Osama bin Laden allur/mikið söguleg persona látin: en ekki harmdauði flestra!!!!

Osama bin Laden allur
Erlent | AFP | 2.5.2011 | 4:45

Mynd af Osama bin Laden frá 1998.Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden er látinn, en hann lést í gær eftir skotbardaga við bandaríska sérsveitarmenn í Pakistan. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í nótt að réttlætinu hefði verið fullnægt, áratug eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september.

Obama tilkynnti þegar í ræðu í Hvíta húsinu í nótt. Mikill mannfjöldi safnaðist saman utan við Hvíta húsið í Washington um miðnætti að bandarískum tíma. Veifaði fólkið fánum og hrópaði: Bandaríkin, Bandaríkin. 

„Í kvöld ég skýrt bandarísku þjóðinni og heiminum frá því að Bandaríkin hafa staðið fyrir aðgerð þar sem Osama bin Laden, leiðtogi Al-Qaeda og hryðjuverkamaður sem ber ábyrgð á morðum á þúsund saklausra, karla, kvenna og barna, var drepinn," sagði Obama.

Forsetinn sagðist hafa skipað bandarískum sérsveitum að ráðast á bækistöðvar bin Ladens í Abbottabad í Pakistan en vísbendingar höfðu borist um það í ágúst að bin Ladin hefðist þar við.

Fámennur hópur sérsveitarmanna hefðu gert árásina. Engan þeirra hefði sakað og þess hefði verið gætt að enginn óbreyttur borgari léti lífið. Til skotbardaga kom, Osama bin Laden hefði fallið og Bandaríkjamenn hefðu haft lík hans á brott með sér.   

Stór hópur fólks safnaðist saman framan við Hvíta húsið í Washington í nótt þegar fréttir bárust af því að Osama ... Reuters

 

Turnar World Trade Center í New York brenna eftir að flugvélum var flogið á þá 11. september 2001. Reuters

 

Bandarískir embættismenn sögðu, að auk bin Ladens hefðu þrír karlmenn og kona látið lífið í árásinni, þar á meðal sonur hryðjuverkaleiðtogans. Tveir mannanna störfuðu sem sendiboðar fyrir bin Laden. Konan lét lífið þegar einn karlmannanna reyndi að  nota hana sem skjöld. Tvær konur til viðbótar særðust.

Sagði embættismaðurinn, að skotbardaginn hefði staðið í um 40 mínútur.

Obama varaði jafnframt við því, að hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda muni áfram reyna að gera árásir á Bandaríkin þrátt fyrir fráfalls bin Ladens.

George W. Bush, sem var Bandaríkjaforseti þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar, sagði í nótt að þetta væru afar þýðingarmikið afrek. Óskaði hann Obama og bandarísku leyniþjónustinni til hamingju. 

David Cameron, forsætisráðherra Bretands, sagði í nótt að fólki um allan heim væri létt að heyra þessar fréttir.  

Pakistanska leyniþjónustan staðfesti einnig, að bin Laden væri allur. Obama sagðist hafa hringt í Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, eftir aðgerðina og bætti við að samvinna við Pakistana hefði leitt bandarísku leyniþjónustuna á sporið. ///loksins tókst þeim þetta og það gott að mörgu leiti ekki spurning en Bandarækjamenn notuðu kall lengi við aðstoða sig mikið en svo slettist uppá þarna vinskapinn og hann skipulegði árásir á  þá með hruni turnana 11 sept. og fleiri ekki spurning að þetta var sögulegur maður að ekki sé meira sagt ekki að bara að endemum,en það eru lok hans hryðjuverka að mans áliti en það eru einhverjir sem taka við,en það er fagnað i hinum vestræna heimi ekki spurning,og það að vonum,en ein kemur þá annar fer segir máltækið og það mun sennilega gerast/Halli gamli


mbl.is Osama bin Laden allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbjörn á Hornströndum !!!! vonandi rétta ekki tálsýn!!!!

Ísbjörn á Hornströndum
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 9:49

 Mynd úr myndasafni. Ísbjörn sást í fjörunni í Hælavík á Hornströndum rétt fyrir klukkan níu í morgun. Það var áhöfn fiskibáts sem sá björninn og tilkynnti þegar um hann.

„Það var sjómaður sem var þarna fyrir utan sem sá dýrið í fjörunni og hverfa síðan í þokuna. Það er þoka niður í miðja hlíðar,“ sagði Önundur Jónsson, yfirlögreglustjóri á Ísafirði, í samtali við mbl.is. Tilkynningin kom rétt um kl. 9.

Önundur sagði að nú væri unnið að því að setja þá aðila í viðbragðsstöðu sem eiga að koma að svona máli, en til eru starfsreglur um viðbrögð þegar fréttist af ísbjörnum. Allmargar stofnanir koma að málinu, m.a. Umhverfisstofnun, ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæsla og fleiri.

Önundur sagði dálítið óþægilegt að vita ekki hvar dýrið er. „Svona dýr skokkar auðveldlega 50 km. á dag. Það er þoka á svæðinu sem þýðir að björninn getur verið kominn upp að hliðinni á manni áður en hann veit af.“

Önundur sagðist hafa áhyggjur af tveimur mönnum sem eru á þessu svæði. Þeir fóru í land með bát snemma í morgun og ætluðu að ferðast um. „Þeir sem settu þá í land eru að reyna að hafa samband við þá. Það er ekkert GSM-samband þarna nema á takmörkuðu svæði.“

Önundur sagði ekkert ákveðið enn hvað gert yrði ef dýrið finnst. Það kæmi til greina að fella það, handsama en eins gæti verið að það kæmi sér sjálft í burt. Dæmi væri um að ísbirnir sem komið hefðu til Vestfjarða hefðu komið sér sjálfir í burt.

Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar fer þyrla Gæslunnar vestur innan tíðar til að athuga málið.

Málið er í höndum Umhverfisstofnunar og lögreglu sem mun taka ákvörðun um framhaldið.

 Að sögn Kristins Más Ársælssonar, upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar, hefur verið haft samband við þá ferðamenn sem vitað er um á svæðinu. Þeir sem vita af ferðum fólks á þessum slóðum eru beðnir um að láta lögregluna á Vestfjörðum vita. ///síðustu fréttir eru að búið er að senda þyrlu með man sem ættar að kanna aðstæður og þoka er þarna og verður að fara verlega,það er að segja ef manninum sem sá þetta hefur ekki yfirsést eitthvað,en ef allt er retta ber að fara verlaga og bara skjóta dýrið annað er alltof dýrt ekki spurning um það/Halli gamli


mbl.is Ísbjörn á Hornströndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið lækki álögur á eldsneyti/það er nauðsyn ekki bara þörf,hvar er frumvarpið statt ???

Ríkið lækki álögur á eldsneyti
Innlent | mbl.is | 2.5.2011 | 11:03

Mynd 561639Ferðamálasamtök Íslands skorar á ríkisvaldið að lækka álögur á eldsneyti þannig að bensínlíterinn fari ekki yfir 200 kr.

Segir í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi fyrir helgi að hið himinháaverð á eldsneyti hafi víðtækar afleiðingar sem skaði ekki aðeins einstaklinga og fyrirtæki heldur einnig ríkið
 
„Nú þegar hefur komið í ljós að verulega hefur dregið úr ferðalögum Íslendinga innanlands. Þetta bitnar á ferðaþjónustunni á landsbyggðinni, en ferðaþjónusta og afleidd þjónusta er henni tengist veitir fjölda manns atvinnu og skilar því umtalsverðum tekjum í þjóðarbúið.
 
Það væri fróðlegt að láta gera könnun á hversu fljótt tekjutap vegna lækkunar skatta á bensín vinnst upp með aukinni neyslu. Neyslu sem veitir fjölda manns vinnu, sparar atvinnuleysisbætur og skilar tekju - og virðisaukaskatti í ríkiskassann.“///þetta er nauðsyn!! ekkert annað eins og svo margt!!!Hver frumvarpið statt sem átti að kom fram á Alþingi hjá nokkrum þingmönnum,þetta er að skerða svo marga að það hálfa væri nóg , það margir sem  ekki komast sinnar leiðar,þetta og samningar um kaup og kjör er það sem  verður að gerast án verkfall !!!Halli gamli


mbl.is Ríkið lækki álögur á eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Látum sverfa til stáls“/er þetta ekki óskastjórn verkalýðsins sem verið er að hóta!!!!

„Látum sverfa til stáls“
Innlent | mbl.is | 1.5.2011 | 15:29

Frá fundinum á Austurvelli í dag. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að erfiðir og alvarlegir tímar séu framundan og fjölskyldur hafi orðið fyrir gríðarlegu áfalli. „Um langt skeið hefur verkalýðshreyfingin ekki þurft eins mikið á að halda órofa stuðningi og samstöðu allra sinna félagsmanna,“ sagði hann. 
í ræðu sem hann flutti af tilefni 1. maí hátíðarhaldanna á Akureyri í dag. 

„Nú látum við sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Við skulum brjóta gíslatöku SA á bak aftur og krefjast réttmætra launahækkana,“ sagði Gylfi sem gerði kjaramáli að umtalsefni í ræðu sinni.

Hann segir að það komi ekki til álita að atvinnurekendur misnoti Alþýðusambandið eða kjarasamninga launafólks til þess að treysta eignarhald LÍÚ á sjávarauðlindinni.

„Ég verð einnig að lýsa furðu minni yfir því, að forystumenn annarra atvinnugreina í landinu hafi látið draga sig út í þetta fúafen. Öllum ætti að vera ljóst, að útgerðamenn geta ekki annað en hagnast á langvinnri kjaradeilu og verkföllum. Þá veikist krónan og þeir græða og ef þeim tekst að fella ríkisstjórnina þá yrði það þeim ekki síður að skapi. Þeir munu ekki bera herkostnaðinn af því, það munu aðrar atvinnugreinar og íslenskur almenningur gera,“ sagði Gylfi.

 

Hann segir að staðan í kjaramálum sé grafalvarleg og að djúp gjá sé á milli höfuðsamtakanna á vinnumarkaði. 

„Ljóst er að til þess að rjúfa þessa kyrrstöðu og gíslatöku LÍÚ og SA þarf verkalýðshreyfingin að sameinast og bregðast hart við og það gerum við einungis með því að leita til félagsmanna okkar um heimild til verkfalla.

Til þess erum við treg því samfélagslegur kostnaður verkfalla er mikill og mikil ábyrgð sem fylgir notkun þeirra. Það er hins vegar búið að stilla okkur upp við vegg og við eigum engra annara kosta völ en að grípa til verkfallsvopnisins. Ekki einungis er langlundargeð okkar gagnvart atvinnurekendum þrotið, það er búið að misbjóða íslensku launafólki herfilega með því að taka kjarabætur þess í gíslingu við þessar aðstæður,“ sagði hann.///maður bar spyr þennan mann hvað er hann að fara !!!var i framboði fyrir samfylkingu en þótti launin of lág og hætti við að fara á þing vegna þessa,það er svo að þetta er ostastjórn hans og verkalýðsins,gasprið i þessum manni til og frá er ekki til að hrópa húrra fyrir als ekki það að æsa til verkfalla nú er ekki það sem okkur vantar ,þeir samningar sem fólkið fær beint i sinar hendur en er ekki tekið af strax aftur, að .þarf að semja og.það liggja fyrir samningar sem eiga að get gengið til 3 ára og haf bindandi við vísitölu og mynnst 12% og einreiðsla fyrir þessa 5 mánuði,þetta er hægt að semja um ef vilji er fyrir hendi ,en ekki að ver að boða verkfall sem engin þolir/Halli gamli


mbl.is „Látum sverfa til stáls“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Hingað og ekki lengra“/í þessu árferði eru ekki hótanir sem gylda en að semja báða vegu,og ríkisstjórn einnig!!!

„Hingað og ekki lengra“
Innlent | mbl.is | 1.5.2011 | 14:37

Fjölmenni var komið saman á Austurvelli. „Verði kröfur LÍÚ ekki lagðar til hliðar, þá er friðurinn úti,“ sagði Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ, í ræðu sem hún flutti á Austurvelli í tilefni Verkalýðsdagsins. Þar fjallaði hún um stöðuna í kjaradeilunni sem hefur ekki skilað neinum árangri.

„Íslenskt launafólk hefur þreytt möglunarlaust þorrann og góuna. En þolinmæði eru samt takmörk sett. Við segjum stopp, hingað og ekki lengra. Við krefjumst meiri vinnu og betri kjara,“ sagði Signý.

„Það urðu tímamót föstudaginn 15. apríl þegar samtök atvinnulífsins sviku gefin loforð. Nú neyðumst við til að grípa til vopna. Hinir hvítu fánar friðarins munu felldir og þeir rauðu dregnir að húni. Atvinnurekendur verða að koma til sáttar með verulegar lagfæringar á launakjörum,“ sagði hún ennfremur.

 

Signý tók jafnframt fram að nú væru tímamót í kjarabaráttunni í íslensku samfélagi.

„Nú geisar undarlegt og jafnframt mjög hatrammt stríð um völdin í landinu. Stríð um það hvaða gildi eiga að vera ráðandi og um það hverjir eigi að bera ábyrgð á þeim kollsteypum sem við höfum ratað í. Kjarasamningar á almennum og opinberum markaði hafa verið lausir í fimm mánuði. Um 160.000 launamenn hafa ekki fengið kjarabætur. Öryrkjar, atvinnulausir og eldri borgarar hafa ekki fengið kjarabætur þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra velferðarmála um hversu skammarlega lágar þessar bætur séu.“///á dagi verkalýðsins er sjálfsagt að fara fram á kjarabætur og samningar lausir i 5 mánuði ,en það eru erfiðir tímar ekki spurning en það er auðvitað að gera kröfur en það verður að geta staðist,það er svo að sumir atvinnuvegir bera það aðrir ekki,en við sem höfðum lifað þessa kreppur allar og vitum um þá siðustu einnig eru svolítið niðri á jörðinni erum orðin veraldavön eins og sagt er,eru þessa vissir að það ber að semja við alla ekki bar suma,og hafa kolla það kolli,en verkföll núna er ekki sama og oft áður,það getur sent landið endanlega á Hausinn,þessa vegna er betra að fara samningaleiðina en ekki núna slá á hendi S.A. als ekki heldur semja og einnig við ríkisvaldið,það er svo að í boði ert 3 ara samningur og hann a´að taka ekki verkföll,nema í ýtrustu neyð/Halli gamli


mbl.is „Hingað og ekki lengra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki að ólöglegum veiðum/hafa það sem sannara reynist alltaf !!!!!

Ekki að ólöglegum veiðum
Innlent | mbl | 1.5.2011 | 14:40

Varðskipið Týr á siglingu. Við athugun kom í ljós að erlendir togarar sem Landhelgisgæslan hafði afskipti af á Reykjaneshrygg fyrir tveimur dögum, og taldir voru þar að úthafskarfaveiðum, eru ekki að stunda ólöglegar veiðar.

Um var að ræða samtals sjö skip, eitt frá Spáni og sex frá Rússlandi. Við athugun á afla spænska togarans kom í ljós að hann var við veiðar á langhala en ekki úthafskarfa. Veiðum á langhala er ekki stjórnað með beinum hætti og eru heimilar skipum frá ríkjum með veiðireynslu í tegundinni fari afli ekki yfir 65% af meðalafla undanfarinna ára. Spánverjar hafa tilskylda veiðireynslu í þeim efnum.

Rússnesku togararnir voru hins vegar að úthafskarfaveiðum en þar sem Rússar eru ekki aðilar að Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndinni (NEAFC), sem samþykkt hefur að karfaveiðar hefjist ekki fyrr en 10. maí, eru rússnesk skip ekki bundin af ákvörðunum hennar.

Landhelgisgæslan leggur áherslu á að öll skipin séu að veiðum á samningssvæði NEAFC og utan íslenskrar fiskveiðilögsögu./// það bara gott að hafa sannara reynis ekki purning um það,en við erum valla i stakk búin að verja þessa landhelgi okkar eins og er vegna fjárskorts þetta er ekki gottog gengu einfaldlega ekki ,við verðum að geta að hvað sem það kostar!!! mikið nær en að flytja gæsluna til keflavikur!! en það er svo að það erf samt betra að hafa allt rétt,er það ekki/*Halli gamli


mbl.is Ekki að ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fabregas ekki með vegna meiðsla/en það samt í lagi Arsenal vann M.U.N. 1-0 !!!!

Fabregas ekki með vegna meiðsla
Íþróttir | mbl.is | 1.5.2011 | 12:20

Cesc Fabregas er ekki með í dag.Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, missir af stórleiknum gegn Manchester United í dag. Hann meiddist á æfingu á föstudaginn og er ekki í leikmannahópnum á Emirates en leikurinn hefst kl. 13.05.

Lið Arsenal:Szczesny, Sagna, Koscielny, Djourou, Clichy, Song, Wilshere, Walcott, Ramsey, Nasri, Van Persie.
Varamenn: Lehmann, Squillaci, Arshavin, Eboué, Gibbs, Chamakh, Bendtner.

Lið Man.Utd:Van der Sar; Fabio, Ferdinand, Vidic, Evra; Nani, Carrick, Anderson, Park; Rooney; Hernández.
Varamenn: Owen, Berbatov, Smalling, Rafael, O'Shea, Valencia, Kuszczak//////

 en þetta for bara vel fyrir Arsenal sem vann 1-0 og það gott og flott,og gæti gefið okkur annað sætið?? þetta var kannski ekki skemmtilegasti leikurinn en mörkin duga,og svo synir að það eru ekki endilega stjörnurnar sem skora,það átti einnig sennilega að ver víti báðu megin en allavega fyrir Arsenal en það var hendi þarna en þetta er bara svona við gleðjumst Arsenal ádáendur/Halli gamli


mbl.is Fabregas ekki með vegna meiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. maí fagnað um land allt/Til hamingju með daginn allt fólk flest erum við bara verkalýður :þó svo allir vilji ekki viðurkenna það!!!

1. maí fagnað um land allt
Innlent | mbl.is | 1.5.2011 | 7:41

Frá kröfugöngunni í Reykjavík í fyrra. Alþjóðadagur verkalýðsins verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Venju samkvæmt verður farið í kröfugöngur, m.a. í Reykjavík. Safnast verður saman á horni Snorrabrautar og Laugavegar kl. 13 og leggur gangan svo af stað kl. 13.30.

Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Austurvöll. Þar hefst svo útifundur kl. 14:10.

Á þessari stundu er óvíst hvort veðrið muni setja strik í reikninginn.////ja´til hamingju öll sem eru vinnandi fólk og við einnig sem erum hætt að vinna og allir landsmenn bara!!Þó svo þessi dagur sé ekki haldin i besta veðri og  allt á móti honum atvinnuleysi og allir samningar i uppnámi er þetta samt dagurinn okkar,og okkur ber að halda halda hann i þeim anda að semja og  fá betri laun,það sem endar fólks ná ekki saman viða og við berjumst fyrir því betra,einn og að hagvöxtur verði til þessa,við verrðum öll að standa saman!!!/Halli gamli


mbl.is 1. maí fagnað um land allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir málið á forræði þingsins/sama með það þetta kjördæmapot,er of dýrt,þarf peningana í annað!!!

Segir málið á forræði þingsins
Innlent | mbl | 30.4.2011 | 19:37

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag margt orka tvímælis í athugun sem innanríkisráðuneytið lét framkvæma á hagkvæmni þess að flytja starfsemi Landhelgisgæslu Íslands til Suðurnesja.
Hann vill að Alþingi láti gera óháð mat á málinu án aðkomu ráðuneytisins. Björgvin ásamt öðrum þingmönnum Suðurkjördæmis lögðu nýverið fram þingsályktunartillögu um að flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Málið sé því á forræði Alþingis en ekki innanríkisráðuneytisins:

„Nú er það á forræði þings og þingnefndar. Leiði önnur og ítarlegri athugun í ljós að flutningur Gæslunnar sé bæði hagkvæmur og skynsamlegur út frá faglegum forsendum jafnt og efnahagslegum er því ekkert til fyrirstöðu að Alþingi ákveði að stofnunin skuli flutt á Reykjanesið.

Við munum því ekki láta útspil innanríkisráðuneytisins stöðva málið. Sérstaklega þar sem svo heppilega háttar að það er komið til þingsins í formi ályktunar okkar þingmannanna tíu. Nú hefst sá þáttur málsins og við skulum spyrja að leikslokum. Alþingi hefur síðasta orðið. Ekki ráðherra. Því er brýnt að hraða vinnu nefndar og þings og leiða málið til lykta á málefnalegum forsendum,“ segir Björgvin.//////þetta er ekki hægt að gera er of dýrt ,ekki fært að gera núna ,als ekki ,það er nóg annað við peningana að gera og .að er komin timi til að forgangsraða,og það metur maður þarna ,það er svo ennþá allavega að það þarf að skoða alla hluti og fara varlega ,en að framkvæma það sem skilar arði er það sem þarf ,en ekki gæluverkefnum!!! Halli gamli


mbl.is Segir málið á forræði þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján vill landsfund í haust/það er nauðsinlegt að mínu mati,að hreinsa andrúmsloftið !!!

Kristján vill landsfund í haust
Innlent | mbl | 30.4.2011 | 20:23

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vilja að næsti landsfundur flokksins fari fram næsta haust í samtali við Eyjuna.is en nokkrar deilur hafa staðið um það innan hans hvenær rétt sé að halda næsta fund.
Kristján vildi hins vegar ekkert segja til um það hvort hann kynni að bjóða sig aftur fram sem formann Sjálfstæðisflokksins líkt og hann gerði árið 2009.

Nýverið samþykkti fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu ályktun þar sem skorað var á formann Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn flokksins að boða til landsfundar ekki seinna en í október í haust. Fleiri félög innan Sjálfstæðisflokksins hafa á árinu kallað eftir því að næsti landsfundur verði haldinn á þessu ári en hugmyndir hafa verið uppi um að jafnvel verði ekki af því fyrr en á næsta ári.

Síðasti reglulegi landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn fyrir alþingiskosningarnar 2009 en sumarið 2010 var haldinn aukalandsfundur til þess að kjósa nýjan varaformann í kjölfar þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varaformennsku fyrr á árinu. Hins vegar fór þá meðal annars ekki fram miðstjórnarkjör eins og gert er ráð fyrir í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins að fram fari á reglulegum landsfundi.///það er auðvitað gott að halda hann ekki seina en i haust ,það er bara nauðsyn að gera,hreinsa andrúmsloft og þjappa sér saman,við erum að ná okkur öll eftir hrunið og það ber að tal betur um framtíð,en ekki alltaf um fortíð sem stjórnarastæðingar gera bara að mínu mati,þetta verður góður landsfundur ekki spurning,en ef þessi ríkisstjórn verður þá við völd sem er efins ,þá fer að liða að því allavega fyrir áramót/Halli gamli


mbl.is Kristján vill landsfund í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband