Beita þarf verkfallsvopninu/nú er komið að mér segir Formaður ASÍ að taka S.A. í gíslingu!!!!

Beita þarf verkfallsvopninu
Innlent | mbl.is | 29.4.2011 | 15:24

Mælirinn er fullur að mati ASÍ. ASÍ segir að nú séu þáttaskil og að aðildarsamtök ASÍ séu ekki til viðræðu um lengri samning en til eins árs. Í yfirlýsingu sem ASÍ hefur sent frá sér, undir yfirskriftinni „Mælirinn er fullur“ segir að nú sé sú stund runnin upp að beita þurfi verkfallsvopninu.

„Nú er svo komið að ekki verður lengur við makalausa framkomu SA búið. Hvert landssambandið innan ASÍ á fætur öðru hefur vísað kjaradeilunni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara og í flestum þeirra er farið að huga að verkfallsaðgerðum. Verkfallsvopnið er öflugt og notast aðeins í brýnni neyð. Nú er sú stund runnin upp að verkalýðshreyfingin sér ekki annan kost en að beita þessu vopni sínu,“ segir ASÍ.

„Samtök atvinnulífsins hafa haft landssamböndin innan ASÍ að ginningarfíflum í næstum hálft ár þar sem grímulaus hagsmunagæsla fyrir LÍÚ vegur þyngra en hagsmunir almenns launafólks. Nú verður látið sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Nú þarf að brjóta gíslatöku SA á bak aftur,“ segir ennfremur.

Þá segir að yfirlýsing SA frá því fyrr í dag þess efnis að samtökin vilji gera 3 ára kjarasamning komi of seint. Það sem hafi verið í umræðunni fyrir páska komi ekki lengur til greina. SA hafi hafnað þeim 3 ára kjarasamningi sem þá hafi legið á borðinu og hafi síðan gert kjarasamning nokkrum dögum síðar sem hafi falið í sér muni meiri hækkanir en menn hafi rætt fyrir páska./////þetta er bara fyrirsláttur hjá þessum  formanni ekki spurning,að segja okkur þetta sem höfum staðið i verkföllum og vitum hvað það þíðir en hann ekki,það er svo komið að kreppan fór langt með okkur og er þá tími til verkfalla nei það er það ekki,það er aldrei og seint að semja og við bar meiri men af því að ger það en ekki hóta verkfali fyrr en í siðustu vona um ekki neitt,er hægt að semja ekki spurning og festa það bara með vistölu i 3 ár,en kall er að spila sig stjórna nú til að halda sínu starfi en .það hlýtur að virka öfugt/Halli gamli


mbl.is Beita þarf verkfallsvopninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband