þessi gerir þetta ekki /Halli gamli
 


mbl.is 70-80 milljarða verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband