Er ekki betra að hafa það sem sannara reynist,eða hvað V.G.?????

Ólöf segir orð sín slitin úr samhengi

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hún hafi skipt um skoðun varðandi breytingar á kvótakerfinu. Hún segir Björn Val Gíslason, þingmann vinstri grænna missilja þau orð sem hún lét falla í viðtali við Viðskiptablaðið fyrir skömmu.

Í viðtalinu sagði Ólöf: „Ég er sjálf á því að það sé algjör óþarfi að breyta kerfinu og að það eigi að láta sjávarútveginn í friði, ekki síst á tímum þegar rekstrarumhverfið er gott eins og víða er núna í sjávarútvegi."

Björn Valur, sagði á bloggsíðu sinni, að með þessu hafi Sjálfstæðisflokkurinn sagt sig frá þeirri sátt sem var í sjónmáli um sjávarútveginn og kosið ófrið í stað breiðrar samstöðu.

Ólöf segir Björn Val rangtúlka hennar orð. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið hluti af þeim þverpólitíska hóp sem falið var að endurskoða lög um stjórn fiskveiða. Fulltrú flokksins, Einar Kristinn Guðfinnsson, hafi stutt þá niðurstöðu sem hópurinn lagði til.

„Það sem ég átti við var að mér finnst ekki skynsamlegt að kollvarpa þessu kerfi sem hefur reynst okkur efnahagslega hagkvæmt," segir Ólöf. Það sé hægt að gera breytingar innan kerfis þó kerfinu sjálfu sé ekki umbylt.
„Sjálfstæðisflokkurinn stendur bak við niðurstöður hópsins heils hugar og á því hefur ekki orðið nein breyting. Þetta er kannski stríðni hjá Birni Val að túlka þetta svona því hann veit vel hver afstaða Sjálfstæðisflokksins er."//////það er svo að allt er notað, til að ota sínum tota og ljúga á fólk og slita í  sundur það sem það segir,en svona er þetta hyski sem öllu snýr við sem mögulegt er vegna þess að það ætlar að eyðileggja útgerð alla og bylta ein og allt sem á að gera þarna innan þessarar ríkisstjórnar,en  þetta segir sig sjálf,er það ekki bara/Halli gamli


Þung umferð í bæinn/gott ef allt gengur vel þessa helgi ,engin slys það gott mjög!!!

Þung umferð í bæinn
Innlent | mbl | 25.4.2011 | 18:52

Umferð. Umferðin á leið í bæinn er nú talsvert þung um Borgarfjörð. Margir eru á heimleið eftir langa helgi, en að sögn lögreglunnar í Borgarfirði gengur umferðin vel fyrir sig.

Samkvæmt Vegagerðinni eru vegir auðir á suðurlandi og greiðfært á norðurlandi, en hálkublettir eru í Bröttubrekku, á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á fáeinum heiðum og hálsum. Hrafnseyararheiði og Dynjandisheiði eru ófærar.

Á austurlandi eru hálkublettir á Öxi og Fjarðarheiði en vegir eru greiðfærir með suðausturströndinni. ////mikið er það gott ef þessu blessuð Páskahelgi skilar okkur slysalausum það eitt og sér er dásamlegt, vonum bara að það haldi fram sem horfir ,en fólk er meðvitað um að þetta er okkar mottó!!!! að hafa Páskana svona, þetta er svo mikil ferðahelgi margra!!!!/Halli gamli


mbl.is Þung umferð í bæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samningar verði afturvirkir/það finnst manni auðvitða það eina rétta,en það stendur samt á Ríkisstjórn vorri

Samningar verði afturvirkir
Innlent | mbl.is | 25.4.2011 | 16:03

Sigurður Bessason, formaður Eflingar og Gylfi Arnbjörnsson,...Efling-stéttarfélag gerir þá kröfu til Samtaka atvinnulífsins að þar sem þau hafa með samningi við Elkem lagt til hliðar stefnu sína í sjávarútvegsmálum, þá gangi þau til samninga af fullri alvöru við félögin innan ASÍ strax eftir páskahátíðina.

Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins. Í ályktuninni segir að þar sem Samtök atvinnulífsins hafi með samningi við Elkem lagt til hliðar stefnu sína í sjávarútvegsmálum, beri þeim að ganga til samninga af fullri alvöru við félögin innan ASÍ strax eftir páskahátíðina.

Kjarasamningarnir sem SA gerði vegna starfsmanna sem vinna hjá Elkem á Grundartanga eru afturvirkir og gilda frá 1. janúar sl. Þetta gerir það að verkum að starfsmenn fá viðbótargreiðslu um næstu mánaðamót þegar sú hækkun sem í samningnum felast er gerð upp.

Búist er við að kjaraviðræður milli SA og landssambanda ASÍ hefjist að nýju á morgun, en það slitnaði upp úr viðræðum skömmu fyrir páska vegna ágreinings um sjávarútvegsmál.////það' er auðvitað það eina rétta að semja frá því að samningar voru lausir , en þetta að ríkisstjórn skuli ekki samþykkja það sem ber  á milli er ekki hægt að halda því fram að Útgerð og fiskveiðar komi þessu ekkert við er misskilningur ekki spurning,þetta að fara bara í stríð út af þessu núna er ekki i lagi als ekki það ber að semja og það strax ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Samningar verði afturvirkir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofna væntanlega þingflokk/það kom að þvi að yfirgefa Steingrím sem ekki skylur stenfnu síns eigin flokks!!!!

Stofna væntanlega þingflokk
Innlent | mbl.is | 24.4.2011 | 18:33

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason. Atli Gíslason, alþingismaður, sagði í fréttum Stöðvar 2 að meiri líkur væru á því en minni, að þingmennirnir þrír, sem hafa sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna, stofni nýjan þingflokk í vikunni.

Atli sagði að þingmennirnir þrír, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason, auk hans, hefðu rætt málin fyrir helgina og myndu hittast á ný í vikunni.

Þingmennirnir hafa ekki sagt sig úr Vinstrihreyfingunni-grænu framboði þótt þeir hafi sagt sig úr þingflokknum.////þetta var viðbúið að gerðist og vonandi að fleiri geri ,þegar flokkur eins og V.G. yfirgefa stefnu sin og taka upp stefnu samfylkingar um inngöngu i ESB eins og einnig margt fleira er þetta leiðin að segja sig ur Þingflokknum en ekki V.G. en halda stefnu sinni og styðja góð mál ,sem eru ekki mörg en samt er þetta virðingarvert að hafa eigin skoðanir,ekki spurning og láta ekki knésetja sig!!!!Halli gamli


mbl.is Stofna væntanlega þingflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangnick: Stefni á tvo sigra gegn United/það væri gaman,og uppót að sjá betra liðið vinna !!!!!

Rangnick: Stefni á tvo sigra gegn United
Íþróttir | mbl.is | 25.4.2011 | 13:10

Ralf Rangnick.Ralf Rangnick þjálfari þýska liðsins Schalke segir að sínir menn geti vel slegið Manchester United út í Meistaradeildinni og tryggt sér sæti í úrslitaleiknum á Wembley en fyrri leikur Schalke og United í undaúrslitum keppninnar fer fram á Schalke Arena annað kvöld.

Það voru fáir sem spáðu því að Schalke kæmist í undanúrslitin en liðið mætti Inter í átta liða úrslitunum. Annað kom á daginn því Schalke sló Evrópumeistarana út með því að vinna þá fyrst í Mílanó, 5:2, og svo 2:1 á heimavelli.

,,Ef við spilum eins og við gerðum tvisvar sinnum á móti Inter þá eigum við möguleika. Við erum ekkert að hugsa um 0:0. Við viljum vinna og spila eins og við gerðum á móti Inter á heimavelli. Það bjóst enginn við því að við myndum vinna Inter, 5:2, svo við ætlum að reyna að vinna báða leikina. Við unnum Inter ekki á neinni heppni.

Við vorum betri í báðum leikjunum. Ég veit ekki hvort United vanmeti okkur en ef það gerir það þá skiptir það ekki máli,“ sagði Rangnick við fréttamenn en hann var þjálfari Hoffenheim, liðs Gylfa Þórs Sigurðssonar, en sagði upp störfum og var síðar ráðinn þjálfari Schalke.

Rangnick hefur séð nokkra leikið Manchester United á þessu tímabili og hann segist ekki hafa séð neitt í leik liðsins sem hann óttist.

,,Ég sá United í leik á móti Chelsea fyrir átta vikum. Á þeim tíma vissi ég ekki að ég ætti eftir að verða þjálfari Schalke og myndi mæta United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Ég sá einnig leiki liðsins á móti Newcastle, Manchester City í bikarnum og ég var svo með útsendara á leiknum gegn Everton á laugardaginn.Þegar þú horfir á hvaða lið sem er í heimi þá getur þú séð einhverja veikleika.“/////þarna er maður sammál þessum þjálfara Schalke ekki spurning að er veikleikar i flestu  liðum og hann segir þarna satt,það eru að í M.U.N. alveg eins og Arsenal minu uppáhaldsliði en Þjóverjar eru sterkir og það eitt geri þá hættulega ekkispurnig ,aftur að þjálaranum hann er kænn, og ekki spurning að hann ætlar sér  að vinna  ,og gerið það/Halli gamli


mbl.is Rangnick: Stefni á tvo sigra gegn United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasnjór í apríllok/það mætti halda það: en þetta bara páskahret !!!!!

Jólasnjór í apríllok
Innlent | mbl.is | 25.4.2011 | 9:03

Það var jólalegt á orlofshúsasvæðinu í Biskupstungum í morgun.Talsvert hefur snjóað á sunnanverðu landinu í morgun og var víða jólalegt um að litast þótt komið sé langt fram í apríl. Að sögn Veðurstofunnar má búast við nokkuð samfelldri ofankomu sunnan- og vestantil fram eftir degi og hálku eða krapa víða á svæðinu af hennar völdum.

Það var jólalegt á orlofshúsasvæðinu í Biskupstungum í morgun.

Klukkan 6 í morgun  var suðlæg átt, 5-13 metrar á sekúndu og snjókoma á Reykjanesi, él sums staðar sunnanlands og á stöku stað austantil, en annars skýjað með köflum. Kaldast var 5 stiga frost á Haugi í Miðfirði, en mildast 4 stiga hiti á Neskaupstað og Dalatanga.///við sem höfum lifað tímana tvenna munum eftir páskahreti sama hvort Páskar eru snemma eða seinna,svo þetta er ekkert óeðlilegt,en samt viljum við ekki hafa  þetta um sumar,en ekki spurð!!! það verður útsynningur og Austan strekkingur fram i vikuna eigum við svo ekki að fara að sjá sumarið koma vonandi "!!! eða þessa óskum við öll að ég helt,svo bara gleðilega Páska öll !!!!Halli gamli


mbl.is Jólasnjór í apríllok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Möguleikarnir nánast úr sögunni/við verðum bara að kunna að taka því,og gera betur næst!!!!

//Wenger: Möguleikarnir nánast úr sögunni
Íþróttir | mbl.is | 24.4.2011 | 17:58

Arsene Wenger.Arsene Wenger viðurkennir að möguleikar Arsenal á hampa enska meistaratitlinum í næsta mánuði séu svo til úr sögunni eftir tap liðsins gegn Bolton á Reebok í dag.

,,Það er erfitt að tapa leik sem þessum. Við gáfum allt í leikinn sem við áttum og hugarfar leikmanna minna var frábært. Leikmenn börðust hart og þeir eru að vonum mjög vonsviknir,“ sagði Wenger eftir leikinn en þegar fjórar umferðir eru eftir er Arsenal í þriðja sætinu, níu stigum á eftir Manchester United.

,,Mér finnst að höfum getað níu stig í vikunni en uppskeran er aðeins tvö stig,“ sagði Wenger sem segist ekki að ætla gera miklar breytingar á leikmannahópi liðsins fyrir næstu leiktíð.//////þetta er sárt en ,það verður baar að taka því það vantar í liðið eitthvað!!! sem kannski kemur næstu vertíð,En Wenger er ekki sáttur og það bara von þetta 6 árið engin titill,kannski fer að hittna undi kalli en það ekki víst,en við sjáum hvort við vinnum ekki næstu leiki og þar á meðal M.U.N. en það er einnig gott að geta tekið þessu bara létt og ger betur næst/Halli gamli


mbl.is Wenger: Möguleikarnir nánast úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

600 þúsund kr. leigubílaferð/þessir eru góðir !!!en yfirleitt gera bandaríkjamenn þetta ekki!!!

600 þúsund kr. leigubílaferð
Veröld/Fólk | mbl.is | 24.4.2011 | 10:56

Ætli einhver hafi tekið leigubíl þvert yfir Ísland?Leigubílstjórinn Mohammad Alam er nýkominn heim úr lengstu og dýrustu ökuferð sem hann hefur farið í. Hann var beðinn um að keyra með tvo vini þvert yfir Bandaríkin, frá New York til Los Angeles, og fyrir það fékk hann tæpar 600 þúsund kr.

John Belitsky fjárfestir og vinur hans Dan Wuebben ákváðu að gera eitthvað „töfrum líkast“. Þeir komu sér saman um að taka leigubíl til Los Angeles og fengu Mohammad Alam til þess eftir að hafa rekist á hann á LaGuardia flugvelli í New York.

Vegalengdin var tæpir 4.000 km og tók ferðin sex daga með stuttu stoppi í Las Vegas þar sem vinirnir unnu tæplega 230 þúsund kr.

Talið er að ferðalagið hefði kostað tæpar 2 milljónir hefði gjaldmælirinn verið í gangi. Ekki er vitað hvernig félagarnir Belitsky og Wuebben hyggjast komast aftur til New York./////þetta er frábært og öðru vísi ekki spurning en þetta minnir mann á að við feðgar og mín frú fórum eitt áriða að mig minnir 1988 stóran hring um Bandaríkin frá Orlando og vestur og upp og svo austur stórann hring sem =18200 km á 21 degi og komum við og gistum i flestum borgum og bæjum á okkar leið,þetta vara á bilaleigubil og voru menn undrandi þegar við skiluðum honum á leiguna á akstrinum,en þetta kostaði ekki svona mikið um það bil að mig minnir 40 þus en við hjón höfum ekið mikið þarna i USA mjög/Halli gamli


mbl.is 600 þúsund kr. leigubílaferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðum að læra að treysta/Biskupi vorum segist vel að vanda og var ómirkur i máli !!!

Verðum að læra að treysta
Innlent | mbl.is | 24.4.2011 | 12:08

Dómkirkjan í Reykjavík. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í páskaprédikun í Dómkirkjunni í morgun, að ári eftir útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis setti neikvæðnin, sakbendingarnar og dómharkan mark sitt á þjóðarsálina. Íslendingar verði að læra að treysta í stað þess að traðka niður.

„Það er vissulega ekki að ástæðulausu. En það er auðvelt að missa móðinn. auðvelt að láta neikvæðnina taka yfir í sál sinni.  Það er svo auðvelt að finna sökudólga og benda á aðra og firra sig ábyrgð og flýja í skjól kæruleysis og kaldhæðni," sagði Karl.

Hann sagði að við þörfnuðumst trúar á lífið og möguleika okkar til að leysa aðsteðjandi vanda, þörfnuðumst trúar á mátt umhyggju kærleikans til að reisa og viðhalda samfélagi sem stuðlar að mannlegri reisn.

„Og við þurfum að læra af mistökum og brotum okkar. Við erum öll brothættar manneskjur, breiskar og varnarlausar manneskjur,"  sagði Karl.

„Við megum ekki við því öllu lengur að sitja föst í vantrausti og tortryggni. Við verðum að geta kallað fram það besta í hvert öðru. Til þes  þyrftum við að leggja okkur fram í agaðri samræðu og sanngirni, virðingu við náungann.  Reyndar er agaleysið og virðingarleysið okkar mesta böl og ein helsta orsök ófara okkar," sagði Karl.

Hann sagði að reiðin hefði einnig tært og brotið niður traust til þeirra grunnstoða og stofnana sem heilbrigt samfélag byggir á. „Börnin okkar líða undir því, það segja kennarar, sem kikna undan álaginu og því hve börnin eru tætt," sagði Karl.

Hann sagi að sagan kenndi að þjóðin muni rísa upp „en til þess þurfum við að læra að treysta í stað þess að traðka niður það góða sem í okkur býr og umhverfis okkur er."/////Hvílíkur snillingur er  er Biskupinn okkar sem ræðumaður það er ekki aðrir betri að mínu mati!!! en skulu Alþingismenn og stjórn og stjórnarandstaðan hafa á þetta hlustað og yfirleitt þeir sem stjórna öll og eru yfirleitt i stjórnun og að koma undir okkur fótum eftir þessa kreppu sem gekk yfir heiminn að hluta ,og varð okkur slæm vegna græðgi manna sem ætluð sér ekki af og reyndar mörgum okkar sem fylgdu því eftir meira og mynna,en von bara að sem flestir hafi hlustað,ekki síst Steingrímur og Jóhanna sem eiga að stjórna mestu, en gera ekki það sem er okkur fyrir bestu als ekki,það ber að gera eins og Biskup sagði hér á undan það er mottóið ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Verðum að læra að treysta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóttin róleg um allt land/Gott mál !!Gleðilega páska bloggvinir og allir fjær og nær !!!!!

Nóttin róleg um allt land
Innlent | mbl.is | 24.4.2011 | 8:28

Rok og rigning eru nú á sunnan- og vestanverðu landinu. Nóttin var því sem næst tíðindalaus, að sögn lögreglumanna sem rætt hefur verið við víða um land. Eflaust hefur veðrið haft eitthvað með það að gera en rok og rigning var á suðvestur- og vesturhluta landsins.

Rúmlega 3.000 manns gestir eru staddir á Ísafirði í tengslum við hátíðina Aldrei fór ég suður. „Hátíðin hefur farið vel fram og allt í tengslum við hana gengið vel,“ sagði lögreglumaður sem rætt var við. „Einstaka áfengi hefur verið tekið af einstaka ungmenni, en það er mjög sjaldgæft. Það hafa heldur ekki verið neinar stympingar eða leiðindi.“

Á Akureyri var einn handtekinn í nótt grunaður um ölvunarakstur. „Það hefur allt farið vel fram hér og gengið vel fyrir sig, enda búið að vera frábært veður. Það er búið að vera frábært veður uppi í fjalli og er enn. Sól og fínt veður,“ sagði lögreglumaður á Akureyri.///þetta gott og vonandi allir heilir eftir þessa daga og svo auðvitað biður maður öllum  bloggvinum fjær og nær Gleðilegra Páska með von um að allir njóti þeirra,og taki boðsakapinn hátíðlegan ,þegar Jesús sannaði upprisuna og það væri lif eftir dauðan,maður komst ekki i Kirkjuna mína kl 8,00 í morgun hlustaði bara á messu frá Dómkirkjuni  Biskupinn okkar séra Karl Sigurbjörnsson predikaði og var góður að vanda,sámar fallegir að hætti dagsins,en þessi hátíð er sú mesta í kristni ekki spurning um það,svo bara einnig gleðilegt sumar sem kannski fer að sína sig,ekki i dag .við það er S.A. 17 m/s lágskíað + 4'C og slydda,en við vonum að það komi sumarveður sem fyrst/Halli gamli


mbl.is Nóttin róleg um allt land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1047884

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband