Indverjar skutu geimflaug á loft/þeir eru orðnir háþróaðir,en eitthvað kostar þetta,og fátæktin þarna mjög mikil!!!

Indverjar skutu geimflaug á loft
Tækni & vísindi | mbl.is | 20.4.2011 | 10:02

Geimskotið gekk vel. Indverjar skutu í dag geimflaug á loft sem flutti þrjá gervihnetti á loft. Talsmaður stjórnvalda segir að geimskotið hafi gengið vel í alla staði.

Síðasta geimsskot Indverja endaði með ósköpum, en í desember sprakk geimflaug skömmu eftir að henni var skotið á loft og hrapaði hún í Bengal-flóa. Starfsmenn Geimferðastofnunar Indlands sáu því ástæðu til að fagna í dag þegar ljóst að allt hafði gengið samkvæmt áætlun.

Geimflaugin flutti þrjá gervihnetti á loft. Í fyrsta lagi Resourcesat-2 sem ætlað er að rannsaka áhrif mannsins á auðlindir jarðar. Í öðru lagi er gervihnöttur sem Indverjar og Rússar senda sameiginlega á loft, en honum er ætlað að rannsaka stjörnur og lofthjúp og þriðja lagi er gervihnöttur sem var byggður af háskólanum í Singapore.

Indverjar ætla sér að senda mannað geimfar út í geim árið 2016.////Indverjar eru háþróuð þjóð og mentuð vel að hluta ,en þarna er mikil fátækt og millistétt og ríkt fólk þeir eru að telja nú yfir milljarð ,og sennilega um helmingur fátækur og vel það,en samt er þetta afrek en kost mikla peninga,kannski væru betra að verja þeim i að minka fátæktina og svo framvegis,en það er bara svona tæknin heimtar sitt og herinn einnig/Halli gamli


mbl.is Indverjar skutu geimflaug á loft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þykjast hafa sigrað eigin grýlu/mikið sammála þessu hjá Þór Saari !!!!

Þykjast hafa sigrað eigin grýlu
Innlent | mbl | 21.4.2011 | 11:44

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.„Þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart. Þetta hefur verið notað sem grýla í öllum þessum Icesave-samningum af hálfu íslenskra stjórnvalda og annarra og hluti af hræðsluáróðrinum,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um ákvörðun matsfyrirtækisins Moody's.
í gær að lækka ekki lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að svo kynni að fara ef síðustu Icesave-samningunum yrði hafnað í þjóðaratkvæði.

Þór segir að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi reist sér risavaxnar vindmyllur til þess að berjast við í aðdraganda þjóðaratkvæðisins og láti síðan nú, að þjóðaratkvæðagreiðslunni lokinni, eins og þeir hafi sigrast á þeim. „Það eru búnar til einhverjar grýlur og svo þykist fólk hafa sigrað þær í eftirleiknum. Maður getur ekki annað en hrist hausinn yfir þessari framgöngu,“ segir Þór.

„Þess utan þá geld ég varhug við því að íslenskir stjórnmálamenn, embættismenn og fjölmiðlar taki þessi matsfyrirtæki of hátíðlega. Það er einfaldlega ekki gert lengur úti í heimi. Þau eru ekkert tekin sérstaklega hátíðlega,“ segir Þór.////// vel að orði komist þarna enda sannleikur og ekkert annað,sem Þór Saari segir þarna svona vel að það er ekki hægt betur,svo aðferðir eru ekki fallegar og segja svona að þeir hafi sigrað eitthvað sem var ekkert sem ekki hefði verið hvor eð er,eða svo sama hvort sagt var já eða nei,svona er þessu ríkisstjórn því miður/Halli gamli


mbl.is Þykjast hafa sigrað eigin grýlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Senda ómannaðar vélar til Líbíu/það er ekki hægt að horfa á þetta hlutlaust,það verður að gera eitthvað!!!

Senda ómannaðar vélar til Líbíu
Erlent | mbl.is | 21.4.2011 | 20:09

Uppreisnarmenn skjóta eldflaugum í áttina að...Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að senda mannlausar herflugvélar til Líbíu, sem munu aðstoða uppreisnarmenn í baráttunni við hersveitir Múammars Gaddafis Líbíuleiðtoga.

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, greindi frá þessu og sagði að þetta sé gert í samráði og með leyfi Barack Obama, forseta Bandaríkjanna.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur fordæmt árásir stjórnarhermanna  á óbreytta borgara, sem hún segir að séu grimmilegar. Þá segir hún fregnir af notkun hersveita Gaddafis klasasprengjum, sem beinist gegn saklausu fólki, veki hjá sér óhug///auðvitað ber að hjálpa þessu fólki þarna ,það þyðir ekki að hlusta á Rússa i þessu tilviki als ekki,þeir geta trútt um talað,sem hafa raðist´nokkur ríki án þess að spyrja kóng eð prest eins og sagt er!! en þetta er eina leiðin til að stoppa fjöldamorð Gaddafis og hans hyski ,ekki spyrðu neitt bara hjálpa til og það beint,sama kvað kver segir,Bandaríkjamen eru þarna til að hjálpa og það gott bara taka þetta strax ekki biða lengur/Halli gamli


mbl.is Senda ómannaðar vélar til Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýnir Seðlabanka harðlega/það gerum við nánast öll þetta er bara feik!!!!

Gagnrýnir Seðlabanka harðlega
Innlent | mbl.is | 21.4.2011 | 16:27

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir yfirlýsingu Seðlabankans vegna stýrivaxtaákvörðunar í gær fyrir neðan allar hellur. Þar segir meðal annars að hætta sé á frekari veikingu krónunnar og hægari hagvexti vegna niðurstöðu Icesave-atkvæðagreiðslunnar.

Bandaríska viðskiptablaðið Wall Street Journal greinir frá tilkynningu Seðlabankans í vefútgáfu sinni.

„Þetta finnst mér fyrir neðan allar hellur, að fulltrúi Seðlabankans skuli tala með þessum hætti. Yfirleitt eru seðlabankastjórar, og þeir sem tala fyrir hönd seðlabanka, alveg sérstaklega varfærnir og passa hvert einasta orð sem þeir segja, vegna þess að ummæli sem koma frá seðlabanka hafa áhrif á markaðinn,“ segir Sigmundur.

„Þrátt fyrir að enginn af spádómum þeirra hafi gengið eftir nú, frekar en áður, er nánast eins og þeir séu að reyna að fá ófaraspárnar sínar til að rætast,“ bætir hann við.  „Því auðvitað hefur það neikvæð áhrif, þegar það kemur frá Seðlabankanum.“

Tilkynningin frá Seðlabankanum var gefin út í gærmorgun, áður en lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti að lánshæfiseinkunn Íslands héldist óbreytt. Hún er nú Baa3, sem er sú lægsta sem hægt er að fá án þess að lenda í ruslflokki. Sigmundur segir þetta Seðlabankanum síður en svo til málsbóta.

„Það er í rauninni ennþá verra að þeir skuli hafa sent þetta frá sér áður en niðurstaðan var komin frá Moody's, vegna þess að í þessu eru fólgin skilaboð til Moody's og annarra lánshæfismatsfyrirtækja. Þegar Seðlabankinn telur að eðlileg afleiðing af þessari niðurstöðu sé að lánshæfismat versni, nú þá eru það mjög sterk skilaboð til lánshæfismatsfyrirtækjanna. Það er í rauninni merkilegt að þetta skuli hafa haldist uppi þrátt fyrir þetta mat hjá Seðlabankanum,“ segir Sigmundur.

Í Morgunblaðinu í dag fagnar Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, ákvörðun Moody's og því að tekist hafi að verjast því að mat íslenska ríkisins lækkaði. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur í sama streng.

Sigmundur tekur undir það að vissulega sé ákvörðun Moody's góðar fréttir. Hins vegar sé rétt að spyrja hvers vegna ráðherrar hafi ekki haldið uppi þeim vörnum, sem þeir hafa gert í kjölfar kosninganna, undanfarin tvö ár.///////þau eru ekki á sama máli Jóhanna og Steingrímur svo ánægð með þennan Bankastjóra og hans teymi að það hálfa væri nóg enda að sama lefel kommi og ekkert annað, Sigmundur og flestir sem skoða hlutina vel of sja´þessa vitleysu alla sem þarna er að gerast!!!þetta með Icesave og Moodys er dæmigert fyrir þau öll þarna ekki spurning og mikið meira sem þetta battery er að bauka sem er ekki i lagi/Halli gamli


mbl.is Gagnrýnir Seðlabanka harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12 milljarða endurgreiðsla/hvenær kemur að hinum sem tóku innlend lán í bönkum,sem hækkuðu um 30-40% við hrunið???

12 milljarða endurgreiðsla
Innlent | mbl.is | 21.4.2011 | 18:22

Mynd 487258Seðlabanki Íslands segir að áætlað sé að heimili sem hafi tekið lán sem tengd hafi verið gengi erlendra gjaldmiðla fái um 8,5 milljarða kr. endurgreidda frá lánafyrirtækjum, sem að stærstum hluta hafi komið til greiðslu í lok síðasta árs. Einnig verði sérstök vaxtanðurgreiðsla. Nemur því heildarupphæðin 12 milljörðum.

Þetta kemur fram í nýjasta hefti Peningamála SÍ.

Þar segir að fjármálaleg skilyrði heimila séu enn erfið þótt úrlausn á samningum um gengistryggð lán lækki eflaust  greiðslubyrði margra heimila, auk þess sem fjöldi þeirra hafi fengið endurgreiðslu á ofteknum greiðslum frá lánafyrirtækjum og niðurfærslu á lánum.

„Áætlað er að heimili sem tóku lán sem tengd voru gengi erlendra gjaldmiðla fái um 8,5 ma.kr. endurgreidda frá lánafyrirtækjum sem að stærstum hluta komu til greiðslu í lok síðasta árs. Einnig verður sérstök vaxtaniðurgreiðsla greidd á árunum 2011 og 2012. Fjárhæðin miðast við 0,6% af eftirstöðvum lána vegna íbúðakaupa, eins og þær eru í árslok 2010 og 2011. Vaxtaniðurgreiðslan er ekki tekjutengd en takmarkast við hreina eign viðkomandi. Gert er ráð fyrir að heildargreiðslan nemi um 12 ma.kr.“/////þetta er gott svo langt sem það nær!!! en hvenær kemur að hinum sem tóku bara lán í íslenskum peningum um sama leyti og þetta hækkaði i hruninu ein og hitt um 30-40% þetta ber að leiðrétta ekki spurning,það er svo að bankarnir eig að greiða þetta til baka til lántaka að mestu eða öllu ,við eigum þen rétt og viljum það!!!!!/Halli gamli


mbl.is 12 milljarða endurgreiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetur og sumar frusu saman í Bolungarvík og á Hæli/Gleðilegt sumar bloggvinir fjær og nær!!!

Vetur og sumar frusu saman í Bolungarvík og á Hæli
Innlent | mbl.is | 21.4.2011 | 6:16

Bolungarvík. Vetur og sumar frusu saman í byggð í nótt á að minnsta kosti tveimur stöðum á landinu, að því er lesa má út úr vef Veðurstofu Íslands.

Annars vegar hélst frost frá í gærkvöldi og fram undir morgun í dag í Bolungarvík  og hins vegar á Hæli í hreppum. Hið sama er segja um veðurstöðvar á heiðum, eins og Holtavörðuheiði og Steingrímsheiði.

Á flestum stöðvum á hálendinu frusu vetur og sumar einnig saman, svo sem á Hveravöllum, Sandbúðum og Kárahnjúkum.

Á árum áður var það talið boða gott sumar ef frysti aðfaranótt sumardagsins fyrsta.///á mynni löngu vegferð hefir maður ekki oft geta staðfest þetta, en stundum,en það er komið sumar á dagatali og ekkert sumarlegt samt, en Gleðilegt sumar öll vinir vandamenn og bloggvinir fjær og nær!!! með von um að það taki að hlyna/Kveðja /Halli gamli


mbl.is Vetur og sumar frusu saman í Bolungarvík og á Hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna gefur kost á sér áfram / það er bara svo: Guð hjálpi voru ættarlandi !!!

Jóhanna gefur kost á sér áfram
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 7:18

Jóhanna Sigurðardóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir í viðtali við páskablað DV, að ekkert fararsnið sé á henni úr pólitíkinni. Hún ætli að gefa áfram kost á sér áfram sem formaður Samfylkingarinnar í haust.

Jóhanna segist í viðtalinu geta hugsað sér að þjóðin fái að kjósa í senn um niðurstöður stjórnlagaráðs og fiskveiðistjórnunarkerfið seint á árinu.////þetta voru vondar fréttir,maður bara setur hljóðan um stund,og segir svo Guð hjálpi voru ættarlandi !!! það er og verður stríð ef kerla kemst upp með það allt sem hún ætlar að framkæma ,það er ekkert  nein smá  bylting og við látum nú ekki bjóða okkur hvað sem er ,svo lengi má brýna deygt  járn að það bíti,en það er þegar farið að gera það,við sem ekki erum vinstri sinnuð snúum okkur bara í því að koma þessu kommum burt ,þetta gengur ekki lengur að horfa uppa´að hún ætlar að koma okkur i ESB hvað sem það kostar og siðan bylta stjórnarskrá og ríkisvæða allt saman sem ESB ekki tekur og hafa af því gott,og við skítt,þetta verður að stoppa og að sem fyrst/Halli gamli


mbl.is Jóhanna gefur kost á sér áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Getum enn unnið deildina/það er nú að verða hver síðastur því miður!"!!!

Wenger: Getum enn unnið deildina
Íþróttir | mbl.is | 20.4.2011 | 21:31

Arsene Wenger og Harry Redknapp á hliðarlínunni á White...Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði eftir jafnteflið við Tottenham í kvöld, 3:3, á White Hart Lane að sitt lið væri engan veginn búið að gefa enska meistaratitilinn uppá bátinn.

„Hraðinn var gífurlegur í kvöld. Auðvitað erum við sárir yfir því að hafa misst niður 3:1 forystu en annað mark Tottenham var stórglæsilegt og svo fengum við á okkur vítaspyrnu. Hugarfar okkar manna var frábært í fyrri hálfleiknum en það dró af mönnum í seinni hálfleik, enda er erfitt að halda fullum hraða í 90 mínútur þegar svona stutt er á milli stórra leikja," sagði Wenger við BBC.

Hann var efins um að um réttan dóm hefði verið að ræða þegar mark var dæmt af Arsenal vegna rangstöðu. „Ég held að það hafi ekki verið rangstaða en ég kvarta ekki. Til hvers væri það? Mér finnst frekar ósanngjarnt þegar fólk efast um hugarfar okkar, liðið hefur ekki tapað í 15 leikjum í röð og sýnt að hugarfarið er frábært. Við munum berjast sem óðir menn í næsta leik, að sjálfsögðu getum við enn orðið meistarar, og höldum bara okkar striki," sagði Wenger enn frekar. /////Kall er bara kokhraustur en maður sjálfur ekki eins,orðin efins mjög en þetta er gott lið og það voru hinir einnig ekki spurning um það ,En Chelsea er komið upp fyrir Arsenal að stigum vann i kvöld samfærandi,þei gætu einnig unnið deildina M.U.N. er efst og á eftir að keppa við Arsenal og Chelsae og er 4 stigum ofar þeim en 5 stigum fra´Arsenal svo þetta er svona öll get unnið en samt er M.U.N líklegast að mínu áliti,en segi samt áfram Arsenal/Halli gamli


mbl.is Wenger: Getum enn unnið deildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarsveitir á vettvangi/svona er á síðasta vetrardegi,sumardagrin fyrsti á miðnætti!!!

Björgunarsveitir á vettvangi
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 21:13

Björgunarsveitarmenn eru á vettvangi. Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga aðstoðar nú ferðalanga á Holtavörðuheiði en þar er mikil hálka og mjög hvasst. Sex bílar hafa lent utan vegar og hefur einn bíll oltið. Ekki er vitað um slys á fólki. Búið er að opna heiðina.

Björgunarsveitin Heiðar frá Varmalandi er einnig á leið á heiðina sunnan frá til aðstoðar.

Slysavarnafélagið Landsbjörg segir í tilkynningu að vindur sé eitthvað að ganga niður. Skyggni á heiðinni sé ágætt. Hins vegar sé mjög hált.

Lögreglumenn frá Borgarnesi og Blönduósi eru einnig á vettvangi.

Búið er að opna Holtavörðuheiði. Að sögn lögreglu þá geta ökumenn nú ekið í norður og suður. Hún bendir á að mikil hálka sé á veginum og að umferð hafi gengið hægt.////kannski er veturinn að kveðja með þessu en ekki vist samt og það getur gert hret ennþá!! en svona er þetta síðasta vetrardag ,og svo gott að ekki varð slys á fólki en skemmdir á bilum og það náturulega ekki gott,en svona er þetta hálkan og rokið er ekkert grín,og verlega ber að fara í því tilfelli en dugar ekki alltaf/en vetur konungur lætur ekkert  af hæða ó sumarið sé að næsta leyti/Halli gamli


mbl.is Björgunarsveitir á vettvangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maí verði aðlögunartími/ þessari vitleysu á ekki að hlýða :als ekki !!!!!

Maí verði aðlögunartími
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 17:26

 Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar segir að það sé til skoðunar Sorphirða Reykjavíkur gefi borgarbúum kost á að aðlagast 15 metra reglunni í maímánuði. Tíminn verði þá notaður til að leiðbeina íbúum sem enn hafa ekki brugðist við breytingunni.

Sem kunnugt er hafa borgaryfirvöld ákveðið að frá og með 1. maí nk. verði sorpílát við heimili eingöngu sótt 15 metra frá sorpbíl. Segir í tilkynningu að borgarbúar hafi búið sig undir þessa breytingu með því að kaupa viðbótarþjónustu og sækja um að færa sorpgerðin nær götu.


„Aðstæður eru misjafnar í borginni, bæði eftir hverfum og einstökum húsum. Sorphirða Reykjavíkur vinnur nú að reglum til að geta brugðist við og metið aðstæður hverju sinni, til dæmis er til skoðunar að starfsmenn sæki tunnur lengra en 15 metra á dögum þegar sem veður eru vond,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að farið verði yfir reglurnar á næsta fundi umhverfis- og samgönguráðs þriðjudaginn 26. apríl.

Nokkrar athugasemdir hafi verið gerðar vegna þessa nýja fyrirkomulags m.a. frá Húseigendafélaginu. Unnið verði úr þessum athugasemdum í samráði við þessa aðila.// svona afturvirkri  vitleysu á ekki að hlýða ,það gengur ekki þegar byggt var var þessi reglugerð ekki og nú á bara að setja þetta i nýjar byggingar ekki eldri er viss um að þetta stendur ekki lög svo við bara hunsum það og látum á það reyna viðborgum þegar fyrir þetta ekki spurning !!!Halli gamli


mbl.is Maí verði aðlögunartími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband