22.4.2011 | 21:49
Nóg um að vera en tíðindalaust/gott að fólkið skemmti sér ,er það ekki númer eitt !!!
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 19:20

Ekki liggur fyrir hve margir eru nú staddir í bænum en að sögn lögreglumanns á vakt er reiknað með að fjöldi gesta nemi um það bil íbúafjölda Ísafjarðar. Má því ætla að á áttunda þúsund séu nú á Ísafirði.
Víðast hvar annars staðar á landinu hefur dagurinn verið tíðindalaus hjá lögreglu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki afskipti af árlegu páskabingó Vantrúar á Austurvelli en opinerar skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram eru bannaðar á föstudaginn langa. ////////mikið' er þetta gott að fólkið kann að skemmta sér og það vel án átaka og leiðinda,það er sko númer eitt,en þessi hátíð er vist mögnuð og gaman segir fólk sem þarna hefur verið, dálitið af mínu fólki er þarna og segir þetta gaman og heilbrigt/Halli gamli
![]() |
Nóg um að vera en tíðindalaust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 21:38
Krefjast endurskoðunar Schengen/þarna eigum við Íslendingar að segja okkur úr þessu bandalagi!!!!
Krefjast endurskoðunar Schengen
Erlent | AFP | 22.4.2011 | 20:52Frakkar kölluðu í dag eftir endurskoðun Schengen-sáttmálans, en hans vegna er hægt að ferðast innan Evrópu án vegabréfa. Þeir sögðu kerfið gallað því það hindri það að hægt sé að stemma stigu við straumi flóttamanna frá Túnis og Líbíu í gegnum Ítalíu
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) benti á sama tíma á það í Brussel að hægt væri að koma á landamæraeftirliti mjög tímabundið og eðlilega rökstutt.
Samkvæmt Schengen sáttmálanum er gerð sú krafa að einungis mikil ógn við öryggi almennings eða innra öryggi geti í undantekningartilfellum réttlætt að landamæraeftirlit verði aftur tekið upp og þá einungis í 30 daga. Verði ógnin viðvarandi er hægt að framlengja tímann./////þarna er kjörið dæmi þessa að við eigum að segja okkur frá þessu Schengen sáttmála ,ekki spurning við erum eyland eins og Bretland og höfum ekkert þarna að gera bara plága að vera í þessu skil ekkert af hverju við gengjum þarna inn,það er B.B. sem það sagði gott en alveg sama hverjir það gerðu jafn vitlaust fyrir því ,burt þarna ekkert annað/Halli gamli
![]() |
Krefjast endurskoðunar Schengen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 21:01

Mjög erfitt færi er nú á hálendinu og mjög mikill krapi. Slysavarnafélagið Landsbjörg beinir því til ferðalanga að vera ekki á ferð á að óþörfu enda ekkert ferðafæri.////það er svo að vera a´Jeppa og stórum bilum segir ekki allt,það er færið og veðrið sem þarna ræður,þessu var spáð á hálendi og fjöllum og heiðum,og það ekki nýtt ,en menn vilja bara reyna en það er ekki alltaf rétt að ögra náttúrunni,en samt vonum að allt fari vel/Halli gamli
![]() |
Jeppar í vandræðum á fjöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | mbl.is | 22.4.2011 | 20:38

Leeds er því enn ósigrað á heimavelli en liðið er eftir leikinn með 66 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Nottingham Forest er með jafnmörg í sjötta sæti. Reading er í fjórða sæti með 73 stig og heldur enn í vonina um að ná öðru sætinu en því er Norwich með 77 stig og Cardiff hefur 75. Heiðar Helguson og félagar hans í QPR eru í toppsætinu með 83 stig en liðið mætir Cardiff á morgun.
Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar Björn Gunnarsson voru í leikmannahópi Reading í kvöld. //Æi við vorum að vona ,og vonum en Leeds aðdáendur, að þeir haldi allavega 6 sæti svo þeir komist i umspil,það getur en gerst og vonandi gerist,þeir hafa verið dálitið seinheppnir og þurfa að taka sig á ef þetta á að gerast/Halli gamli
![]() |
Leeds stöðvaði sigurgöngu Reading |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 17:05
Ákvörðun Moody's ekki óvænt/Nei samt eru sumir að þakka sér að, Árni Páll og Steingrímur???
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 15:24

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokks, segir að ákvörðun matsfyrirtækisins Moody's um að lækka ekki lánshæfismat íslenska ríkisins komi ekki á óvart. Fyrirtækið hafði áður sagt að hafnaði þjóðin Icesave-samkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu hefði það að líkindum neikvæð áhrif á lánshæfismatið.
Þetta kemur ekkert sérstaklega á óvart. [...] Það var aldrei okkar málflutningur að eitthvað óskaplegt myndi gerast ef Icesave yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir Ólöf og kveðst ekki hafa óttast að lánshæfismatið yrði lækkað þrátt fyrir að Moody's hafi gefið til kynna að svo gæti farið yrði Icesave-samkomulagið fellt.Að mati fyrirtækisins eru horfurnar enn neikvæðar en Ólöf bendir á að nú líði að því að því að greitt verði úr þrotabúi Landsbankans upp í Icesave-kröfurnar. Það er ekki eins og ekkert muni gerast, það sem mun gerast er að það greiðist úr þrotabúinu upp í þetta.
Ólöf segir það góð tíðindi að lánshæfismatið hafi ekki verið lækkað en til þess að hækka matið þurfi að ná tökum á efnahagslífinu. Þegar það gerist mun lánshæfismat Íslands hækka, það verður ekki út af neinu öðru en okkur sjálfum./////það er svo að þessir menn sem út fóru Árni Páll og Steingrímur J. eru að þakka sér þetta!!! en það er ekkert til i svona áróðri!! þetta er svona eins og Ólöf segir , að þetta gerist af því bara,en ekki af þeim sem vildu bara segja já,það er ekki malið ,heldur til að komast upp i þessu neikvæða flokki er að koma af stað framkvæmdum og atvinnu ekkert annað getur bjarga en þar stendur hnífurin i kúnni,Steingrímur vill bara stöðnun og ekkert annað ekkert má gera til að koma okkur i efni aftur ekki hreifa við neinu og þar er vandinn!!!/Halli gamli
![]() |
Ákvörðun Moody's ekki óvænt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 16:49
Hátíðarfundur AA-samtakanna/þetta frábær dagur,:dagur til að halda uppá afmæli þessa samtaka,sem hafa bjagað lífi óteljandi !!!!
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 16:24

AA-samtökin vinna starf sitt í kyrrþey. AA-maður sem rætt var við sagði að líklega sé þetta stærsta samkoma sem haldin er hér á landi þar sem jafnmargir koma saman undir þeim formerkjum að vera ekki í vímuefnum.
Miðað er við að AA-samtökin hafi verið stofnuð hér á landi á föstudaginn langa árið 1954, fyrir 57 árum. Í fyrra komu rúmlega tvö þúsund manns á hátíðarfundinn.
Á árum áður var venja að halda hátíðarfundina í stóra sal Háskólabíós en um áratugur er síðan salurinn þar varð of lítill til að rúma fundargesti.
Á Akureyri verður AA-fundur í Brekkuskóla og hefst hann kl. 20:00 í kvöld. Húsið opnar klukkustund fyrr. Allir vinir og velunnarar AA samtakanna hjartanlega velkomnir á báða fundina. /////þetta vel til fundin dagur fyrir þær þjáningar sem þessi sjúkdómur veldur ,og ber að dásama þessu stofnendur þessara samtaka,þetta hefur bjargað mörgum mannslífum ekki spurning sennilega óteljandi!! en þessi samtök hafa reynst mörgum sem eru komnir á retta braut stuðning sem ekki er hlægt að mæla ,bara standa við og taka einn dag i einu,og þarna er trúin einnig mikils virði ekki spurning til hamingju með þetta allir sem við þetta eig að stríða við hin einnig,ekki siður!!!/Halli gamli
![]() |
Hátíðarfundur AA-samtakanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 10:44

Ég er búinn að athuga bæði Holtsá og Svaðdælisá og það er allt í góðu lagi þar, segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum en mikilli rigningu var spáð á svæðinu í nótt. Það virðist hafa rignt hressilega í morgun í tvo, þrjá tíma en nú er hætt að rigna og ekki að sjá að það hafi orðið aurflóð neinstaðar, segir hann.
Ólafur segir að ekki virðist sem mikill sand- né öskuburður sé í ánum og lækir inn í heiðum séu tærir og hvítir, sem bendi til þess að ekki sé mikið laust efni á ferðinni.
Síðastliðinn föstudag var opnuð gestastofa á Þorvaldseyri þar sem er sýning á ýmsu sem tengist eldgosinu í Eyjafjallajökli, þar á meðal ljósmyndir og 20 mínútna löng kvikmynd. Ólafur segir aðsóknina gefa góð fyrirheit fyrir sumarið.
Það hafa komið upp í 150 manns á dag, segir hann. Fólk er mjög ánægt með að fá að upplifa þetta í kvikmynd og skoða sýninguna og geta svo farið út í umhverfið og séð hvað allt er orðið grænt og gott aftur. Fjallið sé þó kolsvart og jökullinn sömuleiðis.
Þetta var heimsviðburður og nauðsynlegt að gera þessu skil. Og við fjölskyldan erum mjög ánægð að taka á móti fólki sem fer frá okkur ánægt, segir Ólafur að lokum.///mikið er þetta gleðilegt að þetta skuli ganga svona vel,það er svo að með dugnaði og elju er þetta hægt og frábært að nota sér þetta til að aðrir fái að sjá hvernig gosið var i raun,þetta fólk á heiður skilið ekki spurning/Halli gamli
![]() |
Allt gott undir jökli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 14:39
Biðstaðir fyrir puttaferðalanga/als ekki svo vitlaus hugmynd,bara góð að mínu mati!!!
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 14:17

Er þetta gert á grundvelli samnings Leiðar ehf. og sveitarfélaganna tveggja og er honum ætlað að gilda í sex mánuði. Að loknum samningstímanum verður framhaldið ákveðið í ljósi þess hvernig til hefur tekist.
Það er minn draumur að þetta verði svona á stöðum úti á landi þar sem eru fátæklega almenningssamgöngur, sveitarfelögin ákveði stað sem umferð liggur um þar sem menn geta komið sér fyrir með þessum formerkjum, segir Jónas Guðmundsson, stjórnarmaður í Leið ehf. Hann segir að enn hafi ekki fengist nein viðbrögð við framtakinu, enda stutt síðan skiltin voru sett upp. Það var gert 20. apríl síðastliðin.
Jónas segist ekki eiga von á að margir muni nýta sér hina merktu staði til að byrja með en segist vona að þegar frá líður verði framtakið sem flestum til gagns.
Miðað er við að fólk sem freistar þess að fá far á merktum stöðum greiði lágt gjald hjá þeim leyfir þeim að sitja og taki þannig þátt í ferðakostnaðinum. Þessum ferðamáta er ekki ætlað að keppa við almenningssamgöngur heldur frekar að vera viðbót við þær, til dæmis þá daga eða á þeim svæðum sem þær liggja niðri eða bjóðast ekki yfir höfuð.///þetta er ekki svo vitlaus hugmynd als ekki að bara gott að gera mönnum þetta kleyft að fá far með öðrum og spara ,þetta er að sem er eitt af sparnaði nú í þessum miklu hækkunum áð eldsneyti og ber að virða á báða vegu,vonandi að þetta veri bara tekið upp víðar og skoðað sem árangur eftir nokkur tíma/Halli gamli
![]() |
Biðstaðir fyrir puttaferðalanga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 14:28
Passíusálmar víða lesnir/þetta er meistaraverk,ekki spurnig !!!!!
Innlent | mbl.is | 22.4.2011 | 13:27

Friðrik Vignir Stefánsson organisti og Monica Abendroth hörpuleikari leika tónlist í lestrarhléum. Boðið verður upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.
Lestur Passíusálmanna hófst í Guðríðarkirkju í Grafarvogi í morgun klukkan 10.00. Í Grafarvogskirkju verða Passíusálmarnir lesnir frá klukkan 13-19 og annast félagar úr Samtökunum 78 flutning sálmanna og tónlistar.
Passíusálmalestur hófst í Grindavíkurkirkju klukkan 11 í morgun og stendur til klukkan 16. Íslenskukennarar og tónlistarfólk lesa Passíusálmana og flytja tónlist í Hallgrímskirkju í Reykjavík klukkan 13-19. Sigurður Skúlason, leikari, les Passíusálmana í heild sinni á föstudaginn langa í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Sálmarnir verða einnig lesnir í Selfosskirkju frá klukkan 13 í dag. Í mörgum kirkjum eru einnig sérstakar dagskrár helgaðar atburðum föstudagsins langa fluttar í tali og tónum.
Þá lesa prestar sem tengjast Kópavogi með ýmsum hætti sálmana í Kópavogskirkju í dag frá klukkan 15-19.30. Að lestri loknum verður kirkjan myrkvuð og við tekur íhugun þagnarinnar.
Orðið passía er myndað af latneska orðinu passio, sem þýðir þjáning, að því er fram kemur á Vísindavefnum. Í textum frá 16. öld kemur orðið passía fyrir sem heiti á þjáningar- eða píslarsögu Jesú Krists. Þá átti samkvæmt helgisiðareglum að lesa alla píslarsöguna við guðsþjónustu á föstudaginn langa, segir á Vísindavefnum. /////ekki er það spurning að þessir Passíusálmar eru meistara verk samin að presti sem er nánast útskúfaður og veikur þegar hann semur þetta, Dásamlega gert og segir okkur margt sem ekki er hægt að gera betur,vonandi að allir lesi þá ekki eini sinni heldur oft/Halli gamli
![]() |
Passíusálmar víða lesnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 11:49
Föstudagurin langi kossfesting og dauði Jesús Krists á krossinum !!!!!
já á Skírdag og Sumardaginn fyrsta var ekkert sumarveður,en maður fór i Fermingu frændfólk okkar og það gaman að fermast á þessum degi þegar Jesús þvær fætur lærisveina sinna,til að sína þeim að hann var hér til að þjóna,eða það sem hann meinti að við eigum að þjóna náunganum og rækta það,síðar um daginn heilaga kvöldmáltíðin !!! svo hlustuðum við á sjónvarpstöðina INN þar sem Ingvi Hrafn var með 3 presta sem hann let segja söguna þennan dag,sem var mjög fróðlegt fyrir okkur kristna menn og konur,og ætlar að vera með þá aftur i kvöld kl 20,00 og tala Föstudaginn langa,þegar Jesús var krossfestur og dauða hans!!!Nú er maður að hluta messu i Seljakirkju og söngurinn fallegur og presti segist vel,en þetta er svona ,og maður tekur þessu vel þó þessi dagur sé sorgardagur er hann einnig hamingjudagur okkar kristinna manna,það byrtist okkur aftur á Páskadag,sem hann er upprisinn/en svona smá hugleiðing :Halla gamla/Gleðilega páska öll fjær og nær!!!!
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Íþróttir
- Kanadamaðurinn valinn bestur
- Oklahoma meistari í fyrsta sinn
- Mikið áfall eftir sex mínútur
- Frá Keflavík í Breiðablik
- Fékk rautt eftir sjö mínútur í sigri Real Madrid
- Við brugðumst Jóni Þóri
- Þurfum að fara að skora mörk
- Siggi vinur minn breyttist í Maradona
- Geggjað að spila í þessu liði
- Gaman að hafa nóg að gera