Styttist í vöfflubakstur/það gott að vissu leyti en samt,þessi prósentuhækkun ekki góð að mínu mati

Styttist í vöfflubakstur
Innlent | mbl.is | 4.5.2011 | 19:00
Frá samningaviðræðunum seint í gærkvöldi. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að mál ættu að fara að skýrast í samningaviðræðunum við ASÍ á næsta eina og hálfa klukkutímanum. „Við erum að tosast áfram. Það eru ekki svo mörg mál sem við eigum eftir að leysa en þau geta verið svolítið snúin.“
Vilmundur sagði að miðað væri við að klára samninga í kvöld. „Ég er farinn að segja að hér verði bakaðar vöfflur á næstu 24 tímum.“ 

Vilmundur segir að nú sé verið að fara yfir taxtabreytingar, orðalagsbreytingar og nokkrar kröfur sem á eftir að ganga frá. „Þetta ætti að skýrast á næsta eina og hálfa tímanum, þá ætti þetta að fara að ganga,“ sagði hann.

Vilmundur hitti Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra í dag og segir Vilmundur að fundurinn hafi snúist um framkvæmdaatriði í tengslum við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.///þetta er af því góða allt að semja uppá hækkun og allt það,en þessu pósentuhækkun er alltaf umdeild þá svo eingreiðsla sé goð og jöfn 50 þus er hitt að hækka í prósentum er þarna ekki réttlátt að mínu mati 200 þus=26 þus á þremur árum en 500 þus =65 þus þetta er óréttlætið að mati mínu,svo og þessi hækkun lægstu launa ur 165´þus í 204 þus á þremur árum er ekki til að brúa þetta bil/svo a´eftir að vita um persónuafsláttin,hann spilar þarna mikla rullu,,en við skulum bíða og sjá að lokum???/halli gamli 


mbl.is Styttist í vöfflubakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styður ekki Jón sem ráðherra/Heiðurslistamaðurinn stiður ekki Jón Bjarnason,sem ráðherra,en Jóhönnu sem einvald!!!

Styður ekki Jón sem ráðherra
Innlent | mbl.is | 4.5.2011 | 17:07

Þráinn Bertelsson. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, segir við vef DV í dag, að hann styðji ekki Jón Bjarnason í embætti landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Staðfestir Þráinn að hann hafi lýst þessu yfir á þingflokksfundi nýlega.

Haft er eftir Þráni, að hann hafi lýst þessu yfir þegar ljóst varð, að sjávarútvegsráðherrann myndi ekki leggja fram nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða eins og hann hefði lofað að gera um páskana.  

Þá segir Þráinn, að Jón hafi sagt efnislega í ræðustóli á Alþingi að hann líti á það sem helsta tilgang sinn og réttlætingu í ráðherraembætti að fylgjast með umsóknarferlinu um aðild að Evrópusambandsinu.

„Mér finnst það heldur einkennilegur skilningur á starfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og teldi heppilegra að hann fengist við eitthvað annað," hefur DV eftir Þráni.///maður er að hlusta og horfa á sjónvarp nú frá Alþingi um þetta frumvarp Jóhönnu um stjórnarráð og einræði hennar til að gera það sem henni sýnist/þetta er bar skömm og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Styður ekki Jón sem ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbankinn yfirtekur Sólningu//fyrirtækin i hrönnum í hendur bankana !!!!

Landsbankinn yfirtekur Sólningu
Viðskipti | mbl.is | 4.5.2011 | 9:38

Mynd úr safniLandsbankinn hefur tekið yfir rekstur Sólningar Kópavogi ehf, sem rekur þrjú dekkjaverkstæði undir nafni Sólningar auk dekkjaverkstæðsins Barðans. Ætlunin er að endurskipuleggja fjárhag og skuldir félagsins og búa félagið undir sölu.

Landsbankinn hefur tekið yfir allt hlutafé félagsins og mun setja því nýja stjórn. Tilkynnt verður innan sex mánaða frá yfirtökudegi, hvernig sölunni verður háttað. Yfirtakan er gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Dekkjaverkstæði Sólningar eru í Kópavogi, Keflavík og á Selfossi, en Barðinn er í Skútuvogi í Reykjavík./////svona er að koma fyrir fjölda fyrirtækja i dag og og það sjá allir sem vilja að þetta gengur ekki,svo er fyrirkomið hjá mjög mörgum og hellingur komin að fótum fram,og mörg farin á hausin  og bankar eiga ,og ætla að selja en ekki á fullu verði og tapið verum við ómælt eða, svo þetta er ekki til að ger okkur gott það er erfitt að reka fyrirtæki i dag og nú hækka launin ekki veður að betra eftir það ,skoðum málin bara!!!


mbl.is Landsbankinn yfirtekur Sólningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóða 1% til viðbótar/þetta segir ekki allt eftir að ganga frá persónuafslætti það segir mikið fyrir þá lægstu!!!!

Bjóða 1% til viðbótar
Innlent | Morgunblaðið | 4.5.2011 | 5:30

Fundað var í öllum skúmaskotum Karphússins í gærkvöldi.... Samtök atvinnulífsins buðu Alþýðusambandi Íslands meiri hækkun launa og breytingar á formi skammtímasamnings til þess að koma aftur af stað samningaviðræðum um kjarasamning til þriggja ára.

Samninganefndir sátu á fundum fram á nótt. Stefnt er að því að undirrita nýja kjarasamninga eftir hádegið í dag.

Fundir voru boðaðir í Karphúsinu í gær og dag í deilum aðildarsambanda og félaga ASÍ við vinnuveitendur. Samböndin voru með kröfur um skammtímasamning en SA vill semja til þriggja ára.

„Við notuðum gærdaginn [mánudaginn] og morguninn til að funda með SA. Ljóst var að gera yrði breytingar á formi samningsins og efni. Meira þurfti til,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, í gærkvöldi og bætti því við að viðbrögð vinnuveitenda hefðu verið með þeim hætti að ASÍ hefði talið nauðsynlegt að láta reyna á samninga áður en formlegur undirbúningur verkfallsaðgerða hæfist. Jafnframt fengu forystumenn ASÍ breytingar á orðalagi í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á fundi með fulltrúum hennar í gær.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, staðfesti að samtökin hefðu hækkað tilboð sitt um launahækkanir um 1%, þannig að laun myndu hækka um tæp 13% á þremur árum. Þá verður eingreiðslum sem SA höfðu boðið breytt í varanlegar launahækkanir sem munu haldast, jafnvel þótt fyrirvarar sem gerðir eru vegna aðkomu ríkisvaldsins virkist og samningar renni út 1. febrúar á næsta ári. 

Fundað í öllum sölum

Fundað var í öllum fundasölum Karphússins í gærkvöldi og um 150 manns að störfum í húsinu. Verið var að ganga frá síðustu lausu endunum í samningum aðildarsambanda ASÍ við SA. Að því búnu átti að ganga frá heildarpakkanum hjá samninganefndum ASÍ og SA.////í raun gat þetta ekki verið mynna,en það á eftir að ganga frá persónuafslættinum sem er stór hluti samninga allavega fyrir þá sem mynna hafa og ýmsu öðru ekki búið ennþá,en þetta kemur alt og það er fyrir mestu að þetta sé launhækkun ekki tekið af okkur strax aftur ekki spurnig um að kaupmáttaraukning/Halli gamli


mbl.is Bjóða 1% til viðbótar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Grímulaus ESB-aðlögun“svona lyggur þetta fyrir okkur flestum!!!!

„Grímulaus ESB-aðlögun“
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 21:22

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Einbeittur vilji stjórnvalda um Evrópusambandsaðild er stöðugt að koma í ljós. Vinstri grænir bera kápuna á báðum öxlum. Látast vera á móti ESB aðild, en vinna hins vegar í nánu samstarfi við Samfylkinguna að því að tryggja ESB aðildina,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 
heimasíðu sinni í kvöld.

Hann gerir síðan að umfjöllunarefni sínu fund sameiginlegrar þingmannanefndar Evrópuþingsins og Alþingis hér á landi í tengslum við umsóknina um aðild að ESB. Þar stóð til að samþykkja ályktun en hætt var við það á síðustu stundu vegna þess að ekki var samstaða innan nefndarinnar um að það yrði gert. Kom meðal annars fram hörð gagnrýni á drög að ályktun sem lágu fyrir fundinum.

„Í þessum drögum er Ísland hvatt til að undirbúa aðild að stefnu ESB í landbúnaðar og byggðamálum og hefja vinnu við að setja á laggirnar nauðsynlegar stofnanir sem þurfa að vera til reiðu þegar til aðildar kemur, til þess að geta hrint stefnumálum á þessum sviðum í framkvæmd og njóta þess stuðnings sem ESB aðildin hefur í för með sér,“ segir Einar.

Þetta þýði á mæltu máli að setja eigi á stofn Greiðslustofu, eða stofnun landbúnaðarins, sem sé „skilmálalaust partur af aðlöguninni inn í Evrópusambandið og hefur verið sem eitur í beinum ESB andstæðinga í VG.“

Einar segir ljóst að ályktunardrögin séu á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna til jafns við Evrópuþingmennina. „Í þeim birtist okkur grímulaus tilhneiging stjórnarflokkanna til ESB aðlögunar. Ályktunardrögin eru óræk heimild um það,“ segir Einar á heimasíðu sinni.///við flest ef ekki öll sem erum á móti inngöngu þarna i ESB eru þarna á sama máli og Einar þetta sem hann segir þarna er allt sem segja Þarf ekkert við það að bæta,þetta er ekki i lagi og er bara skömm og ekkert annað við okkur sem erum 60-70% þjóðarinnar að koma svona fram við okkur/Halli gamli


mbl.is Grímulaus tilhneiging til ESB-aðlögunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

46% óku of hratt um Strandveg/á þessum vegakafla eins og víðar á að vera 60 km hraði mynnst!!!

46% óku of hratt um Strandveg
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 18:27

Srandvegur liggur m.a. meðfram Eiðsvík sem kennd er við... Brot 132 ökumanna voru mynduð á Strandvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, gegnt Gufunesi. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 284 ökutæki þessa leið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt.

Meðalhraði þeirra sem óku of hratt var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og sjö óku á 70 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók mældist á 86.  

Lögregla hefur nokkrum sinnum áður verið við hraðamælingar á þessum stað og þá, eins og nú, hafa margir ekið hratt eða eða 51-52%. Meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 66-67 km/klst, segir í tilkynningu,////þarna á að vera 60 km hraði mynnst ekki mynna þetta er svo góður kafli og engin hús nálægt að þetta er bara gildra!!!! og ekkert annað,manni dettur oft i hug að þessi hraðatakmörg séu bar happa og glappa aðferðir ,hverjir setja þetta ,eru það men sem ekki aka eða sjá þetta ,eð'a eru þeir bara þarna og vita ekki betur/Halli gamli


mbl.is 46% óku of hratt um Strandveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sitja þar til sést til lands/þetta er skilda okkar á báða vegu,að ná samningum ekki spurnig!!!

Sitja þar til sést til lands
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 19:33

Frá kjaraviðræðunum í dag.„Eins og fram hefur komið er stjórn SA reiðubúin að leggja mikið að mörkum til þess að ná þessum samningum og er að teygja sig ansi langt til þess,“ segir Hörður Vilberg, upplýsingafulltrúi Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is.
Búist er við að kjarasamningar muni nást í kvöld eða nótt.

Hann segir ljóst að ef innistæða á að vera fyrir þeim hækkunum sem verið væri að semja um þá þyrfti margt að ganga upp í efnahagslífinu og allir að leggjast á eitt til þess að tryggja að svo verði.

Aðspurður sagðist Hörður ekki vita til þess að neitt bakslag hefði enn orðið í viðræðunum sem staðið hafa yfir í allan dag. Hann sagðist halda að þær væru að mjakast í rétta átt en það væri í mörg horn að líta.

„Mér heyrðist stemningin vera þannig að menn ætluðu bara að sitja þar til þeir sæju til lands. Menn vilja forðast verkföll í lengstu lög,“ segir Hörður.///eins og maður hefur alltaf sagt er samið á báða vegu ekki bara á annan  vegin og það er vonandi að gerast nú og það er allra hagur, og þjóðarhagur um leið,það er svo að ef samið er að þetta verði geirnegl að það verði ekki af okkur tekið strax aftur!!! það er aðalatriðið og að kaupmattur hækki en ekki á það ráðist á næstunni ,þarna er margt undir og farið ein langt og hægt er vonandi á báða vegu,Biðum frétta öll á næsta sólahring/Halli gamli


mbl.is Sitja þar til sést til lands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Funda hjá ríkissáttasemjara/engin afsökun nú !! að semja ekki til 3 ára,annað væri brjálæði!!!!

Funda hjá ríkissáttasemjara
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 13:51

Ríkissáttasemjari „Fundur er fundur og það er alltaf von,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Fulltrúar sambandsins funda með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara nú klukkan þrjú.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að erfið staða hefur verið upp í kjaraviðræðum síðustu vikur. Undirbúningur fyrir atkvæðagreiðslu um verkfall er nú í fullum gangi hjá SGS og svo gæti farið að verkfall hæfist í seinni hluta mánaðarins.

Auðvitað vonar maður alltaf þegar maður fer á fund að þetta gangi,“ segir Björn þegar hann er spurður að því hvort hann telji að eitthvað muni þokast á fundinum nú á eftir. „En maður veit ekki neitt ennþá. En fundur er fundur og það er alltaf von.“

Ríkissáttasemjara bárust sex ný mál í gær en þá vísuðu félögin Samiðn, Matvís, VM- Félag vélstjóra og málmtæknimanna, FBM- Félag bókagerðarmanna, Mjólkurfræðingafélag Íslands og Rafiðnaðarsamband Íslands kjaradeilum sínum til embættisins. ///er engin afsökun nú að semja ekki,samningurinn liggur a´borðinu síðan fyrir páska,það er siðar búið af ríkisstjórn að segja það sem  þeim bar að framkvæma og rústa ekki útgerðinni,svo það ert bara % sem á stendur og og eingreiðsla sem að að vara afturvirk i 4-5 mánuði og svo framvegis,að er fljót gert að gera ef vilji er fyrir hendi,að er svo að þetta þótti ekki gott að S.A. hafi sett á oddinn að leysa sáfarútvegsmálinn er ekki lengur fyrir hendi en var það og bar gott að mínu áliti og fleiri,en að hóta verkfalli nu er bara fyrirsláttur og hvað varðar þessa menn um þjóðarhag!!!spyr bara/Halli gamli


mbl.is Funda hjá ríkissáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki eftir neinu að bíða,nei satt er það/of seint að byrgja bruninn þegar barnið er dottið ofaní ,segir máltækið!!!Samt verður maður að óska þeim sem þetta vildu til hamingju !!!

Ekki eftir neinu að bíða
Innlent | mbl | 3.5.2011 | 6:00

Komið er á endasprett í byggingu Hörpu við hafnarbakkann. Það fer ekki á milli mála þegar litið er inn fyrir dyr tónlistarhússins. Iðnaðarmenn keppa við tímann sem aldrei fyrr og reyna að leggja lokahönd á verkið.

Steypan verður vart þornuð þegar fyrstu tónleikagestir Hörpu munu ganga inn í nýja húsið á miðvikudagskvöld og hlýða á Sinfóníuhljómsveitina undir stjórn Vladimirs Ashkenazys.

Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu, segir að ekkert muni vanta upp á það að upplifunin geti orðið fullkomin fyrir fyrstu tónleikagestina á morgun, þrátt fyrir að húsið verði ekki fullkomlega klárað.//////þetta er og verður mjög svo umdeilt sem  von er þetta mun kosta okkur 30-50 milljarða og ber að borga það af Ríki og Borg á 30 árum,og hver borgar nema við,það mun taka mikið meira en 100 ár að þetta borgi sig upp,auðvitað er þetta bara ágætt ef við hefðum haft efni þessu en það höfuðum við ekki als ekki!!! en samt mun maður óska öllum til hamingju með þetta,það búið og gert en veður okkur ofiða ekki spurning,ein verður þetta með nýjan spítala við hringbrauð það verður að setja i salt ekki spurning ekki byrja ,við erum að kera niður þarna um svo mikið að þetta alveg út úr öllu samhengi við það sem við getum!!!þar er hægt að hætta,og byrja a´þegar við höfum náð okkur á strik!! bara stæka við hina spítalana,og breyta!!! Bruðlið verður að bíða, er það ekki !!!!


mbl.is Ekki eftir neinu að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESA svarar hagsmunasamtökum/vonandi að þetta verði okkur í hag,´það er að segja Hagsmunasamtökum heimilanna!!!!

ESA svarar hagsmunasamtökum
Innlent | mbl.is | 3.5.2011 | 12:06

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA. Eftirlitsstofnun EFTA hyggst taka kvörtun Hagsmunasamtaka heimilanna og Samtaka lánþega fyrir með formlegum hætti. Þetta kemur fram í svarbréfi stofnunarinnar sem samtökunum hefur nú borist. Kvörtunin snýr meðal annars að því hvort verðtrygging neytendalána brjóti gegn ákvæðum neytendaréttar.

Kvörtun Samtaka lánþega og Hagsmunasamtaka heimilanna snýr að meintum brotum íslenskra stjórnvalda og stjórnsýslu á Evrópurétti. ESA tekur málið til afgreiðslu á grundvelli gildandi reglna Evrópska efnahagssvæðisins.

Athygli ESA er vakin á verðtryggingu neytendalána og álits óskað á því hvort fyrirkomulagið brjóti gegn ákvæðum gildandi neytendaréttar.

Þá er vísað í vanefndir í dómaframkvæmd, og til þess að breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins og lögum um umboðsmann skuldara gangi þvert á neytendarétt og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.

Sérstaklega er tekið á eftirmálum áður gengisbundinna lána út frá lögum um vexti og verðtryggingu frá árinu 2001, að því er segir í tilkynningu.///það ekki spurning að við erum i EES og eigum að að njóta þeirra sem það fylgir að vera þar!!!þetta væri gott ef þetta yrði nú til þessa að við sem erum með la´n gengjum leiðréttingu vaxtaokurs og verðtrygginga það snýst málið um og við eigum þar fullan rétt að mínu áliti ekki spurnin ,bara sumir hafa það hjá þessu Bönkum okkar!!! en vonum að svarið verði okkur i hag þó það sé of seint fyrir suma því miður!!!!/Halli gamli


mbl.is ESA svarar hagsmunasamtökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1047883

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband