Áhrifin sambærileg en efnin skaðlegri/þetta mjög alverlegt mál og verður að taka föstum tökum!!!

Áhrifin sambærileg en efnin skaðlegri
Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2011 | 10:30

Erfitt getur verið að átta sig á hvort um sé að ræða...Andlát ungrar konu um liðna helgi hefur sett óhug að mörgum. Þó svo að óyggjandi sannanir liggi ekki fyrir bendir ýmislegt til þess að konan unga hafi orðið fíknefnum að bráð.

Andlát ungrar konu um liðna helgi hefur sett óhug að mörgum. Þó svo að óyggjandi sannanir liggi ekki fyrir bendir ýmislegt til þess að konan unga hafi orðið fíknefnum að bráð.

Þá er sérstaklega horft til afleiðu af amfetamíni sem virðist fara hægt og rólega á milli landa með óvenjulega háu hlutfalli dauðsfalla. Í mörgum tilvikum virðist sem svo neytendur hafi ekki áttað sig á hversu hættulegt efnið PMMA er.

Lögreglan á Borgarnesi fann fyrst efnið hér á landi, í töfluformi. Karlmaður sem hafði þær í vörslum sínum var færður til skýrslutöku að nýju til að freista þess að varpa ljósi á uppruna efnisins og útbreiðslu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins hefur skýrsla verið tekin af hátt í þrjátíu einstaklingum vegna málsins. Rannsóknin er umfangsmikil og ástæðan ærin; koma verður í veg fyrir fleiri dauðsföll af völdum efnisins.

Ekkert jákvætt um PMMA

Ekki þarf að leita lengi á veraldarvefnum til að finna umfjöllun um efnið, PMMA, eða paramethoxýamfetamín. Nokkuð liggur fyrir um það og ekkert jákvætt. Staðreyndin er sú að framleiðendur fíkniefna leita sífellt leiða til að útbúa efni sem eru ekki á listum yfir ávana- og fíkniefni auk þess sem sífellt er leitast við að halda kostnaði við framleiðslu í lágmarki og hámarka gróða. Þar fæðast afleiður fíkniefna, sem hafa sambærileg áhrif en eru oftar en ekki skaðlegri neytendunum.

Afleiður fíkniefna rata hingað til lands eins og annað. Skemmst er að minnast þess að í desember á síðasta ári reyndi lettneskur ríkisborgari að smygla til landsins tæpu hálfu kílói af efninu mefedron, sem einnig er afleiða af amfetamíni og á að hafa svipaða virkni og e-töflur. Styrkleiki efnisins var afar hár og víst að hægt var að drýgja það töluvert með íblöndunarefnum. Líkt og með PMMA hafa dauðsföll bæði í Bandaríkjunum og Evrópu verið rakin til mefedron.

Fleiri slík mál hafa komið upp á undanförnum misserum því að í desember 2009 voru tveir karlmenn handteknir fyrir innflutning á tæpum fjórum kílóum af 4-flúoróamfetamíni. Þeir voru hins vegar sýknaðir í héraðsdómi þar sem efnið var ekki bannað hér á landi á þeim tíma. Í greinargerð Jakobs Kristinssonar, hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, kom fram að um afleiðu af amfetamíni sé að ræða sem hefði svipaða verkun. Hins vegar væru takmarkaðar upplýsingar til um efnið.

Að endingu má taka fram að gerð var tilraun til að flytja inn til landsins um 15 þúsund e-töflur í desember sl. Miðað við það er ljóst að eftirspurn eftir e-töflum er töluverð hér á landi. Og þó ljóst sé að aldrei er hættulaust að nota slíkar töflur er hættan margföld á meðan efni á borð við PMMA er í umferð.

Víða varað við

Efnið sem til rannsóknar er, PMMA, og varað hefur verið við hefur fundist í alla vega tíu tegundum af töflum, sem líkjast e-töflum, í Hollandi. Viðvörun hefur meðal annars verið gefin út þar, í Noregi og einnig af lögregluyfirvöldum í áströlsku borginni Perth en þar lést ungur karlmaður í byrjun janúar sl. eftir að hafa tekið inn efnið.

Endaði með asetóneitrun

Af samtölum við einstaklinga sem starfa í meðferðargeiranum er ljóst að á flestu þarf að vara sig sem keypt er í undirheimunum. Á undanförnu misseri hafi þannig komið upp nokkur tilvik þess að einstaklingar hafi veikst heiftarlega af drykkju landa. Meðal annars þurfti að leggja karlmann inn á sjúkrahús vegna asetóneitrunar sem rekja mátti til landa.

Í samtali við Morgunblaðið sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, slík mál sjaldnast koma inn á borð lögreglu, eðli málsins samkvæmt. Hins vegar sé ljóst að landabrugg hafi aukist og ekki víst að í öllum tilvikum sé vandað vel til verka; áfengið jafnvel sett í sölu áður en það er tilbúið. Þegar svo er má vera ljóst að veikindi, og jafnvel mjög slæm, hljótist af.//////þetta er mjög svo alvarlegt mál sem ber að taka mjög alvarlega ,ekki spurning ,auðvitað öll eiturlyf, og þetta er hættan að blandað sé i það einhverjum óþverra!!! en það þar og verður að' taka öll höndum saman með lögreglu og gefa allt uppsem við vitum um slík ,að þarf að verða þarna breyting á ,það er of mikið þögn um þessi mal og við verum öll að vera á verði ekki bara löggæslan ,allir sem einn/Halli gamli

mbl.is Áhrifin sambærileg en efnin skaðlegri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apríl var fádæma hlýr fyrir austan/en nú fáum við sumar og sól hér á vesturhorni!!!!!

Apríl var fádæma hlýr fyrir austan
Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2011 | 5:30

Illviðrasamt var í apríl og mjög úrkomusamt um landið... Nýliðinn apríl var mjög hlýr, einkum þó um landið austanvert þar sem hann var í hópi hlýjustu aprílmánaða allra tíma, samkvæmt yfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings.

Mánuðurinn var sá hlýjasti frá upphafi mælinga á Dalatanga og næsthlýjastur á Teigarhorni en þar hefur verið mælt samfellt frá 1873. Á Akureyri var mánuðurinn í 2. til 3. sæti hvað hlýindi varðar en þar hefur verið mælt samfellt frá 1882.

Meðalhitinn í Reykjavík mældist 4,1 stig og er það 1,2 stigum ofan meðallags. Kemur þetta eflaust mörgum á óvart.

Illviðrasamt var í mánuðinum og mjög mikil úrkoma féll um landið sunnan- og vestanvert. Í umfjöllun um veðráttuna í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að í Reykjavík mældist úrkoman 138,9 millimetrar og er það meir en tvöföld meðalúrkoma í aprílmánuði (58,4 mm)

. ///það er meiriháttar að lesa um veður hjá honumTrausta ekki spurning hann lísir veðurfarið svo vel og allt veður ,og hvernig það lysir´sér,en ekki ekki með spár,það lætur hann aðra um!! en þetta er svo að Austfirðinar hafa haft góðan Apríl en við ekki,en nú er komið breyting á við komnir með hita sumar og sól og blíðu sólbað bara og vari!!! þetta áttum við skili vesturhornið/Halli gamli

mbl.is Apríl var fádæma hlýr fyrir austan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög hlýtt á landinu/hvílíkur viðsnúningur,órúlegt en satt !!!!

Mjög hlýtt á landinu
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 19:52

 Fljótt skipast veður í lofti átti við á suðvesturlandi í dag en eftir kafasnjó um helgina í Reykjavík og nágrenni komst hitinn í dag í tæp 15 stig í Reykjavík í dag og í tæp 18 stig á Hellu. Víða á Suðurlandi komst hitinn í 17 stig í dag.

Áfram er gert ráð fyrir björtu veðri sunnan- og vestantil á landinu næstu daga þótt búast megi við þokubökkum við ströndina. Á morgun er spáð 4-16 stiga hita þar sem hlýjast verður suðvestanlands en kaldast við norðausturströndina.////það segist bara svo hvílíkur viðsnúningur að það er ótrúlegt en satt!!! Gott að við fáum loksins sumar og hita sem við biðum eftir og þykkjum með þökkum og vel það,bara vona að þetta haldi áfram og .það er von með það af fregnum,sólbað á morgun vonandi/Halli gamli

mbl.is Mjög hlýtt á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni/þessari viteysu ætlar ekki að linna eða hvað???

Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni
Innlent | mbl | 2.5.2011 | 19:02

Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins. Besti flokkurinn hefur samkvæmt fréttatilkynningu hrundið af stað söfnunarsíðu með það að markmiði „að koma upp viðeigandi búnaði hér á landi til að fanga þessi merkilegu dýr þegar þau villast hingað“ eins og segir í tilkynningunni.
Söfnunin gengur undir heitinu "Reykjavík polar bear project".

Þá segir að flokkurinn vilji auk þess koma upp aðstöðu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem hlúð sé að dýrunum, þau rannsökuð og síðan að endingu skilað aftur í náttúruleg heimkynni sín.

Þess má geta að eitt af kosningaloforðum Besta flokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar var að fá ísbjörn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.////það er ekki á þessa menn logið !!! ,þessari vitleysu ætlar ekki að linna,það er sparað og sparað og siðar bruðlað og bruðlað í eittthvað sem er bara gæluverkefni það er svo komið að við megum búsat við einhverju nyju daglega frá þessum Jón Gnarr og c/o það er nóg annað um að hugsa þarna ef einhver þa´getur það!!!/Halli gamli

mbl.is Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar og Hollendingar brotlegir/þetta vissu margir :en ekki ríkisstjórn okkar,eða hvað????

Bretar og Hollendingar brotlegir
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 16:11

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA. „Það er algjörlega óumdeilt að Bretar og Hollendingar brutu gegn ákvæðum tilskipunar um slit á fjármálafyrirtækjum með einhliða aðgerðum sínum,“ sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra á blaðamannafundi nú fyrir stundu þar sem hann gerði grein fyrir svarbréfi stjórnvalda til ESA.vegna tilkynningar stofnunarinnar frá því í maí í fyrra.

Íslensk stjórnvöld hafi tryggt innstæður í bönkum eftir því sem aðstæður leyfðu. Því er mótmælt að einhvers konar árangursskylda hvíli á íslenska ríkinu vegna innstæðutryggingakerfisins hér á landi.  

„Við mótmælum því að brotið hafi verið gegn tilskipuninni og gerum þá kröfu að málið verði látið niður falla,“ sagði Árni Páll á fundinum.

Stofnunin hafði ekkert aðhafst síðan í maí í fyrra þar sem útlit var fyrir að samningar næðust milli Íslendinga, Breta og Hollendinga. Eftir að ríkisábyrgð á endurgreiðslum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum, og forsendur fyrir samningum því úr sögunni, var ljóst að staðan var gjörbreytt og því nauðsynlegt að fara þessa leið.

Fjöldi fólks kom að vinnunni við svarbréfið, úr báðum „fylkingum,“ þ.e.a.s. einstaklingar sem töluðu fyrir báðum sjónarmiðum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

„Við höfum lagt á það áherslu að byggja upp eins mikla samstöðu um þetta mál og mögulegt er, og höfum leitað eftir aðkomu bæði sérfróðra aðila og áhugafólks. Mjög margir hafa sökkt sér ofan í málið og eytt miklum tíma í að kynna sér það. Við höfum haft mikið gagn af því að ræða við þá hópa sem að málinu hafa komið, sagði Árni á fundinum.

„Það er almennt viðurkennt að lærdómurinn af fjármálakreppunni er að byggja upp traustara alþjóðlegt fjármálakerfi. Það sem gerðist almennt árið 2008 var að ríki gripu til einhliða aðgerða og það var ekki einsdæmi á Íslandi,“ sagði Árni og vísaði þar til þeirra aðgerða sem gripið var til til þess að bjarga því sem bjargað varð í íslensku fjármálakerfi. Bretar og Hollendingar hafi til að mynda ábyrgst allar innstæður í sínum bönkum///maður bara spyr af hverju var þessu ekki haldið fram fyrr af ríkisstjórn vori ,maður bara  spyr,!!!þetta vissu margir en ekki Ríkisstjórn okkar,eða vildi ekki vita það ??? svari kemur sennilega ekki,en við biðum og kannski kemur það!!!!Halli gamli

mbl.is Bretar og Hollendingar brotlegir

Segir ríkisstjórnina jafna allt niður á við/valla hægt að segja þetta betur/Ögmundur sagði það beinlínis!!!!

Segir ríkisstjórnina jafna allt niður á við
Innlent | mbl | 2.5.2011 | 17:39

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Hver ráðherrann á fætur öðrum lýsir áhyggjum af því að sumir á þessu landi hafi of góð laun. Á sama tíma gerir ríkisstjórnin ekkert til að skapa forsendur fyrir bættum launum þeirra sem verst eru settir því það verður einungis gert með verðmætasköpun og fjölgun starfa,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
á Facebook-síðu sinni í dag.

Greint var frá því hér á mbl.is í gær að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefði meðal annars lýst þeirri skoðun sinni í ræðu sem hann flutti við Lögreglumessu í Neskirkju þá um morguninn að hæstu laun ættu aldrei að vera hærri en þreföld lægstu laun.

Bjarni segir ennfremur að núverandi ríkisstjórnin muni jafna allt niður á við sem aðeins endi með því að allir hafi það jafn slæmt.///mikið er maður sammála Formanni mínum þarna það er ekki hægt að segja þetta betur en þetta ,Ögmundur Ráherra innanríkismála sagði þetta við athöfn í Neskirkju um helgina"!! semsagt að hafa bara hæstu laun þreföld lægstu launa eða 165 þus -3=495 þus er þetta ekki að lækka öll laun spyrji bara hver fyrir sig,svo má segja að hlutunum sé snúið við en .að er ekki maðurinn hlýtur að hafa meint það sem hann sagði/Halli gamli

mbl.is Segir ríkisstjórnina jafna allt niður á við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbjörninn fluttur til Reykjavíkur/Hárétt ákvörðun ekki spurnig um það!!!

Ísbjörninn fluttur til Reykjavíkur
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 16:22

Mynd 562137 Umhverfisstofnun segir að ákveðið hafi verið að fella hvítabjörninn, sem sást í morgun í Hælavík á Hornströndum, af öryggisástæðum. Hefur ísbjarnarhræið verið flutt til Reykjavíkur þar sem Náttúrufræðistofnun Íslands tekur við dýrinu og rannsakar það.

Í morgun barst Landhelgisgæslunni tilkynning um dýrið og flaug þyrla Gæslunnar á Ísafjörð þaðan sem flogið var á Hornstrandir.

Umhverfisstofnun segir í tilkynningu að þegar þangað var komið hafði dýrið fært sig um set og fannst eftir nokkra leit í Rekavík (Bakhöfn). Þoka var í efstu brúnum og var mikil yfirferð á dýrinu.

„Lögreglan á Ísafirði var með í för og mat aðstæður þannig að ómögulegt væri að vakta dýrið allan sólarhringinn á svæðinu og tryggja þannig að það færi ekki í sjó eða flytti sig um set í átt að byggð. Því var tekin ákvörðun um að fella dýrið af öryggisástæðum,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að unnið hafi verið í samræmi við viðbragðsáætlun um viðbrögð við landtöku hvítabjarna. Lögreglan á Ísafirði hafi stjórnað aðgerðum og með í för hafi verið fulltrúar Umhverfisstofnunar, fulltrúi yfirdýralæknis ásamt reynslumiklum skyttum.

Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Talið er að heimsstofn hvítabjarna telji 22.000 dýr í dag. Flesta hvítabirni er að finna í Kanada. Hvítabirnir eru á lista IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökin) yfir dýr í yfirvofandi hættu. Þrátt fyrir þetta styður hvítabjarnarráð IUCN sjálfbæra nýtingu á öllum 19 stofnum hvítabjarna. Um 800 dýr eru felld árlega.

Árið 2009 var unnin skýrsla starfshóps sem umhverfisráðherra skipaði um tillögur að viðbrögðum við landgöngu hvítabjarna.///þetta hárétt ákvörðun ekki spurning um að!! en þetta er skítið og rannsóknarefni hvernig hann hefur sinnt alla þessa leið frá ísnum sem eru í mjög langri fjarlægð ,það er ótrúlegt og hlytir að haf verið svangur ,en svona a´að taka á hlutunum ekki vera að skoða og skoða!!! bara framkvæma/Halli gamli

mbl.is Ísbjörninn fluttur til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Osama bin Laden allur/mikið söguleg persona látin: en ekki harmdauði flestra!!!!

Osama bin Laden allur
Erlent | AFP | 2.5.2011 | 4:45

Mynd af Osama bin Laden frá 1998.Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden er látinn, en hann lést í gær eftir skotbardaga við bandaríska sérsveitarmenn í Pakistan. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í nótt að réttlætinu hefði verið fullnægt, áratug eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september.

Obama tilkynnti þegar í ræðu í Hvíta húsinu í nótt. Mikill mannfjöldi safnaðist saman utan við Hvíta húsið í Washington um miðnætti að bandarískum tíma. Veifaði fólkið fánum og hrópaði: Bandaríkin, Bandaríkin. 

„Í kvöld ég skýrt bandarísku þjóðinni og heiminum frá því að Bandaríkin hafa staðið fyrir aðgerð þar sem Osama bin Laden, leiðtogi Al-Qaeda og hryðjuverkamaður sem ber ábyrgð á morðum á þúsund saklausra, karla, kvenna og barna, var drepinn," sagði Obama.

Forsetinn sagðist hafa skipað bandarískum sérsveitum að ráðast á bækistöðvar bin Ladens í Abbottabad í Pakistan en vísbendingar höfðu borist um það í ágúst að bin Ladin hefðist þar við.

Fámennur hópur sérsveitarmanna hefðu gert árásina. Engan þeirra hefði sakað og þess hefði verið gætt að enginn óbreyttur borgari léti lífið. Til skotbardaga kom, Osama bin Laden hefði fallið og Bandaríkjamenn hefðu haft lík hans á brott með sér.   

Stór hópur fólks safnaðist saman framan við Hvíta húsið í Washington í nótt þegar fréttir bárust af því að Osama ... Reuters

Turnar World Trade Center í New York brenna eftir að flugvélum var flogið á þá 11. september 2001. Reuters

Bandarískir embættismenn sögðu, að auk bin Ladens hefðu þrír karlmenn og kona látið lífið í árásinni, þar á meðal sonur hryðjuverkaleiðtogans. Tveir mannanna störfuðu sem sendiboðar fyrir bin Laden. Konan lét lífið þegar einn karlmannanna reyndi að  nota hana sem skjöld. Tvær konur til viðbótar særðust.

Sagði embættismaðurinn, að skotbardaginn hefði staðið í um 40 mínútur.

Obama varaði jafnframt við því, að hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda muni áfram reyna að gera árásir á Bandaríkin þrátt fyrir fráfalls bin Ladens.

George W. Bush, sem var Bandaríkjaforseti þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar, sagði í nótt að þetta væru afar þýðingarmikið afrek. Óskaði hann Obama og bandarísku leyniþjónustinni til hamingju. 

David Cameron, forsætisráðherra Bretands, sagði í nótt að fólki um allan heim væri létt að heyra þessar fréttir.  

Pakistanska leyniþjónustan staðfesti einnig, að bin Laden væri allur. Obama sagðist hafa hringt í Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, eftir aðgerðina og bætti við að samvinna við Pakistana hefði leitt bandarísku leyniþjónustuna á sporið. ///loksins tókst þeim þetta og það gott að mörgu leiti ekki spurning en Bandarækjamenn notuðu kall lengi við aðstoða sig mikið en svo slettist uppá þarna vinskapinn og hann skipulegði árásir á  þá með hruni turnana 11 sept. og fleiri ekki spurning að þetta var sögulegur maður að ekki sé meira sagt ekki að bara að endemum,en það eru lok hans hryðjuverka að mans áliti en það eru einhverjir sem taka við,en það er fagnað i hinum vestræna heimi ekki spurning,og það að vonum,en ein kemur þá annar fer segir máltækið og það mun sennilega gerast/Halli gamli

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband