Lítið gerst eftir ríkisstjórnarfund í Reykjanesbæ/svona er þessi ríkisstjórn vor,því miður :mikið sagt en ekkert við staðið!!!

Lítið gerst eftir ríkisstjórnarfund í Reykjanesbæ
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 17:52

Ríkisstjórnin fundaði í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í nóvember 2010. Atvinnulausum fjölgað vel á annað hundrað og atvinnuleysisprósentan hækkað úr 12,7% í 14,5% frá því ríkisstjórnin hélt fund sinn á Suðurnesjum þann 9. nóvember sl. og boðaði aðgerðir í atvinnumálum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag.

Samtals hafa 140 manns misst vinnuna frá því fundurinn var haldinn, 20 atvinnulausir hafa flutt í burtu frá Suðurnesjum og aðrir 20 hafa fallið af atvinnuleysisskrá og eru komnir á framfærslu Reykjanesbæjar.

Í Páskablaði Víkurfréttaer rætt við Árna Sigfússon bæjarstjóra Reykjanesbæjar og segir hann að ýmis verkefni þokist áfram s.s. um kísilver, gagnaver og einkasjúkrahús en enn ríki of mikil óvissa. Of margt strandi á ríkisstjórnini.  „Það er líka rétt að minna á það að ekkert af þessum stóru verkefnum var fjallað um í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gefin var út í Víkingaheimum nú fyrir tæplega hálfu ári síðan," segir Árni í viðtali Víkurfrétta. „Svo má auðvitað velta fyrir sér hver afraksturinn er af þessum yfirlýsingum. Það voru ýmis falleg orð um Landhelgisgæslu og það voru orð um að rétta af fjárhag skólanna en þar hefur ekkert gerst, tíminn er skólanna, haustið er rétt framundan. Landhelgisgæslan átti að skila niðurstöðum 1. febrúar en þær hafa ekki enn litið dagsins ljós.“//////svona er þetta bera orð hafa enga ábyrgð enga að mans mati og Suðurnesjamanna og sennileg eru fáir sem trúa nokkru sem hún segir þessi ríkisstjórn vor,maður segir bara því miður!!! en það er talað og talað um að ger þetta og hitt en svo ekki meira ,það er svo margt í farvatninu segja þau öll,sértanklega Jóhanna og Steingrímur,en það ber bara að skipta þessari stjórn út og kjósa um að sem fólkið vill eða er það ekki lýðræðið???/Halli gamli


Búist við hviðum strax í kvöld/Viðvörun frá veðurstofu um Ofsaveður slyddu og snjókomu á heiðum!!!!!!

Búist við hviðum strax í kvöld
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 18:14

Búist er við hviðum undir Hafnarfjalli í kvöld og nótt. Lægð með óveðri er nú í uppsiglingu og einkum verður veður slæmt á morgun um landið vestanvert. Vegagerðin segir, að í kvöld frá um kl. 21 til 2 í nótt sé reiknað með hviðum, um 30-40 metrum á sekúndu undir Hafnarfjalli og eins og utanverðu Kjalarnesi.

Í fyrramálið snýst í suðvestanstorm og um leið kólnar. Slydda og krapi verða í byggð en hríðarveður á fjallvegum, skyggni lítið og akstursskilyrði afleit.   Það verður því mjög slæmt ferðaveður á vesturhelmingi landsins á morgun og er fólki er bent á að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.

Að sögn Veðurstofunnar snýst í suðvestanstorm, 15-23 metra á sekúndu, í fyrramálið með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, fyrst suðvestantyl. Slydda og krapi verða í byggð en hríðarveður á fjallvegum, skyggni lítið og akstursskilyrði afleit.  

Undir kvöld fer að draga úr vindi sunnantipl./// við verum að fara að taka mark á veður viðvörunum ekki spurning um það ,spurnigin  er hvað fólk vill að fara eftir þessu en það er oft sagt úlfur úlfur ,og ekkert að marka en það er svo að í flestu ef ekki öllum núna síðara tíma  hefur þetta gengið eftir,en ef ekki er það eithvað sem ekki sest fyrir ,en i öllum tilfellum verum við að taka mark!!!!,ekki hundsa þetta!!!!/Halli gamli   


mbl.is Búist við hviðum strax í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárfesting í pípunum/þetta góður Páskaboðskapur,eða hitt þá heldur,í hvaða heim er kall!!!

Fjárfesting í pípunum
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 10:06

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. „Það eru auðvitað fjölmörg fjárfestingarverkefni hér í skoðun og í pípunum. Við gerum okkur ágætar vonir um að einhver þeirra komist áfram,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um tækifærin framundan. Ráðherrann horfir sérstaklega til ferðaþjónustunnar.
Allt myndi þetta leggjast með okkur,“ segir Steingrímur og á við umrædd verkefni. Steingrímur horfir til ferðasumarsins 2011.

„Við ættum til dæmis ekki að vanmeta horfurnar í ferðaþjónustunni og hvernig árið byrjar og horfurnar eru fyrir sumarið. Það eru yfirgnæfandi líkur á að þar sé verulegur búhnykkur að bætast inn í hagkerfið. Aprílmánuður verður miklu betri en apríl í fyrra sem var mjög slakur. Apríl og maí voru mjög slakir mánuðir út af gosinu í Eyjafjallajökli.“

- Mun aukið tekjustreymi í ríkissjóð vegna ferðamanna vega þungt í ríkisfjármálunum?

„Ég held að það sé enginn vafi á því að við erum að sjá fram á miklu betra ár en í fyrra. Ég hef heyrt því fleygt að vöxturinn í ferðaþjónustunni gæti skilað 30 milljörðum í auknar gjaldeyristekjur. Það munar um minna.“

Leiðin liggur upp á við

- Þú tókst sem fjármálaráðherra við erfiðu búi. Er erfiðasti hjallinn að baki?

„Já, það er enginn vafi á því að þetta er farið að horfa betur. Við erum að byrja að hafa okkur út úr þessu. Það er hins vegar alltaf fyrir hendi sú spurning hversu kraftmikill þessi bati verður,“ segir Steingrímur og víkur að jákvæðri umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um efnahagsáætlunina fyrir Ísland.

„Satt að segja verður maður hálf kindarlegur á köflum þegar maður fær úr þessum áttum jákvæð ummæli. Það er auðvitað þannig að við erum búin að ná árangri á ýmsum sviðum og kannski hefur markverðasti árangurinn náðst í glímunni við ríkisfjármálin. Hagkerfið er að byrja að rétta úr kútnum en auðvitað hefði maður viljað sjá kraftmeiri bata. En bati er það engu að síður. Þetta er byrjað að líta betur út.“///////hvap er Steingrímur að boða að ferðaþjonustan Sé það eins sem við getum á stólað sem sagt ekkert anna' i spilunum ,er þetta ekki að  það sé  sem  okkur grunaði það á ekkert annað að gera,ekki klára virkjanir og þessu tvö Álver sem sagt að far áfram niðurávið soppa bara þarna eins og við óttumst mest,svo er Jóhanna buin að fa´hann og nokkra i V.G, til að samþykka ESB og það mun redda öllu,hlýtur ekki fókið að fara að átta sig a´þessu að þetta gengur ekki upp/Halli gamli


mbl.is Fjárfesting í pípunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gnarr vekur mikla athygli/en er að ekki bara grínið og vitleysan sem það gerir,ekkert annað,kannski ítir þetta undir,að við lostnum við hann!!!!

Gnarr vekur mikla athygli
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 9:41

Jón Gnarr, borgarstjóri, og Heiða Kristín Helgadóttir,...„Samt sem áður, Gnarr bauð sig fram til borgarstjóra, og lét allskyns hluti falla sem í öðru landi eða á öðrum tímum hefðu kallað yfir hann stimpilinn vitfirringur,“ segir í bloggi NBC um kvikmyndina Gnarr. Jón útilokar ekki að bjóða sig fram annað kjörtímabil í samtali við Wall Street Journal.

Talsvert er fjallað um myndina vestanhafs og kemst Scott Ross, gagnrýnandi NBC, svo að orði að athyglisvert sé að fylgjast með þeirri umbreytingu á Jóni Gnarr í myndinni er frambjóðandinn byrjar að átta sig á því að hann eigi raunverulegan möguleika á að verða borgarstjóri.

Grein Rosser á jákvæðum nótum en þó er fundið að því að náið samband Jóns Gnarr og Gauks Úlfarssonar kvikmyndagerðarmanns dragi úr hlutlægni myndarinnar sem heimildar um frambjóðandann Jón Gnarr. Tekur hann raunar svo til orða að myndina skorti alla hlutlægni. Segir Ross jafnframt að erfitt sé að henda reiður á margar persónur myndarinnar.

Jón Gnarr er einnig til umfjöllunar á vef kanadíska dagblaðsins Calgary Herald en þar er haft eftir borgarstjóra Reykjavíkur að skrautlegasta loforð hans hafi verið að byggja Júragarðinn í Reykjavík, með velferð risaeðlanna í kvikmyndinni frá árinu 1993 í huga.

Ljótur arkitektúr í sósíalísku ríki

 

  • Jón Gnarr, borgarstjóri.

    Jón Gnarr, borgarstjóri. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

 

Mark Asch, gagnrýnandi hjá The L Magazine, fjallar einnig ítarlega um myndina á vef tímaritsins.

Segir gagnrýnandinnJón Gnarr hafa úthúðað ljótum nútímaarkitektúr og Ikea-húsgögnum er talið berst að nýlegri sögu þessa sósíalíska dvergríkis sem hafi átt háðuglega innkomu á alþjóðamarkaðinn.

En Asch á þar við útrásina og fjörbrot hennar haustið 2008.

Þá er rætt við Jón á vef Wall Street Journal.

Er þar haft eftir borgarstjóra að hann geti hugsað sér að bjóða sig fram aftur árið 2014 ef borgarbúar vilja að hann stýri borginni áfrafram.//////////það er ekkert sem þessi maður gerir sem er í lagi nema að' leika segi ég bara ,það er hörmung að við skulum ekki bara á Íslandi þurfa að liða þetta heldur fer hann erlendis til að verða okkur og sér til skammar!!! því miður verur bara að segja þetta ,því að er okkar mottó að vera sæmileg ekki ruglaður þagar við höfum viðskipti við aðrar þjóðir og fólk almennt,en hann viðist klúðra öllu kallin því miður er ekki annað hælgt að segja /Halli gamli


mbl.is Gnarr vekur mikla athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppfylling fyrir Samfylkinguna/þatta goð samliking ,en það er fnykur að þvi sama í Ríkisstórn???

Uppfylling fyrir Samfylkinguna
Innlent | mbl.is | 23.4.2011 | 8:50

Sóley og Hanna Birna Kristjánsdóttir í sjónvarpssal eftir... Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG og fráfarandi varaforseti borgarstjórnar, segir Besta flokkinn í raun vera „uppfyllingarefni fyrir Samfylkinguna“. Besti flokkurinn hafi ekki reynst það nýja forystuafl sem hann gaf sig út fyrir að vera.

En Sóley lét af embættinu fyrir páska um leið og Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, hætti sem forseti borgarstjórnar.

Sóley skýrir ákvörðun sína svo:

„Þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur meirihlutinn ekki sýnt í verki nokkurn einasta vilja til þess að hlusta á sjónarmið annarra en eru um borð í þessum eina meirihluta. Það sem mér þykir verst er að borgarbúar kusu ný og breytt vinnubrögð síðasta vor. Borgarbúar kusu sex nýja borgarfulltrúa frá flokki sem gaf sig út fyrir að ferskur, hugrakkur, skapandi og kjarkmikill,“ segir Sóley og á við Besta flokkinn. 

„Þessi flokkur er hins vegar ekkert annað en uppfyllingarefni fyrir Samfylkinguna, staðlaðan og gamaldags stjórnmálaflokk. Það sem í raun og veru gerðist er að stór hluti borgarbúa kaus sig yfir sig Samfylkinguna án þess að ætla sér það.

Meirihlutinn hefur hvorki áhuga á að ræða við borgarfulltrúa minnihlutans né aðra borgarbúa um þau verkefni sem hann er að fást við hverju sinni,“ segir Sóley og bendir á að VG hafi ekki fengið að koma að breytingum í skólamálum eins og óskað hafi verið eftir.

Vinstri grænir útilokaðir

„Eitt dæmi um það og hluti af þeirri nýju pólitísk sem átti að fara að ástunda var að allir flokkar ættu fulltrúa í þeim starfshópum sem tækju til starfa. En þegar starfshópur um þessi mál var settur á laggirnar áttu Vinstri grænir ekki fulltrúa þar heldur var þar aðeins fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það hefði flækt málin ef við hefðum tekið þátt enda höfum við verið mun tortryggnari á þessar aðgerðir en aðrir flokkar.

Ég veit ekki hvað olli því að þau kusu að hafa okkur ekki með en líklegt er að það hefði krafist meiri málamiðlana og lengri tíma. Samráðsstjórnmál gera það. Þannig að það hefur aldrei verið hlustað á sjónarmið Vinstri grænna í þessari vinnu,“ segir Sóley Tómasdóttir.//////þetta hljóta allir að sjá sem vilja það en svona er það og ekkert annað,það er einnig fnykur að þessu i henni Ríkisstjórn,og það dyldist engum heldur hver ræður þar Jóhanna og limið við vinstri er Steingrími dýrt/en í Borgarstjórn er það svo auðséð að þetta er bara  uppfylling fyrir samfylgingumi og ekkert annað,það er ekki fallegt til afspurnar enda samfylking að að fara niður í könnunum,og ef heldur sem horfi þurrast hún út eins og alveg eins og alþýðuflokkurin gerði á sinum  tíma,þá urðum við sjálfstæðismenn að bjarga honum til að fá  mann kjörinn,en svo fer fyrir ofstækinu ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Uppfylling fyrir Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttaþjónusta á mbl.is/við lesum hann sem höfum tölvur,en sakna samt Mogga !!!!

Fréttaþjónusta á mbl.is
Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2011 | 5:30

Forsíða mbl.isMorgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 26. apríl. Fréttaþjónusta verður um páskahelgina á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is.
Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is.

Þjónustuver áskrifta og auglýsinga er opið í dag, laugardag, frá 8-13 en lokað er á páskadag og annan dag páska. Sími þjónustuvers er 569-1122 og netföngin eru askrift@mbl.is og augl@mbl.is.

Blaðberaþjónusta er opin í dag, laugardag, frá 8-13. Lokað er á páskadag og annan dag páska.

Símanúmer Morgunblaðsins er 569-1100. ////Persónulega er maður sáttu við að lesa bara fréttamiðla á netinu enda með tölvu en .að eru ekki allir!!! ,samt sakna ég Mogga ekki spurnin,fæ reyndar fréttablaðið,en það kemur ekki heldur út um hátíðar,en les Mogga samt mikið meira,skil ekkert út að kvað fólkið er á móti honum ber við ritsjóranum Davíð Oddsyni það er skrítið ef ritstórar mega ekki hafa skoðanir,að er allt birt fyrir alla i Mogga ,þetta hatur á okkar ágæta manni Davíð Oddsyni er öfgafullt og er okkur ekki samboðið,hvernig er með frettablaðið er ekki ritstjórinn þar ESB maður og hyglar því ómælt,samt dynnur þetta daglega sem mest lestna blaðið??/Halli gamli


Fréttaþjónusta á mbl.is/við lesum hann sem höfum tölvur,en sakna samt Mogga !!!!

Fréttaþjónusta á mbl.is
Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2011 | 5:30

Forsíða mbl.isMorgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 26. apríl. Fréttaþjónusta verður um páskahelgina á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is.
Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is.

Þjónustuver áskrifta og auglýsinga er opið í dag, laugardag, frá 8-13 en lokað er á páskadag og annan dag páska. Sími þjónustuvers er 569-1122 og netföngin eru askrift@mbl.is og augl@mbl.is.

Blaðberaþjónusta er opin í dag, laugardag, frá 8-13. Lokað er á páskadag og annan dag páska.

Símanúmer Morgunblaðsins er 569-1100. ////Persónulega er maður sáttu við að lesa bara fréttamiðla á netinu enda með tölvu en .að eru ekki allir!!! ,samt sakna ég Mogga ekki spurnin,fæ reyndar fréttablaðið,en það kemur ekki heldur út um hátíðar,en les Mogga samt mikið meira,skil ekkert út að kvað fólkið er á móti honum ber við ritsjóranum Davíð Oddsyni það er skrítið ef ritstórar mega ekki hafa skoðanir,að er allt birt fyrir alla i Mogga ,þetta hatur á okkar ágæta manni Davíð Oddsyni er öfgafullt og er okkur ekki samboðið,hvernig er með frettablaðið er ekki ritstjórinn þar ESB maður og hyglar því ómælt,samt dynnur þetta daglega sem mest lestna blaðið??/Halli gamli


mbl.is Fréttaþjónusta á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþyngjandi eldsneytisverð//það er talað og ekkert gert i þessu,bara snakk,en ríkisstjórn vill ekkert gera ,fumvarpið ekki flutt enn???

Íþyngjandi eldsneytisverð
Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2011 | 5:30

Sauðárkrókur. Hækkandi eldsneytisverð hefur íþyngjandi áhrif á atvinnustarfsemi og lífskjör landsbyggðarbúa.

Samþykkti stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bókun þess efnis á fundi sínum fyrr í mánuðinum og var fjármálaráðherra og þingmönnum kjördæmisins sent afrit af henni.

Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að fyrirtæki á svæðinu séu jafnvel að hugsa sér til hreyfings af þeim sökum.

„Við á landsbyggðinni búum við það að þurfa að sækja okkur þjónustu um langan veg. Þetta er orðið svakalega íþyngjandi. Maður hefur heyrt að fyrirtæki séu að hugsa sinn gang, hvort þau flytji sig út af þessu,“ segir Jón Óskar.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að vel komi til greina að sambandið taki málið upp. Ályktun samtakanna á Norðvesturlandi verði væntanlega rædd á fundi sambandsins.
////við skulum átta´okkar á  að þetta skiptir ekki bara landsbyggðina ,okkur öll en sennilega mest samt þessa sem þurfa að keyra langar vegalendir,þetta er orðið dýrt olíur og bensín,að er orðið svo að dísilinn er orðin og hefur verið dýrari en bensín munar4-5 krónum literin mengar samt meira mikið talað um það á tímabili en ekki núna ,hvar eru umkerfissinnarnir þá,togkraftur meiri og billin dýrari mikið!!! en þessi 242  krónur sem kostar tekur ríkið um helming sko við lækkað þetta tímabuldið eða meðan annað eldneyti metan metanól og fl. verur til og rafmagnsbilar koma !!!! En þetta er tímabært ríkið myndi ekkert tapa það yrði bara ekið meira,ekki spurnig"!!"/Halli gamli


mbl.is Íþyngjandi eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskavegurinn að Dettifossi/þetta afbrags viðbót á ferðaþjónustu okkar mikið fyrr,eða allt árið bara ef fært er!!!

Óskavegurinn að Dettifossi
Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2011 | 5:30

Norðmennirnir Agnar, Kristina og Ida undir regnboga við Dettifoss.Nýr vegur frá Austurlandsvegi vestan Jökulsár á Fjöllum niður að Dettifossi er 25 km langur og var opnaður sl. haust með bundnu slitlagi

Þessi vegur hefur lengi verið á óskalista ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og er nú orðinn að veruleika þó smávegis sé ógert við frágang næst bílastæðinu við fossinn.

Í allan vetur hafa nú venjulegir bílar í fyrsta sinn átt greiða leið að fossinum þegar veður hamlar ekki umferð.

Í Morgunblaðinu í dag segir að þetta séu mikil umskipti frá því sem áður var, en gamla vegslóðin að fossinum var aldrei fær nema frá júní og fram í september og fór þó illa með mörg ökutæki. /////////////þetta geisilegur munur að hafa þennan veg allt ári ef fært er,og mikið bót fyrir ferðaþjónustna og  okkur íslendinga einnig,þetta er einn fallegasti fossinn okkar og leiðin bara falleg,en svo er það sem við verum að gera ef við erum að fjölga ferðamönnum og sjálf einnig að ferðast innanlands ef við bara getum Bensínið er orði svo dýrt,og við viljum auðvitað vera á eigin bilum,en þetta mikil bót/Halli gamli


mbl.is Óskavegurinn að Dettifossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhald viðræðna á þriðjudag/það er um lítið að tala ef Ríkisstjórn vill ekkert gera !!!

Framhald viðræðna á þriðjudag
Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2011 | 5:30

Samningamenn ræða málin í Karphúsinu. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, býst við að viðræður um kjarasamninga verði teknar upp að nýju strax á þriðjudag eftir páska.

Segir hann lítið hafa gerst í viðræðum undanfarna daga fyrir utan fund með viðsemjendum sambandsins á skírdag.

„Ég býst við að strax eftir páska muni menn þá einhenda sér í það að tryggja launahækkanir þessa árs,“ segir Gylfi í Morgunblaðinu í dag.///það et  til lítils að taka saman ef engin grundvöllur er til þessa,Ríkisstjórn veður a vera með í þessum pakka ekki spurning,hún kemst ekki hjá því,D.T með sjáfarúrveg verur hún að semja.´það íðir ekkert að skilja hann eftir í uppnámi!! svo er sjálfsagt eitthvað ekki klárt i sambandi við framkvæmdir og atvinnu einnig skatt til atvinnu vega og siðar persónuafslattinn,sem á að hækka mikið og ýmsa felagamlapakka,svo og kauphækunina,þetta er ekki klárt til 3 ára/það er svo mikið sem á stendur,að það er af nógu af af taka,vonandi að menn hafi  náð að hugsa um þetta um þessa 5 daga til þriðjudags,og þetta fari að ganga/það þíðir ekki að að benda bara hver á annan/Halli gamli


mbl.is Framhald viðræðna á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband