Spáð snjókomu á fjallvegum/það er komin ein og hálf vika sumars,er þetta eðilegt ???

Spáð snjókomu á fjallvegum
Innlent | mbl.is | 30.4.2011 | 17:38

Mynd 556536 Nærri kyrrstætt úrkomusvæði liggur nú til norðurs eftir vestanverðu landinu að sögn veðurfræðings. Víða er slydda, en með kvöldinu kólnar heldur og nokkuð mun þá snjóa staðbundið.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að að það eigi við um Hellisheiði og Þrengsli, Lyngdalsheiði, ofantil í Borgarfirði, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Sennilega einnig norður á Þröskulda og Steingrímsfjarðarheiði.

Þá segir að skörp hitaskil séu með þessum úrkomubakka og vestan í honum geti mögulega einnig gert krapasnjó á láglendi. Hlýnar síðar heldur og styttir upp að mestu í fyrramálið.////////þetta er svona að það er komið sumar, og svo er spáð snjókomu ekkert annað, það er ekki gott en vonandi eins og maður hefur áður sagt að það á að vera komið sumar eða er að ekki??? en svo er bara landið okkar og við tökum þessu með ró/Halli gamli


mbl.is Spáð snjókomu á fjallvegum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnar ásökunum/það er allt gert til að eyðileggja hval og hrefnuveiðar !!!!

Hafnar ásökunum
Innlent | mbl | 30.4.2011 | 17:43

Hrafnreyður KÓ. Fyrirtækið sem gerir út hrefnuveiðibátinn Hrafnreyði vísar því alfarið á bug að báturinn hafi stundað ólöglegar hrefnuveiðar í dag eins og haldið hafi verið fram. Tvær hrefnur hafi verið veiddar í morgun en báðar hafi þær verið veiddar töluvert utan þess svæðis sem slíkar veiðar eru óheimilar.

Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf., segir að þeim sé skylt að tilkynna Fiskistofu strax og hrefnur eru veiddar og allar upplýsingar séu skráðar um það hvar veiðarnar fari fram. Fyrirtækið hafi alltaf veitt utan þeirra svæða þar sem veiðarnar eru óheimilar síðan þær reglur hafi verið settar.

Gunnar segir að Hrafnreyður hafi verið á hægri heimleið og áhöfnin verið byrjuð að skera dýrin þegar hinar meintu ólöglegu veiðar eigi að hafa átt sér stað. Engu slíku hafi hins vegar verið fyrir að fara./////þetta er dæmigert að allt er gert til að stoppa af hval og hrefnuveiðar ,það er svo að þessi sem eru með skoðunarferðir þarna eru álgjörleg  á móti þessu ,það er svo að þetta gerturs sem   best farið saman ekki spurnig/Halli gamli


mbl.is Hafnar ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snýst um hverjir eigi að stjórna landinu/er verkalýðsforustan að vakna!! það er að kom 1 Maí ????

Snýst um hverjir eigi að stjórna landinu
Innlent | mbl | 30.4.2011 | 14:22

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins kynnir kröfur sínar... Samtök atvinnulífsins eru harðlega gagnrýndi pistli á heimasíðu Starfsgreinasambandsins í dag og þau sökuð um að reyna að kúga bæði verkalýðshreyfinguna og ríkisstjórnina með kröfum um að farið verði að vilja þeirra í sjávarútvegsmálum.
Fullyrt er að með því brjóti SA gegn lögum og að ríkisstjórnin beri ekki að fara að kröfum þeirra samkvæmt lögum um kjaradeilur.

Starfsgreinasambandið segir að kjaraviðræðurnar hafi þannig snúist upp í deilu um það hverjir eigi að stjórna landinu.

„Þær kjaraviðræður sem fóru af stað í nóvember í fyrra með það markmið verkafólks og Samtaka atvinnulífsins  að bæta kjörin með aukinni verðmætasköpun hafa snúist upp í deilu um það hver eigi að stjórna landinu. Vissulega höfum við í verkalýðshreyfingunni beitt okkar samtakamætti til að knýja á um félagsleg réttindi en það hvernig útvegsmenn og Samtök atvinnulífsins beita valdi sínu nú tekur út yfir allan þjófabálk.

Því verðum við að mæta af fyllstu hörku en við megum heldur ekki skella skollaeyrum við þeim aðvörunarorðum sem komu úr Seðlabankanum um daginn. Þess vegna flýtum við okkur hægt og viljum nú semja til eins árs og sjá svo til hvort hagvaxtarleiðin verði fær þegar Samtök atvinnulífsins hafa fangað skynsemi sína og áttað sig á því að það er réttur ríkisstjórnarinnar að stjórna landinu,“ segir á heimasíðu SGS.

Þá er ríkisstjórnin einnig gagnrýnd og hún minnt á að því fylgi ábyrgð að stjórna. 

„Sú ábyrgð felst fyrst og fremst í því að hafa forystu fyrir umræðu og ráðstöfunum sem leiða til hagvaxtar og stöðugleika og geta um leið komið í veg fyrir að kjarasamningar til lengri eða skemmri tíma leiði til aukinnar verðbólgu. Í þeirri umræðu vill verkalýðshreyfingin axla sína ábyrgð af festu og með afli ef nauðsyn krefur og við látum ekki hvað sem er yfir okkur ganga,“ segir á síðunni.//////það er i sjálfu sér ekki meint að því að taka sig á og segja sina meiningu ekkert að því,en að vera að vakna nú rétt fyrir 1 Maí og segja þetta um S.A. er ekki gott þetta spilar allt saman og og aldrei meir en nú að útflutningur og og gjaldeyrisskapandi ,allt gengi okkur i haginn á því veltur afkoma okkar allra!!! svo er allt i uppnámi ef S.A. leifir sér að setja það á oddinn eð þetta gangi fyrir sig og ráðist á þá,það  svo að það er ekki  gleymt að hér var kreppa og við erum alls ekki komi uppúr henni og langt i land!! Atvinnuleysið 15 þus mans og er að aukast og svo til að þessi útgerð gangi vel þarf að hafa rekstargrundvöll til þessa, það er malið,fyrir okkur öll ekki bara suma,og það ber S.G.S. að vita  og taka þátt i því að vers skinsamir og SEMJA !! ekki bara að kasta skít i allt og alla,það er svo að hagvöxtur er það eina sem bjarga kauphækkun og fleiri störfum og ber að hafa skilning á því,og hann verðu ekki til nema að gera eitthvað rótækt þar ,og það segist Ríkisstjórn ætla að gera og við  eigum að treysta því og skoða og semja til 3 ára með vistulölutryggingu á launum,það er ekkert annað i stöðunni að semja bara til árs er ekki gott til að byggja á/Halli gamli


mbl.is Snýst um hverjir eigi að stjórna landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hóta allsherjarverkfalli 25. maí/eins og þarna sést átti aldrei að semja,þessir kallar í foristu Verklýsfélaga sem hafa háu launin ,þeir vilja sína mátt sinn og megin!!!

Hóta allsherjarverkfalli 25. maí
Innlent | mbl.is | 30.4.2011 | 9:59

Kjaraviðræður hafa staðið yfir lengi en ekki skilað árangri.Guðmundur Gunnarsson, fráfarandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að allsherjarverkfall muni hefjast 25. maí nk. fallist Samtök atvinnulífsins ekki á á kröfu samtaka launamanna um eins árs samning, með sömu afturvirkni og hafi verið í Elkem samningunum og 4,5% launahækkun.

Hann segir í tilkynningu, sem hann sendi fjölmiðlum, að í gær hafi SA boðið upp á áframhaldandi þref næstu vikurnar um breytingar á launkerfum og um fyrirvara LÍÚ. Á þetta fallist launamenn ekki. Hann segir að samtök launamanna á almennum vinnumarkaði hafi sýnt mikil heilindi og mikla þolinmæði gagnvart vandræðagang SA og LÍÚ.

Tilkynning Guðmundar er svohljóðandi:

„Á yfirstandandi 17. þingi Rafiðnaðarsambandsins er m.a. fjallað um nýja stöðu í kjarasamningum. Miðvikudaginn 13. apríl hafnaði SA enn einu sinni að draga tilbaka þá fyrirvara sem samtökin höfðu sett um að forsenda kjarasamninga væri ásættanlega niðurstöðu í kvótamálum að mati LÍÚ. En á þessum forsendum höfðu þeir dregið gerð kjarasamninga mánuðum saman.

 

Þar var um var að ræða tilboð um 3ja ára kjarasamning með 11,7% kostnaðarauka, ekki var búið að ganga frá breytingum á launakerfum og kostnaðarauka vegna þess, en fyrir lá að sá kostnaðarauki yrði um 1 – 2%. Föstudaginn 15. apríl höfnuðu þeir að standa áður gefið loforð um að gera 6 mánaða skammtímasamning nema að í honum væru ákvæði um fyrirvara LÍÚ.

Þremur dögum síðar gengur SA til samninga við 4 stéttarfélög, þar á meðal RSÍ, með 15,7% launahækkun, og þar af eru 13,8% það sem kalla má almenna launahækkun og 2% vegna bónuskerfa sem byggja á ábataskiptakerfum. Jafnframt var samið um afturvirkni til 1. janúar 2011 í stað 1. mars, eða fimm mánuði í stað 3ja mánaða. Í þeim samning voru engir fyrirvarar frá LÍÚ. Þessi samningur var alfarið í samræmi við kröfur iðnaðarmannafélaganna og Verkalýðsfélagið á Akranesi féll frá öllum sínum sérkröfum.

Í gær fór fram einhliða gengdarlaus áróður m.a. í fréttastofu allra landsmanna af hálfu SA um þessi mál. Þar var farið með rangt mál, m.a. ekki minnst á að enn væri inn í þeim samningum sem SA væri að bjóða ennþá væru sömu fyrirvarar af hálfu LÍÚ. Gert var lítið úr Elkem samningnum, en þar eru launahækkanir þar skiptast þannig að á þessu ári koma 8,5%, árið 2012 koma 3,3% og árið 2013 koma 3%, samtals eru þetta 15,7%.

SA bauð í gær upp áframhaldandi þref næstu vikurnar um breytingar á launkerfum og um fyrirvara LÍÚ. Á þetta fallast launamenn ekki. Samtök launamanna á almennum vinnumarkaði hafa sýnt mikil heilindi og mikla þolinmæði gagnvart vandræðagang SA og LÍÚ.

Þess vegna hafa samtök launamanna sett fram kröfu um eins árs samning með sömu afturvirkni og var í Elkem samningnum og 4,5% launahækkun. SA og LÍÚ geti þá athugasemdalaust af hálfu launamanna haft svigrúm til þess að ljúka sínum málum og síðan megi í haust hefja vinnu við gerð 3ja ára samnings sem taki við í janúar á næsta ári. Ef SA fellst ekki á þessa leið hefst allsherjarverkfall 25 maí næstkomandi.“//////Þetta synir okkur vilja til að semja eru þetta  ábyrgir ,menn nei það eru þeir ekki,þeir hafa nóg laun sjálfir en vilja bara sína mátt sin og megin!!! þetta er með eindæmum að i dag skuli þessir men komast upp  með svona kjaftæði að ekkert sé annað i stöðunni en verkfall,sem mundi keyra þjóðfélagið allt niður ,þessi menn þurfa akki að hugsa um þjóðarhag,als ekki þykjast ver að hugsa um hag fólksins en eru það ekki,bara að fara í hart að óþörfu nóg er búið að þrögla við S.A. um samtöðu við útgerðina,svo þegar það er komið i farveg er ekki hægt að semja til 3 ára bara af því bara???,eða er 1 maí á morgun og er þetta bara táknrænt,það er eitthvað mikið að þarna ,ekki spurning,þá ríkisstjórnin sé slæm er hún þar skárri en þessir fuglar/halli gamli


mbl.is Hóta allsherjarverkfalli 25. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beita þarf verkfallsvopninu/nú er komið að mér segir Formaður ASÍ að taka S.A. í gíslingu!!!!

Beita þarf verkfallsvopninu
Innlent | mbl.is | 29.4.2011 | 15:24

Mælirinn er fullur að mati ASÍ. ASÍ segir að nú séu þáttaskil og að aðildarsamtök ASÍ séu ekki til viðræðu um lengri samning en til eins árs. Í yfirlýsingu sem ASÍ hefur sent frá sér, undir yfirskriftinni „Mælirinn er fullur“ segir að nú sé sú stund runnin upp að beita þurfi verkfallsvopninu.

„Nú er svo komið að ekki verður lengur við makalausa framkomu SA búið. Hvert landssambandið innan ASÍ á fætur öðru hefur vísað kjaradeilunni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara og í flestum þeirra er farið að huga að verkfallsaðgerðum. Verkfallsvopnið er öflugt og notast aðeins í brýnni neyð. Nú er sú stund runnin upp að verkalýðshreyfingin sér ekki annan kost en að beita þessu vopni sínu,“ segir ASÍ.

„Samtök atvinnulífsins hafa haft landssamböndin innan ASÍ að ginningarfíflum í næstum hálft ár þar sem grímulaus hagsmunagæsla fyrir LÍÚ vegur þyngra en hagsmunir almenns launafólks. Nú verður látið sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Nú þarf að brjóta gíslatöku SA á bak aftur,“ segir ennfremur.

Þá segir að yfirlýsing SA frá því fyrr í dag þess efnis að samtökin vilji gera 3 ára kjarasamning komi of seint. Það sem hafi verið í umræðunni fyrir páska komi ekki lengur til greina. SA hafi hafnað þeim 3 ára kjarasamningi sem þá hafi legið á borðinu og hafi síðan gert kjarasamning nokkrum dögum síðar sem hafi falið í sér muni meiri hækkanir en menn hafi rætt fyrir páska./////þetta er bara fyrirsláttur hjá þessum  formanni ekki spurning,að segja okkur þetta sem höfum staðið i verkföllum og vitum hvað það þíðir en hann ekki,það er svo komið að kreppan fór langt með okkur og er þá tími til verkfalla nei það er það ekki,það er aldrei og seint að semja og við bar meiri men af því að ger það en ekki hóta verkfali fyrr en í siðustu vona um ekki neitt,er hægt að semja ekki spurning og festa það bara með vistölu i 3 ár,en kall er að spila sig stjórna nú til að halda sínu starfi en .það hlýtur að virka öfugt/Halli gamli


mbl.is Beita þarf verkfallsvopninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný staða og nýr tími/ kvaða tími er það,tími kommonista eða hvað!!!!

Ný staða og nýr tími
Innlent | mbl.is | 29.4.2011 | 15:29

Sáttafundir hófust í Karphúsinu kl. 10 í morgun.Áherslur SA á að reynt verði að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings féllu í grýttan jarðveg hjá samninganefnd Flóafélaganna á sáttafundi í dag. „15. apríl er liðinn. Það er einfaldlega komin upp ný staða og nýr tími,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar.

Flóafélögin hvika ekki frá því að gengið verði frá kjarasamningi til eins árs. „Ég lít svo á að það sé fullreynt að fara þessa leið. Það hefur vantað vilja hjá SA til að fara í þriggja ára samning og þeir hafa sjálfir haft mesta vantrú á að hann væri framkvæmanlegur,“ segir Sigurður.

Hann bendir á að frá því að viðræður fóru út um þúfur um miðjan apríl hafi Samtök atvinnulífsins gengið frá kjarasamningum hjá Elkem sem sé með öðru fyrirkomulagi.

„Málið er núna í höndum sáttasemjara,“ segir Sigurður. Hann á von á að ríkissáttasemjari meti stöðuna í framhaldi af fundum með fleiri félögum og landssamböndum sem fram fara í dag í húsnæði sáttasemjara. Ekki sé orðið ljóst hvort hann boðar til funda yfir helgina.///þá sjáum við það að það átti aldrei að semja  og seint segja þeir,af hverju spyr maður bara ,bar til að setja allt á annan endann,og boða verkföll eru þessir menn á launum hjá Ríkisstjórnin eða hvað ,en svo aðferðir eru þegar kommar taka völdin ekki spurnig ,það er að koma fyrsti maí og það er kröfuganga og gæti það verið að þar verði fjölmennt,það hefur því miður ekki verið undanfarin ár,það er gott ef varkalýðurin tekur við sér og það bara gott ,en samningar eru á báða vegu og ef engir atvinnurekendur  eru er engin vinna,svo og kemur ríkisstjórn þarna inn einnig,nú er svo komið að S.A. vilja semja til 3 ára en þá eru öll félögin á móti því,þetta er akveg dæmigert að það átti aldrei að semja/en það verður ekki okkur til góða þjófélaginu,allt fer niður og vel það!!!/Halli gamli


mbl.is Ný staða og nýr tími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rekstrarskilyrðin verði tryggð/það er málið ef samningar eiga að nást !!!!!

Rekstrarskilyrðin verði tryggð
Innlent | mbl.is | 29.4.2011 | 12:35

Frá blaðamannafundi SA í dag.„Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er það loforð uppi að sjávarútveginum verði tryggð góð rekstrarskilyrði til framtíðar. Við treystum því að sjávarútvegurinn komi vel út úr þeim skipulagsbreytingum sem stöðugt er talað um,“ sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, á fréttamannafundi í morgun.

Fulltrúar í framkvæmdastjórn SA kynntu á fundinum ákvörðun samtakanna um að látið verði reyna á vilja ASÍ og landssambanda þess að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, var á sama tíma á sáttafundum með Flóafélögunum og samtökum verslunarmanna í húsnæði Ríkissáttasemjara.

Fram kom á fréttamannafundinum að framkvæmdastjórn SA hafi fyrst og síðast horft á umgjörð sjávarútvegsins en óþolandi óvissa hafi verið um starfsemi þessa grundvallaratvinnugreinar.

 „Eins og fram hefur komið þá hafa menn ekki verið að tala fyrir óbreyttu kvótakerfi, heldur fyrir því að þessari óvissu yrðu eytt með viðunandi hætti fyrir greinina. Þetta er hluti af heildarmyndinni. Við búum í einu hagkerfi og að tala eins og sjávarútvegurinn sé eitthvert einangrað fyrirbæri í atvinnulífinu er út í hött,“ sagði Grímur Sæmundsen, varaformaður SA.

Forystumenn SA sögðu að þrátt fyrir að lokatilboð ríkisstjórnarinnar sé langt í frá að vera nægjanlegt og slæma reynslu af loforðum ríkisstjórnarinnar í tengslum við stöðugleikasáttmálann, þá hafi SA ákveðið með tilliti til mikilvægis stöðugleika í framtíðinni og að þjóðin komist upp úr kreppunni, að freista þess að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings með aðfararsamningi til 15. júní.

Treysta því að fyrirheitin verði efnd

Ef samkomulag næst með aðfararsamningi verður tíminn til 15. júní notaður til að reyna að komast til botns í málum sem ennþá standa útaf eins og t.d. varðandi framkvæmdir við samgöngumannvirki, að sögn Vilmundar.

„Þar munum við freista þess að ná ásættanlegri niðurstöðu fyrir 15. júní,“ sagði hann. SA treysti því að þau fyrirheit sem ríkisstjórnin gefur í yfirlýsingu sinni um framgang mála á Alþingi verði efnd.

Fram kom að öll áhersla sé lögð á að ná upp hagvexti sem gæti orðið 5% á næstu árum. Nú muni reyna á hvort ríkisstjórnin og þingið geri þær ráðstafanir sem þarf svo viðunandi árangur náist.////það sjá allir sem vilja að hagvöxtur er það eina sem getur bjargað okkur ekkert annað!! og ef það tekst er það leiðin að samningum engin önnur ,við skulum bara vona að það takist ennars  allt i hnút og verkföllum sem engi þolir/Halli gamli 


mbl.is Rekstrarskilyrðin verði tryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Tapið gegn Birmingham var vendipunktur/sammála Wenger ,sárt en við bara tökum þetta næst!!!

Wenger: Tapið gegn Birmingham var vendipunktur
Íþróttir | mbl.is | 29.4.2011 | 11:42

Arsene Wenger.Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að tap sinna manna gegn Birmingham í úrslitaleik deildabikarkeppninnar hafi verið vendipunkturinn á tímabilinu. Þá var Arsenal í baráttu um titla á fernum vígstöðum en sjötta árið í röð munu lærisveinar Wengers ekki vinna neitt í ár.

,,Eftir tapið í úrslitaleiknum fóru hlutirnir að ganga okkur í mót og í undirmeðvitundinni misstu leikmenn svolítið trúnna,“ segir Wenger en Arsenal er fyrir leiki helgarinnar í þriðja sæti, níu stigum á eftir Manchester United en Arsenal tekur á móti United á Emirates Stadium á sunnudaginn.///"það þíðir ekki að gráta Björn Bónda heldur safna liði" segir maltækið og að gerum við aðdáendur Arsenal  og það á Wenger einnig að gera,en þessi leikur á Sunnudag veður vonandi skemmtilegur og megi betra liðið vinna,en við þurfum á því að halda að vinna þessa leiki sem eftir eru til að halda allavega 3 sæti,en við með 64' stig og Chelsea með 67 stig í öðru sæti en M.U.N. með 73 sig i fyrsta sæti,ssvo þetta er æsta öruggt fyrir M.U.N. en samt gæti Chelsea átt möguleika ef illa fyrir færi fyrr M.U.N. sem er óttrúlegt!!! ssvo koma M.C. með 59 stig og leik til góða svo og Tottenham með 55 stig einnig með leik til góða ssvo það veður hart barist þarna um meistaradeildasæti einnig/en spyrjum að leikslokum/halli gamli


mbl.is Wenger: Tapið gegn Birmingham var vendipunktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótafrumvarp kynnt/þá að ekki að semja bara fara rúsatleiðinni!!!!

Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða verður lagt fyrir ríkisstjórn í dag eða strax eftir helgi í síðasta lagi, að því er kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Segir þar að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fáu ekki að sjá frumvarpið fyrr en það hefur fengið umfjöllun í ríkisstjórn og í þingflokkum stjórnarflokkanna.

Gert er ráð fyrir því að eftir hagfræðilegri greiningu á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á rekstur og starfsumhverfi sjávarútvegsins sé lokið muni Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið tilnefna tvo fulltrúa hvort ásamt fulltrúum stjórnarflokkanna til að vinna að frekari sátt um málið. Þeirri yfirferð á að vera lokið 8. júní.

Blaðið segir, að gert sé ráð fyrir að fiskveiðistjórnarkerfinu verði skipt upp í nýtingasamninga við útgerðina og potta til samfélagslegra verkefna. ////þarna kemur þetta leynt og ljóst fram að það á að rústa útgerðinni, og það a hreinu,það er afdrifarík og komið stríð það er það sem þessi ríkisstjórn vill og fær!!!!!/Halli gamli


Vilja ljúka gerð kjarasamninga/spennt að sjá um hvað á að semja???

Vilja ljúka gerð kjarasamninga
Innlent | mbl.is | 29.4.2011 | 10:55

Aðilar vinnumarkaðarins í Karphúsinu í morgun.Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi sínum í morgun að leita eftir því við samningsaðila að ljúka gerð kjarasamnings. SA segist vilja láta reyna á vilja ASÍ og landssambandanna að að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings með aðfararsamningi til 15. júní nk. ///við bara bíðum og sjáum hvað um er að ræða ekki trúi ég að þeir samþykki að rusta útgerðinni/Halli gamli
mbl.is Vilja ljúka gerð 3 ára samnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband