Leeds stöðvaði sigurgöngu Reading/við erum stoltir gamlir aðdáendur Leeds !!!

Leeds stöðvaði sigurgöngu Reading
Íþróttir | mbl.is | 22.4.2011 | 20:38

Kasper Schmeichel markvörður Leeds.Leeds United stöðvaði í kvöld sigurgöngu Reading í ensku 1. deildinni í knattspyrnu þegar liðin mættust á Elland Road, heimavelli Leeds. Markalaust jafntefli urðu úrslitin en fyrir leikinn í kvöld hafði Reading unnið átta leiki í röð.

Leeds er því enn ósigrað á heimavelli en liðið er eftir leikinn með 66 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Nottingham Forest er með jafnmörg í sjötta sæti. Reading er í fjórða sæti með 73 stig og heldur enn í vonina um að ná öðru sætinu en því er Norwich með 77 stig og Cardiff hefur 75. Heiðar Helguson og félagar hans í QPR eru í toppsætinu með 83 stig en liðið mætir Cardiff á morgun.

Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar Björn Gunnarsson voru í leikmannahópi Reading í kvöld. //Æi við vorum að vona ,og vonum en Leeds aðdáendur, að þeir haldi allavega 6 sæti svo þeir komist i umspil,það getur en gerst og vonandi gerist,þeir hafa verið dálitið seinheppnir og þurfa að taka sig á ef þetta á að gerast/Halli gamli


mbl.is Leeds stöðvaði sigurgöngu Reading
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045670

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband