Ekki boðlegt í sölum Alþingis/ Er Jóhanna virkilega að stefna að einræði !!!!!

Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Innlent | mbl.is | 4.5.2011 | 15:29

Jóhanna Sigurðardóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi, að það væri ekki boðlegur málflutningur á Alþingi, að halda því fram að forsætisráðherra væri að taka sér alræðisvald með frumvarpi um Stjórnarráð Íslands, sem nú er til meðferðar.

„Ég tel að þingmaður sem heldur slíku fram verði að rökstyðja það," sagði Jóhanna. „Hverslags bull er slíkur málflutningur, þetta er bara ekki boðlegt hérna í sölum Alþingis." Sagði Jóhanna að verið væri með frumvarpinu að styrkja stjórnsýsluna og skapa nauðsynlegan sveigjanleika. 

Jóhanna var að svara Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, sem sagði, að frumvarpið væri uml að leggja Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, niður.  

Þá sagði Sigmundur Davíð, verið væri að taka vald frá þinginu og færa það til framkvæmdavaldsins. Sé forsætisráðherra falið vald til að færa verkefni á milli ráðuneyta eftir því sem ráðherrann teldi henta. „Í raun má segja að forsætisráðherrann sé einn orðinn yfirráðherra og hinir ráðherrarnir einskonar aðstoðarráðherrar," sagði Sigmundur Davíð.

Varðandi rökstuðning fyrir orðum sínum um að verið væri að auka völd framkvæmdavaldsins sagðist Sigmundur Davíð geta vísað í orð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hefði farið yfir þetta allt saman í gærkvöldi. „Er forsætisráðherra að halda því fram að ráðherra í sinni eigin ríkisstjórn sé að bulla?" spurði Sigmundur Davíð.

Jóhanna sagði að svipað stjórnsýslufyrirkomulag, og gert væri ráð fyrir í frumvarpinu, gilti í sjö af nágrannalöndum Íslands, þar á meðal í Danmörku og Noregi.  „Það er ótrúleg umræða sem fer fram hér um nákvæmlega þá hluti, sem frumvarpið gengur ekki út á," sagði Jóhanna.///manni sýnist að Jóhanna  Forsætisráðherra stefni að einræði ,það sést ekkert annað þarna í hennar er athöfunum ekkert annað en að styra öllu og öllum ,það er hennar mottó ekki spurning um það þar til við komumst i ESB að hennar tilstylli og það skal takast eins og hennar flokksmenn vilja og fleiri,þetta er ekki  hægt að liða og menn verð að standa þarna saman og eyðileggja þennan tilgang hennar og c/o/Halli gamli   


mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband