Wenger: Tveir lykilmenn hjá Tottenham/þarna verður hart barist ekki spurnig!!!

Wenger: Tveir lykilmenn hjá Tottenham
Íþróttir | mbl.is | 20.4.2011 | 13:41

Rafael van der Vaart, lykilmaður hjá Tottenham. Arsene Wenger segir að Gareth Bale og Rafael van der Vaart séu lykilmennirnir á bakvið góðan árangur Tottenham í vetur. Erkifjendurnir í Norður-London mætast í úrvalsdeildinni á White Hart Lane í kvöld.

„Van der Vaart hefur fært Tottenham það sem þá vantaði á fremsta þriðjungi vallarins. Gareth Bale hefur spilað geysilega vel í allan vetur og það var ekki skrýtið að hann skyldi vera valinn knattspyrnumaður ársins," sagði Wenger á vef félagsins.

Hann sagði að sínir menn færu alls óhræddir í slaginn við nágrannana í kvöld. „Við þurfum ekki að óttast neitt. Aðalmálið er að mæta til leiks með löngunina til að spila vel og sigra. Við munum ekki bíða átekta og leyfa Tottenham að vera með boltann, við reynum sjálfir að spila og sækja. þetta er nágrannaslagur og það er mikið í húfi. Að sjálfsögðu er þetta mikil prófraun, ein af mörgum sem liðið hefur gengið í gegnum á þeim 15 árum sem ég hef verið hér," sagði Wenger.

Arsenal verður að vinna í kvöld til að halda í við Manchester United í baráttunni um enska meistaratitilinn. Tapi liðið stigum á White Hart Lane færist United enn nær sínum 19. titli.

Manchester United er með 70 stig og á fimm leiki eftir en Arsenal er með 63 stig og á sex leiki eftir. Takist Arsenal að sigra skilja fjögur stig liðin að en United á eftir að mæta bæði Arsenal og Chelsea á lokasprettinum í deildinni.

Tottenham er í 5. sætinu með 53 stig og í harðri baráttu um fjórða sætið og þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Manchester City er með 56 stig en hefur leikið einum leik meira en Tottenham, sem getur því jafnað City að stigum í kvöld.////þetta verður hörku barátta ekki spurnig og við verðum að vinna, en það er ekki á vísan að róa það er sterkt lið Tottenham sem er með góða menn og þau eru bæði að berjast um að komat i feitt annar um meisratiltil hinir um 4 sætið og meistaradeilt,en það er von mín að betra liðið vinni og það eruisennilaga mínir menn Arsenal !!!!/Halli gamli


mbl.is Wenger: Tveir lykilmenn hjá Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fabregas: Væri búið að reka Wenger á Spáni/þarna er maður ekki sammála honum blessuðum!!!

Fabregas: Væri búið að reka Wenger á Spáni
Íþróttir | mbl.is | 20.4.2011 | 8:58

Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal.Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, segir að ef Arsene Wenger væri við stjórnvölinn hjá einhverju af toppliðunum í spænsku knattspyrnunni væri löngu búið að segja honum upp störfum.

„Strax árið 2007 sagði ég að við ynnum ekki titla en spiluðum vel. Okkar vandamál er að liðið þarf að vinna titil, og þessvegna var svo mikilvægt að vinna deildabikarinn í vetur," sagði Fabregas í viðtali við spænska tímaritið Don Balon, en Arsenal tapaði úrslitaleiknum þar óvænt fyrir Birmingham, 1:2.

„Þetta er ákvörðun sem menn taka, annaðhvort leggja allt í að vinna titla, eða í að þróa og þroska leikmenn. Það er alveg ljóst að á Spáni yrðu Emery hjá Valencia, Guardiola hjá Barcelona og Mourinho hjá Real Madrid ekki lengur í starfi ef þeir ynnu ekki titil í þrjú ár.

En þetta er öðruvísi hjá okkur. Stjórinn er mjög klókur og félagið er með önnur gildi. Áherslan er lögð á að komast alltaf í Meistaradeildina, vera með í baráttunni til loka, ala upp unga leikmenn og halda fjárhagslegum stöðugleika.

Þetta telur stjórn félagsins mikilvægast, enda þótt ég geri ráð fyrir því að sú stund komi að menn verði að ákveða hvort þeir ætli að taka næsta skref, vera sigurlið eða ekki," sagði Fabregas en Arsenal hefur ekki unnið titil í sex ár.

Fabregas hefur ítrekað verið orðaður við Barcelona en hann er samningsbundinn Arsenal til 2014. „Ég talaði við Carles Puyol fyrirliða Barcelona og hann hafði ekki unnið neitt þegar hann var 26 ára gamall. Nú hefur hann unnið allt sem hægt er að vinna í fótboltanum. Þolinmæði og vinnusemi eru mikilvægustu eiginleikarnir. Ef ég yfirgef Arsenal einhvern tíma, þá fer ég aldrei í annað enskt félag" sagði Fabregas um þau mál.

Fabregas verður 24 ára í næsta mánuði en hann hefur verið í röðum Arsenal frá 16 ára aldri þegar Wenger krækti í hann frá Barcelona.///þarna er maður ekki sammal honum als ekki þetta kemur!! það er virðingarvert að ala upp góða knattspyrnumenn og spila svo skemmtilega knattspyrnu sem,þetta lið gerir hjá Wenger ,og hann er rettur maður á réttum stað,það er einmitt þetta að sem á að halda liðinu saman,það kemur að titlum ekki spurning en það á ekki að koma niður á´spilinu fallega ,Wengur ber einnig að skila gróða,og það gerir hann,ef Fabregas er óánægður á hann bara að fara,en ekki tala liðið sitt niður,Barcelona er að spila vel og svona knattspyrnu einnig en það er keypt og keyptir snillingar fyrir offjár,það skylur á milli ,en þeir vina titla það er ekki spurning næsta ár allavega!!!/Halli gamli


mbl.is Fabregas: Væri búið að reka Wenger á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætta á upplausn á vinnumarkaði/það verður að semja í öllun deilum :ekki bara á annan vegin!!!

Hætta á upplausn á vinnumarkaði
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 11:03

Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egilsson í Karphúsinu.Hætt er við því að upplausn verði á vinnumarkaðnum ef mál skýrast ekki strax eftir páska. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í leiðara fréttabréfs SA.

Vilhjálmur segir að atvinnuleiðin, sem SA hefur lagt mikla áherslu á að sé eina leiðin út úr kreppunni, strandi á ríkisstjórninni.

„Skammtímasamningur strandar á því að SA vilja að í honum felist að aðilar vinni áfram saman að atvinnuleiðinni meðan Alþýðusambandið vill að með honum sé ákveðið að hefja nýjar deilur og setja framhaldið á vinnumarkaðnum í enn meiri óvissu. Merkilegt er að hvorki í viðræðum um atvinnuleiðina né um skammtímasamkomulag strandaði svo teljandi væri á launatölum.

Tíminn frá því hlé varð á viðræðum hefur verið notaður til þess að vinna að málum sem þarf að ljúka milli Samtaka atvinnulífsins og ASÍ en örfá slík mál voru enn ófrágengin. Mikilvægt er að ljúka þessum málum vegna þess að atburðarásin gæti orðið mjög hröð ef hreyfing kemst á samningamálin á annað borð strax eftir páska.

Þau mál sem út af stóðu við ríkisstjórnina voru auk sjávarútvegsins, atriði sem snúa að fjárfestingum í orkuframleiðslu og samgöngum og þá var ófrágengið hvernig ríkið stæði að lífeyrismálum. Því miður hefur ríkisstjórnin ekki fengist til að ræða sjávarútvegsmál efnislega við Samtök atvinnulífsins og samtökin í sjávarútvegnum (LÍÚ/SF).  Blasir þó við að þau þarf að leysa með sátt eins og önnur mál. 

SA hefur verið legið á hálsi fyrir að taka sjávarútvegsmálin upp í tengslum við kjaraviðræður. Ástæða þess að það er gert er einföld. Sú óvissa sem ríkisstjórnin hefur skapað í  sjávarútvegi hefur valdið atvinnugreininni og öllum öðrum sem þjónusta hana miklu tjóni. Einungis minniháttar ákvarðanir eru teknar um fjárfestingar og stórar ákvarðanir um reksturinn eru látnar bíða. Á meðan búa þjónustuaðilar við verkefnaskort og framtíð sjávarbyggða er í ákveðnu uppnámi. Þessu ástandi verður að linna.

Samtök atvinnulífsins og samtök sjávarútvegsins hafa lagt áherslu á að sátt væri nauðsynleg og í stöðugleikasáttmálanum frá júní 2009 var samstaða um að sátt þyrfti að nást og það var ítrekað í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í október 2009. Ríkisstjórnin valdi síðan að taka málið úr sáttafarvegi eftir að endurskoðunarnefndin sem fjallaði um framtíð fiskveiðistjórnunarkerfisins skilaði niðurstöðu, en þar náðist víðtækt samkomulag um svokallaða samningaleið.

Ríkisstjórninni verður að auðnast að ná sátt í málinu. Engin ríkisstjórn hefur verið jafn nálægt víðtækri sátt um sjávarútvegsmál og því væri bagalegt ef það mistækist.  Samtök atvinnulífsins og LÍÚ/SF hafa lagt fram ákveðnar tillögur sem allar eru umsemjanlegar ef það mætti verða til þess að hreyfa málið.  Ennþá hefur ríkisstjórnin ekki viljað stíga fram og taka í útrétta sáttahönd samtakanna. En sáttahönd SA og LÍÚ/SF er áfram útrétt og vonandi sér ríkisstjórnin að það er hvorki í þágu sjávarútvegsins né þjóðarinnar að hafa málin í núverandi stöðu.

Hætt er við því að upplausn verði á vinnumarkaðnum ef mál skýrast ekki strax eftir páska. Launafólk bíður óþreyjufullt  eftir niðurstöðu og sama gildir um atvinnulífið.  Fyrirtækin í landinu tapa stórlega á óvissu og kyrrstöðu  í fjárfestingum. Klukkan gengur ekki síður á atvinnulífið en starfsfólkið. Allir tapa.

Besta leiðin er atvinnuleiðin. Á henni græða allir. Með stórauknum fjárfestingum skapast ný störf í bráð og lengd, atvinnuleysi minnkar og tekjur fólks og fyrirtækja aukast. Samtök atvinnulífsins vilja berjast til þrautar fyrir atvinnuleiðinni,“ segir Vilhjálmur. ///við Vilhjálmur erum sko ekki allaf sammála öðru nær,en núna erum við það ,og það er ekkert annað að gera en að semja um hlutina ekki bara á annan vegin, beggja megin verðu að koma sátt,semja um að vera sammála um um það sem var á borðinu í samningum um sjáfarútveg kannski laga meira ,svo og semja um laun til 3 ára, ef  Framkvæmdir og atvinna verður sett á oddinn,það er stærsti samningurinn að allir hafi vinnu og svo hækka lágmarkslaun í 200 þus mynnst á árinu í áföngum 50 þus eingreiðslu og svo hækkun á tímabilinu um 10-15% til 3 ára,þetta mundi fólk sættast við meðan við komust upp úr þessari kreppu/en það er von ennþá að menn hugsi sig um nú um Páska og komi til samninga eftir það/Halli gamli


mbl.is Hætta á upplausn á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir að stríðið muni dragast á langinn/eigum við að horfa á kallin brytja niður landa sýna???

Segir að stríðið muni dragast á langinn
Erlent | mbl.is | 20.4.2011 | 11:48

Líbískur uppreisnarmaður.Utanríkisráðherra Líbíu segir að fyrirætlarnir Breta um að senda herforingja til Líbíu, í þeim tilgangi að veita uppreisnarmönnum þar ráð í baráttunni við hersveitir Múammars Gaddafis, muni draga úr líkunum á því að friður komist á í landinu.

Ráðherrann Abdul Ati al-Obeidi segir í samtali við breska ríkisútvarpið að vera bresku herforingjanna í Benghazi, sem er höfuðvígi uppreisnarmanna, muni leiða til þess að átökin í Líbíu muni dragast á langinn.

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, segir að ákvörðun breskra stjórnvalda sé í samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem gangi út á það að vernda óbreytta borgara í landinu. Hún bannar jafnframt að erlend ríki sendi innrásarheri inn í Líbíu.

Breska ríkisútvarpið segir að 10 breskir herforingjar og svipaður fjöldi frá Frakklandi verði sendir til Líbíu. Herforingjunum er ætlað þjálfa uppreisnarmennina í því að afla sér upplýsinga og skipuleggja sig.////hvap er til ráða á umheimurinn að líða að kallin fái óá reittur að brytja niður landa sýna án þess að bjarga þeim,þetta er stór spurning sem verður að svara,maður er personuleg á móti því að hann komist upp það !!!!þetta og raun eru það allir !!!en  það er þá heitt undirmörgum einræðisherrunum þarna i þessum ríkjum sem upp komast með að hafa ekki lýðræði og fa´það ekki nema með byltingu,menni finnst að viðsem teljum þetta ekki lyðandi séum i minnihluta ,eða hvað er að þegar ríki eftir ríki styður kallin til þessa r drápa Rússar Kínverjar og fleiri/það er svo að .þessu er ekki lokið fyrr en tekið er á hlutunum og farið þarna inn með her og vopn og kallin settur af!!!!/Halli gamli


mbl.is Segir að stríðið muni dragast á langinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættir sem forseti borgarstjórnar/þó fyrr hefði verið !!!!,það er ekki hægt að starfa með þessi liði þarna!!!!

Hættir sem forseti borgarstjórnar
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 12:03

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í... Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sagt af sér sem forseti borgarstjórnar. Það gerir hún vegna vinnubragða meirihluta borgarstjórnar við afgreiðslu tillagna um sameiningu skóla. Sóley Tómasdóttir hefur einnig sagt af sér embætti varaforseta borgarstjórnar af sömu ástæðu.

Hanna Birna var kosin forseti borgarstjórnar á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar á síðasta ári, en hún hafði í kosningabaráttunni talað fyrir auknum samstarfi í borgarstjórn.

„Við teljum að þessi atburðarrás í kringum ákvörðunina sem tekin var hér í gærkvöldi staðfesti að þetta sé fullreynt,“ sagði Hanna Birna í samtali við mbl.is og vísaði þar til ákvörðunar meirihlutans um að sameina skóla.

„Við erum þeirrar skoðunar að þeir hafi farið gegn öllu því sem við sömdum um að gera og öllum þeim vinnubrögðum sem við ætluðum að reyna að innleiða. Við teljum að þetta sé komið á endastöð. Við getum ekki sætt okkur við að ekkert hafi verið gert með allar þessar athugasemdir sem bárust og nýtt tækifæri til að gefa íbúum tækifæri til aðkomu að málinu.“

 

  • Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í borgarstjórn.

    Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í borgarstjórn.

 

Yfirlýsing Hönnu Birnu

Undirrituð Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur ákveðið að hætta sem forseti borgarstjórnar og formlega óskað eftir því að kosinn verði nýr forseti á næsta borgarstjórnarfundi. Undirrituð Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna hefur sömuleiðis ákveðið að hætta sem 1. varaforseti borgarstjórnar.

Þegar ný borgarstjórn tók við í júní 2010, varð það að samkomulagi milli allra flokka að halda áfram að innleiða ný vinnubrögð og aukið samstarf í samræmi við yfirlýsingu allrar borgarstjórnar þar sem sagði:

,,Vilji er fyrir því hjá nýkjörinni borgarstjórn að auka samvinnu milli flokka og nýta krafta allra borgarfulltrúa í samræmi við vinnubrögð fráfarandi borgarstjórnar.“

Liður í þessu samkomulagi var að við oddvitar minnihlutans tókum að okkur embætti forseta borgarstjórnar og 1. varaforseta, enda væri það táknrænt um áframhaldandi samstarf meirihluta og minnihluta. Allt frá því að nýr meirihluti tók við hafa fulltrúar minnihlutans lagt sig fram um að standa við umrætt samkomulag. Það hefur verð gert með því að flytja tillögur um aðgerðir og lausnir vegna brýnna hagsmunamála borgarbúa en einnig með tillögum um að kalla að borðinu starfsfólk, fagaðila og íbúa til samráðs. Eins og ítrekað hefur komið fram hefur þessi viðleitni minnihlutans þó litlum árangri skilað og meirihlutinn tekið allar stórar ákvarðanir án raunverulegs samráðs.

Það er mat borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna að með atkvæðagreiðslunni í gærkvöldi um miklar breytingar á þjónustu við börn í skólum borgarinnar sé það fullreynt að til staðar sé nokkur raunverulegur vilji hjá meirihlutanum til að ástunda betri vinnubrögð og auka aðkomu íbúa að lykilákvörðunum.

Með því að þvinga þessar breytingar í gegn í andstöðu við 12.000 íbúa og rúmlega 90% umsagna foreldra og hagsmunaaðila, er með einhliða valdboði gengið svo langt gegn vilja borgarbúa og fyrrgreindu samkomulagi borgarstjórnar að algjör trúnaðarbrestur hefur orðið milli borgarstjórnar og borgarbúa.

Það eru mikil vonbrigði að meirihlutinn hafi ekki hugrekki til þess að virkja þátttöku íbúa og starfsfólks, auka samvinnu minni- og meirihluta og innleiða þannig ný og betri stjórnmál.///þetta vara nærri vitað mál og erum við sem styðjum hana hissa hvað hún hefur þraukað,að starfa með þessu liði  er ekki fyrir neinn sem er í lagi als ekki ,þetta er manneskja sem vill samvinnu en það er engin samvinna allt á einn veg að vera á móti okkur Borgurunum og ger allt okkur til bölvunar!!!! það er allavega mín skoðun og fleiri,það er komið að þolmörkum hjá okkur öllum og við verðum að gera bara uppreisn gegn þessari vitleysu allri ekki spurning/Halli gamli
 


mbl.is Hættir sem forseti borgarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varað við ótryggum snjóalögum/það er margt sem ber að varast !!!!

Varað við ótryggum snjóalögum
Innlent | mbl.is | 20.4.2011 | 11:52

Fólk er hvatt til þess að gæta fyllstu varúðar.Veðurstofa Íslands segir að vegna snjóflóða sem fallið hafi, m.a. af mannavöldum síðustu daga og ótryggra snjóalaga á N-Vestfjörðum, sé þeim tilmælum beint til skíðafólks, vélsleðamanna og annarra, sem séu á ferð um fjalllendi, að gæta varúðar. Sér í lagi þar sem nýr snjór hafi safnast fyrir. /////það er margt sem ber að varst ekki annað en að fara varlega og skoða hlutina vel,það er það sem varað er við sjór er hættulegur!!! eins og skíðamenn dásama hann,en við gamlingjar fáir gerum það,en það erum bara við!!!/Halli gamli 


mbl.is Varað við ótryggum snjóalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Stjórnsýslulegt níðingsverk“/það er engu á þennan Borgarstjórnar meirihluta logið ,þetta er ekki verjandi á neinn hátt!!!!

Stjórnsýslulegt níðingsverk“
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 23:16

Úr borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. „Með samþykkt þessara sameiningartillagna í borgarstjórn í dag er Samfylkingin og Besti flokkurinn að fremja stjórnsýslulegt níðingsverk sem mun fyrst og síðast koma niður á líðan og velferð barnanna í borginni," segir í tilkynningu frá regnhlífarsamtökunum Börn.is.

Borgarstjórn samþykkti í kvöld sameiningartillögur á leik- og grunnskólum, og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar og tillögu um að leita leiða til frekari niðurskurðar í menntakerfinu árið 2012. Einnig var samþykkt sameining leikskólasviðs, menntasviðs og tómstundamála ÍTR.

Börn.is segja tillögurnar byggja á „hæpnum, illa ígrunduðum og illa rökstuddum forsendum sem munu stefna öllu skóla og tómstundastarfi í borginni í uppnám."

Furða samtökin sig á því að meirihluti borgarstjórnar hafi farið gegn öllum helstu hagsmunaaðilum og virði að vettugi álit foreldra og fagaðila í þessu máli. Þá benda samtökin á að á örfáum dögum skrifuðu um 12 þúsund manns undir mótmæli gegn þessum sameiningar- og hagræðingartillögum og afhentu borgarstjóra undirskriftirnar og lýstu yfir vilja til viðræðna en borgarstjóri hafi greinilega ekki heyrt það.

„Þrátt fyrir þessa ömurlegu niðurstöðu í dag munu regnhlífarsamtökin Börn.is halda baráttunni áfram af fullum krafti og eldmóði. Hægt er að fylgjast með baráttunni á börn.is og á Facebooksíðu samtakanna," segir í tilkynningu samtakanna.////Ég er ekki að hvetja til lögbrota en nú mun maður gera það ekki spurning það er ekki hægt að una við þetta ofbeldi lengur og það mun skoðað hjá hverjum og einum kvenær nóg er komið !!! þetta er ekki okkur bjóðandi að láta fara svona með börnin okkar,sínum þeim i tvo heima þessu Kommum/Halli gamli


mbl.is „Stjórnsýslulegt níðingsverk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmagn fór af vegna slyss/svona er þetta ,það er betra að fara varlegar!!!

Rafmagn fór af vegna slyss
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 21:22

Frá vettvangi óhappsins í Mývatnssveit í dag, sem varð til... Rafmagnslaust varð í Mývatnssveit á sjötta tímanum síðdegis í dag þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni. Ók hann á og braut raflínustaur sem þó stendur eina tíu metra frá þjóðveginum.

Ekki munu hafa orðið slys á fólki en bíllinn er töluvert skemmdur, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins í Mývatnssveit. Starfsmenn Rarik brugðu skjótt við, styttu staurinn og komu rafmagni á aftur innan þriggja klukkustunda.

Á svæðinu sem missti rafmagn um kl 17:45 eru minnst þrjú hótel og ekki færri en sex matsölustaðir í rekstri.///þetta er ekki gott að svona verði það er eins gott að fara varlegar ekki spurning um það,en maður veit náttúrlega ekki hvað skeð en þetta er nokkur löng útafkeyrsla,rafmagnið fer á versta tíma þarna fyrir hótelin og alla/Halli gamli


mbl.is Rafmagn fór af vegna slyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Newcastle náði stigi gegn United/þetta setur aftur spennu í þetta fyrir Arsenal !!!

náði stigi gegn United
Íþróttir | mbl.is | 19.4.2011 | 20:42

Javier Hernandez aðgangsharður upp við mark Newcastle enTim...Manchester United er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Newcastle á St.James' Park í dag. Baráttuglaðir leikmenn Newcastle gerðu toppliðinu lífið leitt og eftir úrslitin eygir Arsenal von en liðið getur minnkað forskot United niður í fjögur stig á morgun takist liðinu að vinna granna sína í Tottenham.///þetta bara gaman og setur spennu i leikina sem eftir eru Arsenal getur náð þessu niður í  4 stiga forustu með því að vinna næsta leik við Tottenham og svo bara vona að við vinum alla leikina sem eftir eru og M.U.N. tapi einum og geri eitt jafntefli þá erum við hólpnir,en svona á maður ekki að segja M.U.N er feikilega sterk lið og ekki auð unnið,og sennliega verður meistari!!!/Halli gamli  


mbl.is Newcastle náði stigi gegn United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæð afkoma í Reykjanesbæ/þetta eru góðar fréttir,og ef kemst á koppinn sem rágert er þarna ,eru þeir hólpnir !!!!

Jákvæð afkoma í Reykjanesbæ
Innlent | mbl.is | 19.4.2011 | 19:45

Frá Reykjanesbæ. Bæjarsjóður Reykjanesbæjar skilaði 639,7 milljón króna rekstrarhagnaði árið 2010, samkvæmt ársreikningi bæjarins sem lagður var fram í bæjarstjórn í dag. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæð um tæpar 351 milljónir króna.

Samstæða Reykjanesbæjar, sem telur auk bæjarsjóðs aðrar stofnanir bæjarins, s.s. HS veitur, Reykjaneshöfn og félagslegar húseignir, er hagstæð um 322,5 milljónir króna, segir á vef sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir og fjármangsliði (EBITDA) er jákvæð um 2,1 milljarð króna eða 17,8%.

Rekstrartekjur Reykjanesbæjar námu alls 11,8 milljörðum. Þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs um 7,2 milljörðum króna.
 

43 milljarða skuldir

Heildareignir Reykjanesbæjar námu um 52,1 milljörðum kr. í árslok 2010. Heildarskuldir Reykjanesbæjar námu um 43,4 milljörðum kr. en þar með eru taldar m.a. skuldir HS veitna og framreiknaður leigukostnaður til næstu 25 ára. Í lok árs 2010 mældist eiginfjárhlutfall samstæðu 16,79% en bæjarsjóðs 19,07%.

„Verkefnið framundan er að styrkja lausafjárstöðu og eigið fé sveitarfélagsins. Um 19 milljarða króna peningalegar eignir bæjarins, utan lögbundinna verkefna sveitarfélaga, geta styrkt lausafjárstöðu og lækkað skuldir verulega. Aðgerðir á þessu ári (2011) munu styrkja eiginfjárstöðu Reykjanesbæjar umtalsvert.

Raunhæfustu leiðirnar til styrkingar á fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar eru virkjun þeirra mörgu atvinnutækifæra sem bærinn hefur barist fyrir undanfarin ár," segir á vef Reykjanesbæjar./////þetta er gott ef rétt reynist,sem það  er og ef allt kemst a´koppinn sem er i farvatni þarna og ráðgert eru eir hólpnir ekki spurning svo er bara að koma því áfarm öllu ,það er´búið að spá svo illa fyrir þessu öllu og skitið út i tíma og ótíma og einnig Bæjarstjórann Árna sérstaklega vegna þessa einnig að þarna er meirihluti sjálfstæðismenn sem eru lagðir i einelti nú af vinstra fólki alla daga eins og við vitum sem verðum þessa varir daglega,þeir bara fatta ekki að þetta er um 40% þjóðarinnar/Halli gamli


mbl.is Jákvæð afkoma í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband