Bretar og Hollendingar brotlegir/þetta vissu margir :en ekki ríkisstjórn okkar,eða hvað????

Bretar og Hollendingar brotlegir
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 16:11

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA. „Það er algjörlega óumdeilt að Bretar og Hollendingar brutu gegn ákvæðum tilskipunar um slit á fjármálafyrirtækjum með einhliða aðgerðum sínum,“ sagði Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra á blaðamannafundi nú fyrir stundu þar sem hann gerði grein fyrir svarbréfi stjórnvalda til ESA.vegna tilkynningar stofnunarinnar frá því í maí í fyrra.

Íslensk stjórnvöld hafi tryggt innstæður í bönkum eftir því sem aðstæður leyfðu. Því er mótmælt að einhvers konar árangursskylda hvíli á íslenska ríkinu vegna innstæðutryggingakerfisins hér á landi.  

„Við mótmælum því að brotið hafi verið gegn tilskipuninni og gerum þá kröfu að málið verði látið niður falla,“ sagði Árni Páll á fundinum.

Stofnunin hafði ekkert aðhafst síðan í maí í fyrra þar sem útlit var fyrir að samningar næðust milli Íslendinga, Breta og Hollendinga. Eftir að ríkisábyrgð á endurgreiðslum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum, og forsendur fyrir samningum því úr sögunni, var ljóst að staðan var gjörbreytt og því nauðsynlegt að fara þessa leið.

Fjöldi fólks kom að vinnunni við svarbréfið, úr báðum „fylkingum,“ þ.e.a.s. einstaklingar sem töluðu fyrir báðum sjónarmiðum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

„Við höfum lagt á það áherslu að byggja upp eins mikla samstöðu um þetta mál og mögulegt er, og höfum leitað eftir aðkomu bæði sérfróðra aðila og áhugafólks. Mjög margir hafa sökkt sér ofan í málið og eytt miklum tíma í að kynna sér það. Við höfum haft mikið gagn af því að ræða við þá hópa sem að málinu hafa komið, sagði Árni á fundinum.

„Það er almennt viðurkennt að lærdómurinn af fjármálakreppunni er að byggja upp traustara alþjóðlegt fjármálakerfi. Það sem gerðist almennt árið 2008 var að ríki gripu til einhliða aðgerða og það var ekki einsdæmi á Íslandi,“ sagði Árni og vísaði þar til þeirra aðgerða sem gripið var til til þess að bjarga því sem bjargað varð í íslensku fjármálakerfi. Bretar og Hollendingar hafi til að mynda ábyrgst allar innstæður í sínum bönkum///maður bara spyr af hverju var þessu ekki haldið fram fyrr af ríkisstjórn vori ,maður bara  spyr,!!!þetta vissu margir en ekki Ríkisstjórn okkar,eða vildi ekki vita það ??? svari kemur sennilega ekki,en við biðum og kannski kemur það!!!!Halli gamli


mbl.is Bretar og Hollendingar brotlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við vissum það og fengum að segja okkar tvisvar í Icesave, þökk sé forseta vorum og þeim varnagla sem hann hafði fyrir okkur, nú er að berjast fyrir lýðræði og hreinsun í stjórnmennsku okkar!

Sigurður Haraldsson, 2.5.2011 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband